Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 26. NÖVEMBER 1986.
Stjómmál
Við afsölum okkur engu
úr gildandi samningum
- segja Ásmundur Stefánsson og Bjöm Bjömsson hjá ASÍ
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, sagði í samtali við DV að
VSÍ væri tilbúið að bæta laun þeirra
lægst launuðu verulega 1. desember
nk. gegn því að þær launabætur færu
ekki yfir á hærri taxtana, að launa-
skriðið yrði ekki bætt, eins og hann
orðaði það. Þeir Bjöm Bjömsson, hag-
fræðingur ASÍ og Ásmundur Stefáns-
son, forseti sambandsins, vom spurðir
hvort þeir gætu samþykkt þessa hug-
mynd Þórarins.
„Ég held að það sé óraunhæft að
ætla að það sem fólst í síðustu kjara-
samningum gangi ekki fram,“ sagði
Bjöm. Hann var þá spurður hvort
verkalýðshreyfingunni yrði ekki stillt
upp við vegg og sagt að hún vilji ekki
bæta hag hinna lægst launuðu?
„Ég fæ ekki betur séð en að þetta
tvennt sé aðskilið og þótt við höfum
frestað fundi launabótanefndarinnar
þá var það gert að ósk VSÍ og þar sem
það breytir engu varðandi kaup-
greiðslur nú um mánaðamótin féll-
umst við á frestun," sagði Bjöm
Bjömsson.
„Við firestuðum ekki fúndi launa-
bótanefridarinnar til þess að afsala
okkur einhverju sem núgildandi
samningar gera ráð fyrir, það er alveg
ljóst. En við töldum rétt að fresta
fundinum vegna þess að við teljum
mikilvægt að það sé samstaða um það
launabótakerfi sem við höfum byggt
upp eins og verið hefur á þessu ári.
Eins skiptir frestunin ekki máli varð-
andi útborgun launa, bætur koma ekki
á laun fyrr en vika er hðin af desem-
ber,“ sagði Ásmundur Stefiánsson og
minnti á að ASÍ væri með oddaat-
kvæðið nú.
„Ég vil einnig taka fram,“ sagði
Ásmundur, „að þeir sem em á lægstu
töxtum verða fa miklu meiri launa-
hækkun en verið er að tala um
varðandi launabætur nú, jafiivel þótt
þeir fái 6%-8%, það er alveg ljóst. Það
sem við erum að fara fram á er sérstök
hækkun til þeirra lægst launuðu, þeir
þurfa að hækka meira en aðrir. Eitt
af því sem þarf að gera er að finna
aðferð til þess að sú sérstaka hækkun
haldist. Ég vil einnig minna á að
hækkun á hærri taxtana þarf ekki að
þýða kauphækkun, það fer eftir sam-
hengi milli kauptaxta og þess kaups
sem raunverulega er greitt út. Allt
þetta þarf að skoða og auðvitað er það
ekki tryggt að samningar náist á einni
viku en við vildum láta á það reyna
hvort það væri hægt,“ sagði Ásmund-
ur Stefánsson.
-S.dór
Ásmundur Stefánsson: Afsölum okkur engu af þvi sem samið var um. DV-mynd Kristján Ari
Samningaviðræður ASÍ/VSÍ:
Farið yfir sviðið
Samningaviðræður ASÍ og VSÍ/
VMS hófúst í gær og var mönnum
skipað í nelhdir til að ræða hin
ýmsu mál samninganna. í efnahags-
nefiidinni, þar sem stórmeistaramir
Ásmundur Stefánsson, Guðmundur
J„ Þórarinn V. Þórarinsson og Vil-
hjálmur Egilsson sitja, var verið að
fara yfir sviðið eins og menn orðuðu
það.
Reynt var að spá í hvemig þróun
gengismála yrði og þar af leiðandi
verðlagsþróun og annað sem við-
kemur eínahagsmálunum. Hinar
eiginlegu samningaviðræður með
tilboðum yfir borðið voru ekki hafo-
ar í gær, að því er Guðmundur J.
Guðmundsson sagði.
Guðmundur sagði þessi mál svo
yfirgripsmikil að um þau öll yrði
ekki samið á einni viku. Hann sagði
eflaust hægt að semja um eitthvað
afinarkað, svo sem bætur til hinna
lægst launuðu, en sagðist ekki bjart-
sýnn á heildarsamkomulag á þessum
tíma.
Síðdegis í gær hófst fúndur hjá
svokallaðri bónusnefiid en henni cr
ætlað að finna leiðir til að færa
bónuskerfið og aðra kaupauka nær
hinum skráða launataxta. Þar er
mikil vinna framundan og tíðinda
varla að vænta frá henni fyrr en líð-
ur á vikuna.
-S.dór
Olympíuskákmótið í Dubai:
Island mjakast nær toppnum
Það fór ekki eins og margir höfðu
vonað að Jóhann Hjartarson ynni
skjótan sigur á Pólveijanum Sznap-
ik í biðskák þeirra úr 10. umferð.
Vinningurinn reyndist torsóttur og
fór skákin enn á ný í bið í gærmorg-
un. Verður ekki séð að Jóhanni hafi
orðið neitt ágengt og verður hann
trúlega að sættast á jafntefli.
Svo virðist sem sviptingamar um
helgina sitji enn í íslensku piltunum
og þeim hefur ekki enn tekist að ná
upp sömu stemmningu og fyrir hina
örlagaríku viðureign við Englend-
inga. Leikurinn við Kúbu í gær var
ákaflegá tvísýnn. Andstæðingar
okkar eru í 11.-12. sæti í styrkleika-
röðinni og því engin lömb að leika
sér við. Sveitin er skipuð fjórum
stórmeisturum.
Úrslit urðu þessi:
Nogueiras-Helgi biðskák
Rodriguez-Jón L. 1/2—1/2
Silvino-Garcia-Margeir 1/2—1/2
Vera-Guðmundur 1/2—1/2
Skákimar einkenndust allar af
gætinni taflmennsku enda taktíkin
sú hjá íslensku sveitinni að halda
a.m.k. jöfiiu og tryggja stöðuna áður
en lokaslagurinn hefet á morgun en
í dag taka skákmennimir sér frí. Jón
L. og Guðmundur stýrðu hvítu
mönnunum en tókst ekki að gera sér
mat úr því og sættust báðir á jafii-
tefli þegar andstæðingar þeirra
höfðu jafnað taflið í stað þess að
fara út í áhættusamar vinningstil-
raunir. Margeir hafði svart á 3. borði
og var dagsskipunin traust tafl-
mennska. Hann beitti slavneskri
vöm og náði jöfiiu án teljandi erfið-
leika. Nokkuð óvænt var það Helgi
Ólafeson sem einn okkar manna
náði betri stöðu upp úr byijuninni.
Hann brá út af vana sínum og beitti
Grúnfeld-vöm sem ekki hefur farið
mikið fyrir í vopnabúri hans til
þessa. Ég minnist þess ekki að hafa
sér hann beita henni í alvarlegri
skák hin seinni ár. Hann hefúr þó
greinilega verið búinn að rannsaka
hana vel fyrir mótið, virtist betur
heima í byijuninni en Kúbumaður-
inn og á góðar sigurlíkur í biðstöð-
unni.
Hvítur á leik og er greinilega í
miklum vanda. Ekki einasta að peð-
in á h4 og b4 séu veik heldur verður
hann sífellt að vera á verði gagnvart
máthótuninni Be7-d8-b6. Svartur
hótar þessu reyndar í stöðunni. Eina
von hvfts er bundin vð frelsingjann
á e5 en sú von er veik. Tveir leikir
koma til greina í stöðunni:
A. 1. Bel+ og þá gæti framhaldið
verið 1- Kc6 2. e6 Bf6! og nú dugir
ekki 2. Hal vegna Kd5 og eftir 3.
He7 ætti 3 - c3 að vinna.
Skák
Áskell Öm Kárason
B. 1. Bc3+ Kc6 2. e6 Bxh4 3. Be5
Bf2+ og vinnur. Hvítur getur auð-
vitað reynt að halda sér fast en
ótrúlegt að það dugi til lengdar.
Raunar em fáir Helga snjallari hvað
hina tæknilegu úrvinnslu varðar og
engar líkur á að honum fipist í þessu
tafli. Sigur yfir sterkri kúbanskri
sveit verður að teljast harla gott.
Óvænt stórtap Englendinga
Það sannaðist í gær hið fom-
kveðna að allt getur gersí í skák.'
Óvæntustu úrslit mótsins litu dags-
ins ljós á efsta borði. Gegn spánskri
miðlungssveit, án stórmeistara,
guldu Englendingar algert afhroð,
fengu aðeins hálfan vinning úr fjór-
um skákum. Er engu líkara en
velgengni undanfarinna daga hafi
stigið þeim til höfuðs og hugsunin
um sigur á mótinu truflað einbeit-
inguna. Vafalaust mesta „sensasjón-
in“ á mótinu til þessa. Við þetta
glutruðu enskir niður góðu forskoti
sínu og era nú komnir í 2.-3. sætið.
Mótið er því „galopið" á ný og allt
getur gerst þótt óneitanlega hljóti
maður að hallast að sovéskum sigri
eftir þetta.
Helstu úrslit önnur:
Bandaríkin-Argentína 2,5-1,5,
Ungverjaland-V-Þýskalands 3-1,
Sovétríkin-Rúmenía 2-1 + bið,
Júgóslavía-Frakkland 3-1, Tékkó-
slóvakía-Ástralía 2,5-1,5, Kína-
Indónesía 2,5-1,5.
Staða efetu sveita er þá þessi: 1.
Bandaríkin 27,5 + biðskák
2.-3. England, Spánn 27
4.-5. Sovétríkin, Ungveijaland 26,5
+ biðskák
6.-9. Argentína, Júgóslavía, Kína,
Tékkóslóvakía 24,5
10. Búlgaría 24 + 2 biðskákir
11. Rúmenía 24 + biðskák
12. Vestur-Þýskaland 24
13. Chile 23,5 + 2 biðskákir
14. -15. Indónesía, Ástralía 23,5.
17. ísland 23 + 2 biðskákir.
Helgi Ólafsson á góðar sigurlíkur.
Fáum við 1,5 vinning úr biðskák-
unum, eins og að líkum lætur, ætti
sveitin að komast a.m.k. í 8.-11.
sæti fyrir 11. umferð, sem tefld verð-
ur á morgun, föstudag. Það er
einmitt réttur staður til að hefja
endasprettinn en mótið er alls 14
umferðir.
Nú er að hefjast þing Alþjóðaskák-
sambandsins (FIDE) i Dubai.
Campomanes mun bjóða sig fram til
endurkjörs sem forseti en á móti
honum fer brasilíski lögfræðingur-
inn Lucena. Ganga þeir nú um sali
og hlæja við hverjum sem er, heilsa
kurteislega og viðhafa fagurgala líkt
og prófkjörskandídatar gera hér á
Fróni. Fátt þykir þó benda til þess
að Campo verði felldur úr embætti
enda herma nýjustu fregnir að hann
hafi tryggt sér stuðning sovéska
skáksambándsins, Kasparov til mik-
illar gremju. Mun Campo þurfa að
gangast undir ströng skilyrði til að
hljóta stuðning Rússa.
Eins og áður hefur komið fram
fengu allmargar sveitir fría ferð frá
heimalöndum sínum til mótsstaðar
að undirlagi Campomanesar. Vildi
hann með þessu tryggja sér enn frek-
ar stuðning fátækra aðildarsam-
banda í þriðja heiminum. Þegar
fréttist af þessu kostaboði fyrir mótið
kannaði Skáksamband Islands
möguleika á því að fá frítt far en
svarið kom um hæl: „Því miður,
þetta gildir einungis fyrir vanþróað-
ar þjóðir og fatækar". Nú hefur hins
vegar komið á daginn að ýmsir hafa
notið styrksins sem ekki teljast
vanalega til vanþróaðra þjóða, eins
og t.d. Spánveijar og Italir. Þeir
hafa það hins vegar „fram yfir“ okk-
ur íslendinga að hafa lofað Campo
liðsinni sínu í forsetakjörinu. Hefúr
mál þetta allt vakið hina mestu
gremju og hneykslan í Dubai en
virðist þó ekki nægja til að fella for-
setann.