Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Blaðsíða 28
40 FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987. Andlát Guðrún I. Jónsdóttir frá Engey, Vestmannaeyjum, síðar Sólheimum 25, Reykjavík, lést í Borgarspítalan- um 1. janúar sl. Hún fæddist í Vestmannaeyjum 13. október 1929. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson og Sigríður Sigurðardóttir frá Eng- ey. Hún lætur eftir sig þrjú börn og eiginmann, Hjálmar I. Jónsson. Út- för hennar verður gerð frá Fossvogs- kapellu mánudaginn 12. janúar kl. 13.30. Jón Sigurðsson, fv. borgarlæknir, lést 28. desember sl. Hann fæddist í Reykjavík 29. júní 1906. Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson og Margrét Guðmundsdóttir. Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1926 og síðan kandí- datsprófi í læknisfræði frá Háskóla íslands árið 1933. Hann sigldi til Danmerkur til frekara náms og dvaldist þar í nokkur ár við nám og síðan vinnu en hélt heim og vann landi sínu og þjóð meðan starfskraft- ar entust. Eftirlifandi eiginkona hans er Ragna Sigurðsson. Þau hjón- in eignuðust einn son. Útför Jóns verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Útför Ingveldar Svanhildar Páls- dóttur fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 10. janúar kl. 14. Eyvindur Júlíusson lést 27. des- ember sl. Hann fæddist á Gaul í Staðarsveit 3. ágúst 1898. Foreldar hans voru Sólveig Ólafsdóttir og Júlíus Jónasson. Eyvindur var tví- kvæntur. Árið 1926 kvæntist hann Laufeyju Óskarsdóttur en hún lést árið 1928. Hann átti með henni tvær dætur. Síðar giftist hann Katrínu Jósefsdóttur en hún lést árið 1957. Þau eignuðust þrjú börn. Útför Ey- vindar verður gerð frá kapellunni í Hafnarfjarðarkirkjugarði í dag kl. 15. Adolf Sigurjónsson, bifreiðastjóri, Hrauntúni 13, Vestmannaeyjum, sem andaðist 3. janúar sl., verður jarðs- unginn laugardaginn 10. janúar kl. 14 frá Landakirkju, Vestmannaeyj- um. Andrés G. Þormar, fyrrverandi aðalgjaldkeri Landssíma íslands, verður jarðsunginn í Fossvogskap- ellu þriðjudaginn 13. janúar kl. 15. Útför Helga Jónassonar, fyrrum bónda, Seljalandsseli, V-Eyjafjalla- hreppi, fer fram frá Stóradalskirkju laugardaginn 10. janúar kl. 14. Jón Magnússon, Hafnargötu 11, Stvkkishólmi, verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju laugardag- inn 9. janúar kl. 16. Pundir Hátíðarfundur Kvenfélags Kópavogs verður fimmtudaginn 15. janúar kl. 20.30 í félagsheimilinu. Skemmtidagskrá. Mælst er til að þær konur sem geta mæti á ís- lenskum búningi Takið með ykkur gesti. Kvenfélag Bústaðasóknar heldur fund mánudaginn 12. jan. kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkjunnar. Spiluð verð- ur félagsvist. Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur gesti. Tapað-fundið Gleraugu töpuðust Þann 15. desember sl. töpuðust gleraugu í hvítu hulstri, líklegast á Bárugötu, Vest- urgötu eða Bræðraborgarstíg. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 15526. Fundar- laun. Steindór flytur sig um set Steindór, sendibílar, hafa flutt starfsemi sína úr Hafnarstræti 2 að Vitatorgi. Er það bráðabirgðahúsnæði meðan beðið er eftir endanlegum frágangi á lóð við Bílds- höfða. Stöðin hefur verið starfrækt með núverandi hætti sl. tvö ár og hefur rekst- urinn vaxið gífurlega. Nú starfa hjá stöðinni um 80 bílar af öllum stærðum. Steindór býður upp á ódýrasta sendingar- mátann með Greiðabílum. Símanúmer stöðvarinnar verður óbreytt fyrst um sinn og er það 11580. 1 ■ 1 m Heilsuverndarstoð Reykjavíkur og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis verða lokuð föstudaginn 9. janúar 1987 frá kl. 13.00 vegna jarðarfarar dr. med. Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi borgarlæknis. Heilbrigðisráð Reykjavíkur. í gærkvöldi Lára V. Júlíusdóttir, lögfræðingur ASI: „Halda Að vera beðin um hugleiðingu dagskrár útvarps og sjónvarps seint á fimmtudagskvöld kom mér í opna skjöldu, ég hafði nefnilega hvorki hlustað á útvarp né horft á sjónvarp þann daginn, enda fimmtudagskvöld og ríkissjónvarpið í fríi. „Gerðu þá það að umræðuefni," sagði blaða- konan og þar við sat. Ég byrjaði að sjálfsögðu á því að kveikja á útvarp- inu, náði seinustu mínútunum í þætti Jónínu Leósdóttur þar sem hún ræddi við hjónin Bernharð Guð- mundsson og Rannveigu Sigur- bjömsdóttur. Þáttur sem ég hafði ætlað mér að hlusta á. Síminn hafði ekki stoppað og því ekki orðið af því að kveikt hefði verið á útvarpi. Bemharður Guðmundsson er einn okkar skemmtilegasti útvarpsmað- ur, fróður, lífsreyndur og segir skemmtilega frá. Ég minnist sérstak- lega jólahugleiðingar fyrir nokkrum árum þegar hann sagði frá því hvernig það hefði verið að koma frá New York rétt fyrir ein jólin í verk- falli flugafgreiðslumanna að mig merkinu Lára V. Júlíusdóttir. minnir og fara heim til Súðavíkur í kyrrðina við Isafjarðardjúp. Þar var hann þá þjónandi prestur. Hjartnæm á lofd“ lýsing sem snart jólastrengina í brjóstinu. Jónína Leósdóttir og Ragnheiður Davíðsdóttir hafa báðar gott vald á .viðtalsþáttum sínum og tekst að halda uppi skemmtilegum samræðum án þess þó að vera of áberandi í hlutverkum sínum. Það er því slæmt að þættir þeirra skuli vera sendir út á sama tíma. Fimmtudagar með sínu sjónvarps- leysi valda því að smáfólkið á heimilinu fer að setja fram kröfur um heimsókn í einhverja spólustöð- ina og undan var látið í gærkvöldi. Með íjölmiðlabyltingunni verða meiri breytingar á heimilishögunum en við gerum okkur grein fyrir. Áður fóru bömin í bíó. Nú er sótt spóla og setið heima. Það hefúr gert það að verkum að dregið hefur úr sjón- varpsglápi hjá mér og tíminn nýttur til annars. í lokin langar mig að óska Bylgj- unni til hamingju. Það hefúr tekist vel í byrjun og það fólk sem þar starfar er margt úrvalsfólk sem held- ur merkinu á lofti. Happdrætti Ósóttur vinningur hjá Knattspyrnufélaginu Víkingi Ósóttur er vinningur síðan í nóvember í bílahappdrætti knattspyrnufélagsins Vík- ings. Vinningsnúmerið er 465. Upplýsing- ar í síma 687310. Tilkyniungar Verum samtaka í jólaumferð- inni Oft er þörf en nú er nauðsyn að vegfarend- ur sýni aðgát og tillitssemi í umferðinni. f svartasta skammdeginu bendir umferð- arráð á að gangandi vegfarendur geta aukið öryggi sitt verulega með því að nota endurskynsmerki. Þau fást t.d. í apótekum um allt land. Þeir sem ganga mikið ættu Styrkveiting úr Minningar- sjóði Gunnars Thoroddsen Sunnudaginn 3. janúar sl. fór fram fyrsta styrkveiting úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsen. Sjóðurinn var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarði Briem 29. desember 1985 þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Sjóðurinn er í vörslu borgarstjórans í Reykjavík sem ákveður úthlutun úr honum að höfðu samráði við frú Völu Thoroddsen. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til einstaklinga eða hópa, stofnana eða félaga, eða veita verðlaun eða lán í sambandi við rannsóknir, til- raunir eða skylda starfsemi á sviði mannúðarmála, heilbrigðismála eða menningarmála, sem Gunnar Thoroddsen skilyrðislaust að fá sér búnað til hálku- varna sem flestir skósmiðir hafa á boðstól- um. Ökumenn þurfa nú að ætla sér meiri tíma til ferða en endranær og eiga að nota ökuljósin allan sólarhringinn. Ljósabún- aður verður að vera í fullkomnu lagi, annars minnkar notagildi hans verulega. Að marggefnu tilefni beinir Umferðarráð því sérstaklega til ökumanna að þeir noti bíla sína alls ekki nema þeir séu með til- skyldum vetrarbúnaði. Grófmynstraðir hjólbarðar duga oft en nú eru víða skil- yrði til aksturs þannig að þeir verða að vera negldir. Keðjur þurfa menn einnig að hafa tiltækar. Þá minnir Umferðarráð á að svo kölluð „jólaglögg" og hvers kon- ar áfengir drykkir er alls ekki það sem vegfarendur þarfnast til þess að bæta sig í umferðinni, þvert á móti. Umferðarráð væntir þess að allir landsmenn stuðli að slysalausri umferð um jólahátíðina með skilningi á þeim erfiðu aðstæðum sem nú eru víða fyrir hendi og sýni ýtrustu vark- ámi. Iét sérstaklega til sín taka sem borgar- stjóri. Fyrsti styrkþegi sjóðsins er Jóhann Pétur Sveinsson lögfræðingur, Hátúni 12, Reykjavík. I bréfi borgarstjóra til Jóhanns segir: „Með þrotlausu starfi og óbilandi kjarki hafið þér lokið embættisprófi í lög- fræði frá Háskóla Islands og hafið störf í starfsgrein yðar, m.a. í þágu öryrkja. Sem viðurkenningu fyrir þetta afrek er yður hér með veittur styrkur úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsen. Fjárhæðin nemur kr. 100.000. Er þetta jafnframt í fyrsta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. Frú Vala Thoroddsen afhenti styrkinn en athöfnin fór fram á heimili hennar. Á myndinni eru: Valgarð og Benta Briem, Vala Thor- oddsen, Jóhann Pétur Sveinsson, Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen. Gunnlaugur Stefánsson kjörinn prestur í Heydölum Prestskosning fór fram í Heydalapre- stakalli í Austíjarðaprófastsdæmi sl. sunnudag. Umsækjandi var einn, Gunn- laugur Stefánsson cand theol. Átkvæði voru talin á Biskupsstofu. Á kjörskrá voru 540, atkvæði greiddu 375 eða tæplega 70%. Umsækjandi hlaut 367 atkvæði, auðir seðlar voru 8. Kosningin er lögmæt. Gunn- laugur Stefánsson er 34 ára, Hafnfirðing- ur, sonur hjónanna Margrétar Guðmundsdóttur og Stefáns Gunnlaugs- sonar, sendiráðsfulltrúa í London. Hann lauk guðfræðiprófi frá Háskóla íslands 1982 og hefur síðan verið starfsmaður Hjálparstofnunar kirkjunnar. Kona hans er Sjöfn Jóhannesdóttir sem ljúka mun guðfræðiprófi í vor. Eiga þau einn son, Stefán Má. Sr. Kristinn Hóseasson hefur þjónað Heydalaprestakalli I nær 40 ár en hlaut lausn frá embætti vegna aldurs nú um áramótin. Hann hefur verið prófastur Austfirðinga undanfarin ár. Hann hefur kvatt söfnuði sína í Stöðvarfjarðar- og Heydalasókn og er að flytjast til Reykja- víkur ásamt konu sinni Önnu Þorsteins- dóttur. Kvenréttindafélag íslands 80 ára Þann 27. janúar nk. verða 80 ár liðin frá stofnun Kvenréttindafélag Islands. Ætlar félagið að minnast þessara tímamóta með margvíslegum hætti. Á sjálfan afmælis- daginn, kl. 18, verður boðið til síðdegis- veislu í nýinnréttuðum samkomusal í kjallara kvennaheimilisins Hallveigar- staða við Túngötu en það hús er í eigu KRFÍ og annarra kvennasamtaka sem þar hafa aðsetur. Til veislunnar verður boðið öllum félögum auk íjölda gesta. í tilefni afmælisins gengst félagið einnig fyrir sýn- ingu á myndlistarverkum eftir konur í áðurnefndum samkomusal. Verður sýn- ingin opnuð laugardaginn 23. janúar og stendur til 8. febrúar. Á sýningunni, sem jafnframt er sölusýning, verða ný og eldri verk núlifandi myndlistarkvenna, teikn- ingar, grafík, textíl og málverk. Ætlunin er að meginviðfangsefni flestra verkanna snerti konur á einhvern hátt. Þess skal getið að þær konur, sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni, skulu skila inn verkum sínum að Hallveigarstöðum mánudaginn 12. janúar nk. frá kl. 17-19 ásamt upplýsingum um þau og sjálfar sig. Sýningarnefnd undir formennsku Hrafn- hildar Schram mun síðan velja úr verkum sem berast. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu KRFI í síma 18156. Afmæli 70 ára er í dag, 9. janúar, Óskar Sigurvin Ólafsson bifvélavirki, Fannborg 1, Kópavogi. Hann erí dag staddur á heimili dóttur sinnar í Vestmannaeyjum, að Illugagötu 57. Otur GK: Skílaði mönnum af sér Togarinn Otur GK, sem verið hef- ur á veiðum undanfarið, kom til Þorlákshafiiar sl. miðvikudag eins og skýrt var frá í DV í gær. I frétt- inni sagði að togarinn hefði verið að sækja nýtt troll en það var á misskilningi byggt. Togarinn var að skila af sér mönnum áður en hann lagði af stað í siglingu með aflann. Otur GK selur ytra á mánudaginn í land kemur. Það olli deilu hjá samninga- nefnd Sjómannasambandsins hvort stöðva hefði átt skipið eða ekki. Sumir héldu því fram að veiðiferð væri lokið þegar skipið kæmi til hafnar en aðrir að skipið ætti lög- lega pantaðan söludag og því væri veiðiferð ekki lokið fyrr en eftir sölu. Síðamefnda sjónarmiðið varð ofan á. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.