Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 6. MARS 1987. Fréttir Baráttusamtök gegn kynferðisglæpt m í Hlaðvarpanum: „Dásamlegt að vera komin úr felum“ - segir Díana Sigurðardóttir „Það er dásamlegt að vera komin úr felum. Mig óraði ekki fyrir að þetta gengi svona vel,“ sagði Díana Sigurðardóttir, forystumaður um stofnun baráttusamtaka gegn kyn- ferðisglæpum, í samtali við DV í gærkvöldi. Þá var nýlokið stoíhfundi samtakanna sem eiga upphaf sitt og rót í viðtali við Díönu er birtist í DV fyrir skömmu undir fyrirsögn- inni „Tugir foreldra í felum með grátandi böm“. Þar lýsti Díana átakanlegri lífsreynslu sinni og son- ar síns er varð fómarlamb kynferðis- glæpamanns í nýbyggingu við Fríkirkjuveg í Reykjavík fyrir tveimur árum. Ódæðismaðurinn hef- ur aldrei náðst og í viðtalinu við DV ákallaði Díana aðra foreldra með svipaða reynslu að veita sér lið- sinni í baráttunni gegn illvirkjanum og hans líkum. Hátt í hundrað manns mættu á stofnfund samtakanna og tóku fjöl- margir til máls. Vom lýsingar margra ræðumanna dapurlegri en svo að tárum tæki. Á fundinn mætti einnig Aðalsteinn Sigfússon, sál- fræðingur hjá bamarvemdamefiid Félagsmálastofnunar og í máli hans kom fram að bamavemdamefhd gæti ekki annað meiru en einu kyn- ferðisafbrotamáli á mánuði miðað við núverandi starfslið en þörfin væri miklu meiri: „Við höfúm reynslu af bömum allt niður í þriggja ára aldur sem hafa orðið fyr- ir kynferðislegu ofbeldi á heimilum sínum,“ sagði Aðalsteinn. Nánar verður fjallað um fundinn og umræður er þar urðu í helgar- blaði DV á morgun. -EIR Díana Sigurðardóttir: Loks stuðningur eftir tveggja ára martröð. Schluter lofar að leysa nafnamálið Haukur L. Haukssori, DV, Kaupmannahöfri: Eftir fund með Poul Schlúter, for- sætisráðherra Dana, og hádegisverð hjá Margréti drottningu hélt Stein- grímur Hermannsson blaðamanna- fund í Kristjánsborgarhöll sem er þinghús Dana. Sýndi erlent fjölmiðlafólk fundi Steingríms með Gorbatsjov mestan áhuga. Fullvissaði Steingrímur er- lenda blaðamenn um að alvara stæði á bak við umbætur Gorbatsjovs og á hann að hafa sagt við Steingrím að brátt yrði meira frjálsræði í Sovétríkj- unum en í Bandaríkjunum. Frá viðræðum við Poul Schlúter hafði Steingrímur það að segja að engin vandamál væru milli Dana og íslendinga nema nafnamálið svo- nefnda sem Schlúter sagðist mundu reyna að leysa sem skjótast. Nafna- málið hefur verið leyst í Svíþjóð og Noregi. Það gengur út á að íslending- ar búsettir í Danmörku hafa ekki getað viðhaldið íslenskum nafiiavenj- um. Hafa því ófáar stúlkur orðið synir föðurafa sinna í danska nafnakerfinu. Steingrímur og Schlúter ræddu mik- ið þróunina í Efiiahagsbandalaginu og aðildina að Nato, ekki síst í ljósi þróunarinnar í Sovétríkjunum. Fiskframleiðslumál, tollar, iðnþróun og samstarf íslendinga, Grænlendinga og Færeyinga voru meðal annarra mála sem Steingrímur og Schlúter ræddu. Loks spurði blaðamaður einn hvort íslendingar væru ekki uggandi vegna hins mikla fjölda sovéskra sendiráðs- starfsmanna í Reykjavík meðam íslendingar hefðu aðeins þrjá í Moskvu og hvort ekki gætu átt sér stað njósnir. Sagði Steingrímur að ekki væri hægt að vita neitt um það. ísland væri fijálst land og því ekki hægt að hindra fjölda sendiráðsstarfs- manna þar sem engin lög væru til þar að lútandi. Steingrimur Hermannsson tekur við mótmælaskjali úr höndum Gunnars Guðmundssonar, formanns SÍNE i Kaup- mannahöfn, á Ráðhústorginu i gær en þar mótmæltu námsmenn hugmyndum um skerðingu námslána. DV-símamynd Haukur Lárus Hauksson „Látið ykkur ekki veiða katt“ - sagði Steingnmur við námsmennina á Ráðhústorginu Haúkur L. Haukssan, DV, Kaupmannahcfn: Um fimmtíu íslenskir námsmenn í Kaupmannahöfn söfhuðust saman í sex stiga frosti á Ráðhústorginu þar í borg um hádegisbilið í gær. Vildu námsmenn vekja athygli á kjörum sín- um þegar Steingrímur Hermannsson kæmi þangað til hádegisverðar í boði borgarstjómar Kaupmannahafnar. Voru íslenskir fánar á lofti ásamt kröfúspjöldum. Þegar forsætisráðherra kom á stað- inn gekk hann rakleitt til námsmanna og smellti nokkrum myndum af. Eftir stutt en þægileg orðaskipti var honum afhent mótmælaskjal þar sem segir: „Námsmenn í Kaupmannahöfh mót- mæla fyrir hönd íslenskra námsmanna erlendis þeirri skerðingu námslána sem þeir ásamt öðrum íslenskum námsmönnum hafa orðið að þola á valdatíma núverandi ríkisstjómar. Við krefjumst þess af yður að þér í krafti embættis yðar afléttið tafarlaust skerðingu þessari og að námsmenn fái þau lán sem þeim ber samkvæmt lög- um um námslán og námsstyrki." „Látið ykkur nú ekki verða kalt. Við skulum ræða þetta í Jónshúsi í kvöld,“ sagði Steingrímur og hvarf inn í ráðhúsið ásamt fylgdarliði. Lögregla á staðnum hafði á orði að þetta hefðu verið afar prúðir mótmæl- endur og athyglisvert hefði verið að sjá svo háttsettan mann gefa sig hik- laust á tal við mótmælendur. Fjölmennur fúndur var síðan hald- inn í Jónshúsi í gærkvöldi. Sagði Steingrímur þetta ekki vera kosninga- fund. Hann væri kominn til að heyra frá námsmönnum og öðrum hérbú- andi. Eftir stutta framsögu forsætis- ráðherra urðu margar fyrirspumir og nokkrar umræður um lánamál og síð- an húsnæðis- og skattamál. Var þá ekki alveg laust við kosningaþef þó engin loforð hafi verið gefin. Fulltrúi íslendingafélagsins afhenti Steingrími kröfuskjal þar sem bent var á það óréttlæti og að áliti félagsins brot á mannréttindum að mörg þúsund íslendingar búsettir erlendis, sérstak- lega á Norðurlöndum, sem ekki væru í námi, gætu hvergi kosið til þings. Sagði forsætisráðherra að ræða yrði það mál en ekki væri hægt að koma þvi í gegnum þing fyrir kosningar. Eftir fundinn leit forsætisráðherra inn í safn Jóns Sigurðssonar sem er í Jónshúsi. Koma forsætisráðherra- hjónin heim í dag ásamt fylgdarliði sínu. í Heimsmynd: Jón Baldvin er ekki manneskja „Jón Baldvin er finn pólitíkus en við og gefúr stjómmálaforingjum skortir mannkærleik og dómgreind. einkunnir: Til að skynja að Jón Baldvin er ekki Jón Sigurðsson er rökfastur maður manneskja verður fólk að komast í sem verður stressaður í samkvæm- návígi við hann," segir Valgerður um ef einhver talar meira en hann Bjamadóttir meðal annars í viðtali sjálfiir. Þorsteinn Pálsson er eins og við tímaritið Heimsmynd er út kem- skilgetið afkvæmi Rotaiy- og Lyons- ur í dag. Valgerður er nú búsett í hreyfinganna og um hugsanlegt Brussel ásamt manni sínum Kristó- framboð sitt fyrir Sjálfstæðisflokk- fer Má Kristinssyni, fyrrum vara- inn á sínum tíma segir Valgerður þingmanni Bandalags jafiiaðar- að Matthías Johannessen, ritstjóri manna. Morgunblaðsins, hafi hvatt sig en 1 viðtalinu kemur Valgerður víða Styrmir Gunnarsson latt. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.