Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Page 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAI 1987.
Spumingin
Er þig farið að lengja
eftir nýrri ríkisstjórn?
Inga Þorsteinsdóttir þroskaþjálfari:
Ætli ég sætti mig ekki við núverandi
ástand, þetta tekur allt sinn tíma.
Þeir eiga örugglega ekki eftir að fara
nokkra hringi enn. Ég bara vona að
Kvennalistinn verði í næstu ríkis-
stjórn, ég myndi treysta honum fyrir
þjóðarskútunni.
Ólafur Eggertsson bóndi: Nei, ætli
það. Þetta tekur allt sinn tíma og
það væri ákjósanlegast að allir
flokkarnir fengju að spreyta sig á
stjórnarmyndun. Ég held nú samt að
starfsstjórnin sé skásti kosturinn fyr-
ir okkur bændurnar. Það er vonandi
að Framsókn gegni lykilstöðu í
næstu ríkisstjórn.
Elvar Reynisson, starfar í blikk-
smiðju: Jú, það hlýtur að fara koma
að þessu. Þeir eru allavega búnir að
fá nægan tíma til viðræðna. Og besta
lokaniðurstaðan væri náttúrlega
Framsókn, Sjálfstæðisflokkur og
Kvennalisti.
Þórir Jóhannsson múrari: Nei, það
liggur ekkert á, þetta er ágætt eins
og þetta er. Ég myndi vilja Sjálfstæð-
isflokk, Alþýðuílokk og Kvennalista
í stjórn saman.
Ingvi Magnússon offsetljósmyndari
Nei, fyrst þeir eru að þessu á annac
borð þá er eins gott að þeir geri þettc
almennilega, að þeir gefi sér góðar
tíma í þetta svo að næsta stjórn verð
höggheld.
Halldór Magnússon skrifstofumaður:
Nei, ekki get ég sagt það. Það ættu
allir að gera sér grein fyrir að þetta
er mjög erfitt og á eftir að taka sinn
tíma. Eg vona bara að Sjálfstæðis-
flokkurinn verði í næstu stjórn.
Lesendur
Eurovision:
„Fimmta flokks amerísk/ensk poppmúsík"
Vilhjálmur Siguijónsson skrifar:
Það er staðreynd að músíkhlustend-
ur, a.m.k. af yngri kynslóðinni í
Evrópu og þá aðallega Vestur-Evrópu,
eru aldir upp við hlustun á fimmta
flokks ameríska og enska poppmúsík.
Það er að segja lög með einföldu síend-
urteknu litlu stefi og ómerkilegum
texta, venjulega tveimur hljómum. Ef
þetta er haft í huga er ekki von að
vel fari þegar almenningur í þessum
löndum á að velja lag í keppni sem
Evrópukeppnina. Ég tel þó að ísland
hafi komist mjög þokkalega frá sinni
stigagjöf. Aftur á móti virðast margir
þeir hlustendur í öðrum löndum sem
völdu stigin hafa annan smekk en ég
sem eðlilegt er.
Ég vil benda á annað atriði sem ég
tel mjög mikilvægt í svona keppni og
þar var okkar framlag misheppnað.
Það var bæði myndbandið sem var
sýnt á undan íslenska laginu og ekki
Sviðsetningin var ekki nógu góð og einnig hefði fólkið sem söng bakraddirnar
og hljómsveitin mátt sjást.
síður sviðsetningin á sjálfu laginu. Þvi
var fólkið sem söng bakraddimar ekki
látið sjást og svo hljómsveitin? En lík-
lega er myndbandið í stigakeppninni
ekki síður mikilvægt til að safna at-
kvæðum.
íslenska lagið tel ég besta lagið og þar
að auki frábærlega vel flutt, ég er
ekki sammála Þuríði Pálsdóttur. Halla
Margrét flutti lagið akkúrat eins og
best var hægt, þar vantaði aðeins betri
sviðsetningu.
Það var um helmingur laga í keppn-
inni góður en hin áttu engin stig skilið.
Mér fannst t.d. mjög erfitt að gera upp
á milli 10 bestu laganna eins og þess
júgóslavneska, sænska, danska og
portúgalska svo einhver séu nefnd.
Ég hafði mjög gaman af keppninni
í heild en hún hefði komið mun betur
út fyrir okkur ef myndbandið hefði
verið betra og sviðsetningin hefði
einnig mátt vera betri.
Innbrotafaraldur
í vesturbænum
Vesturbæingur hringdi:
Ég vildi bara vara vesturbæinga við
þar sem svo virðist sem innbrotafar-
aldur sé að ganga í vesturbænum.
Þetta á sérstaklega við í nýja hús-
næðinu á Gröndunum. Þetta er búið
að standa yfir tæpa tvo mánuði og það
virðist ekkert lát verða á þessu.
Nágrannar mínir hafa sérstaklega
orðið varir við þetta í lokuðum bílskýl-
um og sameiginlegum hjóla- og þvotta-
geymslum.
Þetta getur náttúrlega verið mjög
bagalegt og eina vemdin, sem íbúam-
ir virðast fá hjá lögreglunni, er
skýrslutaka - skýrsla og aftur skýrsla
- en aldrei virðist bóla á þjófunum,
þeir virðast alltaf komast undan.
Getur lögreglan virkilega ekki veitt
okkur borgumnum aðra vemd en
skýrslutöku? Væri ekki meira í áttina
að fylgjast með svæðinu þangað til
þjófarnir nást?
Vonast ég til þess að lögreglan fari
nú að taka til hendinni og komast til
botns í þessu leiðindamáli.
Reykjanesbrautin:
Stórhættuleg meðan
hún er svona illa merkt
Breiðholtsbúi hringdi:
Ekki veitir af að fara að taka
götumar í gegn. Maður keyrir varla
götu á enda hérna í Reykjavík án þess
að verða fyrir einhverjum óþægindum
vegna hola, hversu illa merktar þær
em, svo eitthvað sé nefnt.
Nú ætti Reykjavíkurborg að hafa
sparað heilmikla peninga, allavega
fóm þeir ekki í snjómokstur eða salt-
austur því veðrið hefúr verið ótrúlega
gott í vetur.
Götumar em mjög illa famar og
orðið tímabært að fylla upp í þær og
ekki síst að merkja þær. Tökum t.d.
Reykjanesbrautina sem dæmi, á leið-
inni upp í Breiðholt em þriggja
akreina brautir í báðar áttir. Það er
erfitt eða ómögulegt að greina hverja
akiein fyrir sig, þessar þijár akreinar
virðast renna í einn grautt og um-
ferðarmenningin á þessu svæði er eftir
því. Það hljóta að hafa orðið slys af
þessu og ef ekki þá eiga eftir að verða
slys vegna þess hve illa hver akrein
er afinörkuð.
Oft er þörf en nú er nauðsyn að lag-
færa götumar og merkja, það hlýtur
að vera hægt að nota einhvem pening
sem ella hefði verið notaður í snjóm-
okstur.
Fáar unglinga
myndir
Maria S. skrifar:
Ég er alveg sammála einu lesenda-
bréfi um að Stöð 2 og Rúv sýni allt
of lítið af unglingamyndum. Sem dæmi
mætti nefna að Stöð 2 virðist gera
meira til að gera yngstu áhorfendun-
um til geðs heldur en okkur ungling-
unum. Stöð 2 sýnir t.d. teiknimyndir
í hálftíma en myndrokk oftast í kortér.
Það væri mjög gaman ef Stöð 2 eða
sjónvarpið sýndu t.d. hryllingsmynd-
ina Fluguna en hún ætti að hrista
dálítið upp í fólki, ekki veitir af. Það
vantar einmitt meira af svona glænýju
fersku myndefni sem fólk nennir og
vill sitja yfir. Educating Rita er til að
mynda mynd er ekki ætti að valda
neinum vonbrigðum.
Með von um úrbætur.
Það vantar meira af unglingamyndum á báðar sjónvarpsrásirnar, krassandi
myndir eins og t.d. Fluguna og fyndnar eins og Educating Rita sem er alveg
stórgóð mynd.
Skjót viðbrögð
þökkuð
Hafþór Jónsson skrifar: óskir okkar varðandi úrhætur á
í blaðaviðtali, sem haft var við umræddum stað.
lirej'fihamlaða dóttur rnína í Morg- Ekki lét hann það við sitja heldur
unblaðinu hinn 6. maí sl, kom fram kom hann klukkutíma síðar til
að hún ættí í erfiðleikum með að heimilis okkar og bauð mér og dótt-
komast leiðar sinnar í rafknúnum ur minni í ökuferð um hverfið
hjólastól og tilgreindi hún þar sére- jafhframt því sem hann bað dóttur
taklega gatnamótin Rauðalæk- mína að lýsa óskum sínum varðandi
Laugalæk, þ.e. gegnt Kjötmiðstöð- breytingai’ á þeim ökuleíðum sem
inni. hún gjarnan ferðast um.
Orsökin fyrir þessum erfiðleikum Strax næsta dag vora síðan úrbæt-
sagði hún að þar vantaðí tilfinnan- ur hafhar og eru á vel á veg komnar
lega fláa á gangstéttarbrúnimar. þegar þetta bréf er ritað.
Viðbrögð gatnadeildar gatruunála- Þar sem borgatyfirvöld eru oft á
stjóra gagnvarí þessura mnmælum tíðum harðlega gagnrýnd fyrir þá
dóttur minnar voru með eindæmum hluti sem miður fara varðandi ferli-
skjót og jákvæð, því hinn 11. maí mál fatlaðra, og það oft með réttu,
hringir maöiu- frá gatnadeildinni tel ég mér bæði ljúft og skylt að
heim til okkar og spyrst fyrir um vekja athygli á því sem vel er gert.
FJariægið girðinguna
við Hvassaleitisskóla
Áhyggjufullt foreldri hringdi:
Eins og fram hefur komið í fréttum
hafa ung skólaböm orðið fyrir kyn-
ferðislegri áreitni í skjóli þessarar
girðingar.
Þar sem ekki hefúr tekist að hafa
uppi á manninum sem stundar þennan
ósið þá liggur náttúrlega beinast við
að fjarlægja girðinguna svo þetta verði
opið svæði þar sem allir greina hvað
fer fram.
Það er alveg vitað mál að það á eft-
ir að reynast erfitt að finna manninn
þar sem hann er í felum núna fyrst
það er búið að upplýsa þetta. Það má
bóka það að svona klikkaðir aðilar
eiga eftir að láta sjá sig aftur til að
hrella krakkana og kannski eitthvað
meira og alvarlegra strax og þessi
bóla er hjöðnuð. Þess vegna þarf að
íjarlægja þessa slysagildru áður en það
verður of seint!
Lengri Poppkornsþætti
Ólöf Steindórsdóttir skrifar:
Ég vildi gjaman koma á framfæri
að lengja hinn frábæra þátt Poppkom
um hálftíma.
Hálftími nægir einfaldlega ekki til
að svala þörfum okkar tónlistarunn-
enda. Það er í mesta lagi hægt að ná
fimm lögum á hálftíma og þá er það
búið. Liggur ekki beinast við að lengja
þáttinn um helming, sem sagt klukku-
tíma, og hafa 10 lög, það væri pottþétt.
Og þá er bara að drífa sig í því að
lengja Poppkomsþáttinn.
Frekjan í fullorðna fólkinu!
Inga hringdi:
Ég fór á Djöflaeyjuna á þriðjudaginn
var með tveimur vinkonum mínum.
Áður en sýningin hófst ákváðum við
að fara í sjoppuna sem var í næsta
nágrenni en ein ætlaði að verða eftir
til að passa sætin.
Jú, jú, ég verð eftir og bíð þarna í
mestu ró, þá koma askvaðandi tvær
kerlingar og hlassa sér í sætin sem
voru frátekin.
Ég sagði þeim eins og var að þessi
sæti væm frátekin fyrir vinkonur mín-
ar sem skruppu smástund út í sjoppu
og að þær kæmu von bráðar.
Iss, það var ekki hlustað á mig frek-
ar en ég væri ekki til. Það bar ekki á
kurteisinni eða tillitsseminni sem
þetta fullorðna fólk er alltaf að predika
fyrir manni, en eins og máltækið segir
„margur heldur mig sig“.
Ég ætla mér ekkert að setja allt full-
orðið fólk undir sama hatt og segja
að það kunni sig ekki, sé frekt og með
yfirgangssemi.
En þessar kerlingar voru bölvaðar
frekjur og ættu að hugsa sig um
tvisvar áður en þær tönnlast á hvað
unglingamir nú til dags séu orðnir
dónalegir.