Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Side 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Telly Savalas
er ennþá í sjöunda himni yfir nýj-
asta afkvæminu. Sú stutta heitir
Ariana, fæddist í byrjun ársins og
er snöggtum hárprúðari en faðir
hennar. Fyrir átti karlinn upp-
komna dóttur og tveggja ára son
en yngsta barnið stendur hjarta
hans næst. Telly er sagður fjöl-
skyldufaðir af gamla skólanum en
þó sinnir hann börnum sínum af
meiri áhuga en gengur og gerist
með jafnaldrana.
Rock Hudson
og Liberace voru elskendur á ár-
unum í kringum fimmtíu ef marka
má nýútkomið bókarkorn vestra.
Síðari elskhugar Rocks hafa reynt
að þræta fyrir fréttirnar og segjast
þess fullvissir að Rock hefði ein-
hvern tímann lekið þessum
upplýsingum ef réttar væru. En
bókarhöfundur lætur ekki deigan
síga þrátt fyrir tortryggni margra
lesenda - hann segist hafa þetta
beint eftir Rock á síðustu mánuð-
unum fyrir andlátið og hafi þessir
atburðir átt sér stað þegar Rock
var óþekktur í Hollívúdd en Liber-
ace hins vegar orðinn stjarna.
Þeir hafi gætt þess vandlega þæði
þá og síðar að ekkert fréttist -
meðal annars með því að heilsast
rétt til málamynda á almannafæri
og sá siður entist þeim báðum til
æviloka.
Debra Winger
er komin sjö mánuði á leið að sínu
fyrsta barni. Hún hefur lítið sést á
ferli en fór um daginn í bæjarferð
í Los Angeles til þess að kaupa
sér loftkælingartæki. Sem kunn-
ugt er féll kappinn Robert
Redford marflatur fyrir Debru eftir
eitt lengsta hjónaband sem vitað
er um í Hollívúdd og var karli
hent úr heimahúsum fyrir vikið.
Nú mun Robert kominn með
tærnar rétt inn fyrir dyrakarminn
hjá sinni ástkæru eiginkonu og
sú hressa Debra komin með nýjan
karl og verðandi krakkakríli upp á
arminn.
-■■■;■.'.■■■■:
Fararstjórnin sem sá um framkvæmdahliðina fyrir fjörutíu árum - Vilbergur
Júlíusson, Páll Gíslason og Hermann Ragnar Stefánsson.
Björn Björnsson ásamt eiginkonu sinni, Jónu Finnbogadóttur.
Fyrir skömmu komu saman í
Víkingasalnum á Hótel Loftleiðum
þrælhressir kappar sem áttu saman
góðar stundir fyrir réttum fjörutíu
árum. Þessir fyrrum og jafnvel
núverandi - skátar fóru til Frakk-
lands á skátamót og dvöldu þar í
góðu yfirlæti i héraðinu Mondial í
Norður-Frakklandi. Um eitt hundr-
að manns mættu til leiks núna -
margir með makann upp á arminn-
og komu þeir hvaðanæva af landinu.
Akureyri, Isafjörður, Keflavík og
Vestmannaeyjar áttu sína fulltrúa
ásamt höfuðborgarsvæðinu og öðr-
um smærri stöðum.
Sumir höfðu ekki sést aftur öll
þessi fjörutíu ár og urðu þar fagnað-
arfundir. Skemmtunin þótti takast
mjög vel og hefur nú þegar verið
ákveðin Frakklandsferð hin síðari.
Farið verður í lok ágústmánaðar,
dvalið í Parísarborg en gamlar slóðir
í Mondial sóttar heim. Að þessu sinni
taka makarnir einnig þátt í ævin-
týraferðinni.
Makarnir María Eyjólfsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir og Unnur Arngríms
dóttir með Frakklandsfarann Þórarin Guðmundsson á milli sín.
Hjónin Guðmundur G. Pétursson og Kristjana Gunnarsdóttir.
Reifabörn í Rússíá
Það er víst eins gott fyrir sovéska
borgara að venjast hömlum frá
blautu barnsbeini. Þessi nýfæddu
kríli komu í heiminn í Tadzhikistan
þar sem enn er til siðs að vefja
börn reifum því hald manna er að
það dragi úr gráti þeirra eftir
mjúku móðurbrjóstinu. Og sem sjá
má er mannfjölgunin í aldeilis al-
veg ágætu gengi þama austur frá
og dúðarnir ekki sparaðir á smá-
vaxna kroppana.