Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Síða 17
LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987. 59 Sérstæð sakamál Hraðbátar og skemmtibátar voru sérstakt áhugamál Jims Clint. Ted Carroll rannsóknarlögreglu- maður vildi þó ekki taka mark á þessari skýringu. Einkum og sér í lagi setti hann það fyrir sig á þessu stigi málsins að Jim Clint hafði látið hjákonu sína flytja heim til sín. Að vísu var hún þar ekki sem gestur heldur sögð vera ráðskona. Við næstu yfirheyrslur var Jim jafnákveðinn og í fyrsta sinn. Hann hélt því enn fram að kona sín hefði farið í ferðalag og lét að því liggja að hún kynni að hafa hitt einhvern vin sinn í mótelinu og farið þaðan með honum. Hún kynni svo að sækja bíl sinn síðar. Segulbandsupptaka Carroll komst ekki lengra að sinni en það leið ekki á löngu áður en hann gat tekið rannsókn máls- ins upp á nýjum grundvelli. Ein vinkvenna horfnu læknisfrúarinn- ar kom brátt til lögreglunnar með segulband, dagbók og nokkrar ljós- myndir. Sagði konan að Joyce hefði látið sig fá þessi gögn og beð- ið sig um að fara með þau til lögreglunnar ef eitthvað óvenju- legt kæmi fyrir sig. Á segulbandinu var upptaka sem Joyce hafði gert á laun heima hjá þeim hjónum er þau höfðu rifist heiftarlega. Mátti heyra að Jim hótaði að stytta henni aldur en jafnframt heyrðist hann viður- kenna að hann hefði verið konu sinni ótrúr. Eftir þá viðurkenningu mátti svo heyra mikil átök og heyrðist Joyce þá grípa andann á lofti þegar mað- ur hennar þrýsti púða að andlitinu á henni. Svo heyrðist rödd hans: „Já, ég ætlaði að drepa þig og einn daginn geri ég það. Þá læt ég þig hverfa í ána.“ Það skorti sönnunargögn Caroll hlustaði með athygli á upptökuna. Hún bar að vísu með sér að hjónin hefðu rifist heiftar- lega og slegist en hún gat alls ekki talist nein sönnun fyrir því að Jim Clint hefði myrt konu sína. Næst fór Carroll að lesa dag- bókina. Þar sagði að Clint læknir hefði stundað eiturlyfjasölu um árabil. Þá sýndu ljósmyndirnar sem fylgdu á hvern hátt hann hafði notað húsvagn sinn til þess að smygla eiturlyfjum í. Þótt myndirnar segðu sögu um eiturlyf þá voru þær þó heldur eng- in sönnun fyrir morði. Þær gáfu Carroll hins vegar tilefni til þess að gera leit í húsvagninum og á heimili læknisins. Kom þá í ljós að ekki varð um það villst að hann stundaði ólöglega sölu á eiturlyfj- um. Líkfundur Enn vissi enginn hvað orðið hafði um Joyce Clint. Dag einn voru Bass og Penny enn á veiðum og nú reyndu þeir fyrir sér í einni af þverám Mississippiárinnar. Allt í einu var öngull annars fastur í ein- hverju. Það reyndist þó ekki vera fiskur heldur hluti af mannslík- ama. Lögreglan kom brátt á vett- vang og gat skömmu síðar staðfest að um hluta af konulíki væri að ræða. Hafði hann greinilega borist niður eftir ánni í vorleysingum. Rannsókn sýndi að líkið hafði legið um mánuð í vatni og hafði verið hlutað sundur af kunnáttu- manni með vélsög. Athyglin beinist að Clint Lögreglan taldi nú mikla ástæðu til þess að yfirheyra Clint og rann- saka sérstaklega hvort samband kynni að vera á milli likfundarins og hvarfs Joyce Clint. Ein af ástæð- unum var sú að Clint átti vélsög en rannsókn á henni sýndi ekki að hún hefði verið notuð við að hluta sundur líkið. Næsta skref í málinu var að senda líkhlutann til rannsóknar í Dallas. þar var beitt nýrri og bylt- ingarkenndri aðferð sem byggðist á vefjasýnum úr líkinu og nánustu ættingjum Joyce Clint og tölvuúr- vinnslu sem sýndi að líkurnar til þess að líkið væri af Joyce Clint voru níutíu og níu af hundraði. Er niðurstaðan lá fyrir ákvað saksóknarinn, William Davis, að ákæra Jim Clint fyrir morð. Fimmtán árum eftir brúð- kaupsdaginn Réttarhöldin hófust nákvæmlega fimmtán árum eftir að Jim og Joyce höfðu verið gefin saman. Verjandi Jims, Leonard Scalise, hafhaði nið- urstöðu rannsóknarinnar i Dallas en þá var kvaddur til af hálfu ákæruvaldsins sérfræðingur sem gat, á grundvelli líkfundarins, sagt að líkið hefði verið af konu á aldr- inum 30-40 ára sem hefði verið 165 sentímetra há og vegið 55 til 60 kílógrömm. Þá hefði konan verið með kastaníubrúnt hár. Lýsingin kom heim og saman við lýsingu á Joyce. Þá kom fyrir réttinn prófessor frá Iowaríki sem sagðist hafa látið tölvu vinna úr öllum gögnunum og gæti hann fullyrt að líkurnar til þess að líkið væri af Joyce Clint væru nítíu og níu af hundraði. Verjandinn hélt því fram að úr- vinnsla í tölvu og vefjarannsóknir nægðu ekki til þess að hægt væri að sakfella skjólstæðing sinn. Þá var lögð fram segulbandsupp- takan og síðan dagbókin og ljós- myndirnar. Varð þá öllum í réttarsalnum ljóst að Jim Clint hafði stundað eiturlyfjasölu. Eftir það leið ekki á löngu þar til örlög hans voru ráðin. 20. nóvember 1984 var Jim Clint fundinn sekur um annarrar gráðu morð og dæmdur í langa fangelsis- vist. Hann áfrýjaði ekki dómnum. Útboð - vararafstöð Hagkaup hf„ Lækjargötu 4, Reykjavík, óskar eftir til- boði í vararafstöð fyrir verslunarmiðstöð í Kringlumýri i Reykjavík. Vararafstöðin á að vera 200 kVA (160 kW) að stærð og heimilt er að bjóða nýja eða nýupp- gerða lítið notaða vél. Bjóðandi á að koma vélinni fyrir og prófa og skal verkinu lokið fyrir 15. júlí 1987. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf„ Ármúla 4, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 3. febrúar 1987 gegn 5.000,- kr. skila- tryggingu. Tilboðum skal skila til Hagkaups hf„ Lækjargötu 4, Reykjavík, fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 3. mars 1987 en þá verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóð- endum sem þess óska. Hagkaup hf., Lækjargötu 4, Reykjavík. Skrifstofur Rauða kross íslands eru nú að Rauðarárstíg 18. Reykjavík. Sjúkrahótelið verður enn um sinn að Skipholti 21, Reykjavík. Símanúmer Rauða krossins eru: - Skrifstofa RKÍ, Rauðarárstíg 18 91 /26722 - Sjúkrahótel, Skipholti 21: skrifstofa 91 /20520 gestir 91/20521 - Hjálpartækjabankinn, Nóatúni 21 91 /21333 - RK-húsið, Tjarnargötu 35 91 /622266 - Simaráðgjöf fyrir börn og unglinga 91 /622260 - Reykjavíkurdeild, Öldugötu 4 91/28222 - Múlabær, Ármúla 34 91 /687122 - Hlíðabær, Flókagötu 53 91/621722 - Hjálparsjóður RKÍ (simsvari) 91 /21900 -Kassadeild(símsvari) 91/29179 -Akureyrardeild, Kaupangi v/Mýrarveg 96/24402 Telexnúmer Rauða krossins er 2180. Rauðakrosshótelið verður opnað i vor að Rauðar- RAUÐI KR0SS ÍSLANDS^l árstig 18, Reykjavík. , . ■■ ■ ■ nfMNnv Jllr*i p tfkAt*** rm Sérstaklega þægileg og örugg bindi. Að efni og gerð standast REFORM-dömubindin ströngustu gæðakröfur. Þau eru einkar þægileg og henta vel við allar aðstæður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.