Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Qupperneq 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987.
Andlát
Víglundur Möller skrifstofustjóri
lést 8. maí sl. Hann fæddist 6. mars
1910. Foreldrar hans voru Elínborg
Björnsdóttir og Ludvig Möller.
Lengst af starfaði Víglundur hjá
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur sem að-
albókari og skrifstofustjóri. Um
árabil skrifaði hann í dagblaðið Vísi,
ritaði t.d. forystugreinar blaðsins.
Að auki sinnti hann margvíslegum
félagsmálastörfum. Víglundur var
tvíkvæntur. Fyrri kona hans var
Margrét Sveinsdóttir en hún andað-
ist árið 1941. Seinni kona hans var
Helga Ásta Þórarinsdóttir, hún lést
íyrir nokkrum árum. Víglundur
eignaðist þrjár dætur. Utför hans
verður ferð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 15.
Marta Guðmundsdóttir frá Lauf-
ási lést 13. maí sl. Hún fæddist í
Stykkishólmi þann 27. júlí 1901. Hún
giftist ung eftirlifandi eiginmanni
sínum, Þórhalli Guðmundssyni. Þau
hjónin eignuðust 9 börn og eru 7 á
lífi. Útför Mörtu verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Ólafur Ingibersson lést 11. maí sl.
Hann fæddist 5. apríl 1913, sonur
hjónanna Ingibers Ólafssonar og
Marinar Jónsdóttur. Ólafur bjó í
Keflavík allan sinn aldur og vann
lengst af sem bifreiðarstjóri. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Marta
Eiríksdóttir. Þeim hjónum varð 10
barna auðið. Útför Ólafs verður gerð
frá Keflavíkurkirkju í dag kl. 14.
Helga Pálína Sigurðardóttir lést í
Kaupmannahöfn 13. maí.
Kristbjörg Sveinbjarnardóttir,
fyrrum húsfreyja á Högnastöðum,
lést á heimili sínu 16. maí.
Óskar Jón Guðjónsson lést laugar-
daginn 16. maí.
Helgi Stefánsson frá Haganesi,
Mývatnssveit, til heimilis á Háteigs-
vegi 11, lést sunnudaginn 17. maí í
Landakotsspítala.
Haraldur Sigurðsson lést 6. maí sl.
Hann fæddist í Reykjavík 24. ágúst
1894, sonur Sigurðar Jónssonar og
fyrri konu hans, Helgu Einarsdóttur.
Haraldur hóf störf sem bréfberi við
pósthúsið í Reykjavík árið 1920 og
það varð ævistarf hans. Hann giftist
Signýju Eiríksdóttur en hún lést árið
1960. Þeim hjónum varð tveggja
barna auðið. útför Haraldar verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
13.30.
Sigurður Skúlason magister,
Hrannarstíg 3, lést í Landspítalanum
16. maí sl.
Jóhanna Guðbjörg Guðlaugsdótt- ’
ir, Fjólugötu 9, Akureyri, lést á
heimili sínu laugardaginn 16. maí.
Ingólfur Jónsson, Löngufit 11,
Garðabæ, lést í Landspítalanum
laugardaginn 16. maí.
Kristján Jóhann Kristjánsson,
Miðvangi 31, Hafnarfirði, lést á gjör-
gæslu Borgarspítalans að morgni 16.
mai.
Daníel Kristinsson, Einarsnesi 54,
lést í Landakotsspítala 13. maí. Jarð-
arförin fer fram í Fossvogskirkju
miðvikudaginn 20. maí kl. 15.
Guðni Á. Þórarinsson húsasmiður,
Miðvangi 41, Hafnarfirði, lést á
heimili sínu föstudaginn 15. maí.
Fjóla Jónsdóttir, Fannborg 1, and-
aðist i Landspítalanum 16. maí.
Útför Þórunnar Þorvaldsdóttur,
fyrrum saumakonu á Siglufirði,
verður gerð frá Kapellunni í Foss-
vogi miðvikudaginn 20. maí kl. 13.30.
María Guðmundsdóttir frá Lækj-
arbug, Mýrum, verður jarðsungin frá
Borg á Mýrum laugardaginn 23. maí
kl. 13.30. Jarðsett verður á Ökrum.
Tórúeikar
Einleikaraprófstónleikar í
Norræna húsinu
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur
tvenna einleikaraprófstónleika í Norræna
húsinu í dag 19. og miðvikudag 20. maí. í
I gærkvöldi
Sigríður Hannesdóttir leikari:
„Nota takkana á tækjunum‘
Ég sá þáttinn Já, forsætisráðherra
og mér finnst húmorinn þar alveg
ná í botn fyrir okkur. Ég sá auðvitað
þáttinn Ég gleðst hvem dag, með
Jóni Guðmundssyni, og var mjög
ánægð með hann.
Ég gafst upp á að horfa á drullu-
mallið Marx og kóka-kóla svo ég
notaði bara þennan takka sem er á
sjónvarpinu, slökkti og hlustaði á
útvarpið í staðinn. Ég er þó ekki ein
á heimilinu svo Dallas á Stöð 2 var
sett í gang skömmu seinna. Ef mað-
ur hefur séð einn slíkan þátt þá hefur
maður séð þá alla en maður þarf að
vera sérstaklega stemmdur til að
nenna að eyða tima í að horfa á
þessa þætti.
Það er minnsti vandinn að svissa
yfir á útvarpið ef maður vill ekki
horfa á sjónvarpið, það er þroskandi
og hvílir hugann. Ég hlustaði á at-
hyglisverðan þátt um sorg og
sorgarviðbrögð. Þar var dregin fram
Sigriður Hannesdóttir.
mynd af einum sem má sín minna í
þjóðfélaginu, konu sem hefur brotn-
að niður margoft og er búin að missa
niður meira en sjálfstraustið. Ég
held að það sé gott að fólk viti af
þessari hlið í þjóðfélaginu og það
hjálpar einnig þeim sem eru í álíka
raunum að vita að þeir eru ekki ein-
ir um þær. Mér finnast svona þættir
ná betur í gegn í útvarpi heldur en
sjónvarpi. I útvarpi getur fólkið tal-
að mun óhindraðra en í sjónvarpi
geta myndavélar og ljóskastarar
truflað.
Ég var nú heldur betur ánægð með
Kvöldtónleikana, það er mjög hollt
fyrir svefninn að hlusta á svona góða
tónlist. Það er alltaf svo auðvelt að
setja út á allt en mér finnst sjón-
varpið og útvarpið bara mjög gott,
ef það er eitthvað sem mér líkar
ekki þá nota ég þessa takka sem eru
á tækjunum og finn eitthvað í út-
varpi eða sjónvarpi sem mér líkar.
Það vill nefiiilega brenna við að fólk
sitji hálflamað fyrir framan sjón-
varpið og viti svo ekki einu sinni
hvemig myndin endaði. I svoleiðis
tilvikum er um að gera að notfæra
sér fjölbreytta dagskrá og svissa yfir
á eitthvað annað.
kvöld kl. 21 eru tónleikar Emils Friðfinns-
sonar hornleikara. Hann flytur verk eftir
Beethoven, Strauss, Saint-Saens, Berger
og Hindemith. Krystyna Cortes leikur með
á píanó. Miðvikudaginn 20. maí kl. 21 eru
tónleikar Helgu Bryndísar Magnúsdóttur
píanóleikara. Helga leikur verk eftir J.S.
Bach, Beethoven, Chopin og Ginastera.
Þessir tónleikar eru síðari hluti einleik-
araprófs Emils og Helgu. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Tilkyimingar
Nýr framleiðslustjóri hjá
Steypustöðinni hf.
Haukur Helgason byggingatæknifræðing-
ur hefur verið ráðinn framleiðslustjóri hjá
Steypustöðinni hf. Auk framleiðslustjórn-
unar mun Haukur hafa með höndum
gæðaeftirlit og rannsóknir á steypu.
Haukur er fæddur í Hveragerði 20. febrúar
1948. Hann lauk prófi í byggingatækni-
fræði frá TÍ 1977, með rekstur og stjórnun
sem valgrein. Bæjartæknifræðingur á
Siglufirði 1978 til 1980 og tæknifræðingur
hjá Hitaveitu Suðumesja 1980 til 1982.
Stundaði kennslu við Iðnskólann og
Meistarskólann í Reykjavík 1983. Frá 1983
starfaði Haukur hjá byggingafulltrúanum
í Reykjavík, einkum við steypueftirlit.
Haukur er giftur Eyrúnu Kjartansdóttur
og eiga þau þijá syni.
Bann við togveiðum
austur af Hvalbak
Þann 12. mars sl. gaf sjávarútvegsráðu-
neytið út reglugerð um bann við togveið-
um austur af Hvalbak og átti bannið að
gilda til 15. maí. Svæði þetta var síðan
kannað um síðustu mánaðamót og hefur
ráðuneytið nú ákveðið að framlengja tog-
veiðibannið til 15. júní, að tillögu Haf-
rannsóknarstofnunar þar sem hlutfall
smáþorsks er ennþá hátt á svæðinu.
Þing landssambands Delta
Kappa Gamma
var haldið að Varmalandi í Borgarfirði
1.-3. maí sl. Innan þessara samtaka eru
konur sem vinna að fræðslu- og mennta-
málum. Á íslandi starfa nú 4 deildir og
var ijórða deildin stofnuð á hátíðafundi
að Varmalandi. Tíu ár eru nú liðin frá
stofnun samtakanna á Islandi, en þau eru
hluti af alþjóðasamtökum kvenna. Megin-
verkefni samtakanna er að styrkja konur
til framhaldsnáms, og hafa nokkrar ís-
lenskar konur hlotið slíka námsstyrki.
Gestur fundarins var Dr. Theresa Fechek,
framkvæmdastjóri frá aðalstöðvum í Aust-
in í Texas. Aðalefni þingsins var: Áhrif
myndefnis á börn og unglinga. Fráfarandi
forseti samtakanna er Pálína Jónsdóttir,
Kópavogi, en forseti til næstu tveggja ára
var kjörin Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
Reykjavík. Aðrar í stjórn eru Jóhanna
Þorsteinsdóttir, Akureyri, Jenny Karls-
dóttir, Akureyri, Gerður G. Óskarsdóttir,
Reykjavík, og Sigrún Klara Hannesdóttir,
Reykjavík.
Tímarit
Tímaritið Hár & fegurð
er komið út. Á síðasta ári stóð tímaritið
fyrir hvorki meira né minna en þremur
stórum keppnum. Efni blaðsins er fjöl-
breytt að vanda. 1 blaðinu er kynnt ný
herra tískulína, einnig er kynnt ný lína
fyrir yngri kynslóðina. Stutt rabb við
nokkra þekkta tónlistarmenn um tónlist-
ina og hártískuna. Kynntar eru nýjar
tískusveiflur frá Vidal Sasson. Myndefni
frá galagreiðslum á íslandsmeistaramót-
inu. Stutt rabb við Chico DeBarge um
ísland og hártískuna. Nýr stíll frá Sebast-
ian International. Talað við nokkra
þekkta skemmtikrafta. Zotos Internatio-
nal kynnir tvær útgáfur á permanenti.
Tískuefni frá Jingles International og Al-
an International. Lagðar eru spurningar
fyrir nokkur þekkt gallerí og spurt hvort
listaverk séu góð fjárfesting. Grein frá
París um sokkabönd og áhrif þeirra. Er
íslenskt lambakjöt vafasamt? stutt rabb
við nokkra þekkta matreiðslumenn. I
stuttu spjalli við söngkonuna Haywood
segist hún elska allt þetta ljósa hár.
Afmæli
Sjötíu ára er í dag, 19. maí, Gunnar
Kristinn Guðlaugsson, Karlsbraut
6, Dalvík. Hann var lengi múrari en
síðar verkstjóri, m.a. hjá Dalvík-
urbæ. Hann er nú sláturhússtjóri hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga á Dalvík.
75 ára er í dag, 19. maí, séra dr.
Lambert Terstroet Smm. Séra
Terstroet er af hollensku bergi brot-
inn en hefur verið prestur við
Kapellu St. Jósefs systra í Garðabæ
síðastliðin rúm 5 ár. Sr. Terstroet er
mjög fróður maður og hefur ferðast
um og haldið fyrirlestra um heilaga
ritningu í um 60 löndum.
70 ára afmæli á í dag, 19. maí, Oddur
Sigurbergsson, fyrrum kaupfélags-
stjóri á Selfossi og í Vík, Eiðistorgi
5, Seltjarnarnesi. Kona hans er
Helga Einarsdóttir. Hann er að
heiman.
103 ára afmæli á í dag, 19. maí, frú
Ingibjörg Daðadóttir, Stykkis-
hólmi, ekkja Sigurðar Magnússonar,
fyrrum hreppstjóra, sem látinn er
fyrir nokkrum árum, þá 104 ára gam-
all. Móðir Ingibjargar var María
Andrésdótfir en hún náði því að
verða 106 ára. Afmælisbarnið er nú
á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi, rúm-
föst en ern í anda.