Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
Fréttir
Eigið fé OLIS er450 milljónir
- skuldir 900 milljónir, útistandandi 1.200 milljónir
Framtíð Olíuverslunar íslands mun ráðast mikið af dugnaði hans Þær nema 1.200 milljónum króna og að eiga. Eignalega stendur OLÍS
hf. í höndum óla Kr. Sigurðssonar við innheimtu útistandandi skulda. þar er fyrst og fremst við útgerðina mjögveltakistaðinnheimtaþaðsem
Húsnæði Sunds h/f i Artúnshöfða í Reykjavík.
DV mynd GVA
úti stendur. Eigið fé fyrirtækisins er
rétt innan við 450 milljónir króna.
Á móti útistandandi skuldum,
þessum 1.200 milljónum, koma
skuldir fyrirtækisins sjálfs. Þær eru
um 900 milljónir króna. Þetta er
staða samkvæmt uppgjöri 30. sept-
ember. Þá hafði veltan verið nærri
1.800 milljónir króna frá áramótum.
Hún verður því væntanlega í nánd
við 2.500 milljónir á árinu.
Það hjálpar Óla Kr. óneitanlega í
þessum innheimtubardaga, sem
blasir við, að útgerðin sem skuldar
OLÍS mest gengur nú betur en um
langt skeið áður, að minnsta kosti í
heildina. Fyrir utan innheimtu úti-
standandi skulda mun nýi forstjór-
inn ætla að koma á ýmiss konar
breytingum á rekstrinum til þess að
bæta afkomuna.
Þótt greiðslustaða OLÍS sé óneit-
anlega erfið er eignastaðan sem sagt
mjög góð og takist að halda henni
með því að innheimtan skili sér þyk-
ir varla mikið að borga 80-90 millj-
ónir króna fyrir 74% í þessu
fyrirtæki. Og fyrstu níu mánuði árs-
ins var raunar 30 milljóna króna
hagnaður á rekstrinum þrátt fyrir
allt.
HERB
Velgengni Sunds h/f:
Fjármálapólitíkin leyndarmál
„Við hér hjá Sund hf. erum með
um 800 vörunúmer á skrá og það eru
ekki einvörðungu Spar-vörumar
sem skila gróða,“ sagði Sveinlaugur
Kristjánsson, framkvæmdastjóri hjá
Sund hf., í samtali við DV. Eins og
kunnugt er af fréttum hefur vel-
gengni heildverslunarinnar Sund hf.
verið mikil á þeim þremur árum sem
hún hefur starfað og hafa forsvars-
menn fyrirtækisins keypt Olís og
Vörumarkaðinn á Seltjamamesi
með nokkurra vikna millibili. Að
auki em þeir að reisa kaffibrennslu
á Hellu.
„Þama liggur viss fjármálapólitík
að baki og ég ætla ekki að fara að
ljóstra henni upp. Hún er atvinnu-
leyndarmál," sagði Sveinlaugur.
„Hinu er ekki að neita að okkur
hefrir gengið vel að selja konfekt,
mæjones og aldinsafa að undan-
fömu. í þessum vömtegundum hefur
verið góður veltuhraði og við erum
ánægðir."
- Hvað með kaffið?
„Við keyptum fyrirtækið Kafco í
febrúar og hófum að flytja inn til-
búið kaffi. Nú erum við famir að
mala sjálfir og erum við að byggja
utan um kaffibrennsluvél á Hellu.
Kaffið okkar höíúm við selt undir
nafninu Spar-kaffi,“ sagði Svein-
laugur Kristjánsson.
-EIR
Alfræðibók á íslensku
Undirritaðir hafa verið samningar
milli bókaútgáfu Amar og örlygs
og Gyldendals-útgáfunnar í Kaup-
mannahöfh um útgáfurétt á Gylden-
dals 2-binds leksikon. Verkið verður
með þeim breytingum sem sérís-
lenskar aðstæður krefjast. Einnig
verður leyfilegt að gera breytingar
á verkinu sem séríslenskar aðstæður
kreíjast og auka vægi íslenska hlut-
arins að vild. Er ætlað að verkið
verði alls um 50 þúsund uppsláttar-
orð í tveimur bindum. Ráðgert er að
þetta mikla verk komi út haustið
1988. Útgáfustjóri verksins er Ásgeir
S. Bjömsson lektor.
Öm og Örlygur hafa sérhæft sig í
útgáfu uppsláttarrita og hafa gefið
út m.a. ritin Heimurinn þinn, Lög-
bókin þín, Landið þitt, Ensk-íslensk
orðabók og Ensk-íslensk skólaorða-
bók. Nú síðast mikið uppsláttarrit
um Reykjavík en fyrsta bindi þess
kemur út í þessari viku. -A.BJ.
Per Finn Jacobsen og örlygur Hálfdánarson undirskrifa samning milli útgáfufyrirtækja sinna.
Það er sannarlega dýrt að ilma. Þetta ilmvatn hefur verið í tísku í meira
en þrjótiu ár og er dýrasta ilmvatnið í verðkönnun NRON. Samkvæmt könn-
uninni kostar glas af þessu ilmvatni nærri 6500 kr. DV mynd GVA
Mestur verðmunur
á ilmvatni 192%
Það munaði hvorki meira né minna
en 1947 kr. á hæsta og lægsta verði á
Chanel nr. 5 ilmvatni í verðkönnun
Neytendafélags Reykjavíkur og ná-
grennis, ASÍ og BSRB.
Annars var algengur verðmunur á
bilinu frá 20-50%. Mestur munur í
prósentutölu var 192,3% á ilmvatni frá
Pierre Cardin. Hæsta verð var 1719
kr. en lægst 588 kr. Kannað var verð
á 42 vöruheitum í 22 verslunum á
höfúðborgarsvæðinu. í fréttatilkynn-
ingu segir að þama sé ekki um
tæmandi könnun að ræða. Þá er einn-
ig tekið fram að í þeim tilfellum þar
sem verðið var áberandi lágt var oft
um lítið magn af viðkomandi vöru að
ræða.
Dyrasti ilmunnn sem verð var kann-
að á var Chanel nr. 5 en 14 ml af
ilmvatnir.u kostuðu hvorki meira né
minna en 6447 kr. -A.BJ