Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Síða 5
FÖSTUDAGUR 6. MARS 1987. 5 Stjómmál „Langt síðan ríkisstjórn hefur skilað svo vel af sér‘ ‘ sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, við setningu landsfundar flokksins „Loforðalisti ríkisstjómarinnar var ekki langur. En hann tók til því viðameiri verkefha. Og það er fagn- aðar- og ánægjuefhi nú, við lok kjörtímabilsins, að við getum með rökum sýnt fram á að í öllum megin atriðum hafa þau markmið náðst sem samið var um að stefha að í byrjun kjörtímabilsins. Það er æði langt síðan ríkisstjóm hefur skilað slíkri niðurstöðu," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks ins, í setningarræðu á landsfundi flokksins. Hann minnti á að verðbólgan var orðin 130% með yfirvofandi stöðvun höfuðatvinnuvega þjóðarinnar, enn- fremur gífurlegan viðskiptahalla og stöðuga aukningu erlendra skulda. „Nú, þegar komið er að lokum kjör- tímabilsins, liggur fyrir sá árangur að verðbólgan er komin niður í um það bil 10 af hundraði. Með nokkrum sanni má segja að þessi árangur sé forsenda þess að þjóðin geti haldið áfram á framfarabraut," sagði Þor- steinn. „Þó að ekkert annað hefði gerst undanfarin fjögur ár væri þetta eitt út af fyrir sig nægjanlegt til þess að við gætum gengið til kosninga með málefnalega sterka vígstöðu. Við heyrum andstæðinga okkar segja: Þetta var nú auðvelt, það er góðæri i landinu og þegar sakir em með þeim hætti gerist það af sjálfu sér að verðbólga lækkar. Við þetta er tvennt að athuga: í fyrsta lagi náðist árangurinn í baráttu við verðbólguna strax i upp- hafi kjörtímabilsins, þegar þjóðin gekk i gegn um einhverja dýpstu efhahagslægð í þrjá áratugi. Við sýndum fram á það í kreppu að það var unnt að ná tökum á þessari al- varlegu meinsemd. Hitt er svo bæði satt og rétt að góðæri síðustu tveggja ára hefur auðveldað okkur að festa þennan árangur í sessi og ná öðrum mikilvægum efhahagslegum áform- Þorsteinn Pálsson þakkar landsfundarfulltrúum góðar undirtektir eftir setningarræðuna. DV-mynd: GVA I öðm lagi er rétt að hafa í huga að upp úr góðæriskaflanum í kring um 1980 spratt mesta óðaverðbólga sögunnar, mesta erlenda skuldasöfn- un sögunnar og mesti viðskiptahalli sem við höfum glímt við. Stjómar- stefria þeirra ára var þannig að þjóðin missti af góðærinu. Bæði Al- þýðubandalag og Alþýðuflokkur komu þá við sögu. Einmitt þessar staðreyndir sýna glöggt að það skiptir máli hvemig á er haldið, hvaða grundvallarstefnu er fylgt við stjóm efnahagsmála," sagði formað- ur Sjálfstæðisflokksins. -HERB filboð stjómarandstöðunnar: „Flugeldasýningar“ „Það em ekki einungis málefni heldur einnig styrkleikahlutföll á Al- þingi sem ráða því hvaða kostir em fyrir hendi um stjómarmvndun," sagði Þorsteinn Pálsson í landsfundarræðu sinni. „Tilboð stjómarandstöðuflok- kanna um hina ólíklegustu kosti um stjómarmyndun em því að meira eða minna leyti marklausar flugeldasýn- ingar til þess eins settar á svið að freista þess að villa um fyrir kjósend- um.“ Formaðurinn sagði lítið að marka bónorð Alþýðuflokksins, í ljósi sög- unnar, og færi svo að hann ynni fylgi af Sjálfstæðisflokknum væri það með vissum hætti ávísun á nýja vinstri stjóm. Þorsteinn sagði lengi hafa ve- rið mest málefnalegt djúp milli sjálf- stæðismanna og sósíalista í Alþýðubandalaginu. Það væri hins vegar orðið svo utangátta að það verð- skuldaði ekki lengur að vera höfuð- andstæðingur Sjálfstæðisflokksins. „Þannig hefur sú breyting orðið á að Alþýðuflokkurinn er í raun og vem orðinn höfuðkeppinautur Sjálfstæðis- flokksins. Ef til vill má segja að þessi áherslubreyting beri vott um meiri þjóðfélagslega samstöðu en áður. Ahrif öfgaaflanna hafa augljóslega dvínað,“ sagði Þorsteinn Pálsson. -HERB Ljósvakafrelsið: Dregið á Bylgjunni „Við höfum náð árangri víðar en á efnahagssviðinu," sagði Þorsteinn Pálsson í ræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær. „Þannig tókst til dæmis fyrir tæpum tveimur árum að koma fram á Alþingi nýjum útvarpslögum. Þau heimiluðu hinar frjálsu út- varps- og sjónvarpsstöðvar sem hafa þegar skapað sér stóran sess í dag- legu lífi fólks þar sem efni þeirra næst en stöðvamar teygja nú dreifi- kerfi sín hröðum skrefum um landið. Við skulum ekki gleyma því hvemig afturhaldsöfl í öllum hinum stjómmálaflokkunum beittu sér gegn þessu máli. Meira að segja greiddu einn ráðherra úr samstarfs- flokknum og formaður þingflokks hans atkvæði gegn málinu en sjálfur forsætisráðherra sat hjá. Alþýðubandalagið var allt á móti málinu, eins og vænta mátti, en það vakti meiri furðu að enginn þing- maður Alþýðuflokksins treysti sér til að fylgja því. Sjálfstæðisflokkur- inn einn með stuðningi örfárra framsóknarmanna og þingmanna Bandalags jafnaðarmanna kom mál- inu í gegn. Það er svo kaldhæðni örlaganna að frambjóðendur Alþýðubanda- lagsins í Reykjaneskjördæmi skuli nú dreifa ókeypis happdrættismiðum í öll hús í kjördæminu og að dregið skuli í happdrættinu í beinni útsend- ingu á Bylgjunni. Fljótt skipast veður í lofti Alþýðubandalagsins," sagði Þorsteinn. -HERB AUSTAST VESTAST v/STÓRHÖFÐA v/HRINGBRAUT Kynning á STELRAD-miðstöðvarofnum sem eru fulllakkaðir og fallegir. Kynning á SADOLIN málningarvörum, m.a. nýju SADOSOFT málningunni m/herði, einnig kynning á viðurkenndu SADOFOS lím- og þéttiefnunum. Kynningarafsláttur. Sérfræðingar á staðnum VIRKA DAGA, KL. 10-16 LAUGARDAGA. x ./ 2 góðar byggingarvöru verslan ir, austast og vestast í borginni. Stórhöfða, sími 671100 Hringbraut, simi 28600.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.