Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Page 27
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987.
39
Merming
Birgir Sigurðsson - „Að bjóða byrginn myrkraöflum jarðarinnar“.
DV-mynd BG
Námsvist í Sovétríkjunum
Sovésk stjórnvöld munu væntanlega velta elnum Islendlngl skólavlst og styrk
til háskólanáms í Sovétrlkjunum háskólaárió 1987-88. Umsóknum skal kom-
ió til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,150 Reykjavik, fyrir 6. febrúar
nk. og fylgi staðfest afrit prófskirteina ásamt meómælum. Umsóknareyóublöð
fást i ráóuneytinu.
6. janúar 1987,
Menntamálaráðuneytið.
StD
MURARAR ATHUGIÐ
Innflutningsfyrirtækið Veggprýði hf.,
sem flytur inn sto-utanhúss-klæðn-
ingarkerfi og múrviðgerðarefni, óskar
eftirsamstarfi við múrara um land allt.
Um næstu mánaðamót verður haldið
námskeið í Þýskalandi á vegum fram-
leiðandans. Þar verða efnin kynnt og
meðferð þeirra.
Þeir sem áhuga hafa á að fá nánari
upplýsingar vinsamlega hafi samband
við Veggprýði hfv
sunnudag í síma.
á laugardag og
673320.
RYÐI r
Bíldshöfða 18, Reykjavík,
Sími 67 33 20.
ÞORRAMATUR
„Ekki leikgerð
af mínu lífi“
Félagasamtök og starfshópar!
Afgreiðum þorramatinn til ykkar á hagstæðu
verði.
18
Tegundir.
Verð kr. 490,-
- frumsýningarspjall við Birgi Sigurðsson
„Alveg sjálfsagt, en hafðu það
stutt,“ svaraði Birgir Sigurðsson rit-
höfundur þegar ég spurði hvort við
gætum ekki sett saman spjall um
leikrit hans, Dag vonar, sem frum-
sýnt verður í Iðnó annað kvöld.
„Mér leiðast þessi endalausu viðtöl
í blöðunum," bætti hann við.
Ég hjó eftir því á blaðamannafundi
fyrir tveimur dögum að Birgir fór
undan í flæmingi þegar menn spurðu
hvort leikrit hans væri fjölskyldu-
drama. Mér fannst upplagt að
brydda upp á þeirri spumingu á
nýjan leik.
„í þessu leikriti er fjölskylda, móð-
ir með þrjú uppkomin böm og
sambýlismann, en leikritið fjallar
ekki um fjölskyldu í þröngum skiln-
ingi, heldur uppgjör innan fjölskyldu
hér í Reykjavík einhvem tímann á
sjötta áratugnum.“
Ég gekk á lagið og spurði hvers
vegna honiun væri illa við hugtakið
„fjölskyldudrama".
„Ætli það sé ekki að hluta vegna
þess að fólk hefúr tilhneigingu til
þess að flokka slík leikverk undir
„raunsæisverk" í fremur þröngum
skilningi."
Raunsæió of takmarkað
Hvað hefurðu á móti raunsæi? spyr
ég-
„ Það gefur of takmarkaða mynd
af veruleikanum og á alls ekki við
um mín leikrit, þó svo að gagmýn-
endur og leikhúsfræðingar hafi
reynt að afgreiða þau með þeim
hætti. Við nánari skoðun hafa þeir
síðan uppgötvað að verkin passa
ekki í raunsæisrammann og kenna
höfundinum um.“
Hver em þá helstu einkenni á leik-
ritun Birgis Sigurðssonar?
„Sjáðu til, í leikritum mínum er
vissulega að finna raunsæislega
meðvitund um þá félagslegu aðstöðu
sem persónurnar búa við. En í þeim
er líka að finna ljóðrænu og ex-
pressjónískan kraft.
Yfirleitt fjalla þau um manneskjur
á ystu nöf eða á áhættustundum,
þegar ákveðnir sálrænir þættir em
afhjúpaðir, og það gefur augaleið að
slík afhjúpun sprengir af sér allt
raunsæi, það dugar ekki til.
Það raunsæi sem er í leikritum
mínum, sömuleiðis tilvísanir í þann
samfélagslega vemleika sem leik-
persónumar hrærast í, blandast
ljóðrænni sýn á mannleg samskipti
og sálkönnun, þannig að varla verð-
ur greint á milli allra þessara þátta.
Ég vona að mér verði fyrirgefin þessi
lauslega úttekt á eigin skáldskap.
Ég held að hún sé að minnsta kosti
jafngild og úttekt annarra og læt
hana þess vegna flakka."
Systurminning
Dagur vonar er bæði persónulegt
og sársaukafullt verk, sagði ég. Var
erfitt að festa það á blað?
„Efnið hefúr sótt á mig allt frá því
ég byrjaði að skrifa prósa. Það var
hins vegar ekki fyrr en nú að ég
fann aðferð til að koma því til skila.
Ekki svo að skilja að þetta verk
fjalli um mig og mína fjölskyldu. Það
er skáldskapur, ekki leikgerð af
mínu lífi.
Persónumar eru hvergi til nema í
þessu leikverki og lúta eingöngu lög-
málum skáldskaparins."
Framan við leiktextann, sem kem-
ur út á bók hjá Máli og menningu
á frumsýningardaginn, er birtur
ljóðaprósi eftir látna systur Birgis,
Sigríði Freyju, en leikritið er einnig
tileinkað minningu herrnar. Ég spvr
Birgi um ástæðuna.
„Ég tileinka henni verkið, einfald-
lega vegna þess að mér þótti vænt
um hana og það listræna innsæi sem
hún hafði. Hún þjáðist mikið í sínu
lífi, en varðveitti samt í sér tæra og
einlæga skáldgáfú. hvort sem hún
orti eða teiknaði."
Dagur vonar, er það ekki rang-
nefni á svo átakanlegu verki? spyr
ég-
Að gefast aldrei upp
„í kaþólskri sálumessu, þeim texta
sem notaður er í Requiem Mozarts.
er sungið um Dag reiði, dag bræði:
Dies irae, dies illa. Ég er hins vegar
fyrir vonina og ætli það viðhorf skili
sér ekki í verkinu. Vonin verður til
þegar menn gera sér það að lífsreglu
að gefast aldrei upp við að fram-
fylgja því sem þeir álíta rétt og satt.
Eg dái mest þá einstaklinga sem
standa óvaldaðir af öllu nema eigin
sannfærír.gu og samvisku og bjóða
myrkraöflum jarðarinnar byrginn,
hvað sem það kostar.“
Við Birgir sættumst á að hafa
spjallið ekki lengra.
Að lokum má geta þess að Dagur
vonar er fimmta leikrit Birgis, leik-
stjóri þess er Stefán Baldursson, en
persónur og leikendur eru fimm:
Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sig-
urður Karlsson, Þröstur Leó
Gunnarsson, Valdimar Öm Flygen-
ring, Sigríður Hagalin og Guðrún
S.Gísladóttir. Leikmynd og búningar
eru eftir Þómnni S. Þorgrímsdóttur
og tónlist eftir Gunnar Reyni Sveins-
son. -ai
□
VEITINGAMAÐURINN HF
BÍLDSHÖFÐA 16-110 REYKJAVÍK - SÍMI 686880
Auglýsing
um fasteignagjöld
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Reykjavík 1987
og verða álagningarseðlar sendir út næstu daga ásamt
gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjaldanna.
Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar, 1. mars og
15. apríl.
Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík
en einnig er hægt að greiða gíróseðlana í næsta
banka, sparisjóði eða pósthúsi.
Fasteignagjaldadeild Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2,
veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna, símar
18000 og 10190.
Tekjulágir elli- og örorkuiífeyrisþegar munu fá lækkun
á fasteignaskatti samkvæmt reglum, sem borgarstjórn
setur og framtalsnefnd úrskurðar eftir, sbr. 3. mgr. 5.
gr. laga nr. 73/1980 um tekjustofna sveitarfélaga.
Verður viðkomandi tilkynnt um lækkunina þegar
framtöl hafa verið yfirfarin sem vænta má að verði í
mars- eða aprílmánuði.
6. janúar 1987,
Borgarstjórinn í Reykjavík