Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987. Iþróttir •Tony með Helmut Kohl kansl- ara meðan allt lék i lyndi. A að útiloka Schumacher? Áfram halda skrif Tony Schu- macher að valda harkalegum viðbrögðum. Nú síðast hefur Car- los Alherto Torres. fyrirliði brasil- íska landsliðsins sent vann heimsmeistaratitilinn 1970. risið upp á afturfætuma og skammast út í Tonv. ..Knattspyrna er alvarlegur hlut- ur. I>að er ekki nokkur vafi á því að Schumacher er aðeins að sækj- ast eftir auglvsingu fvrir bók sína með ummælum sínum. Ég tel að það eigí að útiloka Schumacher og félaga hans frá knattspymu. Það yrði til bóta fvrir íþróttina og gæfi gott fordæmi.1- sagði Alberto. Eins og kunnugt er játar Schu- macher að hann og félagar hans í Köln hafi nevtt lvfja fvrir knatt- spymuleik. -SMJ Drummond opnar skóla John Drunimond golfkennari. sem dvalið hefúr hér yfir sumar- mánuðina undanfarin ár. hefur opnað golfskóla sinn að Tangar- höfða 3 í Reykjavík. Boðið er upp á alhliða kennslu í golfi og geta nemendur hafl meðferðis mynd- band og látið taka upp kennslu- stundir, farið sfðan með spóluna heimi og stúderað hana þar. Drummond býður upp á einkatíma og eins tíma fyrir hópa í mjög svo glæsilegu húsnæði. Þeir sem áhuga hafa á að panta tíma geta hringt í síma 689183. Kennt verður frá kl. 16.00 á daginn til 21.00 á kvöldin. -SK Átakalítið ársþing GSÍ Á ársþingi Golfsambands ís- lands, sem haldið var nýlega, bar það helst til tíðinda að fellt var að leggja niður stigamót. Stiga- meistaramótið var hins vegar lagt niður. Þingið þótti annars átaka- lítið og rólegt. Konráð Bjamason verður áfram forseti sambandsins enda var hann kosinn til tveggja ára í fyrra. Þeir Stefán Stefánsson og Sigurður Héðinsson gáfu ekki kost á sér áfram í stjóm en sæti þeirra tóku þeir Hannes Hall og Gísli Sigurðsson. -SK Urslit í Englandi Nokkrir leikir fóm fram í 2. deild í Englandi í gærkvöldi. Úrslit urðu sem hér segir: Bamsley - Shrewsbury.......2-1 Huddersfield - Birmingham...2-2 Hull - Sunderland..........1 -0 Ipswich - WBA..............1 - 0 „Ottast Amór mest“ -segir Udo Lattek, þjátfari Bayem, sem mætir Anderiecht í kvöld Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Á blaðmannafundi eftir leik And- erlecht og Standard Liege í síðustu viku sagði yfirþjálfari Bayem Múnchen, Udo Lattek, en hann var meðal áhorfenda á leiknum, að hann óttaðist mest Amór Guðjohnsen í liði Anderlecht. Að vísu talaði Udo Lattek um Lars Guðmundsson en belgfsku blaða- mennimir vom vissir um að þarna ætti Lattek við Arnór og reyndist svo vera þegar Lattek var beðinn um að lýsa leikmanninum. Var mikið hlegið að þessu á fúndinum. „Amór er stórhættulegur leikmaður þegar inn i teig andstæðinganna er komið. Hann getur gefið hvaða liði sem er rothögg. Einnig hefur hann mjög góða boltameðferð. Hans verður sérstaklega gætt í Evrópuleiknum gegn okkur,“ sagði Udo Lattek, þjálf- ari Bayem Múnchen. Á morgun mætast Bayern Múnchen og Anderlecht í átta liða úrslitum Evrópukeppni meistaraliða og verður leikurinn í Múnchen. En seinni leik- urinn verður hálfum mánuði síðar í Brússel. _jkS Islandi boðið til Englands .............ÉH wmr— ....... • Udo Lattek, þjálfari Bayern Múnchen. ! Sigurgegn Skotum IÁ mánudagskvöld léku ungl- ingalandslið íslands í pilta- og ■ stúlknaflokki seinni leiki sína gegn Skotum. Piltarnir unnu þá | Skotana, 103-94, eftir að staðan 1 var 59 38 í hálfleik. EyjólfurSverr- | isson frá Tindastól var stigahæst- ur, skoraði 25 stig. Bárður I Eyþórsson úr Val var með 18 stig, ■ Ragnar Jónsson, Val, 16 stig, Júl- I íus Friðriksson, ÍBK, 13 og Friðrik . Rúnarsson, UMFN, 12 stig. Þá I stóðu þeir Rúnar Amarsson úr IGrindavík og Skarphéðinn Eiríks- son, Haukum, sig vel. ■ Þessi ferð er til að undirbúa ■ strákana fyrir Norðurlandamótið I f Noregi f maí. Stúlkumar töpuðu sínum leik, I 83-54, en það var minna tap en í Ifyrri leiknum. Anna Sveinsdóttir skoraði 22 stig en Björg Hafsteins- ^ióttir skoraði 16 stig. -SMJ Islenska landliðinu í körfuknattleik hefur verið boðið á fiögurra landa mót í Birmingham í Englandi, dagana 22.-25. maí. Þar munu Belgar og Norð- menn leika auk heimamanna og íslendinga. Þá hefur danska körfu- knattleikssambandið boðið landslið- inu í æfingabúðir í vikutíma í ágústbyrjun á næsta ári. Árangur landsliðsins undanfarið hefur greini- lega vakið athygli víðar en hér á landi. Næsta stórverkefni landsliðsins í körfú er Norðurlandamótið sem fram fer í Horsens í Danmörku 23.-26. apríl. Fróðir menn segja að islenska lands- liðið hafi aldrei átt meiri möguleika á sigriámótinu en einmitt nú og verð- ur fróðlegt að sjá hvað gerist á mótinu að þessu sinni. Næsta framtíðarverkefni landsliðs- ins er Evrópumótið sem fram fer næsta haust en dregið verður í riðla á FIBA- þinginu 22. júní. Alls verða það fiórir riðlar og komast tvö lið áfram úr hveijum riðli og taka þátt í hinni eig- inlegu Evrópukeppni sem fram fer í fiórum riðlum (4 lið í hveijum) á tveim- ur árum og verður leikið heima og heiman. Alls er áætlað að íslenska landsliðið leiki um 30 landsleiki á þessu ári. -SK Einar og Siggi báðir á bekknum - þegar Tres de Mayo vann Basaf 21-26 Lið Sigurðar Gunnarssonar og Ein- ars Þorvarðarsonar á Spáni, Tres de Mayo, vann öruggan útisigur á einu af neðstu liðunum í spánska hand- knattleiknum á dögunum. Tres de Mayo lék þá gegn Basa og lokatölur urðu 21-26. Leikurinn var merkilegur fyrir þær sakir að hvorki Sigurður né Einar léku með liði Tres de Mayo. Þeir sátu á varamannabekknum allan leiktímann. „Ég er að ná mér af meiðslunum í öxlinni og ég held að þjálfarinn hafi viljað hvíla mig fyrir leik okkar gegn Áthletico Madrid um næstu helgi. Basa er á botninum í deildinni og það hefur örugglega haft sitt að segja,“ sagði Sigurður í samtali við DV. Einar Þorvarðarson var sem kunnugt er staddur hér á landi vegna landsleikjanna við Júgóslava og það kann að hafa verið ástæðan fyrir því að hann fékk ekkert að vera með gegn Basa. -SK Schoebel er milli steins og sleggju - landsliðsþjálfarastarfið í hættu Atii HDinaissan, DV, Vestur-Þýskalandi: Framtíð Simons Schoebel, landsliðs- þjálfara Vestur-Þýskalands í hand- knattleik, er nú mjög óljós eftir hrakfarir vestur-þýska landsliðsins á B-keppninni á Ítalíu. Sem kunnugt er tókst Vestur-Þjóðverjum ekki að kom- ast upp í A-keppnina og i keppnina á ólympíuleikunum í Seoul á næsta ári. Fyrir B-keppnina hafði Schoebel lýst því yfir að hann myndi hætta sem landsliðsþjálfari ef liði hans tækist ekki að komast til Seoul. Hann hefur hins vegar ekkert viljað segja um það eftir keppnina hvort hann muni hætta eða ekki. Scoebel hefúr aftur á móti sagt að hann sé með tilboð frá þremur félögum í Bundesligunni og að eitt leirra sé Hofweier. Nöfn tveggja liða hefúr hann ekki viljað gefa upp. Talið er að formaður vestur-þýska handknattleikssambandsins vilji ekki endurráða Schoebel. Fljótlega verður málið tekið fyrir á stjórnarfundi hjá sambandinu og þá verður ákveðið hvort Schoebel verður áffarn lands- liðsþjálfari eða ekki. -SK og Danmerkur •Albert Guðmundsson í búningi Denver Albert - Landskrona Albert Guðmundsson, fyrrum knatt- spymumaður í Val, var nýlega keyptur frá 3. deildar félaginu Engelholm í Svíþjóð til stórliðsins Landskrona, sem leikur í 1. deildinni sænsku. Rolf Svensson, þjálf- ari liðsins, þekkti vel til Alberts og vildi því ólmur fá hann í herbúðir félagsins. Taldi hann rétt að styrkja liðið til að bregðast ekki væntingum forkólfanna, en Landskrona er nú spáð sigri í 1. deildinni og sæti í Allsvenskan að ári. Landskrona lék nú fyrir skemmstu tvo æfingaleiki gegn dönsku fyrstu deildar félögunum Herfölge og Köge. Sigraði Landskrona í báðum leikjum með tveimur mörkum gegn engu og skoraði Albert eitt mark gegn Köge, beint úr homspymu. „Þetta lítur mjög vel út hjá Lands- Verða UCI aa mmdi tvrop • Simon Schoebel lyfti oft höndunum í angist á B-keppninni á Ítalíu. Þegar knattspymumenn á Vestur- löndum em heiðraðir eða hafnir upp til skýjanna segja þeir oft fyrir kurteisis- sakir. „Þetta er nú bara liðsheildinni að þakka þetta hefði aldrei tekist ef ég hefði ekki spilað í þessu ágæta liði.“ Hæfileg hógværð hefui- aldrei orðið til skaða fyrir vestrænar knattspymuhetj- ur. Þó að engin taki mark á þessum ummælum þá taka allir þau sem merki um hve góður piltur sé þar á ferðinni. En þegar sovéskur leikmaður vinnur til æðstu mctorða sem evrópskur knatt- spyrnumaður getur unnið til og segir: „Þið gerðuð mistök - það var félagi Alexander sem átti að vinna titilinn. Hann er betri en ég.“ Þá ber að leggja við hlustir. Þegar vestrænir blaðamehn heyra svona ummæli þarf ekki annað en að líta framan í heiðarlegt andlit Igor Belanov til að sjá að hann meinar hvert orð. Igor Belanov var kosinn knattspvmu- maður Eviópu 1986. Hins vegar náði hann ekki að sigra í sams konar kosn- ingu innan Sovétríkjanna. Þar varð félagi hans í sovéska landsliðinu og Dynamo Kiev, Alexander Zavarov, hlut- skarpari en Zavarov var valinn af sovéskum íþróttafféttamönnum stuttu eftir að kosning Belanov var tilkynnt. En höfðu þá vestrænir íþróttamenn á röngu að standa? - Völdu þeir vitlausan mann eftir allt saman? Já, svo virðist vera, ef marka má um-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.