Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Page 3
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. 3 Fréttir DV í dag, Laugardalshöll á morgun: Bonnie Tyjer á beinni línu - Er þetta Bonnie Tyler? „Já,“ er svarað rámri röddu á beinni símalínu er byrjar í DV-húsinu og endar einhvers staðar í London. - Ertu ekki farin að hlakka til Is- iandsfararinnar? „Jú, svo sannarlega. Ég hef aldrei áður komið til íslands en mér er sagt að það sé fallegt þama hjá ykkur," segir Bonnie, stundum kölluð húsmóð- irin með viskíröddina, söngkona sem hefur lagt heiminn að fótum sér í fjöl- mörg skipti með lögum eins og It’s a heartace og Holding out for a hero. Bonnie Tyler verður í Laugardals- höllinni á morgun með fjögurra manna hljómsveit sína og Skriðjökl- ana, Rikshaw, Foringjana og Eirik Hauksson að auki. - Hvað veistu um ísland? „Eiginlega ekki neitt. Þó veit ég að Reagan og Gorbatsjov funduðu í Reykjavík um daginn og þá er flest upp talið. Ég veit ekki við hveiju á að búast. En er ekki voðalega kalt hjá ykkur núna?“ - Ætli sé ekki 5 stiga frost... „Þá er eins gott að ég komi í þykku kápunni minni.“ - Nú heíúr þér stundum verið líkt við Rod Stewart. „Já, ég tók það sem hrós til að byija með en nú er ég orðin hálfþreytt á þeim samanburði. Ég vil þó taka það fram að ég er einlægur aðdáandi Rod Stewart." - Hvað ertu að bralla núna fyrir utan íslandsferðina? „Eins og stendur er ég að kynna nýja smáskífu sem á að koma út 8. desember. Þar er að finna lagið Lo- vers again sem á vonandi eftir að verða vinsælt. Eftir tónleikana í Reykjavík fer ég svo til Frakklands og held aðra tónleika. Að því loknu fer ég heim og reyni að slappa af með flölskyldunni yfir jólin.“ - Ertu gift? „Já, ég er búin að vera gift i 14 ár... - Einhver böm? „Nei, ég hef ekki enn getað gert upp hug minn í þeim efnum. En þau eiga kannski eftir að koma,“ segir Bonnie Tyler og við ljúkum samtalinu. Miðar á hljómleika söngkonunnar em seldir í flestum hljómplötuverslun- um og kosta aðeins 1000 krónur. Bonnie Tyler heldur aðeins eina hljómleika hér á landi að þessu sinni. -EIR Bonnie Tyler ætlar að vera I þykku kápunni sinni þegar hún kemur til lands- ins i dag. „JOLATILBOÐ FJOLSKYLDUNNAR FRA PANASONIC Nú, þegar fjölskyldan slær saman í eina veglegajólagjöf, er mikið atriði að vanda valið. Á tímum gylliboða er nauðsynlegt að staldra við og hugsa sig vel um, því nóg er framboðið og ekki vantar hástemmdu lýsingarorðin. Við viljum þess vegna benda ykkur á Panasonic sem vænlegan kost, sérstaklega þegar það er haft í huga, að Panasonic myndbandstækin fara sigurför um heiminn og eru í dag lang-mest keyptu tækin. Einnig má minna á, að sem stærsti myndbands- tækjaframleiðandi heims, eyða þeir margfalt meiri peningum í rannsóknir og tilraunir en nokkur annar framleið- andi. Það þarf því engum að koma á óvart að samkvæmt umfangsmestu gæðakönnun sem framkvæmd hefur verið hjá neytendasamtökum í sjö V-Evrópulöndum varð niðurstaðan sú, að myndbandstækin frá Panasonic biluðu minnst og entust best allra tækja. Þessar staðreyndir segja meira en hástemmt auglýsingaskrum. Jólatilboð á NV-G7 frá 37.850,- m WJAPIS BRAUTARHOLT 2 SlMI 27133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.