Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. Sviðsljós Ólyginn sagði. . . Elizabeth Taylor ber oft á góma í Hollywood þessa dagana vegna nýju alkó- hóllausu megrunarlínunnar sinnar. Altalað er að útlit stjörn- unnar hafi ekki verið betra í mörg ár og nú hefur hún sett allt á fullan skrið aftur. Næsta verkefni stjörnunnar er söng- og dansmynd með Dolly Par- ton. Linda Evans og Robert Wagner, nýtt par í Hollywood? Hver veit, í Hollywo- od getur allt skeð. Sú saga hefur gengið fjöllunum hærra að nýj- asta parið þar vestra séu þau skötuhjú. Myndin náðist þegar þau komu út af góðgerðarsam- komu og unga daman með þeim á myndinni er Nastasha, dóttir Wagners. Madonnu er lítið gefið um Ijósmyndara þessa dagana og hylur hún and- iit sitt í hvert sinn sem myndavél er munduð. Það er ósköp lágt á henni risið og baugfingur er auður, enginn hringur. Sú spurning brennur á vörum margra hvort hann sé horfinn þaðan fyrir fullt og allt. Gleymdu þeir sund- Hér er verið að æfa sig í að komast á sem skemmstum tíma upp í björgunarbátinn en ekki gengur öllum jafnvel að komast inn. Nemendur líkja eftir aðstæðum og æfa sig i að synda með bundið fyrir augun til að finna tilfinninguna fyrir að synda í myrkri. Björgunaræfing var haldin í Sund- höllinni fyrsta desember síðastliðinn á vegum Slysavarnafélags fslands. Þetta er árlegur viðburður og mæta þá allir nemendur Stýrimannaskól- ans til leiks. Á æfíngunni tókust menn á við ýmislegt sem gæti þurft að kunna tökin á ef slys bæri að höndum úti á sjó. Það voru æfð rétt handtök á björgunarbátnum, synt var blind- sund, stokkið af háa bréttinu í Sundhöllinni til að líkja eftir stökki úr skipi o.s frv. Þegar ljósmyndari DV leit inn í Sundhöllina var margt um manninn og æfingin í fullum gangi. Kappsemi og athygii lýsti úr hverju andliti og allir lögðu sig fram eins og þeir best gátu. Það segja eflaust margir að það sé ekki hægt að líkja saman heitri sundlaug og köldum sjónum og það er alveg rétt. Á þessari æfingu er mest lagt upp úr því að nemendur læri rétt handtök en síðan fá þeir fleiri æfingar við aðrar aðstæður í Slysavamaskóla sjómanna. Boxandi kengúra er ekki algeng sjón en Digger litli lætur það ekki á sig fá og æfir af kappi með þjálfaranum sínum, Helge Dam. En róðurinn er þungur og Digger er enn valtur á fótum þegar æfingar standa yfir og hlýt- ur því margar byltur á hverjum degi. En hér er það þjálfarinn hans sem hefur misst jafnvægið enda fékk hann huggulegt faðmlag frá Digger sem er einstaklega kelinn og tekur það oft fram yfir boxið. Eftir þetta knús og kelerí endurskírði Helge Digger og kallar hann hjar- taknúsarann. „Digger er sannur hjartaknúsari,“ segir Helge, þjalfar- inn hans, og sést þaö greinilega hér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.