Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Blaðsíða 9
t
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987.
9
Utlönd
Ölvaður bílstjóri
með geisla-
virk efni
Snorri VaJsscm, DV, Vín:
1 austum'ska sjónvarpinu var hald-
inn umræðuþáttur þar sem slysið í
Chernobyl og langvarandi afleiðingar
þess voru ræddar.
En á meðan á þættinum stóð mun-
aði litlu að illa færi. Flutningabíll með
geislavirk efhi valt í úthverfi Vínar
og við það hentist blýhylki með geisla-
virka efninu iridium 192 út úr bílnum.
Ökumaðurinn var frá fyrirtæki sem
sér um röntgenmyndatökur og var'
hanrt töluvert di-ukkinn er slysið átti
sér stað,
Þegar í ljós kom hvers kyns var lok-
aði lögreglan næstu götum fyrir allri
umferð og kallað var á sérsveit al-
mannavama til hjálpar. Við athugun
kom hins vegar í ljós að hylkið var
heilt og enginn leki hafði komist að
því. Iridium 192 getur verið stórskað-
legt heilsu manna.
Afvopnunarvið-
ræður í Vín um
hefðbundin vopn?
Snorri Valsson, DV, Vín:
Nú hefur komið til tals að hér í Vín
fari fram afvopnunarviðræður um
hefðbundin vopn, það er að segja öll
önnur en kjamavopn. Undanfarna
mánuði hefur hér staðið yfir öryggis-
málaráðstefna Evrópuþjóða og hafa
fulltrúar Nató og Varsjárbandalagsins
á ráðstefnunni þegar ræðst við um
málið.
Ef núll-lausnin svokallaða, það er
að segja engár skammdrægar eða
langdrægar eldflaugar á evrópskri
gmnd, nær fram að ganga er einnig
nauðsynlegt að ræða um hefðbundin
vopn.
Þar sem Austurríki er utan hemað-
arbandalaga þykir tilvalið að hafa
viðræðumar hér í Vín. Takmarkið er
að komast að niðurstöðu og senda út
yfirlýsingu um málið fyrir lok öry'ggis-
málaráðstefnunnar ef mögulegt er.
Vilja frelsa
hermenná
bamsaldri
Hollenski Rauði krossinn reynir nú
að fá látna lausa um tvö hundruð ír-
anska hermenn á bamsaldri sem
teknir hafa verið höndum af írökum
í styrjöld þeirra og írana.
Talsmaður Rauða krossins segir að
umleitanir þessar hafi fengið jákvæð
viðbrögð í Irak. Stjómvöld þar hafi
fulla samúð með drengjunum sem em
á aldrinum 10 til 17 ára. Þar sem þeir
hafa ekki náð átján ára aldri ná
ákvæði Genfarsáttmálans um stríðs-
fanga ekki ti! þeirra.
Talið er fullvíst að drengimir verði
látnir lausir ef Rauða krossinum tekst
að finna handa þeim heimili í Evrópu.
Þeir vilja ekki snúa aftur til föður-
lands síns né heldur geta þeir það þar
sem írönsk stjórnvöld telja átökin við
írak heilagt stríð og taka ekki við
þeim sem snúa sigraðir af orrustuvelli.
Á kafi í smokkum
Haukur L. Haukssan, DV, KaupmannahQfn:
Frede og Orla segjast vera að
dmkkna í smokkum. Hafa þeir unnið
í fjöldamörg ár við klóakkerfi Kaup-
mannahafnar. Nú vinna þeir við
pumpustöð þar sem brennanlegur úr-
gangur er aðgreindur frá þeim fjögur
þúsund iítrum vatns er rennur þar í
gegn á hverri sekúndu.
Segja þeir að áður fyrr hafi smokkar
verið frekar sjaldséðir í klóakvatninu
en nú séu þeir titt á ferðinni og um
helgar komi hreinlega smokkahol-
skefla í gegnum stöðina.
Má því segja að áróðurinn um ör-
uggt kynlíf hafi borið einhvem
árangur í baráttunni gegn eyðni.
Sjö milljónir vilja hlaupa með ólympíueldinn
Guðnin Hjartardóttir, DV, Ottawa:
Undirbúningur vetrarólympíu-
leikanna 1988, sem halda á í Calgary
í Kanada, er þegar kominn í fullan
gang. Einn liður í undirbúningnum
er skipulagningin á hlaupinu með
ólympíueldinn. Þar sem Kanada er
geysivíðáttumikið land, enda næst-
stærsta land heims, þarf bæði langan
tíma og marga þátttakendur fyrir
slíkt hlaup.
Umsóknarfrestur um þátttöku í
hlaupinu rann nýlega út og sóttu
margfalt fleiri um en búist hafði ver-
ið við. Tæplega sjö milljónir
umsókna bárust en það verða ekki
nema sex þúsund tvö hundmð og
fjórtán Kanadamenn sem hljóta
þann heiður að hlaupa með ólympíu-
eldinn. Dregið verður um hina
heppnu í maí.
Hlaupið með ólympíueldinn hefst
17. nóvember næstkomandi í St.
John’s á Nýfundnalandi og verður
farið í gegnum höfuðborgir allra
fylkja landsins eftir ýmsum króka-
leiðum en hlaupinu lýkur síðan í
Calgaiy í febrúar á setningarhátíð
vetrarólympíuleikanna 1988.