Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987.
11
UÚönd
ræðustól í þinginu í Róm í gær, þar
sem hann tilkynnti afsögn sína.
Norðmenn í
fjallgöngu
í Tíbet
Hópur norskra og breskra fjalla-
garpa, undir forystu hins 52 ára gamla
Chris Bonington, ætlar að freista þess
að sigrast á tindi Menlungtse sem er
7.150 metra hátt fjall í Himalayafjall-
garðinum og tilheyrir Tíbet.
Menlungtse hefur ekki verið klifið
áður og raunar fer sú saga af þessu
fjalli að þar séu aðalheimkynni „snjó-
mannsins" sem Tíbetar kalla „Yeti“.
Þetta fjall er sagt meðal þeirra erfið-
ustu til fjallgöngu þótt það sé ekki
meðal þeirra hæstu. Það eru fjórir úr
hópnum sem ætla að freista þess að
komast upp á tindinn.
Fimmburar í
Las Vegas
Fimmburar fæddust í Las Vegas í
gær. Allt meybörn og fæddust þau ell-
efu vikum fyrir tímann. Móðurinni og
flórum hvítvoðunganna heilsaðist vel,
en fimmta bamið þarf að gangast und-
ir læknisaðgerð vegna fæðingargalla.
Fimmburarnir vógu 680 grömm sá
léttasti og 1130 grömm sá þyngsti.
Móðirin, þrítug húsmóðir, gift bíla-
sala, hafði ekki tekið inn nein frjósem-
islyf, en líkurnar á fimmburum án slíks
eru ekki nema ein af hverjum 70 millj-
ón barnsfæðingum.
Michael Werikhe og nashyrnings-
kálfurinn, Sam, á göngunni.
Björgum nas-
hymingnum
Kenýamaðurinn Michael Werikhe
er í krossferð til þess að safna fé svo
að bjarga megi nashymingum frá því
að deyja út. Hann ætlar að ganga
Norður-Afríku frá Nairobi og um ítal-
íu, Sviss, Vestur-Þýskaland, Holland
og til London.
Fyrsta áfangann hafði Werikhe fé-
lagsskap Sams á göngunni en það er
sjö mánaða gamall munaðarlaus nas-
hymingskálfúr sem alinn er upp í
þjóðgarði Daphne Sheldrick í Nairobi.
Craxi sagði af sér
Bettino Craxi, forsætisráðherra ít-
alíu, sagði af sér í gær og framkallaði
með því stjómarkreppu, sem hugsan-
lega gætti leitt til þingkosninga, áður
en yfirstandandi kjörtímabil rennur
út.
Craxi, sem er sósíalisti, lagði afsögn
sína og ríkisstjómar sinnar fyrir Cos-
siga forseta í gær og lét þau orð falla
í þinginu, þar sem hann kunngerði
ákvörðun sína, að „andrúmsloftið í
stjómmálum landsins væri orðið kæf-
andi og eitrað". -- Ríkisstjóm hans
hafði verið samsteypustjóm fimm
flokka.
Cossiga, forseti Italíu, mun kalla for-
menn flokkanna á sinn fund á morgun
til skrafs og ráðagerða um hverjum
skuli fela myndun nýrrar ríkisstjómar
sem yrði þá sú 46. síðan í stríðslok.
Almennt er talið að Giulio Andre-
otti, utanríkisráðherra og leiðtoga
kristilegra demókrata, verði falin
stjómarmyndun. Andreotti hefur fimm
sinnum verið forsætisráðherra, síðast
1979, en sú ríkisstjóm stóð aðeins 11
daga og fall hennar leiddi til fjögurra
mánaða stjómarkreppu.
Afsögn Craxis er komin til vegna
ágreinings milli sósfalista og kristi-
legra demókrata sem em stærsti
fiokkurinn í stjómarsamsteypunni og
gera kröfu til þess að hafa forsætis-
ráðuneytið. Enn er eftir um eitt ár af
yfirstandandi kjörtímabili.
STÆRSTA TIMARIT LANDSINS
í hvert hús kjördæmisins næstu daga
Grindavík, Garð, Sandgerði, Keflavík, Njarðvík, Voga, Hafnir, Hafnarfjörð, Garðabæ,
Kópavog, Seltjarnarnes, Mosfellssveit, Kjalarnes, Kjós
Viðtöl - Mannlíf - Stefna - Heimsóknir
t 3-
£ 2.
3 3
Si
Q. 0»
S
tO **
3' <T>
3 1
v? 0«
31 yc
sr «
-.*<
S"2-
c- &J
X TJ
VZ
1 5
Ql- 3
£. 3
3 O*