Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987. Andlát Gústaf A. Ólafsson hæstaréttarlög- maður lést 24. febrúar sl. Hann fæddist 20. júní 1905 að Stóra-Skógi í Dalasvslu. sonur hjónanna Guð- bjargar Þorvarðardóttur og Ólafs Jóhannessonar. Hann Jauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Revkja- vík 1928 og lögfræðiprófi frá Háskóla íslands árið 1933. Eftirlifandi eigin- kona hans er Agústa Sveinsdóttir. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið. Útför Gústafs verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Gísli Andrésson, Hálsi í Kjós, lést af slysförum sunnudaginn 1. mars. Jarðsungið verður frá Hallgríms- kirkju i Revkjavík mánudaginn 9. mars kl. 13.30. Guðrún Sveinsdóttir, Hraunhóli 7. Nesjahreppi. andaðist í kvenna- deild Landspítalans mánudaginn 2. mars 1987. Kveðjuathöfn fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 5. mars nk. kl. 11.30. Hörður Markan pípulagninga- meistari. Sörlaskjóli 66. andaðist í Vífilsstaðaspítala 2. mars 1987. Ásdís Pétursdóttir, Víðimel 63. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 5. mars 1987 kl. 13.30. Útfór Aðalsteins Þorgeirssonar, Markholti 15. Mosfellssveit. fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 6. mars kl. 15. Jarðsett verður í Lága- fellskirkjugarði. Útför Elínar Snorradóttur Weld- ing verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. mars kl. 15. Tilkyimingax Hallgrímskirkja Föstumessa kl. 20.30 í kvöld. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Sr. Karl Sigur- björnsson. Kirkjan er opin alla daga nema mánudaga kl. 10 18. kvöldbænir með lestri passíusálma alla virka daga nema laugar- daga kl. 18. Skákkeppni stofnana og fyrir- tækja 1987 hefst í A-riðli mánudag 9. mars kl. 20 og í B-riðli miðvikudag 11. mars kl. 20. Teflt verður í félagsheimili Taflfélags Reykja- víkur að Grensásvegi 44 46. Keppnin verður með svipuðu sniði og áður í aðal- atriðum á þessa leið: Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi í hvorum riðli um sig. Umhugsunartími er ein klukku- stund á skák fyrir hvorn keppanda. Hver sveit skal skipuð fjórum mönnum auk 1 4 til vara. Fjöldi sveita frá hverju fyrirtæki eða stofnun er ekki takmarkaður. Sendi stofnun eða fyrirtæki fleiri en eina sveit. skal sterkasta sveitin nefnd a-sveit, næsta b-sveit o.s.frv. Þátttökugjald er kr. 5000 fyrir hverja sveit. Nýjar keppnissveitir hefja þátttöku í b-riðli. Þátttöku í keppn- , ina má tilkynna í síma Taflfélagsins á kvöldin kl. 20-22. Lokaskráning í a-riðil verður sunnudag 8. mars kl. 14-17, en í b-riðli þriðjudag 10. mars kl. 20-22. Baráttuhátíð á Hótel Borg Félag vinstrimanna í háskóla Islands held- ur baráttuhátíð á Hótel Borg fimmtudags- kvöldið 5. mars nk. Þar er boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá með bókmenntaupplestri og margvíslegum tónlistarflutningi. Dagskráin hefst stund- víslega kl. 21.15 og húsið verður opnað kl. 20.30. Aðgöngumiðar eru seldir í Bóka- verslun Snæbjarnar. Bókabúð Máls og menningar, Gramminu og á skrifstofu Fé- lags vinstrimanna. Miðaverð er kr. 450. Allir velkomnir. „Orðabelgur" á Flateyri 1 dag, miðvikudag 4. mars nk.. verður frumsýnt hjá Leikfélagi Flatevrar nýtt ís- lenskt leikrit. Orðabelgurinn eftir Brynju Benediktsdóttur. Leikstjóri er Oktavía Stefánsdóttir. en hún hefur einnig hannað alla búninga og annast leikmunagerð. Lokasöngur er eftir Atla Heimi Sveinsson. og saminn sérstaklega fvrir þessa sýningu. svo hér verður um frumflutning að ræða á þeim tónverkum. Leikendur eru 23 tals- ins flest unglingar á aldrinum 13-17 ára. Hljómlist á sýningunni annast hljómsveit- in ..Gismó" en hún er skipuð fimm strákum frá Flateyri á aldrinum 15-17 ára. Fjórar sýningar eru fyrirhugaðar á Flateyri. en síðan er ætlunin að fara með leikritið og sýna það á nærliggjandi stöðum. Bolung- arvík. ísafirði. Þingevri. Bíldudal og Patreksfirði. Trúarhugmyndir í Passíu- sálmunum Á þessari föstu mun fræðsludeild Kársnes- safnaðar efna til fjögurra samverustunda á Fimmtudagskvöldum í safnaðarheimilinu Borgum og hefjast þær kl. 20.30. Fjallað verður um guðfræðina í Passíusálmunum. Séra Þorbjörn Hlynur Árnason, sóknar- prestur á Borg á Mýrum, er fyrirlesari og leiðbeinandi á fundunum en vænst er fyr- irspurna og almennra umræðna meðal þátttakenda. Heppilegt er að fólk hafi með sér Passíusálmana á fundina. Samveru- kvöldin verða þessi: 5. 12. og 26. mars og 9. apríl. Öllum er heimil þátttaka og bent er á að næstu bifreiðastæði við safnaðar- heimilið eru við Kópavogskirkju. Tölvuvædd framleiðsla „Cam“ Þann 6. mars nk. mun félag íslenskra iðn- rekenda, Iðntæknistofnun Islands og endurmenntunarnefnd háskólans standa sameiginlega að námsstefnu um tölvu- vædda framleiðslu. A námsstefnunni verður þess freistað að gefa yfirlit yfir stöðu tölvuvæðingar í framleiðslu hér á landi og um framtíðarmöguleika þess að hagnýta tölvustýringar í framleiðslu hér. A námsstefnunni flytja erindi sérfræðing- ar frá Háskóla íslands, Iðntæknistofnun Islands og frá íslenskum iðnfyrirtækjum. Námsstefnunni lýkur með sýningu á sjálf; virku lagerkerfi hjá Sól hf. Námsstefnu- stjóri verður Þorgeir Pálsson. dósent Háskóla íslands. Skráning er á aðalskrif- stofu Háskólans síma 25088. Málstofa heimspekideildar Næsta erindi verður fimmtudag 5. mars kl. 16.15 í stofu 301 í Árnagarði. Þá flytur Halldór Guðmundsson, mag. art., erindi sem nefnist ,,Ö11 Reykjavik snýst um mig. Af geníum og ómenntuðum miðl- ungsmönnum. Kaflaskil i íslenskum bókmenntum á 3. áratugnum. Að loknu erindi verða umræður. Ollum er heimill aðgangur. Kvenfélag Hallgrímskirkju 45 ára afmælisfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 5. mars kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkjunnar. Dagskrá verður fjölbrevtt og hátíðarkaffi. Að lok- um verður hugvekja sem sr. Karl Sigur- bjömsson flytur. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og vináttu vegnaandláts og útfarar móður okkar, tengda- móður og ömmu, INGIGERÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Hofstöðum, Skagafiröi. Guð blessi ykkur öll, Stefán Stetánsson Eyrún Jónsdóttir Geirfinnur Stelánsson Guórún Gunnarsdóttir og barnabörn. í gærkvöldi DV Séra Frank M. Halldórsson: „Grfiirlegar framfarir“ Ég fylgist nú lítið með útvarpi og sjónvarpi en reyni að sleppa aldrei íréttum og fréttatengdum þáttum. Ég hlusta á kvöldfréttir klukkan sjö, Stöð 2 klukkan hálfátta og ríkissjón- varpið klukkan átta. Ég horfði á sjónvarpið í gærkvöldi því ég var beðinn um að segja álit mitt á dagskrá fjölmiðlanna. Mér finnst aðdáunarvert hve fréttamenn- imir standa sig vel og hve innlent fréttaefni hefur aukist, hins vegar mætti gjaman vera meira um fréttir frá Norðurlöndum, þó það hafi held- ur batnað eftir að sjónvarpið fór að hafa mann þar. Ég vildi gjaman sjá og heyra frá frændum okkar á Norð- urlöndum. Þá fylgdist ég með nýja sakamálaþættinum. Bretar eru snill- ingar í gerð slíkra þátta, hjá þeim koma fram svo skemmtilegar mann- gerðir og furðulegir persónuleikar og virðist þessi ætla að verða ágæt ur. Það var skemmtileg tilbreyting að fá umræðuþátt frá Akureyri, Emu Indriðadóttur tókst vel stjóm á þættinum og fróðlegt að heyra af- stöðu þeirra norðanmanna til byggðakjamans hér á suðvestur- Séra Frank M. Halldórsson. hominu. Þátturinn um flugvélamar fannst mér áhugaverðasta efni kvöldsins. Eftir að hafa séð þessa mynd gerir maður sér enn betur grein fyrir þeim gífurlegu framförum sem orðið hafa á tæknisviðinu á okkar öld. Ég sá nú reyndar ekki allan þáttinn vegna þess að ég sit mig ekki úr færi að hlusta á Andrés Bjömsson lesa Passíusálmana. Ríkisútvarpið og sjónvarpið finnast mér bæði góð og merkilegt að við skulum eiga svona góða fjöl- miðla þegar haft er í huga að við erum ekki nema rúmlega 200.000 manna þjóð, ekki fleiri en búa í einni stórborg. En það er ríkt í íslending- mn að gera stöðugt kröfur. Vonandi kemur að því að sjónvarpið hafi tök á að hafa stutta helgistund í dag- skrárlok á kvöldin. Það em miklu fleiri en þeir sem gera sér grein fyrir sem vilja hlusta á guðsorð. Tónleikar Ýmislegt á Hallveigarstöðum. Ungt fólk kemur á fundinn og skemmtir með söng og hljóð- færaleik. Oddur Björnsson leikur einleik í verki eftir Atla Heimi Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói á fimmtudagskvöld mun sveitin flytja verkið Júbílus, konsert fyrir básúnu og blásarasveit, eftir Atla Heimi Sveinsson, tónskáld. Þar mun Oddur Björnsson, básúnuleikari, leika einleik með sveitinni og einnig í verki Svíans Lars-Eriks Larsson, Consertino fyrir bás- únu og strengjahljómsveit. Önnur verk á efnisskrá Sinfóníunnar að þessu sinni verða Sinfónía nr. 2 eftir Franz Shubert og Capriccio Italien eftir Tsjækofskí. Verk Atla Heimis Sveinssonar, Júbílus, var samið árið 1983 fyrir Kammerblásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri, en birtist nú í aukinni og endurbættri gerð, m.a. að viðbættu slagverki og tónbandsupptökum. Einleikarinn Oddur Björnsson, lauk prófi úr Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1981, fór þá til Bandaríkjanna til frekara náms í New England Conservatory of Music í Boston og lauk BM-prófi úr þeim skóla árið 1985. Þá um haustið var hann ráðinn fyrsti básúnuleikari Sinfóníu- hljómsveitar íslands og hefur gegnt því starfi síðan. Stjórnandi tónleikanna á fimmtudagskvöld verður Páll P. Pálsson. Tónleikar í Evrópu Fimmtudaginn 5. mars mun hljómsveitin Gypsy halda tónleika á skemmtistaðnum Evrópu. Á efnisskrá hljómsveitarinnar er eingöngu frumsamið efni sem er rock í þyngri kantinum Opnun tónstofu Heyrnleys- ingjaskólans Fimmtudaginn 19. febrúar sl. var formlega tekin í notkun tónstofa í Heyrnleysingja- skólanum og sérstakur gestur skólans við opnunina var danski heyrnleysingjakenn- arinn og músíkterapeutinn Claus Bang, einn nafntogaðasti frumkvöðull músík- terapíu við kennslu heyrnardaufra barna. Við opnun tónstofunnar afhenti Lions- klúbburinn Fjölnir skólanum að gjöf hljóðfæri og hljómburðartæki fyrir hálfa milljón króna. Borgþór H. Jónsson, veður- fræðingur og formaður klúbbsins, afhenti gjöfina en Gunnar Salvarsson skólastjóri tók við henni fyrir hönd Heyrnleysingja- skólans. Tónlist hefur verið notuð í æ ríkari mæli í heyrnleysingjakennslu á síð- ustu árum og þykir í dag eitthvert, besta hjálpartækið sem völ er á til þess að örva skynjun heyrnardaufra á hljóðum og hljómfalli, gegnum til dæmis hreyfingu, dans og söngva. Músíkterapía hefur verið notuð með góðum árangri í heyrnarþjálfun og talkennslu og Heyrnleysingjaskólinn bindur miklar vonir við þá nýjung í kennslu heymardaufra á íslandi sem felst í opnun tónstofunnar. Claus Bang efndi til námskeiðs um gildi músíkterapíu í sér- kennslu dagana 20. og 21. febrúar og var námskeiðið haldið í Gerðubergi á vegum Heyrnleysingjaskólans og Þjálfunarskóla ríkisins, Safamýri. Um fimmtíu sérkennar- ar sóttu námskeiðið. Fundir Kvenfélag Frikirkjunnar í Reykjavík heldur fund nk. fimmtudag 5. mars kl. 20.30 Hæstiréttur hefur dæmt í máli mannanna tveggja sem teknir voru árið 1985 fyrir innflutning á um 1600 skömmtum af LSD auk nokkurs magns af amfetamíni. Hjá sakadómi i ávana- og fíknieínum voru mennimir tveir dæmdir í fimm ára fangelsi enda er LSD talið eitt hættulegasta fíkni- efni sem til er. Hæstiréttur hins vegar stytti refsingu mannanna í 2 ár og 6 mánuði fyrir hvom um sig. Hér er um tvo aðskilda dóma að ræða því þótt mennimir hafi verið saman í LSD smyglinu var annar þeirra að auki dæmdur fyrir fleiri fíkniefriabrot. I dómi Hæstaréttar yfir öðrum manninum segir að upptaka í þessu máli verði einungis dæmd að þvi marki Sálarrannsóknarfélag íslands Aðalfundur félagsins verður haldinn á Hótel Esju fimmtudaginn 5. mars kl. 20. Fundarefni: 1. venjuleg aðalfundarstörf, 2. lagabreyting, 3. önnur mál. Athugið breyttan fundarstað. Kvenfélag Hallgrímskirkju 45 ára afmælisfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 5. mars kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkjunnar. Dagskrá verður fjölbreytt og hátíðarkaffi. Að lok- um verður hugvekja sem sr. Karl Sigur- björnsson flytur. Spilakvöld Húnvetningafélagið Félagsvist verður spiluð laugardaginn 7. mars kl. 14 í félagsheimilinu, Skeifunni 17. Allir velkomnir. Tapað - Fundið Lyklar fundust Tveir lyklar á rauðri plastkeðju fundust í Þverholtinu í gær. Upplýsingar hjá Dag- bók, DV, Þverholti 11, sími 27022. Erfðagripur tapaðist Norsk kona varð fyrir því óláni í byrjun febrúar að týna sporöskjulaga nælu með svörtum steini í ca 50 cm langri gullkeðju. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 27757 (Svanborg). Högni týndur úr Heimahverfi . Rauðbröndóttur högni með svarta hálsól tapaðist frá Sólheimum 24 sl. mánudag. Hann gegnir nafninu Gutti. Gutti er ekki vanur útivist og gæti því hafað leitað í kjallara eða bílskúra. Þeir sem kynnu að verða kattarins varir eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 38290. sem krafist er í ákæru, þ.e. á 1018 skömmtum af LSD en er fíkniefnalög- reglan náði mönnunum höfðu þeir þegar dreift nokkru af því magni sem þeir smygluðu til landsins. I dómsorði segir eins og að framan er greint að mennirnir sæti fangelsi í 2 ár og 6 mánuði en til frádráttar komi gæsluvarðhaldsvist, hjá öðrum í 9 daga en hinum í 12 daga. Ákvæði hér- aðsdóms um sakarkostnað skuli vera óröskuð en ákærðu greiði áfrýjunar- kostnað sakarinnar. Mál þetta dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Magnús Thoroddsen, Bjami K. Bjamason, Guðmundur Jónsson, Halldór Þorbjörnsson og Þór Vil- hjálmsson. -FRI Hæstiréttur dæmir í stóra LSD-málinu: Stytti fangelsis- dóminn um helming

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.