Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 6. MARS 1987. Neytendur DV Verð í austurhluta Reykjavíkur Að þessu sinni er tekið f'yrir svæðið frá Laugalæk til Mjóddar. Á þessu svæði eru allir helstu stórmarkaðimir og samkeppni gífurleg. Kannað var verðlag í fimm verslunum, þar af fjór- um stórmörkuðum. Niðurstaða könnunarinnar er sú að verðlag á þessu svæði er talsvert lægra en á öðrum svæðum sem við höfúm kannað að þessu sinni og er það eflaust vegna mikillar samkeppni. Lítill munur er á verði þeirra Iægstu. Verslanimar fylgjast greinilega með verðlagi keppinauta og gera sitt til að vera lægri. Þetta gerir það að verkum að aðeins fárra króna munur er í stór- mörkuðunum. Þrátt fyrir að heildarverð sé svipað í stórmörkuðunum er nokkuð um innri sveiflur í vömverði. Þannig er tals- verður munur á verði gulrófna en þær vom ódýrastar í Miklagarði á kr. 35 en dýrastar í Stórmarkaði KRON, þar kostuðu þær kr. 49. Grænt Hreinol var dýrast í Kjötmiðstöðinni á kr. 51 en ódýrast í Stórmarkaði KRON og Kaupstað á kr. 38. Á meðfylgjandi súluriti er sýnt sam- anlagt verð verslananna. Línan í gegnum súlumar táknar meðalverð. Allar nánari upplýsingar em í töflu. -PLP Stórmarkaðir berjast grimmt um viðskiptavini VERSLANIR! Hin sívinsœla og myndarlega FERMINGAR- GJA FA HA NDBÓK_ er á leiðinni og kemur út 26. mars nk. Þeir auglýsendur sem áliuga hafa á að aug- lýsa í FERMINGA RGJA FA HA NDBÓKINNI vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild DV, Þverholti 11, eða í síma 27022, kl. 9-17 virka daga sem fyrst - í síðasta lagi föstudaginn 20. mars. Stórmark.- Skemmuv. Kaup- staður Mikli- garður Kjöt- miðst. Hag- kaup Meðal verð Cheerios198g 64,45 66,00 62,45 68,65 60,70 64,45 Honig spagh. 250 c 32,50 36,30 32,50 33,80 34,60 33,94 Smjörvi 300 g 79,80 81,30 76,80 81,30 76,50 79,14 Grænt Hreinol 38,00 38,00 45,10 51,00 45,50 43,52 Ríó kaffi 250 g 92,95 95,50 93,45 94,60 92,90 93,88 Gevalía rautt 250 g 87,60 88,90 89,70 99,50 89,50 91,04 Bonduelle gr. baunir 500g 54,40 54,90 53,50 54,27 Libby’s tómats. 340 g 39,50 39,50 39,90 42,50 34,50 39,18 Spar appelsínus. 1 49,90 49,90 49,50 49,77 Appelsínur 1 kg 77,30 65-66 75,00 84,00 77,00 75,86 Gulrófur 1 kg 49,00 39,00 35,00 47,00 39,00 41,80 Marengs- epli Marengsepli í fatinu en á diskinum eru toskaperur. Hvort tveggja sérlega gott með ísköldu rjómablandi eða mjúkum ís. Heit marengsepli em mjög góður eftirréttur. Það sem þarf: 4-6 stk. meðalstór gulgræn epli 1-2 dl sykur 4 dl vatn Marengs: 2 eggjahvítur 4 msk. sykur nokkrar sundurskomar möndlur. Afhýðið eplin og takið kjamahúsið úr. Sjóðið þau í vatni með sykri þangað til þau eru orðin meyr. Kæl- ið og látið renna af þeim á rist. Látið svo í smurt eldfast fat. Stífþeytið eggjahvítumar, blandið sykrinum varlega út í. Smyijið mar- engsinum varlega á eplin og stingið nokkmm möndlum í á víð og dreif. Bakist í 200°C heitum ofni þangað til marengsinn hefur fengið fallegan gulan lit. Berið fram með köldum rjóma eða mjúkum ís. -A.BJ. Rangt farið með verð í Þingholti í verðkönnun, sem birt var á dögun- Var sagt að verðið væri 48 krónur um, var rangt farið með verð á Honig en rétt verð er krónur 39,70. spaghetti í versluninni Þingholti. -PLP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.