Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987.
5
Stjómmál
„Þú ert ódrepandi, Egiil minn.“ Þorvaldur Garðar Kristjánsson heilsar
Agli Jónssyni í þingflokki sjálfstæöismanna. Þar mætti Egill heill úr þriðju
helförinni í þingkosningum á Austurlandi. Núna voru ekki nema 50 atkvæði
eftir þegar Sverrir Hermannsson var kominn inn og samt slapp Egill á þing.
„Það dugir líklega ekkert annað en að meina þér þingmennsku i stjórnar-
skránni,“ sögðu þeir á þingflokksfundinum. Birgir ísleifur Gunnarsson og
Friðrik Sophusson voru jafnsposkir og aðrir yfir þessu öllu saman.
DV-mynd GVA
Sjálfstæðisflokkurinn með miðstjómarfund í dag:
Ekki tekið undir
afsögn Þorsteins
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
tók ekki undir bollaleggingar Þor-
steins Pálssonar í gær um að hann
hyrfi úr foiystu flokksins eftir úrslit
þingkosninganna. Honum var þvert á
móti falið áð hefja viðræður við aðra
flokka um myndun nýrrar ríkisstjóm-
ar eftir því sem tilefai kynnu að gefast
til. Miðstjóm flokksins kemur saman
til fundar í dag.
Þingflokkurinn, sem nú telur 18
manns í stað 23 fyrir kosningar, endur-
kaus forystu sína. Ólafur G. Einarsson
er formaður, Halldór Blöndal vara-
formaður og Birgir Isleifur Gunnars-
son ritari. Þá vom þrír endurkosnir í
miðstjóm, þeir Matthías A. Mathies-
en, Matthías Bjamason og Salóme
Þorkelsdóttir. Tveir nýir vom kosnir
í miðstjómina, þeir Birgir ísleifur
Gunnarsson og Pálmi Jónsson. Þeir
koma í stað Péturs Sigurðssonar og
Alberts Guðmundssonar sem horfnir
em úr þingflokknum.
Flokksráð, sem skipað er íjölda full-
trúa af öllu landinu, kemur saman
þegar líður að stjómarmyndun, hvort
sem Sjálfstæðisflokkurinn verður í
stjóm eða ekki.
„Við tökum þetta rólega," sagði Ól-
afur G. Einarsson í morgun, „þetta
verður svona kunningjaspjall næstu
dagana. Ég geri ekki ráð fyrir að það
verði mynduð nein ríkisstjóm án erf-
iðra fæðingarhríða og það er ekkert
komið að þeim.“ -HERB
Skoðanakannanir
stóðust mjög vel
- munurinn aðeins rúmt prósentustig á flokk
Skoðanakannanirnar fyrir kosn-
ingarnar stóðust mjög vel. Þetta
sést þegar niðurstöður þeirra eru
bornar saman við úrslit kosning-
anna.Munurinn á könnununum og
úrslitunum var aðeins frá einu pró-
sentustigi upp i 1,8 prósentustig að
meðaltali á flokk. Þetta mundi
hvarvetna þykja gott. Skekkju-
mörk í skoðanakönnunum sem
þessum em á bilinu 2,5-3,5 pró-
sentustig á flokk samkvæmt
reikningsformúlum. Enginn getur
ætlast til þess, að skoðanakannanir
gefi fullkomna mynd af úrslitum.
Hlutirnir eru að breytast til síðustu
stundar. Margir hafa verið óá-
kveðnir í skoðanakönnunum
nokkra daga fyrir kosningar. Hlut-
föllin breytast eitthvað, þegar þeir
koma að kjörborðinu. Flokksfor-
ingjar halda áfram fundum.
Hringborðsumræður í sjónvarpi
hafa mikil áhrif síðasta daginn.
Einhver smölun er eftir. Því verður
að segja, að það þyki gott hvar sem
er, þegar einungis munar rúmu
prósentustigi að meðaltali á flokk
milli könnunar og kosninga.
Niðurstöður urðu þær, að hjá DV
munaði um 1,2 prósentustigi á
flokk að meðaltali milli könnunar
og kosninga. Hjá Félagsvísinda-
stofnun Háskólans munaði um
einu prósentustigi. Hjá Helgar-
póstinum munaði um 1,2 prósentu-
stigum og hjá Hagvangi munaði
um 1,8 prósentustigum. Allt eru
þetta viðunandi niðurstöður fyrir
þá, sem að standa. Félagsvisinda-
stofnun reyndi að skipta hinum
óákveðnu og lækkaði með því hlut-
fallslegt fylgi Sjálfstæðisflokksins
nokkuð, þar sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur reynst eiga minna
meðal hinna óákveðnu en þeirra,
sem ákveðnir hafa verið í könnun-
um. En munurinn á mismun hjá
stofnuninni og mismun hjá DV er
aðeins 0,2 prósentustig á flokk.
Þetta eru vissulega marktækar
skoðanakannanir.
Skoðanakannanirnar sögðu í
stórum dráttum, hvað gerast mundi
í kosningunum. Þær sögðu nokk-
urn veginn nákvæmlega, hversu
mikið fylgi Borgaraflokkurinn
fengi, svo og smáflokkarnir. Þær
sögðu, að Sjálfstæðisflokkurinn
mundi tapa miklu og Alþýðu-
bandalagið tapa miklu. Þær sögðu,
að Alþýðuflokkurinn mundi vinna
mikið á, svo og Kvennalistinn.
Skoðanakananimar sögðu, að
Framsókn væri að ná sér á strik
síðustu vikurnar eftir mikla lægð.
-HH
Byggingavindur
Eigum nú fyrirliggjandi GEDA STAR
150 byggingavindur.
Lyftigeta 150 kg.
Margs konar aukabúnaður er einnig
fyrirliggjandi.
Fallar hf.
Vesturvör 7
200 Kópavogi.
Símar 42322 - 641020.
Sfjómannyndun:
Ekki enn
verið rætt
við okkur
- segir Albert Guðmundsson
„Ég er alls ekki viss um að það henti
Borgaraflokknum að fara í ríkisstjóm
nú,“ sagði Albert Guðmundsson þegar
DV spurði um afstöðu hans til hugsan-
legra stjómarmyndunarviðræðna.
„Mér skilst að einhverjar þreifingar
séu hafnar milli formanna flokkanna
þrátt fyrir að forseti sé ekki búinn að
fela neinum stjómarmyndun. Við okk-
ur hefur ekki verið rætt enn og við
munum örugglega fara rólega í slíkar
viðræður," sagði Albert.
„í ríkissjóði er falið sprengiefni.
Sprengiefiii í formi halla sem gæti far-
ið í 5 milljarða kr. Það er ekki víst
að það sé einhver hagur fyrir okkur
að taka þátt í ríkisstjóm sem þarf að
glíma við þennan gamla halla. Hugs-
anlega er það okkar hlutverk að vera
í stjómarandstöðu.
Við þurfum að skipuleggja flokkinn.
Hann varð til á skömmum tíma svo
við verðum nú að reyna að treysta
undirstöðumar.
Því held ég að það sé ekki tímabært
á þessu augnabliki að tala um stjóm-
armyndun,“ sagði Albert að lokum.
-ES
ri Jeep
n Jeep EGILL VILHJÁLMSSON h/f
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ
Vegna mikilla anna hjá AMC verksmiðjunum hafa þær tilkynnt
okkur að staðfesta þurfi pantanir á hinum vinsælu Cherokee og
Wagoneer bifreiðum fyrir 1. maí nk. Afgreiðslufresturinn lengist
verulega eftir 1. maí.