Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987. Útlönd_________________________ Yamani sparkað til að hylma yfir samsæri Þann 29. október var Yamani, olíumálaráðherra Saudi-Arabiu, vikið úr embætti. Getum hefur verið leitt að því að Fahd konungur hafi verið hræddur um að Yamani segði frá sameiginlegu verðstriði Bandaríkjanna og Saudi- Arabíu gegn íran. Um höfundinn Höfundur greinarinnar, Jens Nauntofte, er fréttastjóri erlendrafrétta hjú danska útvarpinu og sjónvarpinu og liejur verió vid öflun erlendra frétta hjá dansku útvarpinu i tuttugu ár, auk þess sem liann hefur skrifað fjölda greina um erlend málefni i dönsk blöð. Nauntofte hefur sérhaft sig i málefnum Aust- urlanda nter og hefur átt viðtöl vió murga ráðamenn þar eystra. Hefur hann og lagl hönd á plóg við gerð heimildarmyndar um Miðaust- urlönd, auk þess sem eftir liggja hjá honum htekur um þuu. Nauntofte var Fulbrightstyrkþegi 1985' og dvaldi i Bandaríkjunum. Hefur liann í smíðum hók um stejhu Bandarikjanna i Austurlöndum nter (siðustu þrjú forsetakjörtimabil). Eftir Jens Nauntafte Til hvaða bragðs grípur 56 ára gamall atvinnulaus framkvæmda- stjóri? Sérstaklega eftir að hægt hefur verið að lesa á forsíðum allra dagblaða að honum hafi verið sagt upp störfum? Hann gæti kannski sett svohljóð- andi auglýsingu í Intemational Herald Tribune: Atvinna óskast: Revndur stjórnarerindreki. sem gegnt hefur ráðherraembætti í lengri tíma, óskar eftir krefjandi toppstöðu á alþjóðlegum vettvangi. Hefur mikla reynslu í verslun með olíu. er þaulkunnugur alþjóðlegum efnahag og vanur aðgerðum vegna kreppu. Talar reiprennandi ensku og arab- ísku. Snúið ykkur til undimtaðs. Ah- med Zaki Yamani. Saudi-Arabíu. Oliufurstinn Ahmed Zaki Yamani varð atvinnulaus þann 29. október í fyrra þegar konungur Saudi-Arabíu skipti um olíumálaráðherra án nokkurrar viðvörunar. í aldarfjórð- ung hafði þessi glæsilegi olíufúrsti verið í sviðsljósinu, dáður af öllum, og með alla olíumilljarðana á bak við sig verið í raun einn af valda- mestu mönnum heims. Það var árið 1960 sem Fasal kon- ungur gerði hinn þrítuga dómarason frá Mekka að olíumálaráðherra. Hann hafði stundað nám við háskól- ann í Kaíró og framhaldsnám við Harvard Business School í Banda- ríkjunum. Vinir hans um allan heim kölluðu hann Zaki sem á arabísku útleggst sætur. Sigurviss I fyrstu olíukreppunni, sem varð árið 1973, kom Yamani í nóvember það sama ár til Kaupmannahafnar til þess að útskýra fyrir Efnahags- bandalaginu hvemig hægt væri að ná tökum á ástandinu. Það var bros- andi og sigurviss olíufursti sem tók á móti mér í svítu á efstu hæð Royal Hotel. Ég var sendur ffá danska sjónvarpsblaðinu til þess að reyna að fá svör við því hvenær olían færi að fljóta aftur. Við spurningu minni um hversu mikið ætti að draga úr olíuframleiðslunni svaraði Yamani:, „Við höfum lengi beðið eftir |)ví að grípa til olíuvopns okkar en nú er þolinmæði okkar á þrotum. Þér getið sjálfir reiknað út hvað gerist ef framleiðslan verður minnkuð um áttatíu prósent í stað tuttugu og fimm prósenta eins og nú. Verðið mun snarhækka og Vestur-Evrópa lifir það ekki af,“ sagði Yamir um leið og hann renndi fingri eftir rúð- unum í gluggunum þar sem þök Kaupmannahafnar blöstu við sjón- um okkar. Og hvað ef Kissinger gerði alvöm úr því að senda dátana sína til Saudi-Arabíu? „Við höfum reyndar viss viðkvæm olíusvæði í Saudi-Arabíu,“ svaraði Yamani um hæl ógnþmnginn á svip. „Ef gerð verður árás verða þau samstundis sprengd í loft upp - af okkur sjálf- um!“ Þessar athugasemdh- hans hljóm- uðu í sjónvarpstækjum um allan heim næstu tólf klukkustundimar. Yamani er fædd fjölmiðlastjai'na. Hann er vel gefinn, yfirvegaður og gerir sér fyllilega grein fyrir mikil- vægi röksemda sinna. Fifldjarfur Yamani var á kafi í einu af fífl- djörfustu tiltækjum sínum þegar Fahd konungur vék honum úr emb- ætti olíumálaráðherra. Og þótt einkennilegt megi virðast var um að ræða aðgerð sem var algjör and- stæða þeirrar sem hann lýsti á Royal Hotel árið 1973. Frá 1985 til 1986 reyndi Yamani ásamt starfsbróður sínum í Kuwait að lækka heims- markaðsverð á olíu með því að láta olíudælumar ganga. Með því vonað- ist hann í fyrsta lagi til þess að olíuframleiðslulönd utan OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja , gæf- ust upp og i öðm lagi að þau OPEC-lönd sem framleiddu meira en samið var um fengju að kenna á því þegar olíuverðið snarlækkaði. Samanlagt geta OPEC-löndin framleitt allt að 33 milljónum tunna af olíu á dag. En þau geta aðeins selt helminginn af því magni því að frá miðjum áttunda áratugnum hafa þau fengið keppinauta eins og til dæmis Noreg, Stóra Bretland og Mexíkó. Yamani hugðist ná aftur til sín markaðshlutum sem OPEC- löndin höfðu tapað. Það átti ekki að borga sig fyrir framleiðendur Norðursjávarolíu að hefja vinnslu á nýjum svæðum. Taprekstur I Saudi-Arabíu var olíuframleiðsl- an komin niður í 2 milljónir tonna af olíu á dag en framleiðslugetan er rúmlega 10 milljón tunnur á dag. Sumarið 1985 juku Saudi-Arabía og Kuwait framleiðsluna. Yamani sagði fyrst stopp þegar framleiðslan var komin upp í 5 milljónir tunna á dag. Um leið og alþjóðlegir olíukaup- menn gerðu sér grein fyrir því sem var að gerast lækkaði verðið. Sum- arið 1986 féll verðið úr 28 dollurum á tunnuna niður í 8 dollara. V erðstríð Yamanis hefur try ggt sér öruggt sæti í sögu tuttugustu aldar- innar. Það er ef til vill mesti tap- rekstur í iðnaði af þessu tagi. Árið 1986 urðu samanlagðar tekjur OPEC-landanna um fimmtiu mill- jörðum dollara lægri en árið áður. Verðfallið olli hörmungarástandi í hinum OPEC-löndunum. Samtals búa um 350 milljónir í OPEC-lönd- unum þrettán en íbúar Saudi-Arabíu og Kuwait eru samtals aðeins sex til sjö milljónir. Þessi tvö lönd eiga einnig stóran dollaraforða að grípa til. Hin OPEC-löndin gátu ekkert aðhafst til þess að stöðva olíudælur Yamanis. Samsæri? Það er ekki að ástæðulausu að fólk spyr sig um ástæðuna til þess- ara aðgerða. Var ef til vill um að ræða samsæri Bandaríkjanna og Saudi-Arabíu sem tengdist vopnasöl- unni til írans? Olía og vopn eiga oft leið saman. Ef það var eitthvert OPEC-land- anna, sem verðfall á olíu kom sér illa fyrir, þá var það Iran. Það þurfti á hverjum einasta olíudollara að halda vegna stríðsins við Irak. Irak- ar hafa aftur á móti getað reiknað með fjárhagsaðstoð arabískra bræðraþjóða sinna, þar á meðal Saudi-Árabíu. Olíutekjur Irans minnkuðu úr 16 milljörðum dollara frá 1985 niður í 6 milljarða 1986. Einkennileg tilviljun Það er einkenniíeg tilviljun að sumarið 1985 gefur orkumálaráð- herra Bandaríkjanna, John Herr- ington, til kynna að Bandaríkja- menn sætti sig við verðfall á olíu. Samtímis létu fjögur bandarísk olíu- fyrirtæki, Exxon, Mobil, Texaco og Chevron, sem eru stærstu olíuvið- skiptavinir Saudi-Arabíu, í ljósi áhuga á aukinni oliuframleiðslu Saudi-Araba. I kjölfar þess tilkynnti Yamani þann 13. september 1985 að Saudi-Arabía hygðist auka olíuíram- leiðsluna. Með öðrum orðum: Á meðan menn Reagans, Robert Mcfarlane og Oli- ver North, fóru hvað eftir annað til leynilegra viðræðna við Rafsanjani, formann þingsins í Teheran, minnk- uðu olíutekjur írans svo snarlega að þar lá við kreppu. I Teheran vissu menn að það var Saudi-Arabía sem olli verðfallinu með aukinni fram- leiðslu sinni og á fundum OPEC- landanna réðist olíumálaráðherra írans oft á Yamani. Verðhækkun Sumarið 1986 gaf Fahd konungur allt í einu merki um að olíuverðið skyldi hækkað upp í 18 dollara á tunnuna. Um það leyti fór það allt í einu að verða ljóst að skilningur ríkti nú á milli Saudi-Arabíu og ír- ans. Það sem við ekki vissum þá var að Saudi-Arabía átti þátt í að útvega írönum bandarísk vopn fyrir milh- göngu vopnasalans Adnan Kas- hoggi. Saudi-Arabía tryggði sér þannig beint samband við Teheran án þess að stjórnvöldum í Irak væri kunnugt um það. Það var ekki liður í hemaðarað- gerð Yamanis að hækka olíuverðið svo fljótt aftur. En Fahd konungur fór með sigur af hólmi og í október var Yamani fjarlægður með penna- striki. Vegna herkænsku Yamanis gátu Bandaríkin og Saudi-Arabía nú beitt íran efnahagslegum þrýstingi. I þann mund sem Rafsanjani lét fréttina um vopnasöluna berast til Vesturlanda var Yamani sparkað. Getum hefur verið leitt að því í bandarískum blöðum að Fahd kon- ungur hafi ekki viljað eiga það á hættu að Yamani segði frá hinu sameiginlega verðstríði Saudi-Arab- íu og Bandaríkjanna gegn Iran. Fahd konungur gat jafnframt ekki lengur sætt sig við hið lága verð. Yamani er farinn. Allir gátu andað léttar. Fyrir utan liðið í Hvíta húsinu sem írajiir léku grátt í lokin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.