Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
17
Lesendur
Hvað er baminu
fyrir bestu?
Lesandi skrifar:
Mig langar aðeins til að vekja at-
hygli manna á íslenskum lögum hvað
viðvíkur hjónaskilnuðum og það sem
mig skiptir máli, hvað verður um bam-
ið.
En þannig er mál með vexti að ég
veit um eitt tilfelli þar sem svo var
ástatt að hjón skildu, konan hefur
bamið hjá sér eins og svo oft vill
verða. Tveimur árum seinna fer faðir-
inn skyndilega að fá áhuga á að sjá
bamið sem hann hafði áður lítið sem
ekkert skipt sér af og vill fá að hafa
bamið er honum hentar.
Móðirin var alls ekki með þessu að
láta bamið af hendi til föðurins þar
sem hún taldi hann alls ekki hæfan
til þess ama vegna sinna vandamála.
Málið fer fyrir og þar er móðirin
dæmd til að láta bamið af hendi þó
svo að hún vilji það engan veginn
vegna þess að bamið hefur ekki gott
af að hafa samneyti við föður sinn eins
og ástatt er um hann nú. Bamið er
orðið það gamalt að það er farið að
skynja hvar það vill vera. Bamið vill
alls ekki fara til föður síns heldur vera
hjá móður sinni.
En það sem kannski er fúrðulegast
við þetta allt saman er að ef móðirin
hefði farið fram á að faðirinn tæki
bamið þá segðu lögin nei, sem sagt
tapað mál.
Er þetta raunhæft? Á ekki að hafa
þarfir bama í fyrirrúmi í dag? Ég hefði
haldið að velferð bamsins ætti að ráða
ferðinni í tilfellum sem þessum. Ef þær
em hafðar í fyrirrúmi í þessu máli þá
ætti að meina föðumum að fá bamið
hvenær sem honum hentar.
Flugleiðlr biðjast afsökunar
Sæmundur Guðvinsson, forstöðu-
maður kynningardeildar, skrifar:
Á dögunum birtist í DV bréf frá far-
þega „6318-4683“ þar sem kvartað er
yfir slakri þjónustu Flugleiða við far-
þega á Keflavíkurflugvelli sem vom
að koma frá Akureyri og síðan aftur
á leið til Akureyrar um Keflavíkur-
flugvöll. Einkum var vísað til lélegs
aðbúnaðar meðan beðið var á flugvell-
inum, svo og að lítið hafi verið skeytt
um farþegana meðan á biðinni stóð.'f
tilvikum sem þessum hafa Flugleiðir
ekki fengið leyfi til að nota þau húsa-
kynni flugstöðvarinnar sem ætluð em
farþegum í millilandaflugi, jafnvel þótt
engin umferð millilandavéla sé um
völlinn á þeim tíma sem farþegar til
Akureyrar fara þar um. Því hefúr orð-
ið að láta farþega bíða í innritunarsal
þar sem fátt er þæginda.
Eftir lesendabréfið í DV var málið
enn einu sinni tekið upp við flugvall-
aryfirvöld. Undirtektir vom nú
jákvæðari en áður og liggur nú fyrir
leyfi Flugleiða til að nota „bestu tiltæk
húsakynni á hverjum tíma“ þegar far-
þegar í innanlandsflugi þurfa að fara
um. Ljóst er að eftir að nýja flugstöð-
in hefúr verið tekin í notkun verður
þetta vandamál úr sögunni.
Því miður var búið að loka veitinga-
sölunni á þeim tíma sem „6318- 4683“
og samferðamenn fóm um Keflavíkur-
flugvöll og þvi ekki hægt að bjóða upp
á hressingu.
Jafnframt vil ég, fyrir hönd Flug-
leiða, biðja bréfritara og aðra farþega,
sem þama urðu fyrir óþægindum, af-
sökunar á þeim misbresti sem kann
að hafa orðið á að farþegamir fengju
þá umhyggju sem félagið ætlast til að
farþegar eigi rétt á.
Fjör í Skálafelli
Starfsmaður Granda Iiringdi:
í tilefni þess að eitt ár var liðið frá
sameiningu ísbjamarins og Bæjarút-
gerðarinnar var okkur starfsfólkinu
boðið á Hótel Esju þar sem við þáðum
veitingar.
Fannst mér afgreiðslan á bamum í
Skálafelli hreint fyrirtak og á þjón-
ustustúlkan mikið lof skilið, hún stóð
sig með afbrigðum vel.
Ég er sérstaklega ánægð með mjög
skemmtilegt og velheppnað kvöld, en
það var einmitt svo velheppnað vegna
þess hve afgreiðslufólkið á' hótelinu
var vingjamlegt. Dyraverðimir til að
mynda leyfðu okkur að sækja gítar
og það var spilað og sungið við góðar
undirtektir. Það er afar langt síðan
ég hef skemmt mér svona vel og ég
veit að ég tala fyrir munn allra er
þarna vom.
TIL SÖUJ
SALAN
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
SKEIFUNNI 15 108 REYKJAVÍK SÍMI (91) 687120
Citroen GSA Pallas árg. ’82, ek-
inn 65.000 km., grænnsans.
Verð: 200.000,-
Toyota Crown dfsil árg. ’83, ek-
inn 100.000 km á vél, rauður.
Verð 430.000,-
Einnig Toyota Crown Super Sal-
oon árg. ’80, ekinn 65.000 km.
Verð 410.000,-
Toytoa Hi Ace dísil, árg. '83, ek-
inn 131.000 km, gulur. Verð
490.000,-
Ekinn: Verð:
Toyota Corolla Twin Cam ’84 30.000 560.000
Toyota Tercel 4x4 árg. ’84 58.000 440.000
Toyota Celica ST árg. '81 65.000 300.000
Toyota HI-ACE, bensín, ’82 97.000 390.000
Toyota Mark II árg. ’77 120.000 130.000
Mazda 626 árg. ’81 70.000 200.000
Mazda 323 árg. '80, sjálfsk. 75.000 160.000
Daihatsu Charade árg.’81 49.000 180.000
Renault4sendibill 93.000 150.000
M.Benz 250 árg. ’79 103.000 550.000
Oldsmobile Cutlass, bensín, ’80 83.000 450.000
MMC T redia árg. ’83 65.000 300.000
BMW 518 árg. ’81 90.000 330.000
Fiat Panda árg. ’83 35.000 140.000
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 13-18.
Höfum ýmsar tegundir bifreiða á söluskrá
' S HA60MP
Stt'rAA/
A/l/k'l A/t* A/jtl
Toyota Camry disil turbo árg. '84,
ekinn 24.000 km á vél, beige.
Verð 450.000,-
Toyota Cressida árg. ’80, ekinn
100.000 km, blár. Verð 220.000,-
Toyota Cressida GL árg. '81, ek-
inn 108.000 km, grár, sóllúga.
Verð 330.000,-
Honda Civic árg. ’81, ekinn 76.000,
grænn. Verð 195.000,-
Toyota Land Cruiser II, bensfn,
árg. ’86, rauður, ekinn 14.000 km.
Verð 890.000,-
Toyota Carina árg. '86, ekinn
16.000 km, vínrauður. Verð
540.000,-
Toyota Carina árg. ’86, ekinn
14.000 km, rauður. Verð 570.000,-