Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Side 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987.
íþróttir
DV
Einn nýliði
hjá Dönum
Haukur Lárus Haukssan, DV, Danmörku:
Knattspyrnulið Dana mætir
Finnum í Helsinki ó morgun. Leik-
urinn er liður í undankeppni
Evrópukeppninnar en önnur lið í
riðlinum eru Walesmenn og Tékk-
ar. 35 þúsund aðgöngumiðar hafa
þegar selst á leikinn sem er met í
Finnlandi.
Sepp Pinotek, þjálfari Dana, til-
kynnti landsliðshópinn í síðustu
viku. Einn nýliði er í hópnum, það
er Jan Heintze frá PSV Eindhoven
í Hollandi. Hann vai' besti maður
vallarins í æfingarleik gegn Liv-
erpool í síðustu viku. Er hann
þegar orðinn stórt nafh.
Sóknardúettinn, Elkjær og
Laudrup, hafa boðað forföll vegna
meiðsla og þrátt fyrir marga kandí-
datii, virðist Pinotek vera í erfið-
leikum. Þó er búist við að John
Eriksen frá Servette í Sviss, sem
skorað liefur 23 mörk í 22 leikjum
í vetur, og Lars Lunde frá Bayem
Múnchen, sem sýndi mjög góðan
leik gegn Real Madrid, verði vald-
ir í liðið.
Kynslóðaskipti hjá Dönum
Pinotek landsliðsþjálfari verður
að horfast í augu við kynslóða-
skipti en hið fræga landslið Dana
er farið að eldast nokkuð.
Mikið er af efnilegum leikmönn-
um heima og heiman en hugmynd-
ir um að gera markamaskínuna
Preben Elkjer Uirsen að leik-
stjórnanda þegar Morten Olsen
hættir hafa vakið mikla athvgli.
-JKS
Unglinga-
landsliðið
valiðaNM
• Jay Haas fagnar sigri á golfmótinu Houston open um helgina. Hann púttaði í holuna af 18 metra færi og varð rum-
um fjórum milljónum ríkari. Símamynd/Reuter
Ævinlýralegt pútt og
Haas vann í bráðabana
Unghngalandslið íslands í körfú-
knattleik tekur þátt í Norður-
landamóti sem fram fer í
Kongsberg í Noregi dagana 1.-3.
maí.
Eftirtaldir leikmenn skipa ungl-
ingalandsliðið:
Falur Harðarson....fyrirliði, ÍBK
RúnarÁmason.................UMFG
Eyjólfur Sverrisson....Tindastól
Bárður Eyþórsson.............Val
Friðrik Rúnai-sson.......UMFN
Skarphéðinn Eiríksson ....Haukum
Ragnar Þór Jónsson...........Val
Einar Einarsson..............ÍBK
Júlíus Friðriksson...........ÍBK
Hannes Haraldsson............Val
Þjálfari liðsins erTorfi Magnússon
og aðstoðarþjálfari er Sigvaldi
Ingimundarson. -JKS
Borðtennisúrslit
UnglingameisUiramót íslands í
borðtennis var haldið í íþróttahúsi
Seljaskóla um helgina. Úrslit:
• í tvemidarkeppni sigruðu Fjóla
M. Lárusdóttir og Gunnar Valsson,
UMSB/Víkingi.
• f tvíliðaleik stúlkna sigruöu Fjóla
M. Lárusdóttir og Lilja Benónýsdóttir,
UMSB.
• í tvíliðaleik drengja (15-17 ára)
sigruðu Kjartan Briem og Valdimar
Hannesson, KR.
• í tvíliðaleik sveina (yngri en 15
ára) signiðu Haraldur Kristinsson og
Páll Kristinsson, Eminum.
• Tátur (yngri en 10 ára): sigurveg-
ari Sigríður Haraldsdóttir, UMSB.
• Hnokkar (vngri en 10 ára): sigur-
vegari Ólafur Stephensen, KR.
• Telpur (10-13 ára): sigurvegari
Berglind Sigurjónsdóttir, Eminum.
• Piltar (10-13 ára): sigurvegari
Stefán Pálsson, Víkingi.
• Meyjar (13 15 ára): sigurvegari
Lilja Benónýsdóttir, UMSB.
• Sveinar (13-15 ára): sigurvegari
Sigurður Bollason, KR.
• Stúlkur (15-17 ára): sigurvegari
Fjóla M. Lárusdóttir, UMSB.
• Drengir (15-17 ára) sigurvegari
Kjartan Briem, KR.
Ballesteros varð þriðji á Madrid open á Spáni en Woosnam sigraði
Bráðabana þurfti til að knýja fram
úrsht á miklu atvinnumannamóti í
golfi um helgina, Houston open.
Bandaríkjamennimir Jay Haas og
Buddy Gardner háðu spennandi ein-
vigi en Haas tókst að tryggja sér
sigurinn með ævintýralegu pútti en
báðir höfðu þeir leikið 72 holumar á
276 höggum eða 12 undir pari vallar-
ins.
I bráðabananum tókst Haas að pútta
kúlunni í holuna af um 18 metra færi
og varð hann því rúmum fjórum millj-
ónum króna ríkari fyrir vikið. Þetta
var sjötti sigur Haas á stórmóti síðan
hann gerðist atvinnumaður en síðast
vann hann mót árið 1982. Þriðji á
mótinu varð Payne Stewart á 277
höggum, Nick Price varð fjórði á 279
höggum og Wayne Levi lék á sama
höggafjölda.
Ballesteros varð aðeins þriðji
Bretinn Ian Woosnam varð sigur-
vegari á golfmótinu Madrid open sem
lauk nýverið á Spáni. Woosnam lék
holumar 72 á 269 höggum en Wayne
Grady, Ástralíu, varð annar á 272
höggum. Spánveijinn heimsfrægi, Se-
veriano Ballesteros, varð að gera sér
þriðja sætið að góðu en hann lék á
273 höggum. Nick Faldo, Bretlandi,
lék á 274 höggum og varð fjórði, Jose
Rivero, Spáni, varð fimmti á 277, Bret-
inn Howard Clark sjötti á 279 og
Svíinn Ove Sellberg varð sjöundi á 281
höggi. -SK
Áýmsu gengur í fyrstu
úrslitaleikjunum í NBA
Úrslitakeppnin í bandaríska körfu-
knattleiknum, NBA-deildinni, er nú
hafin en sextán lið hefja keppnina.
Þegar er tveimur umferðum lokið í
fyrstu lotunni en svona er staðan í dag:
• Los Angeles Lakers leikur gegn
Denver Nuggets og hefúr Lakers unn-
ið tvo fyrstu leikina en það lið kemst
áfram sem fyrr vinnur 5 leiki. Úrslit í
síðari leiknum urðu 139-127.
• Seattle Supersonics og Dallas
Mavericks eru jöfn, hvort lið hefur
unnið einn leik. Síðari leiknum lauk
með sigri Seattle, 112-110.
• Utah Jazz hefur unnið tvo fyrstu
leikina gegn Golden State Warriors.
Síðari leikurinn endaði 102-100 fyrir
Utah Jazz.
• Larry Bird og félagar í Boston
Celtics leika gegn Michael Jordan og
félögum í Chicago Bulls. Boston hefur
unnið báða leikina, þann síðari um
helgina með 105 stigum gegn 96.
• Mikið hefur gengið á í viðureign-
um Fhiladelfia 76ers og Milwaukee
Bucks. Hvort lið hefur unnið einn leik
og síðari leikinn, sem 76ers vann
125-122, þurfti að framlengja.
• Sömuleiðis er jafrit hjá Portland
Trailblazers og Houston Rockets.
Eins og við skýrðum frá í blaðinu í
gær geta Patric Battiston og Jean Tig-
ana ekki leikið með franska landslið-
inu gegn íslendingum í Evrópuleikn-
um í París á morgun vegna meiðsla.
Nú hefur þriðji leikmaðurinn bæst
í hópinn en það er Jean Marc Ferr-
Portland vann síðari leikinn, 111-98.
• Atlanta Hawks, sem margir spá
miklum frama í úrslitunum, hefur yfir
2-0 gegn Indiana Pacers. Síðari leikur-
inn fór 94-93 fyrir Atlanta.
• Og loks leika Detroit Pistons og
Washington Bullets. Staðan þar er 2-0
fyrir Detroit og vann liðið síðari leik-
inn með 123 stigum gegn aðeins 85.
eri. Hann á einnig við meiðsl að stríða.
Allir þessir leikmenn eru frá Bord-
eaux. Henri Michel landsliðsþjálfari
hefur því þurft að velja nýja leikmenn
í staðinn. Þeir eru, Domergue, Mar-
seille, Poullain, Paris Saint Germain
og Bijotat, Monaco. -JKS
Þriðji Frakkinn úr leik
r
Stuttar
fréttir:
• Nú er ljóst að landslið Englands og
Tyrklands verða án margra af sínum
bestu mönnum er liðin leika á morgun í
Evrópukeppni landsliða. í enska liðið
mun vanta þá Peter Reid, Terry Butcher
og mai'kvörðinn Peter Shilton en þessir
kappar eru allir meiddir. Líklegt er að
einir sex leikmenn verði fjarverandi úr
venjubundnu byijunarliði Tyrkja á morg-
un.
• Ron Atkinson, burtrekinn fram-
kvæmdastjóri Manchester United, hcfur
nú fengið tilboð um að þjálfa tyrkneska
liðið Fenerbache. Atkinson er væntanleg-
ur til Tyrklands til að ræða málin.
• Þýska knattspymusambandið hefur
nú ákveðið að efna til meistarakeppni og
í vor munu nýkrýndir meistarar og bikar-
meistarar leiða saman hesta sfna í fyrsta
skipti.
• Ásgeir Sigurvinsson er ekki lengur
hæstur í einkunnagjöfinni i þýsku knatt-
spymunni. Wuttke frá Kaiserslautem er
efstur með 3,04 að meðaltali, þá kemur
Uwe Rahn hjá Gladbach með 3,05, Ásgeir
er þriðji með 3,05 og sama meðaltal hefur
Klaus Augenthalerhjá Bayem Múnchen.
• Forseti ítalska knattspyrnuliðsins
AC Roma hefur sagt að félagið vilji fá
Rudi Völler sem leikur með Werder Brem-
en í Vestur-Þýskalandi og það skipti ekki
máli hvað hann eigi að kosta. Sjálfur seg-
ir Völler að hann hafi áhuga á að skipta
um félag.
• Hannes Eyvindsson, kylfingur úr
GR, keppti á alþjóðlegu golfinóti í golf-
hermi í Finnlandi um síðustu helgi og
hafnaði hann í 9. sæti en keppendur vom
20 talsins. Annars mun mót þetta fyrst
og fremst hafa einkennst af skipulagsleysi
Finna og hreinlega verið þeim til hábor-
innar skammar.
• Vestur-þýski landsliðsmarkvörður-
inn í handknattleik, Andreas 'fhiel, er í
sérflokki í heimalandi sínu í að veija víta-
köst. Þegar tvær umferðir em eftir í
deildarkeppninni hefur þessi félagi Kristj-
áns Arasonar hjá Gummersbach varið 30
vítaköst í 24 leikjum.
• Schutterwald, sem er að líkindum
nýja félagið hans Siguijóns Sigurðssonar,
er fallið í 2. deild í Þýskalandi. Hameln
og Weiche Handewitt eru einnig fallin í
2. deild.
• Bókin fræga, sem Toni Schumaeher
skrifaði um lyfjaneyslu knattspymu-
manna í Vestur-Þýskalandi og fleira, selst
betur en heitar lummur. Hún hefúr nú
selst í yfir 200 þúsund eintökum og þegar
verið þýdd á tiu tungumál, þar á meðal
em japanska, hebreska, flæmska og tyrk-
neska.
• Belgíska knattspymufélagið KV
Mechelen er á mikilli uppleið utan knatt-
spymuvallaríns. Félagið er nú að byggja
nýjan knattspymuvöll fyrir utan borgina
en völlurinn, sem notast er við, rúmar
aðeins 18 þúsund manns.
• Gary Bailey, markvörður Manchest-
er United, hefur orðið að leggja skóna á
hilluna vegna meiðsla og mun ekki leika
knattspymu framar.
• Knattspyrnumaðurinn Aðalsteinn
Aðalsteinsson, sem lék í Noregi á síðasta
ári og þar áður með Víkingum, hefur
ákveðið að leika með Völsungum í 1.
deildinni í sumar. Aðalsteinn mun missa
af fjórum fyrstu leikjum Völsungs vegna
þess hve seint hann skipti um félag. Þess
má geta að Aðalsteinn er bróðir Þorbergs
Aðalsteinssonar handknattleiksmanns.
• Kylfingar á Akureyri eru á góðri leið
með að setja met í byggingarhraða. Eins
og skýrt var frá í DV nýverið er búið að
rífa gamla íbúðarhúsið að Jaðri og nýtt
250 fermetra hús hefúr sprottið upp á
gmnni þess g’amla eins og gorkúla. Lands-
mótið í golfi fer fram á Akureyri í sumar
og er greinilegt að gestum þeim, sem
leggja leið sína norður í sumar á athafna-
svæði Golfklúbbs AkurejTar, verður ekki
í kot vísað.