Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Síða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
Tippad á tólf
Tólfurnar
orðnar hundrað
Eins og ég spáði á miðvikudaginn
var jókst potturinn nokkuð og er á
uppleið. Verður sennilega um þrjár
' milljónir um jólin.
Úrslit voru ekki mjög óvænt en
þó áttu menn í erfiðleikum með úr-
slitin í leik Chelsea og Newcastle
en þann leik vann Newcastle á úti-
velli, 3-1.
Alls voru seldar 917.038 raðir sem
gaf í pottinn 2.200.891 krónur. í
fyrsta vinning komu 1.540.623 krón-
ur og skiptu þrjár tólfur þeirri
upphæð á milli sín. Hver þeirra fékk
því 513.540 krónur. í annan vinning
komu 660.267 krónur og skiptu þeirri
upphæð á milli sín 149 raðir með
ellefti réttar lausnir. Hver röð hlýtur
því 443 krónur.
Það sem af er haustinu hafa fund-
ist nákvæmlega eitt hundrað tólfur.
Flestar fundust þær eftir leiki sem
leiknir voru átjánda október eða
sextíu alls. Ekki hafa tólfur fundist
nema í níu skipti af fjórtán. Fyrsti
vinningur hefur farið óskiptur þrisv-
ar sinnum og var um að ræða eina
tólfu í tvö skipti en eina ellefu í eitt
skipti.
TIPPAEX
AT0LF
Umsjón: Eiríkur Jónsson
Getraunaspá
fjölmiðlanna
LEIKVIKA NR.: 15
Mönchengl.b Köln 1 1 1 1 1 1 1
Aston Villa Arsenal 1 2 1 2 2 2 X
Leicester Chelsea 2 1 1 X 1 1 X
Li iverpool Coventry 1 1 1 1 1 1 1
Luton Charlton 1 1 1 1 1 1 1
Manchester City.. Everton 2 X 2 2 2 2 2
Newcastle West Ham 2 X 1 1 2 2 2
Norwich Oxford 1 1 1 1 1 1 1
Queens Park R Sheffield Wed 1 1 X X 1 1 1
Southampton Watford 1 1 1 1 1 1 2
Tottenham Nottingham F 1 1 2 1 1 1 1
Wimbledon .Manchester Utd.... 2 2 2 2 2 1 2
Hve margir réttir eftir 14 leikvikur: 52 53 47 48 51 55 54
Enska 1. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U J T Mörk U J T Mörk S
' 16 5 3 0 12 - 2 Arsenal 4 1 3 11 -6 31
16 6 2 0 20 -6 Nottingham F 3 0 5 15 -16 29
16 4 3 1 18 -8 Liverpool 4 1 3 16 - 12 28
16 4 1 3 14 - 14 West Ham 3 5 0 12 -9 27
16 4 3 1 13 -7 Everton 3 2 3 11 - 10 26
16 5 3 0 12 -4 Luton 2 2 4 6 -8 26
16 6 1 1 11 -4 Coventry 1 4 3 5 -8 26
16 5 2 1 13 -9 Norwich 2 3 3 11 - 14 26
16 4 4 0 20 -10 Sheffield Wed 2 3 3 10 -13 25
16 3 3 2 8 - 7 Tottenham 4 1 3 11 -9 25
16 5 1 2 19 -8 Watford 1 3 4 11 - 14 22
16 4 3 1 12 -8 Oxford 1 3 4 5 - 18 21
16 4 1 3 15 - 13 Southampton 2 1 5 15 - 22 20
16 3 1 4 10 - 11 Wimbledon 3 0 5 8 - 11 19
16 4 1 3 12 -11 Queens Park R 1 2 5 3 - 9 18
16 4 1 3 11 -11 Aston Villa 1 2 5 10 - 21 18
16 4 1 3 13 -8 Manchester Utd 0 4 4 4 -10 17
16 2 2 4 9 - 12 Charlton 3 0 5 9 -16 17
16 2 3 3 11 - 12 Leicester 2 1 5 7 - 15 16
16 3 3 2 12 - 9 Manchester City 0 3 5 3 -11 15
16 1 3 4 6 - 14 Chelsea 2 3 3 11 - 14 15
16 2 2 4 9 -12 Newcastle 1 3 4 6 -14 14
Enska 2. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKiR
L U J T Mörk U J T Mörk S
16 4 4 0 9 -3 Oldham 6 0 2 17 -10 34
16 7 1 0 14 - 5 Portsmouth 2 4 2 6 - 5 32
16 5 2 1 13 -8 Plymouth 3 4 1 13 - 10 30
16 5 2 1 14 - 7 Derby 4 1 3 7 -8 30
16 5 2 1 10 - 3 Ipswich 2 3 3 16 -18 26
16 6 0 2 15 - 7 Leeds 1 3 4 5 - 9 24
16 3 4 1 13 -10 Sheffield Utd 3 2 3 8 - 8 24
16 5 1 2 13 -8 W.B.A 2 2 4 7 -9 24
16 4 0 4 9 - 15 Hull 3 2 3 8 -8 23
16 3 4 1 8 -6 Sunderland 2 3 3 13 -16 22
15 1 4 2 3 -4 Grimsby 4 2 2 13 -11 21
16 4 1 3 12 - 8 Millwall 2 1 5 6 -10 20
V 16 3 4 1 14 -11 Birmingham 2 1 5 9 -13 20
16 3 2 3 14 - 10 Reading 2 2 4 11 -15 19
16 3 1 4 11 -15 Crystal Palace 3 0 5 9 -15 19
15 3 2 3 16 -15 Bradford 2 1 4 6 -9 18
16 4 3 1 /8 -3 Brighton 0 3 5 7 -14 18
16 4 1 3 8 -5 Shrewsbury 1 2 5 7 - 15 18
16 4 2 2 10 - 6 Stoke 1 0 7 6 - 13 17
16 4 1 3 14 -14 Huddersfield 0 2 6 4 - 13 15
14 2 0 5 9 -11 Blackburn 1 3 3 4 -9 12
16 1 3 4 8 -11 Barnsley 1 3 4 3 -7 12
lan Rush, welska markamaskinan,
er yfirleitt á réttum stað við mark
andstæðinganna og þá er ekki um
neina miskunn að ræða. í markið
skal knötturinn. Það er ekki oft sem
Rush sést gera mistök, yfirleitt liggur
knötturinn í markinu.
Cyril Regis hefur gert það gott með
Coventry í haust og ógnað vörnum
andstæðinganna með hraöa sínum,
og snerpu.
1 Mönchengladbach - Köln 1
Tvisýnn leikur. Mönchengladbach hefur ekki sýnt styrk að
ráði en Köln hefur verið að sækja sig. Heimavöllurinn hefur
mikið að segja í þessum leik og því spái ég heimasigri.
2 Aston Villa - Arsenal 1
Aston Villa hefur staðið sig vel í síðustu átta leikjum og
náði stigi gegn West Ham um síðustu helgi. Villa hefur
unnið þrjá af síðustu fjórum heimaleikjum sínum og gerði
jafntefli í þeim fjórða. Arsenal hefur staðið sig mjög vel í
undanfömum leikjum en mætir hér ofjörlum sínum.
3 Leicester - Chelsea 2
Leicester hefur gengið afleitlega í síðustu leikjum sínum,
einungis fengið eitt stig af mögulegum álján. Chelsea getur
ekki státað af miklum sigrum á sarna tíma. Munur liðanna
er mikill og góður mannskapur hjá Chelsea og liðið sigrar
í þessum leik.
4 Liverpool - Coventry 1
Liverpool spilar ávallt vel á heimavelli og tapar þar fáum
leikjum. Coventry er sputniklið haustsins og er ofarlega.
Hefur verið að reita stig á útivelli gegn stóru liðunum. Nú
er það samt ekki spuming. Heimasigur.
5 Luton - Charlton 1
Charlton var ekki spáð miklum frama í byijun haustsins,
liðið skreið upp í 1. deildina í vor því það varð í þriðja sæti
í annarri. En liðið sprakk út á tímabili og vann fjóra leiki í
röð. Síðan hefur Charlton tapað §órum leikjum í röð og
ætti ekki að ná stigi gegn Lutonliðinu sem hefur ekki tapað
leik á heimavelli og einungis fengið á sig fjögur mörk á
gervigxasinu. Heimasigur.
6 Manchester City - Everton 2
Manchester City hefur unnið síðustu tvo heimaleiki sína.
Everton hefur einungis tapað einum leik af síðustu fimm.
Margar stjömur em í Evertonliðinu og yfirleitt betri leik-
menn í hverri stöðu en hjá Manchester City og nú vinrnn:
Everton.
7 Newcastle - West Ham 2
Sunnudags- og sjónvarpsleikur Breta. Newcastle er neðst
og hefur unnið fáa leiki. West Ham er ofarlega með mikinn
mannskap og sjálfstraustið í lagi. West Ham vann Newc-
astle á útivelli í fyrrahaust og er líklegt til að endurtaka
afrekið. West Ham hefur ekki enn tapað leik á útivelli og
sigrar nú.
8 Norwich - Oxford 1
Norwich hefur komið á óvart í haust með góðri frammi-
stöðu og komst á toppinn um tíma. Liðið hefur dalað örlítið
síðan þá en ætti að sigra Oxford sem hefur gengið frekar
illa á útivelli. Leikir Norwich hafa verið fjömgir og mikið
verið skorað. Nú sigrar Norwich með oddamarkinu af
þremur.
9 Q.P.R. - Sheffield Wednesday 1
O-P-R. hefur ekki gengið sem skyldi í vetur og styrkur liðs-
ins, létt spil, ekki nýst. Margir léttleikandi leikmenn em í
liðinu og það ætti að vera áherslupunkturinn gegn hinvun
sterku leikmönnum Sheffield Wednesday. Sheffield Wed-
nesday hefur ekki unnið leik í London í 4 ár þannig að á
brattann er að sækja.Gervigrasið ætti að nægja til að taka
helstu vígtennumar úr þeim hnífaborgarköppum og spái
ég heimasigri.
10 Southampton - Watford 1
Southampton er eitt af þessum óútreiknanlegu liðum í ensku
Todaydeildinni. Undanfarin ár hefur liðið byggt árangur
sinn á heimavellinum en hefur nú þegar tapað þremur leikj-
um af átta þar. Watford er stemmningarlið sem tapar eða
vinnur stórt og tel ég líklegt að liðið tapi nú. Heimasigur.
11 Tottenham - Nottingham Forest 1
Hér mætast toppliðin. Nottingham Forest vann samsvarandi
viðureign léttilega í fyrravetur, 3-0. Síðan þá hafa orðið
breytingar á báðum liðum og þó meiri hjá Tottenham og
til betri vegar. Ólíldegt þykir mér að Tottenham tapi þess-
um leik og er líklegast að um hreinan sigur verði að ræða.
Nottingham Forest hefur verið að slaka á í síðustu leikjum
sínum, til dæmis vannst naumur sigur um síðustu helgi
gegn Wimbledon, 3-2. Nú verður heimasigur.
12 Wimbledon - Manchester United 2
Batamerki hafa sést hjá Manchester United. Ferill Wimble-
don í 1. deildinni er fuxðulegur. Liðið virðist gera allt í
stökkum. Þrír síðustu leikir töpuðust, tveir næstu á undan
unnust en þrír þar á undan töpuðust. Nú vinnur Manchest-
er United sinn fyrsta leik á útivelli.