Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Síða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987.
F.h. Innkaupanefndar sjúkrahúsa óskum vér eftir til-
boðum í skurðstofuhanska. Magn: ca 680.000 pör.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri fyrir kr. 300,-
settið. Tilboð verða opnuó á skrifstofu vorri þriðjudag-
inn 24. mars nk. kl. 11.00 f.h. í viðurvist viðstaddra
bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGAWTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Lausar stöður sérfræðinga
við Raunvísindastofnun
Háskólans
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rannsóknastöður
vió Raunvísindastofnun Háskólans sem veittar eru til
1-3 ára.
a) Tvær stöður sérfræðinga við Reiknifræðistofu.
Starfssvið Reiknifræðistofu er einkum í aðgerða-
greiningu, tölfræði, tölulegri greiningu og tölvun-
arfræói.
b) Ein staða sérfræðings við Stærðfræðistofu en á
Stærðfræðistofu fara fram rannsóknir í stærófræði
og stærðfræðilegri eðlisfræði. Fastráðning kemur
til greina í þessa stöðu.
Stöðurnar verða veittar frá 1. september nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Um-
sækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða tilsvar-
andi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við
rannsóknir.
Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa en
kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomu-
lagi milli deildarráðs raunvísindadeildar og stjórnar
Raunvísindastofnunar Háskólans og skal þá m.a.
ákveðið hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu
viðkomandi starfsmanns.
Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum
um menntun og vísindaleg störf og rannsóknaáætlun,
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 31. mars nk.
Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dóm-
bærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um
menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar
skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má
senda þær beint til menntamálaráðuneytisins.
2. mars 1987,
Menntamálaráðuneytið.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Skildinganesi 62, þingl. eigandi Leifur Ingólfsson, fer fram á
eigninni sjálfri föstudaginn 6. mars '87 kl. 11.15. Uppboðsbeiöendur eru
Gjaldheimtan í Reykjavík og Iðnaöarbanki Islands hf.
Borgarfógetaembaettið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Flyðruðgranda 10, 1. hæð C-1, þingl. eigandi Örn Steinar
Sverrisson o.fl., fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 6. mars '87 kl. 10.45.
Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Baldur Guðlaugsson hrl.,
Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Tryggingastofnun ríkisins.
___________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hraunbæ 182, hluta, þingl. eigandi Þórarinn G. Valgeirsson,
fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 6. mars '87 kl. 15.30. Uppboðsbeiðend-
ur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Ólafur Gústafsson hrl.
___________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Reykási 37, íbúð 03-01, þingl. eigandi Bjarni Halldórsson, fer
fram á eigninni sjálfri föstudaginn 6. mars '87 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur
eru Búnaðarbanki Islands og Gjaldheimtan í Reykjavík.
___________________Borgarfógetaembættið I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hringbraut 119, hluta, tal. eign Ásdísar Magnúsdóttur, fer fram
á eigninni sjálfri föstudaginn 6. mars '87 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru
Gjaldheimtan í Reykjavík, Steingrímur Þormóðsson hdl. og Landsbanki is-
lands.
____________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Alvarlega
gallað
frumvarp
Það frumvarp til umferðarlaga,
sem nú á að kýla í gegnum alþingi,
er að margra áliti svo alvarlega gall-
að að það yrði alvarlegt slys og öllum
til háðungar ef að lögum yrði. Því
miður er frumvarpið byggt á sömu
gömlu reglunum og gömlu lögin.
Nú eru til margar tegundir gatna
og vega, hringtorg, umferðarmerki
og margs konar merkingar. Á afar
margt af þessu er ekki minnst í hinu
nýja frumvarpi. Eða að öllu slíku er
vísað til dómsmálaráðherra að setja
nánari reglur þar um.
Ég á ekki nógu sterk orð til að
lýsa vanþóknun á svona vinnu-
brögðum. Það á að skilja fólkið eftir
í umferðinni án þess það geti flett
upp í bók þar sem það getur fræðst
um hvemig umferðin á að vera.
Frumvarp til umferðarlaga
Mig langar til, í fáum orðum, að
lýsa undmn minni og vonbrigðum
yfir hinu nýja frumvarpi til umferð-
arlaga. Frumvarp til umferðarlaga.
efri deild, mál 314:
„Skilgreiningar, 2. gr.
Akbraut, sá hluti vegar sem ætlað-
ur er ökutækjum.
Akrein, hver og ein af samhliða
reinum sem skipta má akbraut í að
endilöngu og hver um sig er nægi-
lega breið fyrir eina röð fjórhjóla
ökutækja."
Skilgreining, inngangur eða skýr-
ingar á götum og vegum ætti að
vera augljósari, t.d.: „Akbraut, sá
hluti vegar sem ætlaður er ökutækj-
um.“
„Einstefnugata, gata fyrir eina röð
ökutækja.“
Einstefnubraut þegar breiðri ak-
braut er skipt að endilöngu með
umferðareyju eða tvöfaldri hindr-
unarlínu. Akrein, þegar einstefnu-
braut er skipt í samhliða reinar hlið
við hlið að endilöngu. Aðrennslis-
grein, tengibraut milli tveggja
aðalbrauta. Mitt tillag: Hraðajöfn-
unarbraut. Tvístefnugata, gata sem
ekið er eftir í gagnstæðar áttir. Veg-
ur, gata, stígur, brú, torg með bif-
reiðastæðum, notaðar til almennrar
umferðar. Vegamót, þar sem vegir
mætast, skerast eða greinast. Gang-
stétt, sá hluti vegar til hliðar við
akbraut eða bifreiðastæði sem ætl-
aður er gangandi vegfarendum.
Gangbraut, merkt braut þvert yfir
götu eða veg, ætluð gangandi vegfa-
rendum.
Frumvarpið ringulreið
Þetta litla brot, sem ég hef hér
sett saman, á að.sýna að það væri
aðgengilegra, auðveldara til ávinn-
ings, að skýr ákvæði væru og í
samhengi. Allt hið nýja frumvarj) er
ein ringulreið sem engin bót er að,
betra hefði verið að bæta nauðsyn-
legum nýjum köflum inn í gömlu
lögin. Ég sé ekki hagnað í því að
breyta umferðarlögunum eins og
ætlast er til með frumvarpinu, þ.e.
að færa eihi einstakra greina milli
málsgreina.
Skilgreining á öllum merkjum og
merkingum á einnig tafarlaust að
vera í umferðarlögunum, þ.e. í þeim
kafla sem nefhdur er skilgreiningar.
Þar á að lýsa hverju einasta merki
og hvemig á að nota þau.
Ég hef þá trú að umferðarlög og
lög um gatna- og vegahönnun, einn-
ig merkingar og merki alls konar
við og á götum og yfir gatnamótum,
KjaUarinn
Vilhjálmur
Sigurjónsson
ökukennari
eigi að styðjast við þær reglur sem
bestar em í öðrum löndum, svo-
nefhdar alþjóðareglur. Umferðarlög-
in eiga að vera á því máli og svo
einföld að almenningur jafnt sem
ráðamenn skilji þau og túlki á einn
og sama hátt. Þau eiga ekki að vera
á stofhanamáli en nákvæmar út-
skýringar á hverri grein svo ekki
fari milli mála hvað átt er við. Um-
ferðarlögum ber að hlýða, öllum
þáttum þeirra, þess vegna ber yfir-
völdum jafnt sem öðrum borgurum
að leggja sama skilning í þau og
virða þau. Það vantar bæði í eldri
lögin og hið nýja frumvarp heila
kafla.
Gat í umferðarlögunum
I eldri lögunum og frumvarpinu
er svo lítið sagt að almenningur er
engu nær um hvemig umferðin á að
ganga. Ég tel að gleymst hafi, þegar
farið var að leggja breiðar götur með
umferðareyjum, þ.e. graseyjum eða
tvöföldum gulum hindrunarlinum
milli akbrauta, að nefna þær til ,að-
greiningar frá einstefnugötum og
tvístefnugötum sem lögin em byggð
á og ættu þær götur að nefhast ein-
stefnubrautir. Þama er gat í um-
ferðarlögunum og einnig í
frumvarpinu vegna þess að settar
vom sérreglur um vinstri beygjur á
umferðarljósum og einnig vegna
þess að hindmnarlína var lögð niður
þegar komið var yfir gatnamótin en
stefhuljósin vom látin lönd og leið.
Það gleymdist að nota þau og eng-
inn minntist á að virða þau og ættu
því þessar tvískiptu götur að heita
einstefnubrautir.
Dæmi: Kringlumýrarbraut er ein-
stefiiubrautargata vegna eyjanna á
milli einstefnubrautanna og tvær
akreinar í hvora átt, kannski þrjár
við gatnamót.
Ákveðnara ákvæði vantar um
vinstri beygjur úr einstefnubraut,
allflestir vita að nauðsynlegt er að
vera kominn á vinstri akrein áður
en komið er að hindmnarlínu við
gatnamót. Sé ekið til vinstri, inn á
tvístefnugötu, vandast málið, í stað
þess að beygja á vinstri akrein með-
fram umferðareyju til vinstri aka
mun fleiri að umferðareyjuenda til
hægri og taka götuna af þeim sem
koma úr tvístefnugötunni og ætla
að beygja til vinstri. Þama ættu
tveir og tveir ökumenn að geta
mæst hindmnarlaust eins og á um-
ferðarljósum. Umferðarlög verða
ekki sæmileg fyrr en gatnaskipulag
verður tengt þeim, t.d. breidd gatna
og vega. Ef frumvarpið verður að
lögum er í raun meiripartinum af
því sem þar ætti að vera vísað til
dómsmálaráðuneytis. Þ.e. að allir
séu í óvissu eftir sem áður.
Almennar hraðatakmarkanir. 137.
gr. í frumvarpinu en 49. og 50. gr. í
umferðarlögunum er almennur há-
markshraði ákveðinn sá sami: í
þéttbýli 50 km, úti á vegum 70 km á
klst. Að mínu mati er þarna um
þekkingarleysi eða hina gömlu
þröngsýni höfunda að ræða. Það
þýðir ekki að berjast á móti eðlilegri
þróun þessara mála enda skýrir 49.
gr. umferðarlaganna svo ljóslega
sem mest má vera hver hraði má
vera hverju sinni. En þar segir:
„Hraðinn má aldrei vera meiri en
svo að ökumaður geti haft fullkomna
stjórn á ökutæki og stöðvað það á
þriðjungi þeirrar vegalengdar sem
auð er og hindrunarlaus framundan
og ökumaður hefur útsýn yfir. Sér-
stök skylda hvílir á ökumanni að
aka hægt og sýna ýtrustu varfærni
í þéttbýli o.s.frv."
Úrelt fyrirbæri
Nú er hönnun ökutækja margfalt
fullkomnari en áður og fleygir alltaf
fram ár frá ári enda er hraðinn orð-
inn meiri en leyfilegur hámarkshraði
samkvæmt umferðarlögunum. Ég tel
að einskorðun við 50 km hraða í
þéttbýli og 70 km hraða í dreifbýli
sé úrelt fyrirbæri því að sá ökumað-
ur, sem ekur á leyfilegum hraða í
dag, er dragbítur í umferðinni. Þess
vegna tel ég að hækka ætti hraða-
mörkin t.d. þannig: 50-65 km hraði
í þéttbýli og 70-90 km hraði í dreif-
býli eða jafnvel 50-70 km í þéttbýli
og 70-100 km í dreifbýli. Þá myndu
lögin nálgast raunveruleikann, þ.e.
þann hraða sem almennur er í dag.
Á meðan svo marga kafla vantar
í umferðarlögin og fleiri en ég hef
nefnt og á meðan misvitrir ráða-
menn misnota alþjóðamerkin að vild
eða nota þau alls ekki þar sem þeirra
er þörf; á meðan notkun þeirra er
ekki bundin á réttan hátt og þann
eina rétta í umferðarlögunum verða
umferðarlög ekki annað en mark-
laust plagg.
Vilhjálmur Sigurjónsson
„Umferðarlögunum ber að hlýða, öllum
þáttum þeirra, þess vegna ber yfirvöldum
jafnt sem öðrum borgurum að leggja
sama skilning í þau og virða þau.“