Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 6. MARS 1987. Erlendar Er fundið flokks- skírteini Ivans grimma? Ákæmvaldið í ísrael hefur í við- leitni til þess að sýna fram á að John Demanjuk sé fangavörðurinn ill- ræmdi úr útrýmingarbúðunum í Treblinka, „Ivan grimmi", lagt fram persónuskilríki flokksbundins nas- ista en þessi skilríki eru talin skír- teini Ivans grimma. Gögn þessi fengu ísraelsmenn hjá Sovétmönnum fyrir milligöngu bandaríska olíukóngsins Armand Hammer. Sovéskt herlið réðst inn í Pólland og frelsaði það undan hernámi nas- ista í síðari heimsstyrjöldinni og sovéskir herflokkar komu íyrstir að Treblinka-búðunum í stríðslok. Réttarhöldin hafa nú staðið yfir í þrjár vikur í Jerúsalem og hafa ver- ið leiddir fram til vitnis nokkrir gyðingar sem lifðu af vist í Tre- blinka-fangabúðunum.. Persónuskilríkin, sem bera mynd af skírteinishafa, eru sögð vera skil- ríki varðarins, Ivans grimma, frá þeim tíma er hann var í þjálfun í Trawniki-búðunum í Póllandi en Demanjuk segir plöggin fölsuð. Rétt- arhaldið hefur að mestu gengið út á að reyna að sýna fram á að Dem- anjuk sé ívan grimmi en hann þrætir staðfastlega fyrir það. Uinsjón Guðmundur Pétursson og Ingibjörg Bára Mark O’Connor, verjandi John Demanjuk, sýnir skjólstæðingi sínum Ijósriti af plaggi sem sagt er að sé flokksskirteini Demanjuks í nasistaflokknum. ísraelsmenn, sem hafa dregið Demanjuk fyrir stríðsglæparétt, fengu skjalið hjá Sovétmönnum. Hinn ákærði heldur því fram að skjalið sé falsað. Símamynd Reuter Hélt að heim- urinn yrði betri án sín Fyrrum öryggisráðgjafi Reagans Bandaríkjaforseta, Robert Mcfarlane, sagði í gærkvöldi að hann hefði reynt að fyrirfara sér eftir að vopnasölu- hneykslið varð opinbert þar sem honum þótti sem hann hefði brugðist föðurlandinu. „Ég hélt að heimurinn yrði betri án mín,“ sagði Mcfarlane í sjónvarpsviðtali. Mcfarlane var mjög viðriðinn vopnasöluna þegar hún hófst 1985, eft- ir því sem komið hefúr fram við yfirheyrslur. Hann sagði af sér í des- ember það sama ár og hefur neitað að sér hafi verið fyrirfram kunnugt um að hagnaður af vopnasölunni hefði verið sendur contraskæruliðum í Nic- aragua. Mcfarlane sagði að sér fyndist sem hann ætti sök á vopnasölunni þó svo að hann væri aðeins einn af mörgum sem viðriðnir væru málið. Greindi Mcfarlane frá því að þeir er heimsóttu hann á sjúkrahúsið, þar á meðal Nixon fyrrum forseti, hefðu sannfært hann um að þeim hefði liðið svipað við erfið- ar aðstæður og lagt áherslu á að hann stæði ekki einn. Mcfarlane fór ekki nánar út í viðræður sínar við Nixon sem sagði af sér vegna Watergate- hneykslisins á sínum tíma en bætti við að Nixon væri ekki eins tilfinninga- laus og margir héldu sem séð hefðu hann bara á skjánum. Robert McFarlane og eiginkona hans, Jenny, leika sér við hund þeirra eft- Ir heimkomu McFarlanes af sjúkrahúsi eftir sjálfsvígstilraunina. Simamynd Reuter Það er ekki bara í Miðjarðarhafslöndunum sem hægt er að vaða snjóinn þessa dagana. Þessi mynd er tekin rétt fyrir utan Mexíkóborg þar sem fjölskyldur tóku sér fri til þess að geta notið vetrarríkisins. Simamynd Reuter Fannfergi við Miðjarðarhafið Gengið heim á leið í byl frá bæna- stund úr bláu moskunni i Istanbúl i gær. Simamynd Reuter Fannfergi hefur valdið samgöngu- örðugleikum í Grikklandi og eru nú rúmlega hundrað þorp í norðurhluta landsins einangruð. Innanlandsflug hefur að mestu leyti legið niðri. Lestir stöðvuðust í nokkrar klukkustundir vegna hríðarkófsins. í gær snjóaði í Aþenu og er það í fyrsta skipti í þrjú ár sem snjór fellur þar. Einnig féll snjór á mörgum grísku eyjanna. Skógarvörður fraus í hel í gær í þorpi einu í Norður-Grikklandi og óstaðfestar fregnir herma að fjórir aðrir hafi látist vegna kulda. I Tyrklandi hefur ekki snjóað jafn- mikið í áraraðir og síðustu daga og þar hefur samgöngukerfið lamast að meira eða minna leyti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.