Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 9. JANUAR 1987.
Fréttir
i>v
Rækjutogarinn Hafþór frá ísafirði:
Mun sigla inn ef aðrir
togarar gera það líka
- segir útgerðarstjórinn Birgir Valdimarsson
„Við létum það alfarið í hendur
skipstjórans hvort hann héldi áfram
veiðum eða færi að óskum samnings-
aðila í sjómannadeilunni og sigldi inn.
Hann sagðist ekki sigla inn einskipa,
enda engin sanngirni í að kalla hann
einan til hafnar, fjöldinn allur af skip-
um er á veiðum í trássi við Sjómanna-
sambandið. Það er hins vegar alveg
ljóst að ef aðrir togarar verða kallaðir
inn, kemur Hafþór líka, en skipstjór-
inn Iætur ekki kalla sig einan til
hafnar," sagði Birgir Valdimarsson,
útgerðarstjóri hins nafntogaða rækju-
togara frá Isafirði, Hafþórs, í samtali
við DV í gærkvöldi en þá var hann
nýkominn til Reykjavíkur.
Birgir sagðist eiga erindi við sjávar-
útvegsráðherra út af öðrum málum en
þessu. Hann sagðist aftur á móti eiga
von á því að þetta mjög svo umdeilda
mál kæmi til umræðu á fúndi hans
með ráðherranum. Eins sagðist Birgir
vera tilbúinn til að ræða við deiluað-
ila í sjómannadeilunni, ef það mætti
verða til þess að liðka fyrir um lausn
málsins.
Það er alveg ljóst að sjómenn munu
ekki setjast að samningaborði fyrr en
togarinn Hafþór er kominn til hafnar.
En hvort þessi nýja staða, að hann
fylgi öðrum togurum til hafnar, verður
til að breyta einhverju, kemm- í Ijós í
dag eða um helgina.
-S.dór
Fulltrúar Bylgjunnar á ísafirði á fundi með Matthiasi Bjarnasyni og Halldori Ásgrímssyni í gær.
DV-mynd Ragnar S
Sjómannadeilan:
Frá sátta-
semjara til ráð>
herrafundar
nkisstjómin farin að hafa afskipti af deilunni
Fundur sá sem Guðlaugur Þor-
valdsson boðaði deiluaðila í sjó-
mannadeilunni á í gærmorgun var
stuttur. Hann stóð í innan við klukku-
stund, þá gengu fulltrúar sjómanna
af fúndi þar eð rækjutogarinn Hafþór
frá ísafirði var enn að veiðum.
Þá gerðist það að ríkisstjómin ákvað
að blanda sér í málið. Samninganefhd-
ir deiluaðila vom kallaðar á fund
ráðherranna Halldórs Asgrímssonar
og Matthíasar Bjamasonar. Hópamir
komu til fundar hver fyrir sig og stóðu
fundahöldin yfir í þrjár klukkustund-
ir.
Staðan í deilunni var rædd og deilu-
aðilar skýrðu sjónarmið sín fyrir
ráðherrunum. Það kom í ljós á þessum
fundum að ráðherramir, eins og fleiri,
stóðu í þeirri meiningu að útgerðar-
stjóm rækjutogarans Hafþórs hefði
skipað skipstjóranum að hætta veið-
um og sigla inn. Svo er alls ekki, eins
og kemur fram í viðtali við Birgir
Valdimarsson, útgerðarstjóra togar-
ans, í DV í gær. Þvert á móti segir
Birgir skipstjórann hafa fullan stuðn-
ing útgerðarstjómar um að halda
áfram veiðum. Þetta kom ráðherrum
á óvart, að sögn fulltrúa vestfirðinga.
Matthías Bjamason viðskiptaráð-
herra benti deiluaðilum á þá hættu
sem fiskmarkaðir okkar erlendis væm
að komast í ef verkfallinu héldi áfram.
Að öðm leyti lögðu þeir ekkert ákveð-
ið til málanna. Framvinda málsins er
í mikilli óvissu. Guðlaugur Þorvalds-
son sáttasemjari segir tilgangslaust að
kalla menn til sáttafundar meðan
Hafþór er að veiðum. -S.dór
Nýir eigendur að Tívolí
Á næstunni munu nýir aðilar taka
yfir meirihluta hlutabréfa í
Skemmtigarðinum hf. sem rekur Ti-
volí Eden-Borg i Hveragerði. Aðal-
eigandi fyrirtækisins nú er Sigurður
Kárason. Aðaleigandi mun verða
i Ólafur Ragnarsson hæstarréttarlög-
maður í Reykjavík.
Tildrög þessara eigendaskipta
munu vera þau að Fjárfestingarfé-
lagið, sem á kröfu upp á um fimmtán
milljónir í Skemmtigarðinn, hefur
krafist þess að til að gerðar verði
skuldbreytingar á lánum félagsins
komi til nýir hluthafar og að Sigurð-
ur Kárason hætti öllum afskiptum
af fjármálum félagsins.
Upphaf þessa máls mun vera það
að í október 1985 keypti Verðbréfa-
sjóður Fjárfestingarfélagsins
skuldabréf að upphæð þrettán millj-
ónir króna af fyrirtækinu Skemmti-
garðinum sf. Bréf þessi voru með
fyrsta gjalddaga í október á síðasta
ári.
Samkvæmt heimildum DV mun
Verðbréfasjóðurinn hafa kannað
rækilega þær tryggingar sem voru
fyrir bréfunum en þær eru í landi,
fasteignum og tækjum Skemmti-
garðsins. Fengið var álit hjá sérfræð-
ingum í Bandaríkjunum og Italíu
um raunverð á skemmtitækjunum.
Einnig voru fengnir fasteignasalar
til að leggja mat á eignir félagsins.
Munu þær hafa numið að minnsta
kosti þrjátíu milljónum króna og
fékk Verðbréfasjóðurinn fyrsta veð-
rétt í öllum þessum eignum og einnig
þeim eignum sem kynnu að rísa á
landi Skemmtigarðsins í framtíðinni.
Fjárfestingarfélagið yfirtekur
skuldabréfin
Hið næsta sem gerðist í málinu var
það að síðastliðið vor var það upp-
lýst að Sigurður Kárason væri
tengdur okurmálinu svonefnda og
skuldaði Hermanni Björgvinssyni
rúmar eitt hundrað og áttatíu millj-
ónir. Þá þegar greip Fjárfestingarfé-
lagið til þess ráðs að taka yfir
skuldabréf þau er Verðbréfasjóður-
inn átti með veði í eignum Skemmti-
garðsins sf. Það mun hafa verið gert
til þess að koma í veg fyrir að Verð-
bréfasjóðurinn biði álitshnekki
vegna viðskipta við fyrirtæki i eigu
Sigurðar Kárasonar.
I júní á síðastliðnu ári er síðan
fyrirtækinu Skemmtigarðinum sf.
breytt í hlutafélag en var áfrarn að
mestu í eigu Sigurðar Kárasonar.
Þegar kom fram í október á síðast-
liðnu ári og Skemmtigarðurinn hf.
átti að byrja að greiða af bréfunum
hjá Fjárfestingarfélaginu fóru
greiðslur í vanskil og munu nú um
sex milljónir vera í vanskilum.
Heildarskuld Skemmtigarðsins við
Fjárfestingarfélagið mun hins vegar
nema um fimmtán milljónum króna
með vöxtum og dráttarvöxtum.
Staðan i málinu í dag er sú að
Fjárfestingarfélagið hefur beðið um
uppboð á eignum Skemmtigarðsins
og alfarið hafnað óskum um skuld-
breytingu nema að nýir eigendur
komi inn í fyrirtækið með meiri-
hlutaeign og þar kemur Ólafur
Ragnarsson hæstaréttarlögmaður
inn í málið. Hann ásamt fleirum mun
nú standa í viðræðum við Fjárfest-
ingarfélagið um skuldbreytingu.
Ölafúr Ragnarsson varðist allra
frétta er DV spurði hann um þetta
mál. Hann staðfesti þó að hann
ásamt fleirum væri að athuga hvort
grundvöllur væri fyrir því að kaupa
meirihluta í Skemmtigarðinum en
það væri undir því komið hvort
hægt væri að semja um skuldbreyt-
ingu á bréfúm sem eru í vanskilum
hjá Fjárfestingarfélaginu og einnig
hvemig önnur skuldastaða fyrirtæk-
isins væri.
Vilja Sigurð Kárason út
Gunnar Helgi Hálfdanarson, fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfélags-
ins, sagði í samtali við DV að það
væri alveg ljóst að ef ekki fengjust
nýir hluthafar inn í Skemmtigarð-
inn, sem þar færu með meirihluta,
°S væri að Sigurður Kárason
kæmi ekki framar nálægt fjármálum
fyrirtækisins þá yrðu eignir
Skemmtigarðsins boðnar upp.
Gunnar sagðist ekki hafa áhyggjur
af því að peningar Fjárfestingarfé-
lagsins væru í hættu í þessu máli
en að þægilegra væri fyrir alla aðila
að ekki þyrfti að koma til uppboðs.
Gunnar sagði að upphæð bréfanna
sem keypt hefðu verið af Skemmti-
garðinum væri einungis brot af veltu
Fjárfestingarfélagsins og stafaði
hluthöfum engin hætta af þessum
viðskiptum.
Hlutafé Fjárfestingarfélagsins er
þrjátíu milljónir króna en árið 1984
var ákveðið að auka hlutaféð um
þrjátíu og fimm milljónir króna og
er þeim hlutafjaraukningu nú nær
lokið. a4
Sennilegt er að nýir eigendur muni koma inn i Tívolíið í Hveragerði.
Skuldastaða fyrirtækisins mun vera slæm og eina vonin um áfram-
haldandi rekstur mun vera sú að nýir eigendur eignist meirihluta i
fyrirtækinu. Annars munu eignir þess verða boðnar upp.