Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
3
Fréttír
Fjárveitinganefnd Alþingis:
Tók á móti fulltrúum
56 aðila á einum degi
r IAMC Jeep
F// A T
„Það er afar mikil og þung vinnu-
lota framundan og það er út af fyrir
sig ekkert nýtt. Þannig vill það ganga
í þessu starfi,“ sagði Pálmi Jónsson,
formaður f]árveitinganefndar Alþing-
is, er DV ræddi við hann í gær um
störf valdamestu þingnefhdarinnar.
Með Pálma í fjárveitinganefhd sitja
Guðmundur Bjamason, Ámi Johnsen,
Geir Gunnarsson, Egill Jónsson, Kar-
vel Pálmason, Þórarinn Siguijónsson,
Friðjón Þórðarson og Kristín Halld-
órsdóttir.
„Fjárveitinganefhd hóf störf áður en
þing kom saman, í fyrstu viku október-
mánaðar, og bauð þá til viðtals fulltrú-
um sveitarfélaga. í þeirri lotu tók
nefhdin á móti fulltrúum 50-60 sveitar-
félaga í landinu.
Þetta telur nefhdin nauðsynlegt til
þess að grynna á þessum þætti í starfi
nefhdarinnar, sem er ákaflega tíma-
frekur, það er að segja viðtöl við ýmsa
aðila. Reynslan sýnir að starf nefhdar-
innar er það viðamikið að það er
nauðsynlegt að nota tímann vel.“
Nefndin tviskipt til að drýgja
tímann
„Til þess að drýgja tímann skiptum
við nefiidinni í tvo hópa þegar við
tökum á móti fulltrúum ýmissa félaga-
samtaka eða smærri aðila. Það er
slíkur fjöldi að við skiptum verkum.
Við tókum þannig á móti fulltrúum frá
56 aðilum á einum degi nú fyrir
nokkru.
Ennfremur skiptum við nokkuð
verkum innan nefndarinnar við það
að undirbúa afgreiðslu á tilteknum
málaflokkum.
Alls hafa komið til nefhdarinnar til
þessa fulltrúar frá 220 til 230 aðilum.
Þessir aðilar eru að bera upp við
nefndina hin margvíslegustu erindi.
Yfirleitt eru þau í þá átt að fara fram
á hækkun útgjalda á fjárlögum.“
Meira en 550 óskir borist
„Nefhdin hefur til þessa dags tekið
við 550 til 560 bókuðum erindum, sem
yfirleitt eru líka því marki brennd að
þar eru bomar fram óskir um aukin
útgjöld fjárlagafrumvarpsins.
Þó em þar einnig mörg erindi frá
sveitarfélögum þar sem farið er fram
á fjármagn til opinberra framkvæmda.
Má segja að þar séu sveitarfélögin að
fara fram á sinn hlut úr óskiptum fjár-
festingarliðum frumvarpsins.
Þessar sameiginlegu óskir sveitarfé-
laganna em langtum hærri heldur en
gert er ráð fyrir að fé verði veitt til
hinna einstöku fjárfestingarliða, svo
sem hafha, skóla, heilbrigðismann-
virkja og svo framvegis.
Nefndin er nú stödd í þessari vinnu
sinni að þessum viðtölum er senn lok-
ið. Við eigum þó eftir að kalla til okkar
nokkrar stofnanir, sem við biðjum
gjaman um tillögur um skiptingu fjár-
festingarliða.
Við eigum einnig eftir að kalla til
okkar B-hluta stofnanir, en við af-
greiðum oft B-hluta stofnanir og
tillögur varðandi þær við þriðju um-
ræðu.“
Hin eiginlega fjárlagavinna
nefndarinnar að hefjast
„Segja má að þegar þessum viðtölum
er nú senn lokið sé hin eiginlega vinna
við fjárlagagerðina af hálfú nefhdar-
innar að hefjast. Þá forum við að vinna
úr öllum þeim umsóknum sem okkur
hafa borist og afgreiða þær.
Fjárveitinganefnd stendur í mjög
erfiðri aðstöðu núna vegna þess að
fjárlagafrumvarpið er með alvarlegum
halla. Frumvarpið er að ýmsu leyti
betur gert en oft áður. Rekstrar- og
launaliðir frumvcupsins eru býsna
raunhæfir og raunhæfari heldur en
oftast hefur verið áður.
Eigi að síður telur fjárveitinganefnd
að það sé ekki viðunandi annað en
að gefa kost á því fyrir ýmsa aðila,
stofnanir, félagasamtök og sveitarfé-
lög, að bera upp sín erindi. Við munum
síðan meta þau í þeirri þröngu stöðu
sem við nú búum við.“
Heldur fast í peningana
„Að sjálfsögðu verður ekki komist
hjá því að greiða úr einhveijum af
þessum málum en það er alveg ljóst
að það verður haldið mjög fast á í
þeim efnum og ekki annað fært með
tilliti til þessarar stöðu.
Eins og venja er birtir nefhdin tillög-
ur sínar í þingskjölum til Alþingis, í
fyrsta lagi við aðra umræðu, sem
venjulega fer fram milli 10. og 15. des-
ember, og í öðru lagi við þriðju
umræðu, sem fer fram fyrir jólafrí Al-
þingis,“ sagði Pálmi.
-KMU
riAMC
UMBOÐIÐ
Mótor- og
Ijósastillum
Þjónusta
er veturinn nálgast
IEGILL VILHJÁLMSSON HF.
[ Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77395
I AMCIJeep. riAMCIJeep
Yfirförum bílinn og bendum á
hvað þarf að lagfæra til að
fyrirbyggja tafir og óþörf
vandræði.
Hafið samband við verk-
stjóra í síma 77200.
Ert þú
búinn að fara í
I jósa skoðuna rferð?
Þessi frábæru Goldstar
myndbandstæki
fást nú á sérstöku iólatilboðsverði
HQ
High Qualitv
GoldStar GHV-51 FP:
/ Þráðlaus fjarsýring,
/ 14 daga upptökuminni fyrir
4 mismunandi upptöku tíma,
/ ljós sýna allar aðgerðir tækisins.
/ faststilling á 12 stöðvum,
/ ETR-skyndi upptaka,
/ föst dagleg upptaka,
/ kyrrmynd,
/ myndleitari,
/ sjálfvirk spólun til baka,
/ 4 tíma upptaka.
GoldStar GHV-1221 P
/ "High Quality"
myndbandstæki með
20% meiri myndgæði,
/ þráðlaus fjarsýring,
/14 daga upptökuminni
fyrir 4 mismunandi
upptöku tíma,
/ faststilling á 12 stöðvum,
/ ETR-skyndi upptaka,
/ föst dagleg upptaka,
/ sjálfvirk spólun til baka,
/ kyrrmynd,
/ myndleitari,
/ 4 tíma upptaka.
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI t>ÉR