Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
19
Hljómplata með leik Halldórs Haraldsson-
ar pianóleikara.
Upptaka: Halldór Víkingsson.
Umslag: Sigurþór Jakobsson.
Skurður: Tape One.
Pressun: Alfa.
Útgefandi: Öm og Örfygur
Að gefa út píanóplötu með verkum
Chopins og Liszt þótti víst lengi íjar-
lægur draumur á Islandi. Þótt
Tónlist
Eyjólfur Melsted
draumurinn sé nokkru nær okkur
nú, liggur við að maður stari úr sér
augun þegar írá einkaútgáfufyrir-
tæki birtist plata af þessu tagi. Getur
það verið að einhver annar en lista-
maðurinn sjálfur eða fyrirtæki
styrkt úr einhverjum menningar-
sjóði gefi út slíka plötu og það ekki
Frábær píanóplata
til styrktar neinu góðu máleíhi, eins
og húsi yfir tónlistina á íslandi eða
þvíumlíku? Jú, mikið rétt. Ekki er
annað að sjá en að Öm og Örlygur
gefi þannig plötu út rétt eins og
hverja aðra skáldsögu og því ber að
fagna. Nú er þetta ekki sagt til að
kasta rýrð á aðra ágæta listamenn
sem leikið hafa og sungið inn á plöt-
ur fyrir þetta fyrirtæki, en yfirleitt
hafa plötur, (og það ekki bara þessa
útgáfiifyrirtækis) á íslandi útgefnar,
verið látnar höfða meir til stærri
kaupendahóps en maður gæti ímyn-
dað sér að keypti Chopin/Liszt plötu
svona upp úr þurru.
Aldarminning
Efiii plötunnar fengu þeir sem á
Halldór Haraldsson píanóleikari.
tónleika Halldórs Haraldssonar í
Listasafni alþýðu komu fyrir í haust
á að hlýða. Þar lék hann innan um
ljósmyndir á sýningu, með mynd-
skoðendur vaðandi yfir og um allt,
á annað og veigaminna hljóðfæri en
Bösendorferinn góða í Hlégarði.
Tónleikana hélt Halldór til að
minnast þess að hundrað ár vom
liðin frá dauða Liszts. Sá er líka til-
gangurinn með þeirri hlið plötunnar
sem verk Liszts eru á, en sú ráðstöf-
un að hafa Chopin í hinni hliðinni
á sér skýringu í náinni og einlægri
vináttu þessara- jöfra píanósins á
nítjándu öldinni. Val verkanna á
plötunni og uppröðun þeirra ber
annars einstakri smekkvísi flytjan-
dans einna gleggst vitni.
Menning
Allar bestu hliðar flytjandans
Harla lítils virði yrði smekkvisin
þó í efhisvali og uppröðun ef ekki
væri svo frábærlega leikið sem raun
er á. Á þessari plötu sýnir Halldór
Haraldsson allar sínar bestu hliðar.
Fimi og yfirferð á borði hljóðfæris-
ins, kraft og hörku en jafnframt
mýkt þar sem hún á við, djörfung,
en einnig fágun, stillingu og yfirveg-
un í túlkun sinni. Nafni hans
Víkingsson er nógu mikill listamað-
ur við takka og tól til að fylgja svo
mögnuðum leik eftir. Hvergi bregst
upptakan og eftirleikur iðnaðarins
eins vandaður og hann getur orðið
á því verkstæði sem hann er unninn.
En óneitanlega hefði mátt leggja
jafnmikið í þann þáttinn og hina sem
á undan voru nefndir. Á reyndar hið
sama við hér og um plötu Kristins
og Jónasar sem næst er í útgáfuröð
á undan þessari. Umbúðir eru
smekklega unnar - verðugur pakki
utan um fiábæra píanóplötu.
Stelpa í stráksgervi
Ein al strákunum.
Höfundur: Ull Stark.
Þýðandi: Njörður P. Njarðvík.
Útgefandi: Iðunn.
154 bls.
Nafnaruglingur er annað en grín,
sérstaklega ef viðkomandi heitir Sim-
one og er kvenkyns en skólayfirvöldin
lesa þetta fína franska nafh hreinlega
sem karlmannsnafiiið Símon. Þessi
ruglingur er undirstaðan í flækjunni
i Ein af strákunum sem segir frá Sim-
one, stelpukrakka sem er í þann
veginn að breytast í ungling. Hún
gæti auðveldlega verið í ætt við Línu
langsokk, uppátækjasöm, ófyrirleitin
og fyndin. Hún á móður, Olgu, sem
teiknar vellulegar myndskreytingar
fyrir vikublöð, faðirinn er hvergi í
augsýn en í stað hans kemur afinn,
óvenjulegur tónlistarmaður, kominn í
kör. Hann gefur lítið fyrir leið-
indapúka en skýjaglópar og vitfirring-
ar eru honum að skapi enda eru hann
og dóttir hans einmitt þeirrar tegund-
ar. Vonir afans standa einnig til þess
að Simone verði svipuð forfeðrunum
að allri gerð og lesandanum býður í
grun að karli verði að ósk sinni.
Hattfíflið
Nafnið er ekki það eina sem fer í
taugamar á Simone. Móðir hennar
lítur gjaman út eins og „bijáluð frum-
skógargella úr einhverri Tarzanmynd"
(35); hún er manneskja sem klæðir sig
ekki og hagar sér ekki eins og fólk
flest. Og til að bæta gráu ofan á svart
tekur móðirin saman við karlpersónu,
Yngva, sem Simone þykir hentast að
kalla „hattfíflið" eða viðlíka óvirðu-
legum nöfnum. Simone, Olga og
hundurinn Kilroy flytja til elskhuga
móðurinnar og þeir flutningar verða
all sögulegir. Simone þarf að skipta
um skóla og gengur ekki of vel að
aðlagast breyttum aðstæðum. Vissu-
lega er margt í frásögninni ýkjukennt
Bókmenntir
Solveig K. Jónsdóttir
en skáldskapur lýtru nú einu sinni
sínum eigin lögmálum.
Ulf Stark lýsir tilfinningum Simone
ósköp eðlilega. Hún agnúast út í
mömmu sína þegar hún kvíðir fyrir
að fara i skólann og hatast við aum-
ingja Yngva sem ekki gerir flugu mein.
Að mati Simone er það honum að
kenna að þær mæðgur þurftu að flytja
og allar hrellingamar, sem í kjölfarið
fylgja, skrifast sömuleiðis á hans
reikning. Ljósi punkturinn í lífi stúlk-
unnar verður afinn, karlægur og
kominn á leiðarenda. Hann er vitur
og góður, faðir, afi og ímynd guðs í
augum bamabamsins; afi sem gegnir
hlutfverki sínu af stakri prýði. Ekki
má heldur gleyma tilfinningaflækjun-
um sem Simone lendir í gagnvart
bekkjartöffaranum Isak sem hún lend-
ir upp á kant við, hrellir, hjálpar og
verður loks ástfanginn af.
Að lifa lífinu
Simone er sterkur krakki og þó hún
verði vitfirringur og skýjaglópur, eins
og afinn óskar, er hún ekki þar með
á leið í neinar ógöngur. Með skýja-
glópum og vitfirringum á afinn nefhi-
lega við fólk sem hefur ekki
hefðbundin né þröngsýn viðhorf til
lífsins, það er óhrætt við að takast n
við það skemmtilegu viðfangsefhi að
vera til og lifa lífinu. Þess vegna er
óhætt að mæla með Ein af strákunum
fyrir alla en ekki síst krakka á aldrin-
um 11 til 15 ára. Sagan er fyrst og
frernst- skemmtileg eins og sögum er
skylt að vera og að auki næm á við-
fangsefhi þessa aldurshóps.
Þýðing Njarðar P. Njarðvík á Ein
af strákunum er ljómandi lipur, tals-
máti krakkanna eðlilegur og hvergi
gengið of langt í staðfærslum. Bókin
er og verður um sænska krakka og
það er býsna spennandi fyrir þá ís-
lensku að heyra af Simone og félögum.
-SKJ.
AUKUM
TÆKIFÆRI FATLAÐRA
KAUPUM MIÐA I SlMAHAPPDRÆTTI
STYRKTARFÉLAGS LAMAÐRA OG FATLAÐRA
STUÐNINGUR YKKAR
ER OKKAR STOÐ
DREGIÐ 24. DES.