Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Síða 11
T.ATir' ARnAfiTTR T1 .TAMTTAR 1Q87
loksins ljóst að ég gat ekki treyst
því að einhver kæmi til mín og
segði: Ég hef hlutverk handa
þér. Maður verður að fara sjólfur
til framleiðandans og koma sér á
framfæri. Og ég gerði það,“ segir
hann.
Hann fór á fulla ferð
og hefur síðan leikið
í fjölda kvikmynda
og framhaldsþátta
fyrir sjónvarp.
Þekktastir hér eru Dóttir málar-
ans, sem hefur verið sýnd í
sjónvarpinu eins og áður sagði
og Daisy prinsessa sem hefur
lengi verið fáanleg á mynd-
bandaleigum. Og nú fáum við að
kynnast Keach í hlutverki Mike
Hammer. Þeir þættir hafa senni-
lega átt mestan þátt í að gera
hann að frægum leikara.
En leiklistin er ekki það eina
sem gert hefur Stacy Keach að
frægum manni og vinsælu um-
fjöllunarefni fjölmiðla. Fyrir
rúmum tveimur árum var hann
handtekinn og fangelsaður í
Bretlandi fyrir kókaínsmygl.
Hann sat inni í hálft ár og varð
að fresta töku á Hammer-þáttun-
um á meðan.
Þegar Keach var tekinn
var hann farinn að
neyta kókaíns fyrir
um það bil fímmtán
þúsund krónur á dag.
Hann hefur ekki mikinn áhuga
á að tala um kókaínfíkn sína, en
er þeim mun meira í mun að
ræða allt það sem hann er að
fást við í dag, eins og Hammer-
þættina og nýtt sviðsverk sem
hann leikur í.
Núna er hann orðinn „hreinn“
eins og það er kallað og hefur
vitnað um eiturlyfjanotkun sína
frammi fyrir þingnefnd og lagt
lið herferð bandarísku forseta-
hjónanna gegn eiturlyfjanotkun.
Þegar Keach ber saman
frammistöðu sína nú og þegar
hann neytti kókaíns, segist hann
vera kraftmeiri. Hann segir sam-
starfsmenn sína koma fram við
sig eins og fyrrum. „En ætli
nokkurt þeirra myndi bjóða mér
Þó mál þetta vekti mikla at-
hygli á sínum tíma varð það ekki
til að eyðileggja feril hans og í
dag brosir framtíðin við honum.
Hin trygglynda Velda,
ritari og aðstoðar-
manneskja Ham-
mers, er leikin af
Lindsay Bloom. Hún
er tiltölulega lítt þekkt leikkona
og gaf mikið af sjálfri sér til að
fá þetta hlutverk, í bókstaflegri
merkingu talað.
Þegar hún var hæfnisprófuð
fyrir hlutverkið var henni sagt
að hún væri fullþrekin til að
geta leikið Veldu. Hún yrði að
létta sig um sjö til átta kíló á
þremur vikum ef hún vildi fá
hlutverkið..
Lindsay byrjaði þegar í megrun
af mikilli einbeitni. Hún borðaði
aðeins megrunarfæði og stund-
aði leikfími og íþróttir af kappi.
Eftir fjóra daga hafði hún lést
um þrjú kíló. Hún jók við leik-
fimina, synti og skokkaði og tók
einnig tíma í erobikk.
Þegar hún kom aftur í hæfnis-
prófið hafði hún lést um sex kíló.
Framleiðendur og leikstjóri þátt-
anna voru hrifnir af einbeitni
hennar en kröfðust þess engu að
síður að hún létti sig um fimm
kíló til viðbótar.
Lindsay gekk í málið af
hörku og náði tak-
markinu. Á samtals
sex vikum hafði hún
grennst um ellefu kiló.
Síðan litaði hún ljóst hárið
brúnt. Lokaatriðið var síðan að
velja akkúrat rétta kjólinn til að
vera í þegar hún kæmi fyrir leik-
stjórann í þriðja skiptið. í
rándýrri tískufataverslun fann
hún draumaflíkina, fallegan blá-
an silkikjól, sem var reyndar
alltof dýr fyrir hennar fjárhag.
En eiginmaðurinn hljóp undir
bagga og gaf henni kjólinn í af-
mælisgjöf.
Lindsay fékk hlutverkið og all-
ir voru sammála um að hún væri
rétta manneskjan til að leika
Veldu. Sjálf er Lindsay ekki í
nokkrum vafa um að hlutverkið
sé fvllilega ellefu kilóa virði.
-VAJ
Mike Hammer er mikið kvennagull. Stundum verður hann hreinlega að berja frá sér skvis- Harðjaxlinn Mike Hammer ásamt samstarfsmönnum sínum, sem eru ekki síður kaldir karlar
urnar sem sækja að honum i hverjum þætti. En hann lemur auðvitað ekki allar frá sér. og konur.