Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 40
RÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fulirar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Símí 27022 Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. Talað um 24-27 þúsund króna lágmarkslaun - aðeins reiknað en ekki ræðst við Þær tölur sem nú er verið að ræða í samningaviðræðum ASÍ, VSÍ og VMS sem lágmarkslaun eru á bilinu 24 til 27 þúsund krónur á mánuði. I hugmyndum ASÍ um lágmarkslaun síðan fyrir helgi er talað um að lægstu laun í dag, 18.919 krónur, sem er 20. flokkur, fari upp í 27.003 kr. á mánuði. VSÍ hefúr aftur á móti nefht 24 þúsund krónur sem lágmarks- laun. I allan gærdag voru svo reiknimeistarar aðila að störfum og ákveðið var klukkan hálfeitt í nótt að þeir héldu áfram störfum í dag og legðu niðurstöður sínar fyrir fund sem fyrirhugaður er kl. 14 í dag. Fundur átti að hefjast hjá samn- inganefndunum kl. 17 í gær en fundurinn byrjaði aldrei. Gefið var matarhlé kl. rúmlega 18 og komið saman aftur kl. 21 en aldrei var ræðst við. Fólk bara sat og beið og ekkert gerðist þar til ákveðið var að fresta öllum viðreeðum, þegar klukkan var að ganga eitt í nótt, þar til í dag. Þeir samningamenn, sem rætt var við í gær, voru mjög svartsýnir á að samningar næðust. Karl Steinar Guðnason, fyrirliði VMSÍ, sagði að enda þótt mjög væri þungt fyrir fæti væri hann ekki vonlaus um að ná mætti samningum i þessari lotu. Hann spáði því að ef uppúr slitnaði nú, myndu samningaviðræður ekki heíjast aftur fyrr en í febrúar eða mars og þá væri hætta á kosninga- lykt af öllu saman. Óttaðist Karl þá mikla hörku og að allt færi úr bönd- unum. Allir sem rætt var við í gær voru sammála um að nákvæmlega ekkert hefði mjakast í samkomulagsátt í gærdag enda varla von þar sem ekk- ert var ræðst við, aðeins reiknað. -S.dór Ingvi Hrafn fréttastjóri: „Eins og stórfréti „Þetta leit út eins og stórf'rétt," sagði Ingvi Hrafn Jónsson, frétta- stjóri sjónvarps, um þá ákvörðun sína að trufla útsendingu á fram- haldsmyndaflokknum Sjúkrahús- inu í Svartaskógi í gærkvöldi með tilkynningu um að miklilsverð frétt væri í vændum. „Það var hringt í okkar mann seint í gærkvöldi og honum sögð þau tíðindi að hótanir hefðu borist skipverjum á Hofsjökli frá um- hverfisvemdarmönnum og að lögregluvörður hefði verið settur um skipið í erlendri höfn. Okkar maður treysti heimildarmannjnum enda leit þetta illá út í lest skipsins eins og sjónvarpsáhorfendur fengu ' að sjá. Það breytir hins vegar dæminu ef logið hefur verið að okkar manni. Það er náttúrlegú alvarlegt mál,“ sagði Ingvi Hrafin. 4EIR Ert þú á leið í AIIKLAG4RD? Eskfirðingar fengu heldur óvænta heimsókn á dögunum þegar selkópur ók um götur bæjarins í hjólbörum. Hann var að vísu ekki einn á ferð því strákarnir, sem fundu hann í fjörunni við Eskifjörð, sáu um akstur farar- tækisins. Kópurinn reyndist gæfur og undi hag sínum hið besta, meðan á ferðalaginu stóð, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Honum var síðan sleppt þegar ferðalaginu lauk. DV-mynd Emil LOKI Úlfur, úlfur. Veðrið á morgun: Él verða víða um landið Á föstudaginn verður lægðar- bóla við vesturströndina, suðaust- an og austan 4-5 vindstig ríkjandi. Dálítil él verða víða um landið og hiti kringum frostmark. Hofsjökulsmálið: segir Watson „Þetta var ekki ég, við hjá Sea Shepherd stefnum aldrei mannslíf- um í hættu í aðgerðum okkar,“ sagði Paul Watson er DV vakti hann á hótelherbergi í Toronto í Kanada í morgun. „Ég hef aldrei heyrt minnst á þetta skip.“ Áf fréttum sjónvarps í gærkvöldi mátti skilja að umhverfissinnar vestan ha£s gætu átt sök á eldi er upp kom í Hofsjökli undan Grænl- andi síðastliðinn sunnudag. Hótanir hefðu borist jafrit skip- verjum og Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna á Bandaríkjunum en Hofsjökull siglir með frystan fisk á Bandaríkjamarkað. „Þetta eru æsifréttir. Við höfum ekki fengið neinar hótanir, hvorki frá Paul Watson né öðrum,“ sagði Birgir Ómar Haraldsson, útgerðar- stjóri skipafélagsins Jökla, í samtali við DV. „Allt bendir til að eldur hafi kviknað i rafgeymi not- aðrar bifreiðar sem var í lest skipsins. Rannsóknarlögreglan vinnur nú að málinu og siðast þeg- ar ég vissi voru rannsóknarmenn á einu máli um að eldsupptök mætti rekja til rafgeymisins.“ Hofsjökull var að koma frá Bos- ton og lagðist að bryggju í Hafnarfirði í gær. Um borð voru 23 skipverjar, þrjár bifreiðir, einn snjóbíll og rækjuvinnsluvél. „Þetta er allt skemmt. Sem betur fer var gott í sjó þegar eldsins varð vart, reykurinn var mikill en eld- urinn staðbundinn. Skipverjum gekk vel að ráða niðurlögum hans,“ sagði Birgir Ómar Haralds- son. Sjóréttur vegna máls þessa verð- ur settur í Hafharfirði í dag. -EIR „Storfrett" sjónvarpsins: Búin til spenna af engu tilefni „Mér snarbrá, ég hélt að eitthvað stórkostlegt væri að, náttúruham- farir, þjóðarleiðtogi væri látinn eða að einhver önnur stórtíðindi hefðu orðið,“ sagði Reykvikingur í samtali við DV í morgun þegar hann var spurður hvemig honum hefði orðið við þegar tilkynnt var um mjög mikilsverða frétt sem birtast ætti í síðari fréttum sjón- varpsins í gærkveldi. Þegar þætti um sjúkrahúsið i Svartaskógi var rétt ólokið birtist letur á skjánum þar sem tilkynnt var um mjög mikisverða frétt sem birtast ætti i síðari fréttum sjón- varpsins. Fréttin var síðan um bruna í Hofsjökli sem hugsanlega var talinn hafa verið af manna- völdum. „Þetta var dæmigert atriði til að búa til spennu af engu tilefni og var þetta sérstaklega kjánalegt þvi auglýsingatími var á milli sjón- varpsmyndarinnar og frétta- tímans," sagði viðmælandi DV. Kona, sem sá ekki tilkynning- una, sagði að maður sinn hefði séð hana og verið mjög spenntur og hefði hann búist við stórtíðindum. „Þetta var heilmikill taugapolki hjá honiun,“ sagði hún. Fleira fólk, sem talað var við, var sammála um að öllum hefði brugð- ið mjög mikið og dottið ýmist í húg eldgos eða samningamir. -ój

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.