Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Síða 36
36
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Elton John
á við vandamál að stríða sem
hann reynir að dylja í lengstu
lög: hann er farinn að missa
hárið. Hann keypti sér forláta
bleika hárkollu og nú reyna allir
hárkollumeistarar í Bretlandi að
hafa sams konar á boðstólum.
Nýlega gaf Elton út plötuna
Leather Jackets og hefur hann
ekki þurft að greiða mikinn aug-
lýsingakostnað eftir að það
barst út að hann vaeri uppáhald
Díönu. Henni hefur meira að
segja tekist að fá Kalla sinn með
á tónleika hjá Elton John.
Fjölskyldu
fundur
Allt er þegar þrennt er
Linda Gray
velur sjálf allan fatnað sem hún
klæðist í hlutverki sínu í Dallas.
Hún brá sér til Mílanó með
Larrry Hagman til þess að kíkja
á vortískuna 1987. Helstvill hún
vera í þægilegum klæðnaði sem
krumpast ekki vegna slæmra
aðstæðna í upptökusölunum.
Linda er hrifin af rauðu og
svörtu en klæðir sig helst ekki í
Ijósblátt, bleikt eða Ijósgrænt.
Það fylgir sögunni að hún hafi
pantað heilan helling.
Charlene Tilton
grætur nú yfir hlutverkinu sem
hún missti í Dallas og launanna,
120 þúsund dollara, sem henni
þóttu of lág á sínum tíma. Char-
lene varð að yfirgefa Southfork
eftir að hafa skapað sér óvin-
sældir hjá framleiðanda þátt-
anna en hún hafði þá haft allt
á hornum sér. Fyrir skömmu fór
hún á fund framleiðandans,
Leonards Katzmann, og skýrði
honum frá fjárhagsaðstæðum
sínum sem eru slæmar þessa
dagana og henni tókst það vel
upp að hann felldi tár með
henni. Samt ekki það vel að hún
fengi hlutverk.
Rod Stewart og frúin hans, hún
Alana, eru aftur farin að fara út
að skemmta sér. Myndin var tekin
í London þegar stjarnan hélt upp
á fyrsta hljómleikaferðalagið í
Englandi í þrjú ár.
Hjónakomin þvertaka þó fyrir
það að til standi að hætta við skiln-
aðinn. Segist Alena hafa komið til
London til þess að Rod gæti séð
börn þeirra skötuhjúa, Kimberley,
sem er 6 ára, og Sean, 5 ára. Það
má svo sem geta þess að nýja kær-
astan hans Rods, hún Kelly
Emberg, var ekki langt frá.
Þegar leikkonan Audrey Hepbum
hitti Robert Wolders fyrir sex árum
vora það margir sem vorkenndu
henni. Skyldi hún enn einu sinni
verða fyrir vonbrigðum? Audrey ,
sem nú er orðin 57 ára, var tvígift
og höfðu bæði hjónaböndin endað
með skilnaði. Á hátindi frægðar
sinnar var hún gift leikaranum Mel
Ferrer. Hann sætti sig ekki við frama
hennar og því fór sem fór.
Audrey var orðin fertug þegar hún
giftist sálfræðingnum Andrea Dotti
sem var níu árum yngri en hún. í
byrjun ríkti eintóm hamingja og
Audrey hætti kvikmyndaleik og
helgaði líf sitt eiginmanni og sonum.
Andrea reyndist þó ekki vera við
eina fjölina felldur og þegar hann fór
að sýna sig opinberlega með ungum
og fallegum vinkonum gerði Audrey
sér Ijóst að hjónabandið var mis-
heppnað. -
Nú er hún aftur á móti afar ham-
ingjusöm með Robert sínum sem ekki
hefúr hinn minnsta áhuga á pening-
unum hennar þar sem hann erfði
fúlgu eftir fyrri eiginkonuna, Merle
Oberon. Og svo koma þau líka bæði
frá Hollandi. Audrey er nú samt ekk-
ert viss um að þau gangi í það heilaga
en hún kynnir hann alltaf sem mann-
inn sinn.
Audrey Hepburn og Robert Wolders hafa verið hamingjusamt par í sex ár.
I skugga tengdo
Reza II, sjálfútnefndur Persakeis-
ari, hefur nú endanlega sagt skilið
við móður sína. Hann býr í Genf í
Sviss en hún í Connecticut í Banda-
ríkjunum. Reyndar er það nú ekki
bara Atlantshafið sem skilur þau
mæðgin að. Ekki alls fyrir löngu til-
kynnti Reza að Persía hefði nú
eignast nýja keisaraynju þar sem
væri heittelskuð eiginkona hans,
hún Yasemine.
Farah hefur löngum litið á sig sem
staðgengil eiginmanns síns sem lést
í útlegð í Egyptalandi árið 1980. Reza
er nú ekki lengur ánægður með þá
afstöðu hennar og gramdist honum
sérstaklega yfirlýsing sú er talsmað-
ur móður hans gaf út á brúðkaups-
degi Reza. Þar sagði að Farah yrði
áfram keisaraynja og samkvæmt
reglum hirðarinnar ætti Yasemine
að ganga tveim skrefum fyrir aftan
tengdamóður sína. Reza hefur nú
hug á að snúa dæminu við.
Yasemine er að vísu aðeins átján
ára gömul og af tyrkneskum ættum
en hún er sögð greind. Getum er leitt
að því að hún vilji ekki lengur vera
í skugga tengdamóður sinnar og eigi
þar af leiðandi sök á ósamlyndi
mæðginanna.
Það bar svo sem ekki á neinu öðru en fjölskylduhamingju þegar hinn ungi
Persakeisari gekk i það heilaga. Þrátt fyrir það var grunnt á því góða...