Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987. 3 Fréttir Pálina Magnúsdóttir, sextugt fermingarbarn, meó sálmabókina sina. DV-mynd KAE Sextug kona fermd í Dómkirkjunni „Ég grét oft í einrúmi yfir því að vera ófermd. Nú lét ég slag standa eftir 48 ár og var fermd í Dómkirkj- unni á sunnudaginn að viðstöddum nánustu ættingjum," sagði Pálína Magnúsdóttir, sextug kona í Breið- holtinu. „Þetta var mjög hátíðleg athöfn, biskupinn fermdi mig, ég var í hvítum kyrtli með sálmabók og fannst ég vera orðin 12 ára aftur.“ Pálína var einmitt 12 ára þegar hún gekk til prests vestur á ísafirði árið 1939 og bjó sig af kappi undir fermingu ásamt félögum sínum. Hún segist ekki hafa látið sig vanta einn einasta dag tO spuminga hjá herra Sigurgeir Sig- urðssyni biskup sem fermdi bömin á ísafirði það vorið. Sigurgeir var ein- mitt faðir herra Péturs Sigurgeirsson- ar biskups sem fermdi Pálínu á sunnudaginn. „Ég skildi aldrei til fulls hvers vegna ég var ekki látin fermast á sínum tíma. Þremur dögum fyrir ferminguna var ég send suður til Reykjavíkur til skyld- fólks míns og fermingin gleymdist. Ég var aldrei spurð hvort ég vildi láta ferma mig og var of lítil og ung til að minnast á það sjálf. Allar götur síðan hefúr þetta valdið mér miklum sárs- auka,“ sagði Pálína í samtali við DV skömmu eftir ferminguna um helgina. Sjálf telur Pálína ástæðuna fyrir því að hún var ekki fermd á réttum tíma vera þá að móðir hennar var ákafur sósíalisti og þeir létu yfirleitt ekki ferma bömin sín. Þannig var tíðarand- inn: „Ég held samt að foreldrar mínir hafi verið ákaflega trúaðir. Faðirminn var til dæmis forsöngvari í kirkjukór í 17 ár og móðir mín kunni kverið allt utanbókar," sagði Pálína. Fyrir ferminguna á sunnudaginn gekk Pálína til spuminga á biskups- skrifstofúnni þar sem herra Pétur Sigurgeirsson hlýddi henni yfir. Hún þurfti ekki að fara nema einu sinni því námsefnið kunni hún vel: „Biskupinn sagði við mig að það væri aldrei of seint að fermast og það em vissulega orð að sönnu,“ sagðí Pálína sem bauð ættingjum sínum í fermingarveislu að lokinni athöfn. Fermingarveislan hennar var þó öðm- vísi en flestra annarra fermingarbama því Pálína hafði látið þau boð út ganga að hún vildi engar fermingargjafir. Hún fékk samt falleg blóm. -EIR Vinningstölurnar 25. apríl 1987. Heildarvinningsupphæð: 4.396.408,- 1. vinningur var kr. 2.200.508. Aðeins einn þátttakanadi var með fimm réttar tölur. 2. vinningur var kr. 658.952,- og skiptist hann á 164 vinningshafa, kr. 4018,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.536.948,- og skiptist á 6.099 vinningshafa, sem fá 252 krónur hver. ÉSÍ5/32 Upplýsingasími: 685111. FIAT UN0 stendur óumdeilanlega framar öðrum bílum í sama stærðarflokki - sannur braut- ryðjandi sem sýnir að nútíma hönnun eru lítil tak- mörk sett. Hann er lítill að utan, en stór að innan og býður upp á rými og þægindi sem nútímafólk kann að meta. Þegar tekið er tillit til útlits, aksturseiginleika, þæginda, hagkvæmni, öryggis, notagildis og síðast en ekki síst hversu mikið fæst fyrir peningana, kemur í Ijós að FIAT UN0 er einfaldlega einstakur. FIAT UN0 45 : 283.000 kr. FIATUN0 45S : 312.000 kr. FIAT UN0 60S ; 339.000 kr. FIAT UN0 TURB0 : 523.000 kr. FIAT UMB00IÐ FAXAFEN110 108 REYKJAVÍK S: 91-68 88 50 essemm slA c

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.