Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Blaðsíða 36
FRETT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
F0STUDAGUR 9. JANUAR 1987.
Samkomu-
lagí
sjómanna-
deilunni?
Ýmislegt bendir til þess að sam-
komulag gæti verið á næsta leiti í
sjómannadeilunni. Vitað er að alltaf
eru einhverjar þreifingar bak við tjöld-
in þegar mál sitja jafhfost á vfirborð-
inu og sjómannadeilan nú. Aðilar sem
DV hefur rætt við hafa gefið eitt og
annað í skvn sem styður þá kenningu
að samningar gætu tekist imi helgina.
í þessu sambandi má benda á að
Sjómannasamband íslands hefur frest-
að því að senda fulltrúa sinn, Hafþór
Rósmundsson. til Ijondon til viðræðna
við stjórn Alþjóðasambands flutninga-
"verkamanna. Hafþór átti að fara utan
í dag en ferð hans hefur verið frestað
til sunnudags.
Einn af forystumönnum sjómanna
sagðist aðspurðui ekki óttast lög sem
banna verkfallið ef ekki semdist um
helgina enda mvndi helgin duga eins
og hann komst að orði.
I þriðja lagi er framkvæmdastjóri
útgerðar rækjutogarans Hafþórs kom-
inn til Reykjavíkur og mun eiga fund
með sjávarútvegsráðherra í dag og
segist tilbúinn til að ræða við deiluað-
i,ila verði þess óskað. -S.dór
Sáufljúgandifurðu-
hlut við ísland
í síðasta tölublaði tímaritsins News-
week er frétt um það að hinn 17.
nóvember síðastliðinn hafi áhöfnin á
japanskri flutningaþotu af gerðinni
Boeing 747, sem var á leið frá Islandi
til Anchorage í Alaska, séð fljúgandi
furðuhlut. Það sem er merkilegt við
þetta er að svo virðist sem fúrðuhlut-
urinn hafi náðst á radar.
Að sögn flugstjóra þotunnar virtist
hluturinn vera á stærð við tvö flug-
móðurskip og sagðist hann vera viss
,um að hann hefði verið frá annarri
plánetu sem væri á mun hærra menn-
ingarstigi en við. Einungis það gæti
skýrt áhuga hlutarins á famii þotunn-
ar sem var Beaujolais vín frá Frakkl-
andi. ÓA
Ávallt feti framar
SÍMI 68-50-60.
plBÍLASro
ÞROSTUR
SÍÐUMÚLA 10
LOKI
Krístín Halldórsdóttir í 1. sæti Kvennalistans á Reykjanesi:
w
Segiaf mér
eftir tvö ár
áá
frjálsleg túikun á kosningalögum?
„Við þingmenn Kvennalistans lít-
um ekki svo á að við séum af
ómissandi gerðinni. Nái ég kjöri í
næstu kosningum þá segi ég af mér
eftir tvö ár og varamaður minn tek-
ur við. Þetta er í samræmi við
skoðanir okkar um að óæskilegt sé
að búa til atvinnupólitíkusa en hins
vegar æskilegt að nýta sér fengna
reynslu," sagði Kristín Halldórs-
dóttir alþingismaður sern skipa mun
fvrsta sæti Kvennalistans á Reykja-
nesi í komandi kosningum. Listinn
var ákveðinn í gær og um leið sú
nýbrevtni að kona í efsta sæti segði
af sér á miðju kjörtímabili og vara-
maður hennar tæki við. „Þó ég segi
af mér þingmennsku á miðju kjör-
tímabili er ekki þar með sagt að ég
hætti að vinna fyrir Kvennalist-
ann,“ sagði Kristín Halldórsdóttir.
Annað sæti Kvennalistans á
Reykjánesi skipar Anna Ólafsdóttir
Bjömsson sagnfræðingur og þriðja
sætið Sigrún Jónsdóttfr þjóðfélags-
fræðingur.
í kosningalögum segir að forfallist
þingmaður taki varamaður hans
sæti á þingi. Sérfræðingar í stjóm-
skipunarétti og lögum, er DV ræddi
við í morgun, draga mjög í efa að
ákvörðun Kvennalistans urn að
skipta um þingmenn á miðju kjör-
tímabili standist fyrir lögum: „Mér
þykir þetta óeðlilegt," sagði einn.
„Ákaflega frjálsleg túlkun á kosn-
ingalögum,“ sagði annar.
-EIR
Það er vart hægt að segja annað en að þarna sé allt í rusli en svipað þessu mun ástandið víða hafa verið
orðið hjá Reykvíkingum eftir hátíðarnar. En loks í gær var ruslið fjarlægt. „Þetta kemur alltaf fyrir um jól
og páska og við þessu er ekkert að gera,“ sagði Hilmar Magnússon, yfirverkstjóri hjá Hreinsunardeild
Reykjavíkurborgar, aðspurður hverju það sætti að öskutunnur Reykvíkinga hafa verið yfirfullar undanfarna
daga. Að sögn Hilmars hafa sorphreinsunarmenn unnið allar undanfarnar helgar og nú ætti að vera komið
eðlilegt ástand á ný við öskutunnur borgarinnar. SJ/DV-mynd Ragnar S
Allir í sjómann.
Veðrið á morgun:
Áfram
milt
veður
Á laugardaginn verður suðlæg
átt. Strekkingsvindur og súld eða
rigning vestanlands en mun hæg-
ari og úrkomulítið austanlands.
Áfram milt veður. Hiti verður á
bilinu 2-5 stig.
Bretar lofa
okkur fullum
stuðningi
- segir Óskar Vigfusson
„Það kemur mér á óvart ef einhver
maður á Humberside-svæðinu neitar
íslenskum sjómönnum um stuðning í
verkfallinu vegna væringa í landhelg-
isdeilunni, ekki síst fyrir þá sök að ég
ræddi i gær við John Conolly, formann
Bretlandsdeildar Alþjóðasambands
flutningaverkamanna, og hann lofaði
okkur fullum stuðningi yrði fram á
það farið,“ sagði Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannasambandsins, í
samtali við DV. Fréttir hafa borist um
að talsmaður flutningaverkamanna á
Humberside-svæðinu hefði sagt í út-
varpsviðtali að þeir myndu ekki styðja
íslenska sjómenn, framkoma þeirra í
landhelgisdeilunum gæfi ekki tilefni
til þess.
Til stóð að fulltrúi Sjómannasam-
bandsins færi til London í dag en ferð
hans hefur verið frestað fram á sunnu-
dag. -S.dór
Dagsbmn:
Samningar vel
á veg komnir
„Það hefur verið verulega hreyfing
í samningaviðræðunum undanfama
dag, meira get ég nú ekki sagt eins
og málin standa," sagði Guðmundur
J. Guðmundsson, formaður Dags-
brúnar, í samtali við DV í morgun.
Samkvæmt öðrum heimildum eru
samningamir langt komnir og mun
Dagsbrún gera þama töluvert öðmvisi
kjarasamning fyrir sitt fólk en des-
ember-samkomulagið er. Innan
Dagsbrúnar em fjölmargar greinar og
í samningunum er gert ráð fyrir marg-
víslegum breytingum innan þessara
greina líkt því sem oft á sér stað í
sérsamningum félaga. -S.dór
Ólína neitar
framboði
„Nei, ég er ekki að fara í framboð,"
sagði Ólína Þorvarðardóttir, frétta-
maður á Sjónvarpinu, er DV spurði
hvort hún færi í framboð fyrir Fram-
sóknarflokkinn í Reykjavík.
„Þetta var nefnt við mig þegar próf-
kjörið var að byrja. Af hvaða ástæðu
veit ég ekki þvi að ég er ekki í Fram-
sóknarflokknum og hef ekki starfað
með honum né neinum öðrum flokki,“
sagði Ólína.
ísafjörður:
Sjö yfirheyrðir
vegna falskra
neyðarsendinga
Lögreglan á ísafirði hefur yfirheyrt
sjö manns vegna falskra neyðarsend-
inga sem fóm í gang á staðnum á
mánudagskvöldið. Neyðarsendi hafði
verið stolið og hann síðan settur í
gang með þeim afleiðingum að allt
öryggis- og björgunarkerfið á Vest-
fjörðum og víðar var sett í gang þar
sem talið var að skip væri í nauðum.
Bárust ábendingar um neyðarsend-
ingamar bæði frá Noregi og Kanada
þar sem gervitungl höfðu miðað send-
ingamar út. Fannst sendirinn eftir
hádegið í gær og var tekinn úr sam-
bandi.
Að sögn lögreglunnar á ísafirði er
málið enn ekki alveg upplýst og unnið
að rannsókn þess áfram. -FRI
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
\
i
i
i
i
i
i