Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Side 18
18
FÖSTUDAGUR 6. MARS 1987.
íþróttir
•Clive Wilson.
Wilson til
Liverpool?
Liverpool leitar nú dauðaleit að
varamanni lyrir vinstri bakvörð
sinn, Jim Beglin, en hann fótbrotn-
aði sem kunnugt er fyrir stuttu.
Kenny Dalglish fór nýlega ti)
Manehester Citv að h'ta á Clive
Wilson, bakvörð Manchester, en
að sögn var hann ekki of hrifmn
af því sem hann sá. Hins vegar
mun Wilson enn vera inni í mvnd-
inni hjá Liverpoo). -SMJ
LeikiðíAþenu
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, ákvað á fundi sínum í
Zúrich í gær að úrslitaleikurinn í
Evrópukeppni meistaraliða skyldi
fara fram á ólympíuleikvanginum
í Aþenu 13. maí næstkomandi.
Áætlað hafði verið að leikurinn
færi fram í Rotterdam en vegna
öryggisástæðna var hann fluttur
til Aþenu. -JKS
Áhorfendur
trylltust
í lokin í
Keflavík
-þegarÍBKvann UMFN
Keflvíkingar sigruðu Njarðvík-
inga á heimavelli sínurn í gær-
kvöldi með 83 stigum gegn 81.
Heimamenn höfðu forystu lengst
af en Njarðvíkingar voru hins veg-
ar ávallt skammt undan. Þeir
börðust enda vel og gáfú lítið eft-
ir. Lokamínútumar urðu því
æsispennandi og var þá mikill og
krappurdans stiginn af báðum lið-
um. Raunar var jaíht er venju-
bundnum leiktíma lauk. Rétt í
þann mtmd er dómarinn blés til
leiksloka var hins vegar brotið á
Ingólfi Haraldssyni og vann hann
því nánast leikinn fyrir Keflvík-
inga með því að skora tvívegis úr
vítaskotuni.
Fögnuði fjölmargra áhorfenda
verður vart lýst með orðum.
Bestur í liði Keflvíkinga var
Gylfi Þórhallsson en hann kom
jafnan við sögu þegar mest lá við.
Jón Kr. Gíslason lék einnig vel og
gladdi áhorfendur með 5 þriggja
stiga körfúm.
í UMFN-liðinu var Kristinn Ein-
arsson bestur. Valur Ingimundar-
son hafði sig hins vegar ekki
jafnmikið í frammi og oft áður.
Þessir skoruðu stigin:
•ÍBK: Gylfi 23, Jón KR. 19,
Hreinn 15, Guðjón 12, Sigurður 8,
Ingólftir 4, Falur 2.
•UMFN: Kristinn 21, Valur 18,
Jóhannes 12, Ámi 11, Teitur 6, Isak
5, Helgi 4 og Hreiðar 4.
-emm/JÖG
Moss spáð miklum
frama í deildinni
- hefur unnið alla æfingaleiki sína
Norska 1. deildar liðið Moss er greini-
lega í miklum ham þessa dagana. Nú
eru knattspymumenn í Noregi í óða
önn að undirbúa sig fyrir komandi
keppnistímabil. Moss hefur leikið
fjöldann allan af æfingaleikjum og
undantekningarlaust unnið sigur í
þeim. Um daginn vannst 3-0 sigur á
Ham Kam og það án þess að Gunnar
Gíslason léki með liðinu en hann var
þá með landsliði Islands í Kuwait.
Þá vann Moss einnig sigur á Lille-
ström, 2-0, og Kongsvinger, 6-2, í
æfingaleikjum. Þeir sem em spámann-
lega vaxnir í Noregi em á einu máli
um að liðið eigi eftir að gera stóra
hluti á komandi keppnistímabili.
Þjálfarinn Nils Ame Eggen hefur
fengið að móta liðið eftir sínu höfði.
Eggen væntir þess að íslendingurinn
sterki, Gunnar Gíslason, eigi eftir
leika stórt hlutverk í sókn liðsins að
langþráðum meistaratitli.
-SMJ
„Hætti vegna
Jóns Péturs“
- seglr Elías Haraldsson, markvörður Vals
„Ég tók þá ákvörðun eftir leikinn á
móti Víkingi í íslandsmótinu fyrir 2
til 3 vikum að hætta í markinu hjá
Valsmönnum. Ástæðan fyrir þessari
ákvörðun em yfirlýsingar frá Jóni
Pétri þjálfara. En þar kennir hann
lélegri markvörslu um að Valsliðinu
hafi ekki gengið sem skyldi á þessu
keppnistímabili. Aðrir leikmenn í
• Elias Haraldsson.
Valsliðinu em sammála mér um að
ekki sé eingöngu hægt að kenna
markvörslunni í vetur um hvemig
komið er. Það em fleiri þættir sem
spila þarna inni í,“ sagði Elías Har-
aldsson í samtali við DV í gær.
I vetur hefur hann verið aðalmark-
vörður Vals í 1. deildinni í handknatt-
leik. Hann hefur, eins og fram kom
hér að framan, ákveðið að hætta að
leika með Valsliðinu sökum yfirlýs-
ingar frá þjálfara liðsins.
„Þetta var mitt fyrsta keppnistíma-
bil sem aðalmarkvörður í meistara-
flokki í handknattleik. Og auðvitað
þarf lengri aðlögunartíma til að sanna
ágæti sitt. Ég hef ekki tekið ákvörðun
um að skipta um félag enn sem komið
er. Það em ekki eftir nema fjórar
umferðir af Islandsmótinu. Og úr því
sem komið er verður ákvörðun um
félagaskipti að bíða fram á haustið,"
sagði Elías Haraldsson að lokum.
-JKS
Menottí hót-
aði að skjóta
- á áhorfendur í Argentínu
Fyrrum landsliðsþjálfari Argentínu,
Cesar Menotti, sem nú þjálfar Boca
Juniors, hefur lengi þótt bráðlyndur
maður og viðskotaillur. Nú í nótt tók
hins vegar steininn úr.
Knattspymuáhangendur hafa lengi
leikið þann leik að æra óstöðugan og
það hugðust þeir gera fyrir utan leik-
vanginn í La Plata. Menotti var þar
nefnilega á ferð með drengina sína,
en leikur var fyrir höndum gegn Estu-
diantes. Gerðu hópar Estudiantes-
aðdáenda hróp að karli og köstuðu
að honum pokum fylltum vatni.
Hvorki hefur Menotti líkað framkom-
an né baðið því hann þreif í næsta
mann og rak skammbyssu í kviðinn á
honum. Hafði sá gamli síðan í hótun-
um og vann sér með því móti greiða
leið inn á völlinn.
En það eru fleiri skapheitir í Argent-
ínu en Menotti. Viðureign Juniors og
Estudiantes sem fór fram í nótt var í
raun sett á vegna leiks liðanna í nóv-
ember en hann var flautaður af í miðju
þjarki. Óspektir þóttu þá með alversta
móti á áhorfendapöllum.
Menotti sem eitt sinni þótti guði
næstur í Argentínu hefur ekki átt vin-
sældum að fagna eftir ófarir Argent-
ínumanna á HM á Spáni árið 1982.
Víst er að þær aukast ekki eftir þessa
ódrengilegu hótun í nótt. Verður hann
að öllum líkindum lögsóttur fyrir þetta
nýjasta afrek sitt.
-JÖG
•Cesar Luis Menotti, fyrrum lands-
liðsþjálfari Argentínu, veifaði skamm-
byssu á knattspyrnuleik i Argentínu í
nótt.
•Ólafur Björnsson, sem er líklega betur þekktur sem knattspyrnumaður, skorar hér
Dómarar fóru á I
- þegar UBK vann nauman sigui
„Framarar léku mjög vel í kvöld og
hafa líklega ekki leikið betur í vetur. Við
náðum okkur hins vegar ekki vel á strik.
Við verðum að gera betur ef okkur á að
takast að vinna Evrópusæti. Hlutskipti
dómara var ekki öfundsvert í þessum leik,
þeir gerðu mistök líkt og leikmenn. Þeir
réðu þó ekki úrslitum að mínu viti.“
Þetta sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari
Breiðabliks, er lið hans hafði lagt Fram-
ara að velli með 29 mörkum gegn 27.
Leikurinn, sem fór fram í Digranesi, var
mjög tvísýnn og jafh. Framarar höfðu þó
undirtökin lengst af og var mikill kraftur
í liðinu. Leikmenn börðust vel, bæði í
sókn og vörn. Gæði handknattleiksins
máttu þó víkja fyrir þeim krappa dansi
sem bæði lið stigu. Leikmenn gerðu sig
seka um röð mistaka en þó voru afglöp
dómaranna afdrifaríkari. Sérlega var
dómgæsla þeirra slök undir lokin. Á úr-
slitastundu var til að mynda dæmd töf á
einn Framarann er hann beið merkis til
að skjóta úr víti. Framarar trylltust ein-
faldlega yfir þessum gemingi dómarans,
enda höfðu þeir ekki ástæðu til að tefja.
Voru þeir einu marki undir þegar þessi
ósköp riðu yfir. Hlupu þeir því fram og
aftur um gólfið og báðir dómarar á undan
þeim með skottið milli fótanna. Lætin
vom þá svo mikil í húsinu að enginn nam
mannsins mál fremur en þegar flautað var
tfi vítakastsins.
í raun má segja að úrslitin í leiknum
hafi ráðist þegar þama var komið. Ekkert
rættist úr vítakastinu en Blikar settu í
þess stað boltann í marknet Framaranna
í hraðaupphlaupi sem sigldi í kjölfarið.
Þórður Davíðsson lék vel í liði Breiða-
bliks í gærkvöldi og Guðmundur Hrafh-
kelsson varði með ágætum, eða 14 skot.
Aðrir vom hins vegar nokkuð frá sínu
besta.
Framarar léku flestir vel í gær, sérstak-
lega þó Birgir Sigurðsson, sem skoraði
meðal annars eitt mark úr innkasti. Þá
stóðu þeir sig einnig með prýði Hermann
Bjömsson og þjálfarinn Per Skámp.
Þessir skomðu mörkin í leiknum:
•UBK: Jón Þórir 11/8, Þórður 5, Aðal-
steinn og Svavar 3, Björn 3/1, Kristján
og Ólafúr 2.
•Fram: Birgir 6, Hermann 5, Egill 4,
Agnar 4/2, Ragnar og Per 3, Júlíus og
ggvi 1.
skar Friðbjömsson varði 7 skot og þar
Eggert
hættur í
Halmstad
Gunnlaugur A Jónsson, DV, Svíþjóð:
Hann reyndist Eggert Guðmundssyni
dýr landsleikurinn sem hann lék fyrir ís-
lands hönd gegn Skotum þann 28. maí
1985. Hann mætti nefnilega til leiks í
óþökk forráðamanna Halmstad og þeir
settu hann því úr aðalliði félagsins. Eg-
gert hefur alla tíð síðan sótt á brattann
hjá Iiðinu, enda er arftaki hans í markinu
enginn aúkvisi. Sá hefur nú leikið nokkra
landsleiki fyrir Svía og jafnan varið vel.
Eggert tók því á það ráð nú nýverið að
hætta með Halmstad-liðinu og gera í þess
stað samning við fyrstu deildar liðið
Trelleborg FF.
Eggert hefur þó hvorki æft né leikið
með liðinu því hann var skorinn upp á
dögunum vegna meiðsla í hné. Hann verð-
ur þó góður innan tíðar og þá fer hann
beint undir markslána hjá Trelleborg.
Nú virðist sem enginn Islendingur muni
leika í Allsvenskan á næsta sumri. Þeir
verða hins vegar nokkrir í neðri deildun-
um. Má þar nefna leikmenn eins og
bræðuma Albert og Brynjar Guðmunds-
syni og fyrrum landsliðsfyrirliðann Teit