Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAI 1987.
Uflönd
Óttast um
ellefu Ivf
óttast er að ellefu manns hafi
látið lífið þegar §ögurra hæða
íbúðarbygging hrundi í hverfi mú-
hameðstrúarmanna i Beirút í
Líbanon í gær.
Ekki var vitað hvað orsakaði
slysið í húsinu, en lögreglan í borg-
inni segir að burðarveggir þess
hafí skaddast verulega í innrás
ísraelsmanna í Líbanon árið 1982.
Greina kannabis
á andadrætti
Tæknimenn í Ástralíu segjast
hafa hannað tæki sem lögreglan
getur notað til þess að greina á
andardrætti fólks hvort það hefur
neytt kannabis-fíkniefha. Tæki
þetta er nógu smátt til þess að
hafa í lögreglubifreiðum og er búist
við að það verði tekið í notkun á
götum úti innan tíðar.
Segja sérfræðingar að með tæki
þessu megi greina hvort einstakl-
ingur hafi neytt kannabis-efha, allt
að átta dögum eftir neyslu.
Þá er talið að hægt verði að
nota tæki þessi til þess að greina
notkun amfetamíns.
Aftökur í Kóreu
Fimm morðingjar voru teknir af
lífi í Kóreu í gær, en aftökur þeirra
eru hluti af mikilli herferð yfir-
valda í landinu gegn ofbeldisverk-
um.
Tveir þeirra, sem teknir voru af
lífi, höfðu einnig framið nauðgan-
ir, þar af hafði einn nauðgað og
myrt þrjár ungar skólastúlkur.
Annar þeirra nauðgaði mágkonu
sinni, eftir að hann myrti eigin-
konu sína og tengdamóður.
Suður-Kóreumenn tóku þrettán
manns af lífi á síðasta ári, fyrir
kynferðisafbrot.
Mistókst
flugránið
Einn starfsmanna flugvallarins á
Fijieyjum gerði í gær tilraun til
þess að ræna jumbóþotu frá flugfé-
laginu Air New Sealand. Um borð
í þotunni voru liðlega hundrað
farþegar, flestir þeirra Japanir, og
liðlega tuttugu manna áhöfh, en
þotan var á leið frá Nýja-Sjálandi
til Tokýo.
Áhöfri þotunnar tókst nokkru
sfðar að yfirbuga manninn.
Þingmaður
handtekinn
Einn af þingmönnum breska
íhaldsflokksins var í gær hand-
tekinn, sakaður um að hafa keypt
ólöglegt magn af hlutabréfum í
breska fyrirtækinu British
Telecom, sem sett var á almennan
markað á síðasta ári.
Þingmaðurinn, Keith Best, hefur
viðurkennt að hafa sent inn ólög-
legan fjölda umsókna um hluta-
bréfakaup i fyrirtækinu, og að hafa
notað mismunaridi nöfh og heim-
ilsföng í þeim tilgangi.
Mál þetta, sem og svipað mál
gegn öðrum þingmanní íhalds-
flokksins, Eric Cockeram, eru talin
kosta flokk þeirra nokkurt fylgi,
en hvorugur þeirra sækist eftir
endurkjöri.
Rttsljóri
rekinn
Miroslav Visic, aðalritstjóri
júgóslavneska vikuritsins Student,
var í gær rekinn úr starfi fyrir að
hafa móðgað kommúnistaflokk
landsins og fyrrum leiðtoga þess,
Josip Broz Tito.
Stjómvöld í Júgóslavíu segja að
í síðustu þrem tölublöðum ritsins
hafi hann gróflega móðgað bylt-
inguna, sett sig á móti kenningum
kommúnistaflokksins og móðgað
Tito.
Vamarkerfið ekki notað
Ólafur Amaison, DV, New York
Nú er ljóst að tuttugu og átta
manns fórust og að minnsta kosti
tuttugu og einn særðist í eldflauga-
árás íraskrar herþotu á bandarísku
freigátuna Stark í fyrrakvöld.
Enn hefur engin skýring verið gef-
in á þessari árás sem er sú mann-
skæðasta frá því að árásir á skip á
flóanum hófust fyrir alvöru árið
1984.
Saddam Hussein, forseti Iraks,
sendi í gær orðsendingu til Reagans,
forseta Bandaríkjanna, þar sem
hann segist vona að þetta slys mundi
ekki hafa áhrif á samband ríkjanna.
Reagan sagði í gær að Bandaríkin
myndu krefjast bóta, bæði vegna
manntjóns og skemmda á freigát-
unni.
í Bandaríkjunum hefur árásin
kallað fram mikla reiði og mikla
sorg. Seint í gærkvöldi var ekki búið
að tilkynna nöfn fallinna og særðra.
Biðu því margar fjölskyldur milli
vonar og ótta eftir ffegnum af því
hvort ástvinir væru heilir á húfi eða
fallnir í valinn.
Meðal stjómmálamanna hafa
vaknað spumingar um það hvort
það þjóni einhverjum tilgangi fyrir
Bandaríkin að vera með herskip á
Persaflóa til að tryggja óhefta skipa-
flutninga. Vilja margir bera ástandið
nú saman við það sem var þegar
bandarískir landgönguliðar vom
staðsettir í Beirút.
Ein af þeim spumingum, sem
ósvarað er, er sú hvers vegna freigát-
an reyndi ekki að verja sig en
yfirmenn hennar vissu af árásinni
að minnsta kosti einni mínútu áður
en skipið varð fyrir eldflauginni.
Stark er búið fullkomnu vamarkerfi
sem nefhist Phalanx. Slíkt kerfi á
að finna og eyða eldflaugum áður
en þær valda tjóni.
I gærkvöldi var ennþá eldur um
borð í Stark og verið var að draga
freigátuna vélarvana til hafnar í
Bahrain. Ekki er búist við að niður-
stáða fáist um það hvers vegna
vamarkerfið var ekki notað fyrr en
ró verður komin á um borð og hægt
verður að ræða við skipstjórann.
Reagan hefur fyrirskipað öllum
bandarískum herskipum á þessum
slóðum að vera í viðbragðsstöðu.
Það þýðir að allar íranskar og íra-
skar flugvélar, sem grunsamlegar
þykja og ekki gera grein fyrir ferðum
sínum, verða skotnar niður.
Árás þessi kom sérstaklega á óvart
vegna þess að Bandaríkjamenn hafa
verið fremur hliðhollir írökum í
Persaflóastríðinu.
Verkamanna-
flokkurinn sígur
á íhaldsmenn
Nýjar skoðanakannanir á Bret-
landseyjum virðast benda til þess að
Verkamannaflokkurinn sígi nú á
íhaldsflokk Margareth Thatcher for-
sætisráðherra þótt íhaldsmenn haldi
enn nokkm forskoti. Niðurstöður
fyrstu skoðanakannana sem gerðar
hafa verið síðan Thatcher rauf breska
þingið og boðaði kosningar þann 11.
júní næstkomandi em þær að íhalds-
menn njóti 41 % fylgis, Verkamanna-
flokkur 33% og kosningabandalag
frjálslyndra og sósíaldemókrata hafi
um 24 % fylgi meðal kjósenda.
Önnur skoðanakönnun, sem gerð
var fyrir BBC, sýndi að fylgi íhalds-
manna er nú 41.5%, Verkamanna-
flokks 32.5 % og kosningabandalags-
ins 24 %.
Tölur þessar virðast benda til þess
að íhaldsmenn, sem nú stefha að því
að hljóta meirihluta á breska þinginu
þriðja kjörtímabilið í röð, fái sextíu
og sex sæta meirihluta.
Aðrar skoðanakannanir hafa bent
til þess að íhaldsmenn hljóti hundrað
þrjátíu og tveggja sæta meirihluta.
Kosningabaráttan á Bretlandseyjum
hófst formlega í byrjun þessarar viku.
I gær hóf kosningabandalag frjáls-
lyndra og sósíaldemókrata sína
baráttu með blaðamannafundi þar sem
þeir nafnamir David Steel, leiðtogi
frjálslyndra, og David Owen, leiðtogi
sósíaldemókrata, skröfuðu við fjöl-
miðla. Þeir lögðu síðan upp í kosn-
ingaferðalög, hvor í sína áttina.
Vonast leiðtogar kosningabanda-
lagsins til þess að hljóta nægilega
mörg þingsæti til að koma í veg fyrir
hreinan meirihluta íhaldsmanna og
knýja þannig fram samsteypustjóm á
Bretlandi.
Leiðtogar kosningabandalags frjálslyndra og sósíaldemókrata, þeir David Ste-
el og David Owen, hófu kosningabaráttu sína opinberlega i gær. Bandalag
þeirra hefur, að þvi er skoðanakannanir benda til, töluvert fylgi en það nýtist
þeim illa til þingsæta. Símamynd Reuter