Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Side 29
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987.
29
tgff!
.
Simamynd Reuter
Tíska:
Krókó-
hattur
r
a
ströndina
Tískan fæðist ekki eingöngu á
teikniborðum meistaranna heldur
einnig manna á meðal - úti um
stræti, strendur og torg. David Dai-
ley frá Bloomfíeld telur krókódíls-
kjaft það eina rétta höfuðfat þegar
sólin skín sem skærast og með uppá-
haldshattinn á höfðinu mætti karl
til leiks á New Orleans Jazz & He-
ritage hátiðina í New Orleans. Bæði
maður og hattur brostu sínu blíðasta
og vöktu einlæga athygli annarra
hljómleikagesta á ströndinni.
Blíðan í Brussel
PasKarmr naia verio meo eindæmum góðir á meginlandinu og hitinn i Brussel dró metfjölda af borgarbúum o
ferðamönnum út á stræti og torg. Hin tuttugu og átta ára gamla Anne Van Acker kældi sig í úðanum frá gos
brunnunum á Place de L’Albertin og var þá stundina hæstánægð með lifið og tilveruna. Símamynd Reuter.
Páskamáltíð hrægammaima á Bahia
Hrægammarnir á brasilísku ströndinni Bahia héldu hérlega veislu nú um páskana. Um það bil eitt þúsund hvalir
syntu á land og luku ævidögunum sem stórsteik hinna fiðruðu sorphreinsunarmanna strandarinnar. Ekki er getiö
um viðbrögð Sea Shepherd við athæfinu. Símamynd Reuter
unnar
Bomban Dolly Partón er orðin
mjó sem þvengur eftir að hafa
skafið af eigin skrokki ein tutt-
ugu og þrjú kíló á einu bretti.
„Það er dásamlegt að fólk skuli
núna tala meira um mittismál
mitt en brjóstmálið," segir sú
hamingjusama Dolly. Á meðfylgj-
andi Reutermynd stillir ljóskan
sér upp í níðþröngum teygjubux-
um með zeromynstri og brosir út
í bæði - alsæl með sina nýju
skrokkskjóðu.
Mittismál
Parton-
ljósk-
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Kevin McEnroe
mun eignast systkini í lok ágúst-
mánaðar og þá ætlar hans frægi
faðir - John McEnroe - að helga
sig heimilishaldi og barnauppeldi.
Þetta er víst ráðstöfun sem miðar
að því að gera Tatum O'Neal
kleift að taka upp aftur leikferilinn
og eru ýmsir með efasemdir um
ágæti þessara framtíðaráforma.
Sá stutti Kevin hefur lítið látið frá
sér fara um málið ennþá en þess
verður vart langt að biða, hann á
eina skapmestu foreldra sem um
getur á jarðarkringlunni og hafi
eplið fallið í nálægð eikarinnar
heyrist eitthvað úr því horninu
von bráðar.
og Arne Næss verða foreldrar al-
veg á þessu ári. Bæði eiga þau
þrjú börn fyrir í fyrri hjónaböndum
og þvi er þetta sjöunda stykkið
sem bætist við núna i október.
Það verða varla umtalsverðir fjár-
hagserfiðleikar þótt einn munnur
bætist í hópinn og engin vand-
ræði fyrirsjáanleg með vöggu-
vísnasönginn. Diana hefur tekið
að sér raulið nokkur fyrstu árin
en margmilljónarinn Arne mun sjá
um fjárhagshliðina. Það verður
allt eins og á jóladaginn í þeim
herbúðunum á næstu mánuðum
og árum.
Margrét
Þórhildur
Danadrottning
er ekki einungis fær þjóðhöfðingi
og fimur teiknari. Hún stjórnar
heimilisbókhaldinu með harðri
hendi og færir inn hvern aur og
hverja krónu sem inn og út úr
þeim reikningi veltur. Þegar vara-
sjóðurinn fer að skreppa saman
skrúfar Margrét fyrir allt bruðl í
allangan tíma og þora herrarnir
þrir, sem hún hefur á heimili,
hvorki að æmta né skræmta þegar
sparnaðarkast kemur yfir kerlu.
Kunnugir segja járnfrúna bresku
hreinasta gæludýr miðað við
þann danska þjóðhöfðingja sem
tekur öllum öðrum fram þegar
harðstjórnin á heimavelli er ann-
ars vegar.