Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987.
7
Fréttir
Davíð vill að skipulagsvinnu
Guðrúnar Ijúki 1. apríl
var falið að skipuleggja „gamla bæinn“
Borgarstjórinn, Davíð Oddsson,
hefur tilkynnt Teiknistofii Guðrúnar
Jónsdóttur að ekki verði um frekari
greiðslur til hennar að ræða eftir 1.
apríl vegna vinnu við skipulagningu
gömlu hverfanna í Reykjavík. Guðr-
ún telur upphaflegum samningi ekki
lokið fyrr en í sumar í fyrsta lagi
og segir að mikilli vinnu og íjármun-
um verði kastað á glæ ef klippt verði
á verkið.
Guðrún Jónsdóttir var forstöðu-
maður Skipulagsstofu borgarinnar
en var sagt upp fyrir um þrem árum.
Þá var samið við hana um það í
júní 1984 að annast „skipulag gamla
bæjarins“ að undanskilinni Kvo-
sinni og Skúlagötusvæðinu. Átti að
endurskoða aðalskipulag svæðisins
og gera deiliskipulag af einstökum
reitum. Síðar var ákveðið að bæta
inn í verkið svokölluðu hverfaskipu-
lagi sem er eins konar millistig.
I bréfi, sem borgarstjóri skrifaði
Teiknistofú Guðrúnar 21. nóvember,
er hún krafin um skil á verkefhi sínu
fyrir 1. apríl og tilkynnt að eftir þann
tíma fái hún ekkert greitt vegna þess.
Guðrún segir í bréfi frá 19. desember
að gert hafi verið ráð fyrir minnst
þrem árum til þess að ljúka upphaf-
lega verkinu og að aldrei hafi verið
gerðar athugasemdir við eitt eða neitt
sem hún hafi skilað til þessa.
Hún sagði í viðtali við DV að
hverfaskipulagið hefði tekið all-
nokkum tíma undanfarið og þvi
væri deiliskipulagið eftir. í þessu
starfi fælist gífurleg gagnasöfnun
þar sem gömlu hverfin hefðu ekki
verið deiliskipulögð áður. Úrvinnsl-
an yrði því að byggja á yfirgripsmik-
illi vitneskju sem nú lægi fyrir á
teiknistofú hennar. Nokkurra mán-
aða vinna væri eftir og það yrði
vafalaust dýrt og fyrirhafnarsamt
fyrir annan aðila að ljúka þessu
verki.
Borgarstjórinn skrifaði Teikni-
stofu Guðrúnar aftur og ítrekaði
fyrri ákvörðun sína um verklok 1.
apríl. Hann kynnti svo ákvörðun
sina í borgarráði 30. desember. Þar
flutti minnihlutinn tillögu um að
haldin yrði sýning á því sem fyrir
lægi frá Guðrúnu og síðan tekin
ákvörðun um framhaldið. Samþykkt
var að halda sýninguna en fellt með
3 atkvæðum gegn 2 að fresta ákvörð-
un um framhald. -HERB
Fasteignamarkaðurinn á Selfossi:
Drjúg sala
Yr^n Pmatnywi nV, að að ^ Það á Sama g™™i Og
T___ _______ venð hefur.
Makaskipti á fyrirtækjum og fast- Verslunarraannafélag Ámessýslu
eignum vom þónokkur í kringum og rafiðnaðarmenn á Suðurlandi
áramótin á Selfossi. Sem dæmi má eiga nú alla efstu hæð hússins að
nefha að Heilsusport, líkamsræktar- Eyrarvegi 15. Félag byggingar-
stöð í eigu Hafsteins Þorvaldssonar, manna, sem áður átti húsið með
var seld um áramótin. Kaupandi er ofangreindum verkalýðsfélögum,
Jón B. Stefánsson, framkvæmda- hefúr nú fest kaup á hálfri hæð í
stjóri á Eyrarbakka. Heilsusport Árvirkjahúsinu að Eyrarvegi 29 á
verður áfram til húsa á sama stað, Selfossi.
það er í austurenda gamla KÁ- Loks má geta þess að nú standa
hússins. yfir viðræður milli forráðamanna
Þá seldi Ámi Sigursteinsson Selfossbæjar og Kaupfélags Árnes-
Gúmmívinnustofú Selfoss um ára- inga um kaup bæjarins á gamla
mótin: Ámi hefur rekið fyrirtækið í verslunarhúsi Kaupfélagsins. Skrif-
áraraðir. Kaupandi er Sólning hf. í stofúr Selfossbæjar eru nú í mjög
Kópavogi. Þetta fyrirtæki verður óhentugu húsnæði og er brýn þörf á
einnig áfram á sama stað og er áætl- úrbótum.
íslandsflug erlendra flugfélaga:
Flugmálayfirvöld
engin gögn fengið
„Ég hef ekkert séð. Þessi flugfélög verða að sinna, að leggja fram bæði
hafa engin gögn lagt fram, hvorki flugáætlun sína og fargjöld. Við
hér né í samgönguráðuneytinu," þurfúm að sjá hvort þau em sam-
sagði Þórður öm Sigurðsson, frarn- kvæmt þvi sem samtök flugfélaga
kvæmdastjóri alþjóðamála hjá gera ráð fyrir á þessari leið,“ sagði
Flugmálastjóm, er DV spurði hvort Þórður Öm.
upplýsingar hefðu borist um íslands- Lufthansa hefur þegar sett ísland
ílug þýska flugfélagsins Lufthansa á bráðabirgðaflugáætlun fyrir næsta
eða breska flugfélagsins British sumar. British Midland hefui4 einnig
Midland. boðað íslandsflug.
„Þetta er formsatriði sem þau -KMU
Fanginn verður
að vera bötaþegi
Maki fanga getur aðeins fengið að fyrirbyggja hugsanlegan mis-
mæðralaun ef fanginn er bótaþegi skilning á frétt DV síðastliðinn
samkvæmt almannatryggingalög- mánudag.
um. Þar var skýrt frá því að Alþingi
Ingimar Sigurðsson, deildarstjóri í hefði fyrir jólafrí rýmkað rétt til
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- mæðralauna.
neytinu, vildi að þetta kæmi fram til -KMU
Neskaupstaður:
Jólin kvödd með brennu
Þorgeröur Malmqmst, DV, Neskaupslaö;
Á þrettándanum var álfabrenna
haldin í Neskaupstað. Það var Li-
onsklúbburinn Osk sem stóð fyrir
brennunni ásamt félögum úr íþrótta-
félaginu Þrótti. Kór Lionsmanna
söng.
Fjöldi bæjarbúa var við brennuna
og mæltist þetta vel fyrir. Álfa-
kóngur og álfadrottning voru í
fararbroddi og á eftir fylgdu álfar
og púkar ásamt börnum í íúrðule-
gustu búningiun. Björgunarsveitin
Gerpir sá svo Norðfirðingum fyrir
hinni veglegustu flugeldasýningu.
Verður var mjög gott á Norðfirði á
þrettándanum og átti það sinn þátt
í sð skapa góða stemningu.
DV-mynd S.
Vagnstjorar kvavta um
aðbúnað á Lækjartorgi
- sáttir við Hlemminn
Vagnstjórar Strætisvagna Reykja-
víkur hafa. kvartað mjög yfir því
húsnæði sem þeir hafa til afnota á
Lækjartorgi. Þeir telja það of þröngt
og þar eru reykingar leyfðar. Þetta
var meðal annars eitt af því sem þeir
vildu fá lagfært þegar þeir voru með
mótmæli í haust.
„Það er alveg rétt að þessu húsnæði
er ábótavant, einkanlega vegna þess
hve þröngt það er, en því miður virð-
ist lausn ekki í sjónmáli fyrr en ný
stöð strætisvagnanna verður byggð.
samkvæmt nýja skipulaginu. á homi
Hafnarstrætis og Kalkofnsvegar."
sagði Hörður Gíslason skrifetofustjóri
Strætisvagna Revkjavíkm'.
Hörður sagði að þegar vaktaskipti
ættu sér stað í þessu húsnæði væri
vandamálið mest. Á sjálfum vöktunum
eru þetta einn til þrír menn inni og
það sagði hann í lagi. en þegar þeir
væm 6 til 7 þá vandaðist málið.Hann
sagði stjómendur fyrirtækisins hafa
áhyggjur af málinu. en því miður virt-
ist erfitt að finna lausn á.því.
Aðbúnaðurinn í húsi því sem vagn-
stjórar hafa til afnota við Hlemmtorg
er aftur á móti orðinn viðunandi.
Þama er um gamalt hús að ræða sem
nýtur verndar hvað brevtingum við-
kemur. en innan le>-filegra marka
hefur aðbúnaðurinn verið lagfærður
og má teljast góður. sagði Hörður.
-S.dór
GLÆSIVAGNAR
Peugeot 505 GRD, 7 manna disilbif-
reiö, árgerö 1985, ekin 109 þús. km, sjálfskipt,
vökvastýri, útvarp/segulband, lltur brúnsans.
Ath. sklpti á ódýrari bifreiö, einnig má ath.
fasteignatryggö skuldabréf. Verö 800 þús.
Audi 100 CC árgerö 1985, ekin aö-
eins 21 þús. km, 5 gíra, vökvastýri, álfelgur,
tvöfaldur dekkjagangur, litaö gler, litur d-
blár, metallic, gulHalleg, sem ný. Ath. skipti
á ódýrari bifreiö. Verö 880 þús.
Greiðslukjör við flestra hæfi.
Mercedes Benz 190E árgerð 1984,
ekin 38 þús. km, sjálfskipt, vökvastýri, bein
innspýting, rafmagnsrúöur og -speglar, topp-
lúga, höfuöpúöar aftur i, litur gullsans. Ath.
skipti á ódvrari bHreió. Veró 930 bús.
Honda Accord EX ðrgerð 1985,
ekin aöeins 10 þús., km, 5 gira, vökvastýri,
rafmagn í rúóum, útvarp/segulband, sumar-
dekk/vetrardekk, litur blár, metallic, ath.
skipti á ódýrari bHreió. Veró 580 þús.
Nissan Patrol TURBO dísil, lengri
geró, árg. 1985, ekin aöeins 23 þús. km, 5
gíra, vökvastýri, white spoke felgur, ný dekk,
brettaútvikkanir, grind aó framan og Ijóskast-
arar, bein sala. Veró 980 þús.
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ: veró.
Audi coupé GT árg. 1983 ...............670 þús.
Audi Quadro GTE 4x4 árg................970 þús.
Biuebird LX árg 1986...................540 þús.
Charade Turbo árg. ’86 & '87...........420 þús.
Cherry 1500 GL árg. 1986......„........370 þús.
Corolla 1300 árg. 1986 ............„....350 þús.
Corolia TWIN CAM GTI árg. 1985 ........570 þús.
Escort 1300 LASER árg. 1986 ...........390 þús.
Honda Prelude EX árg. 1984 ............560 þús.
Mazda 626 2000 GLX árg.1985...........510 þús.
Nissan Micra árg. 1987.................295 þús.
Pjaero bensin, stuttur, árg. 1983 .....570 þús.
Níssan Patrol Turbo dísil, langur, árg.’86
.....................................1.150 þús.
Nissan Sunny Coupé SGX árg. '87........480 þús.
Sierra 1600 árg. 1986..................520 þús.
Subaru 1800 station, 4x4, allar árgeróír.
Subaru Justy 4x4 árg. 1986.............315þús.
Toyota Tercel 4x4 árg. 1984............450 þús.
Mikið úrval bifreiða á söluskrá.