Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Side 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987.
I J.lrkJ,
Friðrik A. Jónsson h.f.
Skipholti 7, Reykjavik,
Simar 14135 — 14340.
Andlát
PORSA álkerfi frá
Háborg býður upp
á ótrúlega fjöl-
breytta notkun.
Getum smíðað margs konar
innréttingar úr álprófflum, allt
frá litlum video- og tölvuborð-
um til stærri verslunarinnrétt-
inga. Skoðaðu möguleikana og
verðið, það kemur á óvart.
Heildsala - smásala á álprófíl-
um.
Háborg:
Skútuvogi 4
simi 82140
Guðmundur Magnússon verk-
fræðingur lést 14. apríl sl. Hann
fæddist í Grindavík 28. september
1927, sonur hjónanna Magnúsar
Guðmundssonar og Sigríðar Daní-
elsdóttur. Að loknu stúdentsprófi hóf
Guðmundur nám í byggingarverk-
fræði við Háskóla íslands og síðar
við Darunarks Tekniske Högskole,
en þaðan tók hann verkfræðipróf
1953. Að námi loknu hóf hann störf
hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen og vann þar til 1960. Árið
1962 stofnaði hann eigin verkfræði-
stofu sem hann starfrækti til dauða-
dags. Eftirlifandi eiginkona hans er
Margrét R. Tómasdóttir. Þeim hjón-
um varð fimm barna auðið. Útför
Guðmundar verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 15.
Sigurður ögmundsson frá Litla-
Landi andaðist á heimili sínu, Mið-
túni 5, Selfossi, laugardaginn 25.
apríl.
Böðvar L. Hauksson viðskipta-
fræðingur lést 19. apríl sl. Hann
fæddist 11. október 1946, sonur hjón-
anna Láru Böðvarsdóttur og Hauks
Eggertssonar. Böðvar varð við-
skiptafræðingur frá Háskóla íslands
1972. Hann vann undanfarin ár hjá
Landsbanka Islands, síðast sem
framkvæmdastjóri Útflutningslána-
sjóðs. Eftirlifandi eiginkona hans er
Ása Guðmundsdóttir. Þau eignuðust
einn son. Útför Böðvars verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Gunnar Ásgeirsson frá Fögru-
brekku, til heimilis á Dvalarheimil-
inu Höfða, lést í Fjórðungssjúkra-
húsinu Akranesi aðfaranótt 25. apríl.
Lovísa Kristín Pálsdóttir, Háholti
17, Akranesi, lést í Borgarspítalan-
um 26. apríl.
Guðrún Guðmundsdóttir, Dyn-
skógum 7, Hveragerði, andaðist á
páskadag í Borgarspítalanum. Útför
hennar fer fram frá Hveragerðis-
kirkju laugardaginn 2. maí kl. 14.
Jarðsett verður á Kotströnd.
RS 8000
- allar rásir
- tvöföld hlustun
- 1 og 25 vött
hagstætt verð
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Bíldshöfða 16, hluta, þingl. eigandi Steintak hf., fer fram í
dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, fimmtud. 30. apríl '87 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru Baldur Guðlaugsson hrl., Gjaldheimtan í Reykjavík,
Ólafur Garðarsson hdl., Eggert B. Ólafsson hdl., Klemens Eggertsson hdl.,
Sigurmar Albertsson hrl. og Helgi V. Jónsson hrl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Urriðakvísl 23, þingl. eigandi Sigurður Guðnason, fer fram í
dómsal emþættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, fimmtud. 30. apríl '87 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru Ólafur Axelsson hrl. og Gjaldheimtan í Reykjavík.
__________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Birtingakvísl 24, tal. eigandi Jóhann Ingimund-
arson, fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, fimmtud. 30.
apríl '87 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru Sigurður G. Guðjónsson hdl.,
Gjaldheimtan í Reykjavík, sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og Skarp-
héðinn Þórisson hrl.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Laxakvísl 19, 1 .hæð t.v., þingl. eigandi Þjóðólfur Gunnarsson,
fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, fimmtud. 30. apríl '87
kl. 15.45. Uppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl.
____Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
í gærkvöldi
DV
Silja Aðalsteinsdóttir ritstjóri:
„Tékkneska myndin verulega vímð“
Fjölmiðlarnir gera sér mat úr
kosningunum eins og kannski er
eðlilegt en ég var samt þreytt á því
hvernig útvarp og sjónvarp bjuggu
til fréttir um það í gervallan gær-
dag hver fengi hugsanlega fyrstur
umboð til stjórnarmyndunar. Af
hverju bíða menn ekki rólegir
þessa fáu daga þangað til Vigdís'
kveður upp úr um þetta?
Ég hlusta lítið á útvarp fyrr en á
kvöldfréttir á rás 1. Sjónvarpsfrétt-
ir reyni ég að forðast, þær eru svo
stressaðar. Þó horfði ég á drjúgan
part af fréttum á báðum sjónvarps-
stöðvum í gær fyrir DV. Þær voru
stressaðar. Ætli það stafi ekki með-
fram af því að textavélin fyrir
framan véhna ræni þá eðlilegum
höfuðhreyfingum við upplestur,
veldur ýmsum óeðlilegum rykkjum
og hnykkjum í staðinn? Edda og
Ingvi Hrafn rótuðu óstyrk í blöðum
sínum í lokin og ég neyddist til að
strauja þvott til að slappa af.
Já, forsætisráðherra var herlegt
grín.
Sjónvarpsleikritið var tékkneskt.
Ef ég hef einhverja reglu á sjón-
varpsglápi mínu (það heitir víst
Silja Aðalsteinsdóttir.
„áhorf ‘ á nýmáli), þá er hún sú að
sjá helst allt efni sem ekki er á
ensku. Að vísu fær maður þó að sjá
ýmsa verulega víraða hluti, eins
og bömin mín segja, en þeir koma
manni þó á óvart. Myndin Á refil-
stigum var óvænt, mér fannst um
hríð að ég væri aftur sextán að
horfa á Syndir feðranna. Tékk-
neski strákurinn var ekki eins
grípandi og James Dean en hann
var agalega sætur, stelpan var betri
en Nathalie Wood og þau voru svo
ung og svo viðkvæm bak við töff-
heitin. Þeir trúa ennþá á ástina í
Tékkó en dauðinn sigraði samt að
lokum. Það seinasta sem drengur-
inn sagði var „Kveiktu í fyrir mér“
síðasta bón hinnar sönnu hetju en
þá sígarettu gat hann aldrei reykt.
Má ég svo enda þetta með frómri
bón um meiri Derrick.
Arndís Finnbogadóttir, Kvisthaga
10, Reykjavík, andaðist að heimili
sínu föstudaginn 2. apríl sl.
Elín Sigurjónsdóttir, Garðvangi,
Garði, lést í Landakotsspítala 26.
apríl.
Gunnar Þórir Halldórsson lést
aðfaranótt 27. apríl.
Edith Thorberg Jónsson, Sólvalla-
götu 39, lést á Reykjalundi, Mosfells-
sveit, laugardaginn 25. apríl.
Sigurður Ármann Magnússon lést
þann 24. apríl sl.
Dýri Baldursson rennismiður,
Brúnastekk 9, Reykjavík, verður
jarðsunginn miðvikudaginn 29. apríl
fi-á Fríkirkjunni í Reykjavík kl.
13.30.
Valgerður Hallgrímsdóttir Kröy-
er, Norðurbrún 1, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Áskirkju fimmtudag-
inn 30. apríl kl. 13.30.
Jarðarför Sesselju Konráðsdóttur
frá Stykkishólmi fer fram frá Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 30. apríl kl.
13.30.
Útför Jennýar Stefánsdóttur,
Austurbrún 4, verður gerð frá Ás-
kirkju miðvikudaginn 29. apríl kl.
13.30.
Þórarinn Gísli Jónsson, Mosa-
barði 9, Hafnarfirði, sem lést 24. apríl
sl., verður jarðsunginn frá Hafnar-
íjarðarkirkju fimmtudaginn 30. apríl
kl. 15.
Guðrún Oddsdóttir, Bræðraborg-
arstíg 53, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju 29. apríl kl. 15.
Útför Stefáns Pjeturssonar, fyrr-
um þjóðskjalavarðar, sem lést 19.
þ.m., hefir farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Tilkyimingar
Minningarkort Áskirkju
Minningarkort Áskirkju hafa eftirtaldir
aðilar til sölu: Þuríður Ágústsdóttir, Aust-
urbrún 37, sími 681742. Guðrún Jónsdóttir,
Kleifarvegi 5, sími 681984. Ragna Jóns-
dóttir, Kambsvegi 17, sími 82775.
Holtsapótek, Langholtsvegi 84. Þjónustu-
íbúðir aldraðra, Dalbraut 27. Verslunin
Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27 og Helena
Halldórsdóttir, Norðurbrún 1. Þá gefst
þeim sem ekki eiga heimangengt kostur á
að hringja í Áskirkju, sími 84035, milli kl.
17 og 19 á daginn og mun kirkjuvörður
annast sendingu minningarkorta fyrir þá
sem þess óska.
Minningartónleikar um Jean-
Pierre Jacquillat
Á fímmtudagskvöldið 30. apríl kl. 20.30
verða haldnir í Bústaðakirkju tónleikar
til minningar um Jean-Pieere Jacquillat,
fyrrum hljómsveitarstjóra Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Á efnisskrá verða verk
eftir franska höfunda, Debussy, Franck
og Messiaen, auk verka eftir Beethoven
og Schumann. Flytjendur verða Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari, Gunnar
Kvaran sellóleikari, Einar Jóhannesson
klarínettuleikari, Martin Berkofsky
píanóleikari og Anna Málfríður Sigurðar-
dóttir píanóleikari. Allur ágóði af tónleik-
unum rennur til byggingar Tónlistarhúss
á íslandi.
Kammermúsíkklúbburinn
Sjöttu tónleikar á starfsárinu 1986-1987
verða haldnir miðvikudaginn 29. apríl kl.
20.30 í Bústaðakirkju. Flytjendur verða
Márkl-kvartettinn frá Vestur-þýskalandi
og Ásdís Þorsteinsdóttr Stross, fiðla. Á
efnisskránni verða verk eftir Josef Haydn,
Wolfgang Amadeus Mozart og Wilhelm
Kempff.
Fræðslufundur Fáks
Síðasti fræðslufundur Fáks verður
haldinn í Fáksheimilinu fimmtudag-
inn 30. apríl næstkomandi og hefst
klukkan 20.30. Ferðalög og ferðamál
verða aðalumræðuefnið og munu
annálaðir ferðagarpar og náttúru-
unnendur, þeir Kristján Guðmunds-
son, bæjarstjóri í Kópavogi, og Gísli
B. Björnsson auglýsingateiknari
segja frá ferðalögum sínum en þó
sérstaklega frá ferð síðastliðið sumar
um Fjallabaksleið syðri. Einnig
munu þeir sýna litskyggnur úr ferð-
inni og svara fyrirspurnum um
undirbúning og tilhögun ferðalaga.
Afmæli
95 ára afmæli á í dag, 28. apríl, Ein-
ar Jónsson, fyrrum símaverkstjóri,
Garðaflöt 23. Éinar hefur lengst af
búið á Laugavegi 145. Hann tekur á
móti gestum í Domus Medica í dag
kl. 16-20.
Skoðanakönnun:
Nær 70 prósent
horfðu á báðar
stöðvamar
í skoðanakönnun, sem Stöð 2 lét
SKÁÍS framkvæma, um á hvora
sjónvarpsstöðina fólk horfði á kosn-
inganóttina, kemur í ljós að 68,5%
horfðu á báðar sjónvarpsstöðvamar
eða rúmlega tveir þriðju sjónvarpsá-
horfenda. 16,1% sögðust hafa horft
bara á ríkissjónvarpið, 8,9% sögðust
hafa bara horft á Stöð 2 en 6,5%
sögðust ekki hafa horft á sjónvarp.
Þegar spurt var á hvora stöðina
fólk hefði horft meira var næstum
um jafntefli að ræða en 16,8% sögð-
ust hafa horft á báðar jafnt. Aftur á
móti sögðu 73% að skemmtiatriðin
á Stöð 2 hefðu verið góð en aðeins
31,4% að þau hefðu verið góð hjá
ríkissj ónvarpinu.
Nánast enginn munur var á mati
manna á myndrænni framsetningu
stöðvanna né á mati manna á frétta-
flutningi þeirra. -S.dór
Bankamenn á
samningafundi
ffam á nótt
Bankamenn og viðsemjendur
þeirra sátu á samningafundi til
klukkan 3 í nótt og hefur annar
fundur verið boðaður klukkan 18 í
dag.
Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar
sáttasemjara hefur allmikið verið
unnið í starfsnefndum og verður svo
áfram. Guðlaugur sagði að ef samn-
ingar hefðu ekki tekist fyrir laugar-
dag yrði hann, samkvæmt lögum,
að hera fram sáttatillögu sem greiða
verður atkvæði um í Félagi banka-
manna þar sem félagið hefur boðað
verkfall 8. maí.
Nokkrir hópar eiga enn í samning-
um, svo sem línumenn og rafvirkjar
hjá Rafmagnsveitum ríkisins, raf-
eindavirkjar hjá Pósti og síma og
Ríkisútvarpinu og nokkur félög op-
inberra starfsmanna eru í beinum
samningaviðræðum við ríkið ón
milligöngu ríkissáttasemjara.
Síðan er starfsfólk flugfélaganna
allt eftir og er búist við að samninga-
viðræður þar fari af stað innan tíðar.
-S.dór