Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Page 12
54 LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987. Thor Vilhjálmsson hjólaði upp vinsældalistann með bók sinni Grámosinn glóir, sem af mörgum er talin aðgengilegasta bók hans. Yfirlit um jólabækumai 1986 frumsamdar skáldsögur og smásögur í íjölmiðlum hefur mikið verið fjallað um íslenskar skáldsögur í vetur. En eins og allir vita, ber þar mest ó viðtölum við skáldin, og þau snúast ekki fyrst og fremst um verk þeirra, heldur um lifnaðarhætti þeirra og skoðanir. Viðtöl við skáld væri auðvitað fráleitur vettvangur fyrir bókmenntaumfjöllun. En þessi skáldaumfjöllun er áberandi kyngreind. Konur hafa þolað mikla lífsreynslu, ástarsorg eða erfiðan sjúkdóm, og það gerir verk þeirra merkileg. Hins vegar fer enginn að leiða hugann að því hvort Einar Mór kynni að hafa lent í ástarsorg, Thor Vilhjálmsson í veikindum eða öfugt, svo algengt sem það nú er. Þeir eru skóld og semja, ekki meira - um það. Verst er, að mér sýnast skáldkonumar ýta svolítið undir þessa lífsreynsluáherslu, enda þótt þær mótmæli grófustu mynd henn- ar (Steinunn Sig. í Geisla). En sjálfsagt stuðlar þetta persónu- blaður að sölu, og er þá ástæðu- laust að finna að því. Aldrei hefur verið eins mikið um viðtöl við skáld, og sjaldan eða aldrei hafa skáldrit selst eins vel. Hvað sem líður margháttaðri lífs- reynslu skálda, sýnast mér sögur þeirra Fríðu Sigurðardóttur og Einars Más Guðmundssonar nán- astar. Einar Már: Eftirmáli regndrop- anna. Sagan beinist mjög að því að umturna hversdagslegu um- hverfi með furðurlegum atburðum, veðurofsa og draugagangi. Aðferð- in minnir töluvert ó Gabriel García Marqués, til að mynda er þetta ljóðrænn texti, oft myndrænn. í lýsingum er mikið um spumingar og svör og endurtekningar í breyttu formi. Ennfremur ber mik- ið ó því að málsgreinar hefjist á atvikslið. Þannig er lögð áhersla á hvar, hvenær og hvemig eitthvað gerist. Þetta tengist því, að kaflar sögunnar eru yfirleitt mjög stuttir, og í hverjum kafla gerist þó sáralít- ið, oft tómar lýsingar. Einnig er þess gætt að lóta ekki verða skil í sögunni á kaflaskilum, eins og venjulegt er, heldur er inní kafla farið frá einni sögupersónu til ann- arrar, frá einum stað til annars. En slík hreyfing er loks mjög tíð í sögunni, t.d. jafnan þegar lýst er hvernig veðrið brýst yfir hverííð. Þetta sýnir þá hvernig höfundur samstillir ýmis atriði að einu marki, sem er hér að gefa marg- hliða, blæbrigðaríka mynd af núverandi stund, áhrif þessa alls verða tilfinning fyrir tímaleysi. Stíllinn er auk þess mjög persónu- legur, við finnum stöðugt fyrir nálægð sögumanns, sem lætur sjónarmið sín og hugsanir koma fram, þótt hann tali ekki í fyrstu persónu. Mér fannst síðasta bók Einars, Vængjasláttur í þakrennunum, mun sterkari en þessi, og ég held að það stafi af því, að þar voru í sviðsljósinu persónur sem höfundi eru líklega nákomnar, alltént voru þær þmngnar af goðsagnakenndu lífi, það voru böm og unglingar. Hitt virðist Einari ekki láta, að lifa sig inní þetta fullorðna fólk, ro- skinn prest, konu hans, eða söðla- smið í hverfmu, meira að segja Anton rakari er allur á yfirborð- inu. Því er eins og kjamann vanti í þessa bók, allar helstu persónur eru dauflegar eða fjarlægar. í stað þess dulúðga heillandi blæs sem var á Vængjaslætti, ber hér mikið á öfgum, sem ég verð að kalla barnalegar, af sama tagi fannst mér ómarkvisst orðalag, sem drap áhrifum sögunnar á dreif, þrátt fyr- ir mikla kunnáttu skáldsins. Fríða Sig: Eins og hafið. Saga þessi gerist í sjávarplássi, sem virð- ist dæmigert, hafa helstu drætti ýmissa útgerðarbæja, án þess að tengt verði við nokkurn sérstakan. Sagan hvarflar sífellt milli margra persóna á ýmsum aldri, sýnir okkur inn í hug þeirra allra. Miðpunktur þorpsins er gamalt hús, og mest er fylgst með íbúum þess í sex íbúðum. Við erum látin skynja þetta margbreytta mannlíf í sjónhendingu, á einni andrá, á mjög svipaðan hátt og hjá Einari Má Guðmundssyni, og einnig hér er sálarlífið mikilvægasti þáttur raunveruleikans. Þannig endar IV. kafli á því að Petra formælir drykkjuskap manns síns, en í upp- hagi V. kafla er sagt frá því að flaska brotnar hjá manninum: „Á sömu stundu og bölbænir Pe- tru fljúga út í rigninguna eins og vængjaðir drekar, á sömu stundu eða kannski augnabliki síðar skell- ur viskíflaskan á gangstéttinni." Málfar persóna er hvert með sín- um hætti, en þó jafnan eðlilegt. Stíllinn er margbreyttur eftir því hlutverki sem hann gegnir á hverj- um stað. En mér finnst höfundur klúðra sögunni í lokin með því að leysa öll vandamál, sem hún var búin að gera lesendum mjög raun- veruleg. Ég held að skýringin sé ekki einhver bjartsýni í stíl Hollívúddmynda, heldur viðleitni til að tæma söguefnið, skilja ekki eftir lausa enda. En Fríða sýnir svo góða hæfileika í þessari sögu, að ég er viss um að hún ó eftir að komast á hærra stig sem skáld og skrifa verk sem heldur spennu frá upphafi til enda. Og þá á ég ekki við: í stíl spennusögu, heldur list- ræna spennu. Ólafur Gunnarsson: Heilagur andi og englar vítis. Aðalpersónan er ölóða vitleysingur, sem ákveður að frelsa heiminn með því að brenna sig á Lækjartorgi. Vandséð er samhengi í því, annað en að blása út eigið mikilvægi þessarar persónu, sem er samin upp úr le- sendabréfum dagblaða, svo sem þau geta vitlausust orðið. Tal hans er sundurlaust væmið rugl. And- stæðingar hans, Vítisenglar, hafa nákvæmlega sama málfar og hugsanagang, svo sem eðlilegt er, fyrst þeir eru hugarfóstur hans. Þessir Vítisenglar eru allir eins, yfirborðslegar fígúrur. Þá var nú litríkara liðið í fyrri bókum Ólafs, þótt hversdagslegra væri á yfir- borðinu, starfsmenn heildsölu og timburverslunar. Var ekki misráð- ið að ætla þessari fjarlægu goðsögu að bera uppi þessa bók að hluta, eru þeir ekki helsti veik stoð? Vítis- englar þekkja íslendingar ekki nema af afspum kvikmynda, bóka og blaða. Og almennt talað er dálít- ið þreytandi hvað persónur sög- unnar eru líkar hver annarri, allt sömu hálfvitarnir. Manni verður spurn hvernig höfundur nenni að vera að hæðast að þessum vesal- ingum eða yfirhöfuð að fjalla um þá. Og til hvers er að lesa um þetta fólk? spyr undirritaður lesandinn. Skylt þessu er annað atriði, lýs- ingar eru stundum yfirdrifnar. Segja má, að öll þessi atriði falli vel saman sem tætingslegir órar manns sem er orðinn hólfsturlaður á drykkju, og sagan gangi upp þannig. En þá vaknar spurningin hvort hugarheimur þessa manns sé ekki heldur fátæklegur til að bera uppi heila bók, hvort hún hafi nokkuð verulegt að færa lesendum. Ólafur Jóhann Ólafsson: Níu lyklar. Eins og titillinn bendir til eru þetta níu smásögur, og gerast flestar vestan hafs. Gjarnan lýsa þær örlagastund einhverrar per- sónu. Mér finnst vanta í þessar sögur að skapgerð persóna eða að- stæður séu þannig að grípi lesend- ur, þetta verður allt heldur yfirborðslegt. Tvær sögur em sagð- ar af vitni, sem smámsaman hrærist til samúðar með persónunum sem hann fylgist með. En einnig þar nó þessi sinnaskipti ekki til lesanda, allavega ekki til undirritaðs. Þessar sögur sýna þekkingu á smásagnagerð, og greinilega hæfi- leika, sem njóta sín þó ekki alls- kostar. Mér sýnist það vera vegna þess að höfundur fylgi bókmennta- hefð fastar en ímyndunarafli sjálfs sín. Og það er ekki tiltökumál, því þetta er fyrsta bók hans. Bókin lofar góðu um framtíðina, hugsi höfundur sig þá meira inn í persón- ur sínar. Steinunn Sigurðardóttir: Tíma- þjófurinn. Þetta er umdeild bók, svo sem eðliegt má telja. Eðlilegt vegna þess, að bókin er eins og allir vita, mestmegnis hugarvíl konu í ástarsorg, og að óreyndu i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.