Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986. Utlönd Fjörutiu mínútur í bHreið Úr vandræðamáli á árbotni Pán Whjálmæan, DV, OeJÓ: Sjö ára gömul stúlka lifði það af að sitja föst í fjörutíu mínútur inni í bíl í fimm metra djúpri i fyrir skömmu. Læknar telja kulda vatnsins hafa bjargað stúlkunni. Fjögurra ira gömul systir stúlk- unnar lést. Systumar voru í bifreið með föð- ur sínum í Suður-Noregi um helgina er slysið átti sér stað. Maðurinn missti vald á bifreiðinni sem valt út af veginum og niður í á. Faðirinn komst út úr bifreiðinni og reyndi án árangurs að bjarga bömum sínum út út bílflakinu. Hann leitaði þá hjálpar og fjörutíu mínútum eflir slysið tókst að ná systrunum á land. Þær vom meðvitundarlausar og hjartsláttur fannst ekki. Líkams- hiti þeirra var tuttugu og fjórar gráður. Læknar hófú strax lífgunartil- raunir og tókst að lífga báðar stúlkumar við. Yngri systirin lést síðar um nóttina á sjúkrahúsinu en sú eldri hélt lífi. Læknar telja lágan líkamshita ástæðuna fyrir því að lífgunartil- raun geti heppnast við slíkar aðstæður. Allir sjúklingar í eyðnipróf? Páll Vfflgálmæan, DV, Osló: Allir þeir sem leggjast inn á sjúkrahús hér í Noregi eða þurfa að leita læknishjálpar gætu þurft að gangast undir eyðnipróf á næs- tunni. Meirihluti félagsmálanefhdar norska stórþingsins er fylgjandi slíkum lögum og beinir þeim til- mælum til ríkisstjómarinnar að frumvarp 'um slíkt verði þegar í stað lagt fyrir norska þingið. Tilmælin gera einnig ráð fyrir að fangar skuli eyðniprófaðir. SósíaLski vinstriflokkurinn stendur einn gegn lögum er skylda fólk til að gangast undir eyðniprufu. Flokkurinn telur lögin skaða persónufrelsi. í hneykslismál Búist við enn frekari uppstokkun æðstu embættismanna í kjötfar afsagnar Poindexters HaDdór VaJdimaiæan, DV, Dallas: John Poindexter, öryggismálaráð- gjafi Ronalds Reagan Bandaríkja- forseta, sagði í gær af sér embætti vegna nýrra upplýsinga er í gær- morgun vom gerðar opinberar í tengslum við íranmálið svonefnda. Jafhframt var Oliver North, einn af starfsmönnum öiyggismálaráðs Bandaríkjanna, rekinn úr embætti í gær vegna sama máls. Edwin Meese, ríkissaksóknari Bandaríkjanna, skýrði í gær Reagan forseta frá því að þeir Poindexter og North hefðu hugsanlega gerst brot- legir við bandarísk lög í einum þætti íranmálsins. Hluti vopna þeirra er Bandaríkja- menn fengu írönum í hendur undanfama mánuði vom send í gegnum ísraelska aðila. Upphaflega safiiaði bandaríska leyniþjónustan, CIA, vopnunum saman í Bandaríkj- unum, að beiðni Oliver North. Vopnin vom síðan seld ísraels- mönnum fyrir tólf milljónir dollara. Israelsmenn seldu þau írönum fyr- ir að minnsta kosti tuttugu og tvær milljónir dollara, hugsanlega allt að fjömtíu milljónir. Bandarísku leyniþjónustunni vom endurgreiddar tólf milljónir en af- gangurinn af fjármunum þessum , tíu til þijátíu milljónir Bandaríkja- dala, var sendur gegnum banka- reikning í Sviss til contraskæruliða er beijast gegn ríkisstjóm Nic- aragua. Er talið að íjármunimir hafi þar verið notaðir til vopnakaupa. Poindexter látinn fara Ronald Reagan forseti skýrði stutt- lega frá máli þessu á fundi með fréttamönnum í Washington í gær- morgun. Forsetinn sagðist ekki hafa fengið upplýsingar um þennan þátt málsins fyrr en Meese skýrði honum frá viðskiptunum að aflokinni frum- rannsókn er stóð um síðustu helgi. Forsetinn skýrði frá því að Po- indexter hefði verið veitt lausn frá störfum sem öryggismálaráðgjafi, North hefði verið leystur frá störfum og frekari rannsókn á máli þessu svo og á starfsgrundvelli öiyggismála- ráðsins mundi fara fram nú þegar. Forsetinn, sem sýndi greinileg Poindexter öryggismálaráögjafi sagði af sér í gær. merki reiði er hann skýrði frá þessu og var aftur orðinn mun líkari þeim Ronald Reagan er fréttamenn eiga að venjast, neitaði að svara spum- ingum og gekk af fundinum eftir að hafa kallað Edwin Meese til að vera í forsvari. Fyrstu viðbrögð Bandaríkjamanna við þessari nýju þróun í íranmálinu voru reiði og vantrúnaður. Fyrsta spumingin sem vaknaði var hvemig í ósköpunum fremur lágt settur starfsmaður öryggismálaráðsins, Oliver North, gat framkvæmt að- gerðir af þessu tagi, sem ganga þvert í bága við gildandi lög i Bandaríkj- unum á þessum tíma, en bandaríska þingið hafði skömmu áður lagt al- gjört bann við frekari hemaðarað- stoð við contraskæruliða. Að sögn Reagans og annarra í stjóm hans skýrði North engum nema Poindexter frá aðgerðum þess- um fyrr en þær voru afstaðnar. Engu að síður tókst honum að fá leyniþjónustuna til að draga saman vopnin, flytja þau úr landi og selja þau írönum, þótt óbeint væri. Þá vaknaði jaíhframt spumingin um það hvers vegna Poindexter skýrði ekki Reagan forseta frá mál- inu. Telja margir fréttaskýrendur að þeir Poindexter og North hafi haft einhvem mun hærra settan í ríkis- stjóminni með í ráðum og berast böndin þar óneitanlega að Regan, starfsmannastjóra Hvíta hússins. Poindexter hefur áður átt aðild að leynilegum aðgerðum fyrir hönd Reagans og ríkisstjómar hans. Með- al annars var hann einn af helstu höfundum ósannindaheríerðarinnar á hendur Gaddafi Líbýuleiðtoga, sem olli Reagan forseta nokkrum álits- hnekki síðastliðið sumar. North hefur verið ákaflega virkur í allri aðstoð við contraskæmliðana og hefur verið einn helsti tengiliður bandarískra stjómvalda við þá. Hneykslismál Flestir fréttaskýrendur vom í gær á einu máli um að þessar nýju upplýs- ingar breyttu íransmálinu úr vandræðamáli i hneykslismál. Ljóst er að bandaríska þingið kem- ur ekki til með að láta sér nægja neina yfirborðsrannsókn á máli þessu er það kemur saman að nýju í janúarmánuði. Þingmenn demókrata, er nú hafa meirihluta í báðum þingdeildum, settu þegar í gær fram kröfur um veigamiklar rannsóknir á málinu og öllum hlut hinna ýmsu aðila í ríkis- stjóminni á því. Fyrsta krafa þingsins verður vafa- laust sú að öryggismálaráð Banda- ríkjanna verði endurskipulagt og því haldið algerlega frá allri framkvæmd aðgerða og stefiiu mála í framtíð- inni. Ráðið verði einvörðungu forsetanum til ráðgjafar, eins og það raunar á að vera, þótt Reagan og margir aðrir forsetar hafi freistast til að beita því fyrir sig i aðgerðum af ýmsu tagi. Þá gerir þingið efalaust kröfu um að utanríkisráðherra landsins verði fengið skilyrðislaust framkvæmda- vald í utanríkismálum í hendur. Reagan hefur þegar uppfyllt þá kröfu að miklu leyti því hann fékk í gær Shultz utanríkisráðherra fram- kvæmdavöld þessi. Shultz svaraði fyrir sig með því að gefa út skýlausa stuðningsyfirlýs- ingu við forsetann eftir að hann hafði lýst yfir ósamþykki sínu við hann hvað eftir annað undanfama daga. Þá kemur þingið til með að krefj- ast þess að forsetinn gefi út ský- lausar yfirlýsingar um stefiiu sínu í utanríkismálum er þykja orðin ofur- lítið þokukennd. Flestir þeir sérfræðingar í stjóm- málum, er rætt var við í fjölmiðlum í gær, vom á einu máli um að ef Reagan ætlaði að hafa eitthvert taumhald á stjóm landsins næstu tvö árin yrði hann nú að grípa til afgerandi aðgerða. Forsetinn liggur nú undir sívax- andi kröfum um að hann geri húshreinsun í ríkisstjóminni, losi sig við þá aðila er ekki fylgja honum skilyrðislaust að málum og setji í þeirra stað trygga aðila. Fjúka Shultz og Regan? Margir telja slíkar hreinsanir vera framundan þótt líklegt megi telja að forsetinn bíði fram yfir áramót áður en hann gerir nokkrar breytingar á stjóm sinni. Þannig telja margir að þótt þeir Reagan og Shultz virðist nú sáttir að nýju feli þær sættir meðal annars í sér samkomulag um að utanríkis- ráðherra láti af embætti snemma á næsta ári. Þá telja margir fréttaskýrendur einnig að þótt forsetinn standi enn sem klettur við bakið á starfsmanna- stjóra sínum verði hann endanlega að láta Regan fara úr embætti. Á meðan mun forsetinn skipa sér- staka nefrid til að kanna starfsemi öryggismálaráðsins og gera tillögur til breytingar þar á. Þingið mun efria til rannsóknar á peningasendingum til contraskæru- liða og þegar hefur verið bryddað á því að setja saksóknara til að kanna hvort afbrotalöggjöf hafi verið brot- in. I gær var talið líklegt að mál þetta ætti eftir að skipa sér sess með Svínaflóamálinu frá stjómartíð Kennedys og Watergate málinu frá stjómartíð Nixons. Ljóst er að hvergi nærri öll kurl em komin til grafar í þessu máli enn. Einn af forystumönnum contra- hreyfingarinnar, Adolfo Calero, þvertók í gær fyrir að hreyfingin hefði fengið þessa fjármuni frá ísra- elum eða CIÁ. Þá vaknar auðvitað sú spuming hvert fjármunimir fóm og verður hún vafalaust eitt af þvi er skoðað verður í rannsóknum næstu vikur. Biður Vranitzky að mynda sljóm Steingrimur á blaðamannafundi í Stokkhólmi: Gagnrýnir tvöfalt siðgæði Bandarikjamanna GuimJaugur A Jánason, DV, Lundi: veiðum í framtíðinni,“ sagði Stein- Kalla á lausn Falklandseyja- deilunnar Dante Caputo, utanríkisráð- herra Argentínu, túlkaði úrslit atkvæðagreiðslunnar á allsheijar- þingi Sameinuðu þjóðanna í gær sem sigur fyrir Argentínumenn og fordæmingu á ósveigjanleika bresku stjómarinnar í deilunni um framtíð Falklandseyja. Samþykkt var með 116 atkvæð- um gegn 4 að skora á Bretland og Argentínu að taka upp skilmála- lausar viðræður um lausn deilunn- ar en 34 ríki sátu hjá í atkvæða- greiðslunni. Með breska fúlltrúanum gegn tillögunni stóðu Belize, Oman og Sri Lanka. I tillögunni var ekki vilrið orði að yfirráðum eyjanna. í hópi þeirra sem greiddu at- kvæði með tillögunni voru Ástral- ía, Bandaríkin, Frakkland og Kanada. Athygli vakti einnigmeð- atkvæði Hollands, sem sat hjá i svipuðum tillöguflutningi í fyrra. Kurt Waldheim, forseti Austurríkis, mun í dag fela Franz Vranitzky, kansl- ara fráfarandi ríkisstjómar, að mynda nýja stjóm upp úr kosningunum síð- asta sunnudag þar sem ekki fengust hrein úrslit. Sósíalistaflokkur Vranitzkys hélt naumum meirihluta sínum í þinginu en kanslarinn sagði í gær að hann vonaðist eftir viðræðum við hægri al- þýðuflokkinn um myndun samsteypu- stjómar á borð við þá sem upp úr síðari heimsstyrjöldinni fór í nítján ár með stjóm Austurríkis. Um leið spáði Vranitzky því að slíkar viðræður gætu tekið sex til átta vikur. Þar mundi standa mest í mönnum hvemig takast ætti á við efiiahags- vanda Austurríkis þar sem halli á síðustu fjárlögum var hrikalegur, mik- ið tap á rekstri ríkisfyrirtækja og atvinnuleysi vaxandi. Báðir þessir flokkar misstu mikið fylgi í kosningunum. Alois Mock, formaður alþýðuflokks- ins, kvaðst mundu bíða þess hvort Vranitzky leitaði eftir viðræðum við hann áður en hann úttalaði sig um hugsanlegt stjómarsamstarf þessara tveggja flokka. Hann vildi þó ekki útiloka aðra möguleika til stjómar- myndunar eins og samstarf með hægri sjálfstæðisflokknum eða þjóðstjóm allra flokka en það síðasta mundi krefjast stjómarskrárbreytingar. Nú loks liggja endanlegar tölur fyrir úr kosningunum og skiptust þingsætin 183 þannig á milli flokkanna að sósíal- istar fengu 80 fulltrúa, alþýðuflokkur- inn 77, sjálfstæðisflokkurinn 18 og græningjar 8. Sænskir fjölmiðlar hafa sýnt opin- berri heimsókn Steingríms Her- mannssonar til Svíþjóðar ákaflega lítinn áhuga. Sjónvarpið hefúr ekki minnst einu orði á heimsóknina og í flestum dagblaðanna þarf að leita lengi til að finna litlar eindálkafrétt- ir af heimsókninni. Steingrímur og Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, héldu þó sameiginlegan blaðamannafúnd með fréttamönnum í gær. Þar sagði Steingrímur meðal annars að sam- starfið við Norðurlöndin væri ís- landi mjög þýðingarmikið. „Við vonum að útlendar fjárfestingar á íslandi aukist því það er mikilvægt að við verðum ekki eins háð fisk- grímur. Steingrímur gerði tvöfalt siðferði Bandaríkjamanna að umtalsefiú á fundinum. „Eins og vinur minn Deng Chau Ping hefur sagt, stórveldin eru ofl með finguma þar sem þeir eiga ekki að vera. Það er tvöfeldni hjá Banda- ríkjamönncm að takmarka hval- veiðar okkar því þeir veiða sjálfir tuttugu þúsund höfrunga úti fyrir ströndum Bandaríkjanna,“ sagði Steingrímur ennfremur. Hann sagði að sama tvöfeldni Bandaríkjamanna kæmi í ljós í vopnasölu þeirra til írans. ,3em þátttakandi í Nató er ég allt annað en ánægður með þá sögu,“ sagði Steingrímur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.