Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
31
r>v Sandkom
Helgi H...
Stefán var
plataður
Þeir á fréttastofu sjónvarps
fóru ægilega illa með Stefán
Valgeirsson fyrr í vikunni.
Þannig var að eftir Húsa-
víkurfundinn fræga fékk
Helgi H. Jónsson, fréttamaður
sjónvarps, Stefán til að lofa
sér því að sjónvarpið fengi að
vera fyrst með fréttina ákvæði
Stefán að fara í sérframboð.
Lofaði Helgi því á móti að
fréttin fengi gott pláss í ann-
ars knöppum fréttatíma
...plataði Stefán.
sjónvarpsins. Inn á þetta
gekkst Stefán.
Svo var það á sunnudaginn
að það tók að kvisast að Stef-
án ætlaði í sérframboð. Þann
dag allan og fram á mánudag
hringdu fjölmiðlar viðstöðu-
laust í frambjóðandann til að
fá hann til að staðfesta sér-
framboðið. En Stefán þagði
sem steinninn. Meira að segja
Dagur á Akureyri fékk enga
staðfestingu þegar hann ræddi
við Stefán um miðjan dag á
mánudag. Á hann þó sæti í
útgáfustjóm blaðsins og hefði
átt að renna blóðið til
skyldunnar.
Á mánudagskvöld nasaði
fréttamaður útvarps það uppi
að viðtal yrði við Stefán í
fréttatíma sjónvarpsins. Hann
hringdi strax en allt sat við
sama. Stefán þagði.
Þegar framboðsfréttin kom
svo loks í sjónvarpinu varhún
miklu styttri en Stefán hafði
haldið enda öll klippt og skor-
in. Hann sat eftir með sárt
ennið og verður áreiðanlega
bið á því að hann láti sjón-
varpið sitja fyrir næst.
Ég öfunda
þig, Sigurður
Fljótfærni manna getur
stundum breytt gráu í svart:
Það var einhverju sinni að
prestur einn utan af lands-
byggðinni lagði leið sína á
landsmót hestamanna á Vind-
heimamelum. Þangað kominn
hitti hann góðvin sinn, bónda
úr sveitinni heima. Bóndinn
sat býsna rogginn ásamt konu
sinni í splunkunýjum jeppabíl
sínum þegar fundxim þeirra
vinanna bar saman.
Prestur gekk rakleiðis til
bóndans, baðaði út öllum öng-
um, virti bílinn lauslega fyrir
sér og sagði svo:
„Ég öfunda þig, Sigurður."
Bóndinn varð hálfhvumsa
við en gaut svo glettnislegu
Bóndinn var á splunkunýjum
jeppa.
auga til konu sinnar sem sat
við hliðina á honum.
Þá var eins og prestur áttaði
sig því hann bætti flaumósa
við: „Nei. nei, ekki af kon-
unni.“
Nærfærin
innheimta
Það veit enginn nema sá
sem reynir hvað það tekur á
taugarnar að skulda hitaveit-
unni. Ekkert er óyndislegra
en tilhugsunin um að skríða
heim í skjólið sem skyndilega
hefur þá breyst úr notalegri
vistarveru í kæliklefa.
En hitaveitirmennimir eru
Fáar hitaveitur skaffa ullarsið-
buxur sé lokað fyrir hitann.
misjafnlega aðgangsharðir við
innheimtuna.
Um daginn var til dæmis
auglýsing í blaði einu frá
Hitaveitu Mosfellshrepps. Þar
stóð:
„Heitavatnsnotendur eru
minntir á að hinn 17. nóvemb-
er var eindagi reikninga fyrir
september/október notkun.
Greiðið skilvíslega og forðist
lokanir. Þama eru til ullarsíð-
buxur.“
Nú, þama virðist skuldur-
um beinlínis hjálpað við að
halda á sér hita ef kuldabol-
amir ná að loka fyrir hitann
heimahjáþeim.
Þá stendur neðst í þessari
sömu auglýsingu frá Hita-
veitu Mosfellshrepps:
„...kirkja er undurfögur og
jólaleg..." Þar er líklega átt
við að alltafmegi grípa til
bænahitans bregðist föður-
landið.
Nýgiftur
Tveir olíufurstar vom að
spjalla um konumar sínar.
„Ég er nú alltaf hrifnastur
af þeim sem eru - aah - stælt-
ar og spengilegar."
„Það er ég líka,“ svaraði
hinn. „Ég var einmitt að gift-
ast kvennalandsliðinu í
handbolta í gær.“
Fjömgur
fundur?
Ekki er gott að geta sér til
um það sem fram fer á fundum
Kvennalistans á Höfn, Homa-
firði. En óneitanlega fer
bugmyndaflugið á stað þegar
auglýsingar eins og eftirfar-
andi sjást í Eystrahomi:
Móðir, kona, meyja!
Fundur í Sjálfstæðishúsinu
Höfn föstudag... Vantar notað
mótartimbur...
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Eygló Gunnþórsdóttir ásamt starfsstúlku sinni, Ingibjörgu Gísladóttur. DV-mynd Anna
Slegið af á ársafmælinu
Arma Ingólfedótttr, DV, Egilsstööum:
Tískuverslunin „Okkar á milli“ á
Egilsstöðum hélt nýverið upp á árs
afinæli sitt. Var þá veittur 10-20%
afsláttur af ýmsum vörum verslunar-
innar í nokkra daga. Eygló Gunnþórs-
dóttir eigandi hefur lagt mikla vinnu
í rekstxrrinn. Hxin kvaðst vera mjög
ánægð yfir þeim jákvæðu viðbrögðum
sem verslunin hefur fengið hjá Aust-
firðingum öllum. Hún sagðist mest
hafa af tískuvörum en undanfarna
mánuði hefúr hiin haft meira af klass-
ískum fatnaði fyrir nánast alla aldurs-
hópa. „Að sjálfsögðu vanda ég mig i
fatainnkaupum og gæti þess að panta
ekki margar flíkur af sömu tegund,
þannig að viðskiptavinir mínir eiga
ekki á hættu að mæta næsta manrxi 1
eins flík,“ sagði Eygló. Við óskum
Eygló til hamingju með afmæli versl-
unar sinnar og ekki síður með hvað
vel hefur til tekist.
„Iceland Video“
Vilhjálmur Knudsen kvik-
myndagerðarmaður hefur lokið við
gerð nýrrar íslenskrar kvikmjmdar
á myndbandi um ísland. Kvikmynd-
in er 60 mínútna löng, gerð á
evrópska sjónvarpskerfinu PAL og
ameríska sjónvarpskerfinu NTSC og
er með ensku tali. í myndinni erfjall-
að um eldvirkni á Islandi, íslenska
náttúru og landið almennt.
Vilhjálmur hefur fylgst með at-
burðum við Kröflu frá upphafi
Kröfluelda og sýnt er frá tímamóta-
gosinu í júlí 1980. Síðan er farið yfir
eldvirka beltið, sýnt frá Surtseyjar-
gosinu, Heimaeyjargosinu, Heklu-
gosinu 1947-48 og 1980, Kötlu svo
og fleiri gosstöðvum.
I síðari hluta myndarinnar eru
ýmsar perlur íslensks landslags
sýndar og nýting jarðvarma kynnt.
Kvikmyndin hefur hlotið nafiiið Ice-
land Video. Ýmis atriði myndarinn-
ar eru eftir Ósvald Knudsen, föður
Vilhjálms. Myndbandið er til sölu í
gjafavöruverslunum í Reykjavík.
-EIR
Ekinn Verð
Landcruiser II árg. ’86, bensín 15.000 890.000,-
Toyota Crown Super Saloon árg. ’80 65.000 410.000,-
Toyota Crown dísil árg. ’83 -ekinn á vél 100.000 430.000,-
Toyota Hi-Lux 4x4, yfirbyggður 57.000 390.000,-
Toyota Hi-Lux dísil turbo árg. '85 35.000 900.000,-
Toyota Tercel árg. ’81, sjálfsk. 69.000 220.000,-
Toyota Starlet árg. ’80 95.000 120.000,-
Mazda 626 árg. '81 70.000 210.000,-
Mazda 626 árg. '82, sjálfsk. 97.000 270.000,-
Mazda 323 árg.'80, sjálfsk. 75.000 160.000,-
Mazda 929 árg. '80, sjálfsk. 70.000 220.000,-
Daihatsu Charade árg. ’81 49.000 180.000,-
BMW 518 árg. ’81 90.000 330.000,-
BMW 316 árg. ’82 51.000 320.000,-
Renault árg. '81, sendibill 97.000 150.000,-
Fiat Panda árg. ’83 35.000 145.000,-
Oldsmobile Cutlass, bensín, m/öllu '80 83.000 450.000,-
Citroen GSA Pallas árg. '82 65.000 210.000,-
M. Benz 250 árg. ’79 103.000 550.000,-
til sölu
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 13-18
Höfum ýmsar tegundir bifreiða á söluskrá
I
I
S/-g7/yW
J
HA6CAUP
v----
/VUKlA&£A(aT
Toyota Corolla special series ’86,
ekinn 8.000, rauður. Verð
410.000,-
Toyota Tercel 4x4 árg. ’84, ekinn
58.000, brúnn/dökkbrúnn. Verð
440.000,-
s/\i y\N
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
SKEIFUNNI 15 108REYKJAVÍK SÍMI (91) 687120
Toyota Camry special series ’86,
ekinn 8.000, Ijósgrænn, sumar/
vetrardekk. Verð 595.000,-
Toyota Hi-Ace bensin árg. ’82, Toyota Corolla árg. ’81, 5 gira,
ekinn 97.000, hvitur. Verð ekinn 87.000, blár. Verð 230.000,-
390.000.-
BMW 518 árg. ’81, ekinn 62.000,
beige. Verð 330.000,-
Toyota Cressida árg. ’80, ekinn
100.000, blár. Verð 220.000,-
mazaa 626 árg. ’82, ekinn 110.000,
grár. Verð 270.000,-
Toyota Corolla Twin Cam árg. ’85,
ekinn 35.000, gylltur. Verð
560.000,-
Toyota Tercel árg. ’83, sjálfsk.,
ekinn 75.000, rauður. Verö
280.000.-
Toyota Cressida GL sjálfsk. ’81,
ekinn 109.000, grár. Verð 330.000,-
Toyota Corolla 1600 DX árg. ’84,
5 gira, ekinn 27.000, brúnn. Verð
350.000,-