Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987.
9
Utlönd
Danny Kaye, sem í rúm fjörutíu
ár kitlaði hláturtaugar fólks á leik-
sviði, hvíta tjaldinu og sjónvarps-
skjánum og var óþreytandi krossfari
snauðra bama í heiminum, andaðist
í gær, 74 ára að aldri, af hjartaáfalli
eftir langvarandi veikindi.
Tregara um hlátur
„Um allan heim dofria brosin þegar
fólk syrgir nú þann sem öllum gat
komið til að þrosa,“ sagði James
Grant, framkvæmdastjóri Bama-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF).
Og kannski verður gamanleikar-
ans fræga lengst minnst fyrir þau
stþrf sem hann vann launalaust en
í 35 ár var hann sérlegur sendiherra
bamahjálparinnar og ferðaðist vítt
og breitt um heiminn til þess að örva
fjáröflun fyrir bamahjálpina.
Leyndarlíf Walter Mitty, Hans
Cristian Andersen, Hvít iól em með-
al sautján kvikmynda sem Danny
Kaye lék í og lengi verða þeim
minnisstæðar er séð hafa. Margrét
Danadrottning heiðraði leikarann
1983 fyrir leik hans í kvikmyndinni
H.C. Andersen.
Danny Kaye hlaut óskarsverðlaun
og tvenn emmy-verðlaun (fyrir sjón-
varpsmyndir og þætti) auk annarra
viðurkenninga. Hann varð mjög að
draga saman seglin upp úr 1983 þeg-
ar hann þurfti að gangast undir
hjartaþræðingu og árið eftir síðan
aftur undir uppskurð á mjöðm.
Óþreytandi eljumaður með
margvísleg áhugamál
Hann fæddist í New York 18. jan-
úar 1913 og hlaut nafnið David
Daniel Kaminsky. Áhugamál hans
vom margvísleg og var það öllum,
sem hans þekktu eilíft undmnarefni
hvaðan hann fékk orkuna til þess
að taka sér allt það fyrir hendur sem
hann gerði. Hann hafði flugmanns-
réttindi til þess að fljúga Júmbó-
farþegaþotu. Hann var matreiðslu-
meistari, sérhæfður í kínverskum
réttum, og þótti sjálfum vænst um -
af öllum viðurkenningum sem hann
hlaut - heiðursvott franskra mat-
reiðslusnillinga. Hann lék golf (með
fimm í forgjöf um tíma) og átti hlut
í atvinnuliði í baseball.
í janúar 1940 gekk hann að eiga
Sylvíu Fine, sem setti saman fyrir
hann bæði vísur og lög, en það var
eitt laga hennar, Stanislavsky, og
söngur þess sem fyrst vakti athygli
á Danny Kaye. - Sylvía og dóttir
þeirra, Dena, vom hjá Danny Kaye
á viðskilnaðarstund hans.
Umsjón:
Ingibjörg Bára Sveinsdóttir
og Guðmundur Pétursson
Aðalstjarna
barnanna fallin frá
■ ■
>' - -. - •.'
■
t
Leikarinn Danny Kaye sést hér stjórna Fílharmoniuhljómsveit Los Angeles 1985 en hann hefur margsinnis stjórnaö frægum sinfóníu- og fíl-
harmoníuhljómsveitum og var einu sinni heiðraður með hinum gullna tónsprota sinfóníuhljómsveita í Bandarikjunum fyrir störf í þágu tónlistarinnar.
Við það tækifæri sagði grinistinn Danny Kaye að hann skildi vel hví sprotinn væri haföur svo þungur að hann gæti naumast loftaö honum. - Hann
lærði aldrei að lesa nótur.
Þessi mynd frá 1982 var tekin þegar Danny Kaye voru veitt óskarsverðlaun i viðurkenningar- Danny Kaye kom i fyrsta skipti fram á þriðja áratugnum og þá i hlutverki trúðs en lék siðan
skyni fyrir störf hans í þágu mannúðar- og líknarmála en um þrjátiu ára bil var hann sérlegur i fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta. Hér er hann i hlutverki gyðings sem slapp lifs ur útrým-
sendiherra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. ingarbúðum nasista í sjónvarpsmyndinni Skokie.