Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Síða 37
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
37
Sviðsljós
Ómótstæðilegur
mótleikari
Hvaða kvenmaður myndi neita
þessum tennisspilara um leik?
Nýjasta farið í henni Ameriku er ao karlpeningurinn mæti fáklæddur
og „sexí“ til leiks og virðist það falla vel í kramið hjá tennisspilurum
þar vestra. Þeir segja að þetta veki upp spennu og eftirvæntingu bæði
hjá áhorfendum og leikmönnum og þetta veki einnig áhuga hjá fólki
sem aldrei hafi sýnt þessari iþrótt neinn sérstakan áhuga.
segir Lisa Bonet
sem leikur Denise
i Fyrirmyndarföður
„Ég hata New York. Bærinn er
alltof stór og skítugur og þegar það
þyrmir yfir mig fer ég og leita upp-
örvunar hjá Bill Cosby. Hann er sá
faðir sem ég hef alltaf þráð og án
hans veit ég ekki hvar ég væri,“ seg-
ir Lisa Bonet.
Það segja allir sem leika í Fyrir-
myndarföður að Bill sé sá maður sem
hægt sé að leita til og treysta á og
sömu sögu hefur Lisa að segja.
„Hann hefur alltaf góð ráð á taktein-
um. Hann býður mér heim til sín og
fjölskyldu sinnar sem samanstendur
af eiginkonu og fimm börnum líkt
og í Fyrirmyndarföður.
Lisa Bonet fékk hlutverkið sem
Denise Huxtable eftir prufutöku sem
hún fór í ásamt hundruðum annarra
fallegra stúlkna fyrir þremur árum
og fékk hún tíu mínútna umhugsun-
arfrest til að taka hlutverkinu eða
hafna því.
„Ég sló til jafnvel þótt ég vissi að
þetta ætti eftir að breyta daglegu lífi
mínu. Byrjunin var að flytjast til
New York þar sem upptökur þátt-
anna fara fram og það reyndist mér
erfitt. Ég hef mjög gott samband við
móður mína sem hefur lagt allt sitt
af mörkum til að ég geti orðið leik-
kona og svo elska ég Kaliforníu þar
sem ég bjó þar til ég tók við hlut-
verki Denise.
Ég hef aldrei þekkt pabba minn.
Ég var bara smábarn þegar hann
stakk af og síðan höfum við hvorki
séð haus né hala af honum.
Ég var lengi eina barn móður
minnar og ég lærði snemma að vinna
fyrir mér. Ég var aðeins tíu ára þeg-
ar ég hóf störf í stórmarkaði og ég
passaði húsið þegar móðir mín vann
aukavinnu til að draumur minn um
að verða leikkona gæti orðið að
veruleika.“
Nú býr Lisa alein í leiguíbúð í góðu
hverfi í New York og sá litli frítími
sem hún hefur fer í að safna plötum,
kaktusum og skemmtilegum höttum.
„Mér fmnst ekki tímabært að vera
í föstu sambandi auk þess sem ég hef
ekki tíma til að vera í strákastandi.
Það sem ég hugsa um núna er að
verða leikstjóri í komandi framtíð.
Ég hef engar ákvarðanir tekið um
hvenær ég kveð Fyrirmyndarföður.
Ég var óþekkt þegar ég hóf að leika
í þáttunum, hafði fengið smá auka-
hlutverk í sjónvarpinu en i dag veit
ég ekki aura minna tal, þökk sé
þáttaröðinni. Það væri auðvelt fyrir
mig að hætta að vinna í dag og lyfta
ekki litla fingri það sem eftir væri
ævinnar."
Lisa er ekki hrædd við að ferðast
ein í New York þrátt fyrir dimm stæti
og garða. Hún er meistari i karate
og unglingameistari í hundrað metra
hlaupi kvenna þannig að hún gæti
beitt ýmsum brögðum ef á þyrfti að
halda.
Já, það er nóg að gera hjá Lisu
„Denise" Bonet.
-BB
Ölyginn
sagði. . .
Tom Cruise
fækkar ekki klæðum fyrir hvern
sem er. Top Gun stjarnan hefur
hafnað sérdeilis girnilegu tilboði
sem honum bauðst frá kvenn-
tímaritinu „Playgirl" um að
opinbera helgidóminn þsr á síó-
um.
Kempan sagðist ákveða sjáif
hvenær hún fækkað; fötum og
að hver sem væri fengi ekki að
sjá herlegheitin.
Linda Gray
varð hálfbleik í síðustu kossas-
enu með Larry „JFT Hagman í
Dallas nú nýverið. Larry hafði
veitt sér þann munað að snæða
snigla kvöldið áður þar sem
hvítlaukur var uppistaða réttar-
ins. Að vonum var það fyrsta
verk Lindu að kvikmyndatöku
lokinni að fara beina línu í næsta
apótek og kaupa munnsprey
handa vini sínum, Hagman.
Whitney
Houston
fær að jafnaði þúsundir fyrir-
spurna á dag um hvernig hún
fari að því að vera svona glæsi-
leg hvenær sem til hennar sjáist.
Whitney segir það stafa af góðu
mataræði og góða skapinu sem
fylgi henni hvert sem hún fari.