Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1987, Blaðsíða 10
28 MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1987. Afleysing í mötuneyti Starfskraftur óskast til aðstoðar í mötuneyti í 3 mán- uði, hálft starf. Vita- og hafnamálaskrifstofan, Seljavegi 32, sími 27733. LAUSAR STÖÐUR HJÁ RE YKJAVÍKURBORG Mæðraheimili Reykjavíkurborgar óskar eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingar og einnig í fullt starf. Upplýsingar gefur forstöðumaður alla virka daga frá kl. 8.00 til 16.00 í síma 25881. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, sem fyrst á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Staða forstöðumanns við leikskólann Árborg, Hlaðbæ 17. Fóstrumenntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 24. maí 1987. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri og um- sjónarfóstrur á Dagvist barna í síma 27277. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Matreiðslumaður óskast til sumarafleysinga á dvalar- heimili aldraðra, Dalbraut 27. Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar. Upplýsingar gefur forstöðumaður mötuneytis í síma 685377. Umsóknum ber að skila til stadsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, sem fyrst á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. GARÐABÆR V bæjarstjóri Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir laust til umsóknar starf bæjarstjóra. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 21. maí nk. Umsóknum skal skilað til forseta bæjarstjórnar, Sveinatungu v/Vífilsstaðaveg, Garðabæ. Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, Jón Gauti Jónsson, í síma 42311 eða forseti bæjarstjórnar, Lilja Hallgrímsdóttir, í síma 42634. Bæjarstjóri. SVÆÐISSTJÖRN MÁLEFNA FATLAÐRA, AUSTURLANDI, KAUPVANGI 6, 700 EGILSSTAÐIR ÞROSKAÞJÁLFAR - KENNARAR - FÓSTRUR Staða forstöðumanns á sambýli, Stekkjartröð 1, Egils- stöðum, er laus til umsóknar frá og með 1. ágúst nk. Æskilegast væri að viðkomandi væri með ofangreinda menntun en önnur fagmenntun á þessu sviði kemur til greina. Laun samkvæmt kjarasamningum BSRB og ríkisins. Umsóknarfrestur er tii 25. maí nk. Nánari upplýsingar gefur Sigríður í síma 97-1833 eða Agnes í síma 1877. Iþróttir dv • Verðlaunaafhending fór fram er keppni var lokið og hér sjást keppendur i unglingaflokki biða eftir verðlaunum sínum. DV mynd E.J. Unglingamir nýttu tækifærið vel íþróttamót Fáks hafa sífellt orðið stærri og viðameiri með hveiju árinu sem líður. Unglingar hafa oft fengið litla athygli en nú var ákveðið í vor að böm og unglingar fengju heila helgi til umráða. Unglingam- ir voru auðvitað ósköp fegnir því að fá að sýna hvað í þeim býr. En því miður hittist svo á að kynbótadómar fóru fram um sömu helgi í Víðidalnum þannig að knapamir fengu ekki þá athygli sem þeim bar. En keppnin fór vel fram. Veðrið var gott, sól hiti og logn á Hvammsvelli. Knap- ar voru snyrtilega klæddir og reiðmennska hæg og hljóð en þó ákveðin. Það er áber- andt hve krakkamir eru vel ríðandi og hve vel þau umgangast hestana sína. Reið- skólar hafa séð til þess. Það voru því táknræn högg smiðanna sem negldu þak- saum í reiðhöllina sem gnæfði fyrir ofan Hvammsvöllinn. Erfitt reyndist að fá dómara þvi mörg mót voru haldin um þessa helgi á Reykja- víkursvæðinu. Því urðu dómarar frá Fáki að hlaupa í skarðið. Slíkt er ávallt slæmt. En dómaramir stóðu fyllilega fyrir sínu. Þeir voru: Ragnar Tómasson, Tómas Ragnarsson, Hinnk Bragason, Hulda Sig- - á íþróttamóti Fáks urðardóttir, Orri Snorrason og Þorvaldur Kristinsson. Ein breyting hefur verið gerð á tölt- keppni bama. Áður riðu börn einn hring á hægu tölti en tvo með hraðabreytingum en nú sýna bömin sömu atriði og þeir full- orðnu. Úrslit urðu þessi: í tölti bama sigraði Sigurður Matthíasson á Gassa, Þorvaldur Á. Þorvaldsson varð annar á Tvífara og Róbert Petersen þriðji á Þorra. I fjórum gangtegundum bama sigraði Sig- urður Matthíasson á Gassa, Hjörný Snorradóttir varð önnur á Stirni og Jón Steindórsson þriðji á Sörla. í töltkeppni unglinga sigraði Ragnhildur Matthlas- dóttir á Bróður, Jón Ól. Guðmundsson varð annar á No Name og Ingibjörg Guð- mundsdóttir þriðja á Þyrli. í fjórum gangtegundum unglinga sigraði Eyjólfur Pálmason á Hörða, Jón Ól. Guð- mundsson varð annar á No Name og Reynir Þrastarson þriðji á Tenór. Friðrik Hermannsson sigraði í fimm gangtegund- um á Þresti, Hjömý Snorradóttir varð önnur á Heródesi og Edda Rún Ragnars- dóttir þriðja á Emi. Róbert Petersen sigraði í hlýðniæfingum á Þorra, Hjömý Snorradóttir varð önnur á Stimi og Gísli Geir Gylfason þriðji á Flugari. Sigurður Matthíasson sigraði í hindrunarstökki á Gassa, Hjömý Snorradóttir varð önnur á Stimi og Auðunn Kristjánsson þriðji á Snúð. Hjömý Snorradóttir sigraði í ólympískri tvíkeppni, Sigurður Matthíasson, sem keppti í fjórum greinum og vann þær all- ar, vann íslenska tvíkeppni og varð stiga- hæstur knapa í barnaflokki en í flokki unglinga varð stigahæstur knapa Auðunn Kristjánsson. Jón Ólafur Guðmundsson vSnn íslenska tvíkeppni unglinga. Sér- staka viðurkenningu fengu þær Ragn- hildur Matthíasdóttir og Elín Rós Sveinsdóttir frá Kolbrúnu Kristjánsdóttur, æskulýðsfulltrúa Landssambands hesta- manna, fyrir góða umhirðu hesta sinna. Það var áberandi hve knapar í bama- flokki vom sigursælir þegar þeir kepptu við knapa í unglingaflokki. Til dæmis má nefna þær Hjömýju og Eddu Rún, sem gerðu það gott í fimm gangtegundum í bamaflokki, svo og Sigurð Matthíasson, Róbert Petersen og Gísla Geir Gylfason sem unnu til verðlauna í hindrunarstökki og hlýðniæfingum. -EJ Gott mót hjá Gusti Gustarar í Kópavogi héldu íþróttamót sitt um síðustu helgi í góða veðrinu. Þátt- taka var ágæt. Erfiðlega gekk þeim að fá dómara en það hafðist þó að lokum. Þó dæmdu einungis þrír dómarar nokkur sýn- ingaratriði. Helstu úrslit urðu þessi: 1 hfýðnikeppni sigraði Jón Gísli Þorkelsson á Stíganda, Bjami Sigurðsson var annar á Fáfni_ og Siguijón Gylfason þriðji á Hörpu. í hindrunarstökki sigraði Hjördís Einarsdóttir á Punkti, Bryndís Einars- dóttir, systir hennar, var önnur á Funa og Jóhannes Öm Erlingsson þriðji á Hnokka. I töltkeppni unglinga sigraði Sigrún Erlingsdóttir á Hregg, Hjördís Ein- arsdóttir var önnur á Punkti og Magnús R. Magnússon þriðji á Þyt. í töltkeppni bama sigraði Jóhannes Öm Erlingsson á Hrafnfaxa, Bryndís Einarsdóttir var önnur á Funa og Sigrún Þosteinsdóttir þriðja á Hrönn. í fjórum gangtegundum unglinga sigraði Haraldur Ö. Gunnarsson á Loga, Sigrún Erlingsdóttir var önnur á Hregg og Hjördís Einarsdóttir þriðja á Punkti. I fjórum gangtegundum bama sigraði Gríma Sóley Grímsdóttir á Sikli, Sigrún Þorsteinsdóttir var önnur á Hrönn og Erla Hrönn Geirsdóttir þriðja á Buslu. I fjórum gangtegundum fullorðinna sigraði Jón Gísli Þorkelsson á Stíganda, Georg Kristjánsson var annar á Herði og Sigur- jón Gylfason þriðji á Hörpu. I fimm gangtegundum ftdlorðinna sigraði Bjami Sigurðsson á Hæringi, Jón Gísli Þorkels- son var arrnar á Svip og Baltasar K. Samper þriðji á Kormáki. f töltkeppni full- orðinna sigraði Georg Kristjánsson á Herði, Jón Gísli Þorkelsson var annar á Stíganda og Siguijón Gylfason þriðji á Hörpu. I gæðingaskeiði sigraði Benedikt Garðarsson á Læsingu 6882, Baltasar K. Samper var annar á Kormáki og Svanur Halldórsson þriðji á Griý. Jón Gísli varð stigahæstur knapa og hann vann einnig ólympíska tvíkeppni. Georg Kristjánsson vann íslenska tví- keppni fullorðinna, Haraldur Öm Gunn- arsson íslenska tvíkeppni unglinga og Bryndís Einarsdóttir íslenska tvikeppni bama. Hún varð einnig stighæst knapa í bamaflokki en Magnús R. Magnússon varð stigahæstur í unglingaflokki. Bene- dikt Garðarsson sigraði í skeiðtvíkeppni. • Fimm stúlkur komust í úrslit í fjórum gangtegundum i barnaflokki. DV-mynd E.J.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.