Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Page 13
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. 13 DV Ágæti vyðvarnar- tækisins ekki fullsannað Neytendur notaðir sem tilraunadýr fyrir framleiðandann Á undanfomum mánuðum hefur ryðvamartæki fyrir bifreiðar verið auglýst i dagblöðum og bæklingum sem liggja frammi á bensínafgreiðsl- um. Neytendur hafa spurt neytenda- málafulltrúa Verðlagsstofnunar hvort tæki þetta hafi þau áhrif sem lofað er í auglýsingum, sérstaklega með tilliti til tíu ára ryðvamar- ábyrgðar. Frá þessu segir í fréttatil- kynningu frá Verðlagsstofnun. Þar er einnig greint frá þvi að sér- fræðingar hérlendis hafi verið fengnir til þess að meta niðurstöður um prófun tækisins sem gerð var i Kanada. Þeir komust að þeirri nið- urstöðu að ekki væri sannað að tækið, sem heitir „Rust Buster", stöðvi ryð, hindri ryð og komi í veg fyrir ryð út frá grjótkastsskemmdum á lakki og krómi bifreiða. Bendir Verðlagsstofnun á að neytendur ættu að gera sér ljóst að þeir taka þátt í tilraun um ágæti tækisins. Þá bendir stofnunin einnig neyt- endum á að þeir skuli ætíð lesa vel ábyrgðarskírteini sem ryðvamarfyr- irtæki hér á landi láta í té og meta hvort ábyrgðin komi þeim að gagni. I ábyrgðarskírteinum eru oft undan- tekningar sem rýra gildi ábyrgðar- innar, t.d. em einstaka hlutir felldir undan ábyrgð og neytendum skylt að gera einhverjar ráðstafanir sjálfir til þess að ábyrgð haldist í gildi. -A.BJ. Jurtaréttunum vel tekið Síðastliðið haust kom á markaðinn nýjung í matvælaiðnaði. Það vom jurtaréttir frá fyrirtækinu Jurtarétt- ir sf. Á markaðinn komu þijár tegundir af jurtabúðingum, þ.e. car- bansobúðingur, pintobúðingur og soyabúðingur. Við höfðum samband við Hrafn- hildi Ólafsdóttur sem framleiðir jurtaréttina og spurðum hana hvemig þessari nýjung hefði verið tekið af neytendum. Hrafnhildm- sagði að þetta hefði gengið mjög vel miðað við að hún hefði lítið auglýst. Sagðist hún hafa farið í búðir og verið með kynningar. Kemur þá glöggt í ljós að fólk er mjög hrætt við að prófa rétti sem ekki innihalda kjöt eða fisk. Hrafnhildur sagði að nú á næstu dögum kæmu á markaðinn tveir nýir réttir. Það verður í samvinnu við Ágæti sem verður dreifingaraðili og aukast því umsvif sölunnar og réttirnir verða til í fleiri búðum. Það sem kemur nýtt er pottréttur sem nefriist chilepottréttur en uppi- staða hans er haricotebaunir og grænmeti. Rétturinn kemur tilbúinn og hægt er að stinga honum beint í ofninn. Hin rétturinn sem kemur á markaðinn er buff, þ.e. kjúklinga- baunabuff og soyabaunabuff. Það kemur tilbúið þannig að það þarf bara að skella því beint á pönnuna. Pottrétturinn kemur til með að kosta á bilinu 120-130 kr. en 5 buff í pakka á bilinu 150-160 kr. út úr búð. -BB Neytendur I umferðinni: Er bíllinn klár fyrir frostið? Nú er vetur genginn í garð og ef til vill hafa margir ökumenn þurft að glíma við rafmagnsleysi og fleiri vandamál sem fylgja vetrinum. Það er ýmislegt sem þarf að gera fyrir veturinn. Við höfum þegar rætt um vetrardekkin sem vonandi allir hafa þegar sett undir. Þegar kólnar verður erfiðara að snúa vélinni í gang. Því reynir meira á rafgeyminn. Þú skalt því, ökumaður góður, láta mæla geyminn til að athuga hvort hann er í lagi. Mikilvægt er að kerti og platín- ur séu rétt stilltar og ekki slitnar, því slit eða vanstilling gerir það að verk- um að bíllinn verður erfiðari í gang. Þú þarft að starta lengur áður en vél- in fer í gang. Sé um slíkt að ræða skaltu láta líta á kertin og platínumar. Athuga þarf hversu mikið frost vat- nið i vatnskassanum þolir. Til að vera öruggur ættir þú að láta það mikinn frostlög að hann þoli 25-30°C frost. Auðvitað á að vera frostlögur á vatns- kassanum allt árið því hlutverk hans er einnig að verja vatnskassann fyrir ryði. Því ætti að öllum líkindum að vera nægilegur frostlögur á kassanum frá því í fyrravetur, nema þú hafir þurft að bæta á vatni í sumar. Þá eru það læsingamar á bílnum. Þú kannast eflaust vel við það hversu erfitt það er að komast inn í bílinn á morgnana þegar frystir snögglega eftir þýðu. Það er tvennt, sem þú getur gert til að forðast þessi vandræði, í fyrsta lagi getur þú keypt sérstakt lás- asprey til að sprauta inn í lásinn á bílnum og veija hann fyrir raka. í öðm lagi er að smyija vaselíni eða svipuðu efni á þéttikantana til að hindra að þeir frjósi fastir. Mikilvægt er að hreinsa allar rúður bílsins áður en lagt er af stað á morgnana. Þegar hálka er á götum er víða salt- að og verða því rúður bílsins oft mjög fljótt skítugar. Því er nauðsynlegt að nota rúðupiss þó að frost sé úti. Því skaltu ætíð blanda frostvara í rúðupis- sið þegar þú fyllir á, því það gerir lítið gagn í frosti ef það er frosið. Mikilvægt er að rafkerfið sé þétt fyrir raka, þvi bíllinn fer ekki í gang komist raki í rafkerfið. Sprautaðu tec- tyl eða öðm efhi, sem hrindir frá sér vatni, á kveikjulok og kertaþræði. Þannig vamar þú því að vatn eða raki komist i rafkerfið. Mundu að hafa kerti og platínur í lagi, láttu athuga rafgeyminn. Athug- aðu hvort nægilegur frostlögur er á vatnskassanum. Hafðu ætíð frostvara á rúðupissinu og gerðu ráðstafanir til að forðast það að komast ekki inn í bílinn í frosti. Hafðu rafkerfið raka- þétt. Ofangreind atriði em lykilatriði fyr- ir þig, ökumaður góður, svo að þú lendir ekki í vandræðum með bílinn í vetur. Hafðu þessa hluti í lagi og þú verður einn af þeim ökumönnum sem stuðla að bættu umferðaröryggi og aukinni umferðarmenningu EG Þvottahúsið RULLAN sf Auðbrekku 32, Löngu- brekkumegin. Opið kl. 9-4. Tökum allan alhliða þvott, þvoum dúka, gard- ínur og mottur fyrir jól. Höfum einnig opið 27. des. og þið fáið þvottinn fyrir áramót. LEÐURLUX Sýnum um helgina LEÐURLUX sófasettin okkar. LEÐURLUX er nýtt efni sem hefur öðlast frábærar vinsældir fyrir verð og gæði. # Opið laugardag kl. 9-17, sunnudagkl. 14-17.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.