Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Side 36
Framkvæmdastjóri Snælax
Vindáttin eins
og pöntuð
fyrirokkur
„Þetta fór eins og best varð á kosið.
Það kom sterk sunnanátt og olían
hreinsaðist öll út fjörðinn." sagði
Svanur Guðmundsson. framkvæmda-
stjóri Snælax í Grundarfirði, í morgun,
en svo sem kunnugt lak olía úr tanki
Olís í Grundarfirði en þar er Snælax
með fiskeldi í kvíum.
„I’að var olíubrák við búrin fi'rir
hádegi í gær en hana bar síðan út
fjörðinn og eitthvað hefur líka gufað
upp. Vindáttin var eins og pöntuð fyr-
ir okkur,“ sagði Ólafur.
„Við sjáum ekki endanlega hvemig
fiskinum hefur reitt af fyrr en við get-
um skoðað hann eftir nokkra daga.
Það er öll olía horfin burt, það er að-
,-PÍns smábrák á steinimi í fjörunni,"
sagði Ólafur. -ój
Reykjanesbraut:
13 ára á
gjörgæslu
Þrettán ára drengur liggur nú með-
vitundarlaus á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans eftir að hafa orðið fyrir
■*it)ifreið á nýju Reykjanesbrautinni á
móts við Hnoðraholt í Garðabæ. Slys-
ið varð skömmu fyrir hádegi á mið-
vikudaginn er drengurinn var á leið í
skíðaferðalag í rútu. Rútan stöðvaði á
Reykjanesbrautinni vegna bilunar og
fóru nokkrir farþegar út. Þeirra á
meðal drengurinn með fyrrgreindum
afleiðingum.
-EIR
Akureyri:
ÞrírunnuLjubojevic
Jón G. Haukssom, DV, Akureyri;
Ljubojevic, stórmeistarinn júgó-
,—siavneski, tefldi fjöltefli á Akureyri og
tapaði þrem skákum, gerði fjögur jafn-
tefli og vann þrjátíu og þrjár.
Þeir sem unnu stórmeistarann voru
Rúnar Berg, Smári Ólafsson og Jón
Björgvinsson.
^ 2Ö0ÓQ Z&
LOKI
Þetta heitir að votta
vottunum andúð sína!
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ftitstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FÖSTUDAGUR 6. MARS 1987.
Gámaútflutningurinn:
Matthías hafnar
hugmyndum LIU
„Stjóm Landssambands íslenskra
útvegsmanna hesftir ekkert rætt við
mig, aðeins sent mér stjómarsam-
þykkt sína um að það taki yfir
stjómun á ferskfiskútflutningi. Mér
líst ekki vel á þær hugmyndir sem
útvegsmenn em með. Ef setja á eftir-
lit með heildarútflutningi ferskfisks
tel ég að það eigi að vera í höndum
hiutlausra aðila en ekki sérhags-
munahópa. Við vitum að það eru
margir aðilar í gámaútflutningi sem
ekki em í Landssambandi íslenskra
útvegsmanna. Ég tel að Fiskifélag
íslands sé rétti aðilinn ef setja þarf
á eitthvert éftirlit." sagði Matthías
Bjarnason viðskiptaráðheiTa um
hugmyndir Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna um að það taki
yfir efitirlit með gámaútflutningi.
Varðandi eftirlit með gámaútflutn-
ingi sagði Matthías að hann væri
ekki hlynntur miðstýringu enda
yrðu menn að gá að því að við vær-
um ekki einir á þessum markaði.
„Menn em alltaf að hrópa á frelsi
í viðskiptum og lofa það þegar vel
gengur en svo um leið og eitthvað
bjátar á þá er kallað á höft og mið-
stýringu, ég er ekki hrifinn af svona
löguðu,“ sagði Matthías Bjarnason.
Gamli góði mjólkurbrúsinn enn í fullu gildi hjá bruggurum þrátt fyrir tankvæðingu
skoðar bruggtækin sem gerð voru upptæk á Óðinsgötu.
sveitum. Lögreglumaður
DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Rigning
á Suður- og
Austurlandi
Á laugardaginn verður vaxandi
austan- og suðaustanátt með rign-
ingu á Suður- og Austurlandi. Hiti
verður á bilinu 2-6 stig.
Bruggari
tekinn á
Óðinsgötu
„Þetta er gamalkunnur refui-, við
höfum tekið hann áður," sögðu
lögreglumenn um bmggara sem
handtekinn var á Óðinsgötu að-
faranótt fimmtudagsins. Bruggar-
inn haföi verið undir eftirliti um
alllangt skeið þegar látið var til
skara skríða og sannað þótti að
hann hefði selt bmgg út úr húsi
I lögregluaðgerðinni voru bmgg-
tæki mannsins gerð upptæk svo
og 37 flöskur af eimuðum landa.
Þá tók lögreglan einnig tvær 150
lítra tunnur af „gambra" sem er
ílögn fyrir bmgg.
-EIR
Akureyri:
Þekktur læknir
ræðst gegn
Vottum Jehóva
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri;
Þekktur læknir á Akureyri, Reynir
Valdimarsson, ræðst harkalega að
Vottum Jehóva í trúarlegu riti sem
ber yfirskriftina Þeirra eigin orð. Rit-
inu var dreift nýlega á Akureyri.
Á forsíðu Ijölritsins segir: „Vottar
Jehóva, menn á brautum villukenn-
inga, blekkinga, stórra orða sem ekki
standast og biblíulegra rangtúlkana."
„Ég stend einn á bak við þetta rit
og gef það að sjálfsögðu út sem krist-
inn maður en ekki sem læknir,“ sagði
Reynir Valdimarsson við DV í morg-
un. Reynir sagðist ekki vera á móti
Vottum Jehóva sem persónum heldur
kenningum þeirra. Reynir hefúr starf-
að í áratugi fyrir KFUM á Akureyri.
Hann bar einn kostnaðinn af fjölrit-
inu. „Ég er ósammála Vottum Jehóva
á marga vegu og er því að aðvara hinn
almenna borgara sem er ekki mikið
inni í biblíukenningum. Vottar Jehóva
ganga hús úr húsi og boða sínar kenn-
ingar sem ég tel ósannindi.“
Ijokaorð Reynis í greininni í ritinu
eru þessi: „Varist Votta Jehóva, vaxt-
arbroddar þeirra eru þyrnar og
skrælnuð kom. Með kristilegum
kveðjum til allra þeirra sem lesið hafa
þetta spjall og íhugað.“