Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987. 9 Utlönd Flugvöllurinn í Beirút lokaður vegna bardaga Loka várð flugvellinum í Beirút, eina alþjóðlega flugvellinum í Líban- on, vegna harðra bardaga milli múslima og kristinna í gær. Mannlaus farþegaþota af gerðinni Boeing 707 eyðilagðist í stórskotahríð þar sem hún stóð á flugvellinum. Annars beindist skothríðin á víxl aðallega að austurhluta borgarinnar, sem er á valdi kristinna, og vestur- hlutanum, sem er á valdi múslima. Sex menn féllu í austurhlutanum og íjórir í múhameðska borgarhverfinu. Einn maður særðist á flugvellinum. Vegna þessarar orrahríðar varð að beina allri flugumferð til nágranna- landa. Er þetta í fyrsta sinn síðan í ágúst 1985 sem loka verður Beirút- flugvelli en í það sinn var sömuleiðis eyðilögð farþegaþota frá flugfélagi Austurlanda nær (MEA). - Flugvöll- urinn er í Vestur-Beirút. Ahdullah Rassi innanríkisráðherra fordæmdi þessa nýju bardagahrinu og ságði hana hð í samsærinu til þess að spilla fyrir því að landið verði friðað. Jafnan þegar einhver skriður kemst á samninga til friðunar hafa öfgaöflin lag á að hleypa öllu í bál og brand að nýju. Forsetamir, Amin Gemayel í Líban- on og Hafez Al-Assad í Sýrlandi, hafa að undanfömu skipst á sendimönnum til undirbúnings því að þeir sjálfir hitt- ist til þess að ræða friðarsamninga. Höfðu menn þar eystra gert sér góðar vonir um árangur slíks fundar. Þær vonir hafa nú dofriað mjög eftir Enn bólar ekki á því, að stríðshrjáðir íbúar Líbanons fái nolið friðar í bráð. bardagahnnuna í gær. Vlldi ekki láta bamlð eftir meðgönguna Fyrir rétti í New York er nú rekið mál sem spratt upp af þvi að kona, er gengist hafði undir tæknifrjóvgun og meðgöngu fyrir önnur hjón gegn 10 þúsund dala greiðslu, afþakkaði greiðsluna og neitaði að láta bamið af hendi þegar það var fætt. Grátandi stóð Mary Beth Whitehead í vitnastúkunni í gær og lýsti þvi hvemig lögreglan hefði verið send til heimilis hennar til þess að taka af henni barnið með valdi. - „Ég ætlaði mér aldrei að gera neinum illt,“ sagði hún snöktandi. „En ég vissi strax og Sara litla kom i heiminn að ég mundi aldrei geta látið hana frá mér.“ Sara fæddist í mars síðasta og samd- ist þá svo við hin bamlausu hjón, William og Elizabeth Stem, að Mary Beth tæki hvítvoðunginn með sér heim í vikutíma af fæðingardeildinni. Það var þá sem henni snerist hugur. Vikan teygðist upp í mánuð og eigin- maður hennar, Rick, og tvö börn þeirra (10 og 12 ára) urðu strax hug- tekin af Söm. I maí komu Stem-hjónin til þess að sækja meybamið en Mary Beth reyndi að forða sér á hlaupum með bamið á arminum. Málareksturinn snýst nú um það hvor hjónin skuli hafa umráðaréttinn yfir baminu. Belgar krefjast lægri flugfargjalda Neytendur eiga að njóta lægri flug- fargjalda í löndum Efnahagsbanda- lagsins og brjóta skal á bak aftur tilraunir flugfélaga til að hafa samráð um verðlagningu. Samgöngumálaráð- herra Belgíu, Herman De Croo, hefur krafist þess að flugfélög í löndum Efriahagsbandalagsins verði skikkuð til aukinnar samkeppni sín á milli. Tilgangurinn er sá að fá flugfélögin til að lækka verðið á fargjöldum sín- um. I nóvember siðastliðnum mistókst samgöngumálaráðherrum Efriahags- bandalagsins að ná samkomulagi um reglugerð sem miðaði að þvi að veita flugfélögum meira aðhald. Sex lönd bandalagsins beittu neitunarvaldi sínu gegn reglugerðinni. Belgar, sem nú sitja í forsæti ráð- herranefndar bandalagsins. ætla að beita nýium samþykktum fyrir sér, sem takmarka neitunarvald einstakra aðildaríkja, til að knýja fram reglu- gerð um starfsemi flugfélaga. Leiddur fyrir rétt fyrir að mála á múrinn Tuttugu og þriggja ára gamall Vestur-Þjóðverji, Wolfram Hasch að nafni, var leiddur fyrir rétt í Austur- Berlín í gær. Var hann sakaður um að hafa læðst yfir til Austur-Berlínar og málað hvíta línu á Berlínarmúr- inn. Var Hasch gripinn þann 4. nóv- ember síðastliðinn af landamæra- vörðum sem stóðu hann að verki. Hann á yfir höfði sér allt að átta ára fangelsisvist fyrir að hafa farið á ólöglegan hátt yfir til Austur-Berlín- ar. Hasch, sem áður var Austur-Þjóð- verji, er einn margra listamanna sem hafa málað slagorð og annað á Ber- línarmúrinn að undanfömu. Hann er aftur á móti sá fyrsti sem leiddur er fyrir rétt. Tveimur vikum eftir að Hasch var handtekinn gripu landamæraverðir Bandaríkjamanninn John Runnings er hann var á gangi á múmum. Runnings hafði verið gripinn nokkr- um sinnum áður en alltaf sendur til Vestur-Berlínar eftir nokkra daga. Að sögn bandarískra embættis- manna er hann enn í haldi. SMURT BRAUÐ Afgreiðum allar tegundir af smurðu brauði fyrir margs konar tilefni. Kaffisnittur kr. 35/- Cocktailsnittur kr. 30/- Cocktaiipinnar kr. 25/- Brauðtertur kr. 850/- , 12 manna. Einnig heilar og hálfar brauðsneiðar. Heilar kr. 200/- Hálfar kr. 100/- LEITIÐ TILBOÐA B VEITINGAMAÐURINN HF BÍLDSHÖFÐA 16 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 686880 Ný byrjendanámskeið hefjast 12. jan. Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla virka daga frá kl. 13-22. JMÓDEILD MMANNS, ÁRMÚLA j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.