Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987. 13 Pappakassalýður og koníaksheimspeki Við íslendingar höíum verið þess vafasama heiðurs aðnjótandi undan- farin ár að ala með okkur mann sem hefur verið óþreytandi við að aug- lýsa hugrenningar sínar um lífið og tilveruna. Á meðan blessaður maðurinn sveif í andakt um rangala Oxfordháskóla fengum við reglulega fréttir af íram- ;gangi hans á lífsbrautinni. Þannig fékk þjóðin að vita nær samstundis þegar uppskrúfaður aðalinn í Oxford veitti mannvininum Hannesi aðgang að kaffistofunni sinni. Þar gat frjáls- huginn þefað af menningunni úr koníaksglösum lærifeðranna. Einföld svör Og heim kom lærisveinninn ungi með svo yndislega einfóld svör við tilvistarvanda mannskepnunnar að jafnvel einfóldustu menn gátu skilið. Við snyrtilega dúkuð borð hefur hann síðan setið og skenkt eins og lærimeistarar hans kenndu honum og boðað fagnaðarerindið hveijum þeim sem viljað hefur snæða nestið með honum eins og Kristur gerði forðum. Og eins og áður var sagt er boðskapurinn einfaldur. Henda skal til hliðar öllu því mannlega sem ekki er hægt að mæla vísindalega. Eina mannlega afurðin, sem hægt er að mæla vísindalega, eru pening- ar. Aurastikan skal sett á allar sálir, enda löngu sannað að maðurinn hefur aurasál. Á þeirri forsendu að hver hafi sinn djöful að draga skal hver einstaklingur sjá um sig sjálf- ur. Ef einhveija konu langar mikið til að heQa heilbrigðan atvinnu- rekstur sem hóra þá má ekki skerða einstaklingsfrelsi hennar með því að hindra reksturinn. Ef ungling langar óskaplega mikið í heróín má ekki KjaHaiinn Heimir Már Pétursson nemi fyrir nokkum mun stöðva fjörugan og skapandi ungdóminn. Síst af öllu má svo stöðva forstjóra og hluthafa samsteypanna - sem af göfuglyndi reka hóruhúsin og svara þörfum æskunnar. Frumeðli mannsins, út- sjónarsemi aurasálarinnar, verður að fá að njóta sín. Þessi einmanna drengur hefur einnig farið með hástemmd erindi í Ríkisútvarpinu (samnefnara einok- unar); meira að segja þá raun leggur hann á sig fyrir stórasannleik. Þar leysti hann innflytjendavandamálið í Bandaríkjunum á svo einfaldan og fallegan hátt að mig skyldi ekki undra þótt útvarpshlustendur hafi tárast í hópum af innilegri hrifningu. Þannig var eldmóður frjálshugans sem skilur að einfaldleikinn er kon- ungur fegurðinnar. Landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna skyldu þurrkuð út, þannig að vesæll skríll- inn geti hindrunarlaust gengið yfir í Eden fjármagnsins. Þetta yndislega pappakassahyski, sem skilur hvort eð er ekkert í koníaksheimspeki og enn minna í ensku, grípur fegins hendi hvaða starf sem er. Og vegna óstjómlegs þakklætis til forsjónar- innar er því alveg sama þó að það fái lítið sem ekkert kaup. Með þessu fer svo ein dýrðarkeðja atburða í gang. Pappakassadraslið undirbýður verðið á vinnuafli eða boðið er lægi'a í það og fjöregg mannsins, hagvöxt- urinn, tekur kipp. Hallinn á fjárlög- um Bandaríkjanna hverfur og hinir guðsútvöldu flármagnseigendur tútna út sem aldrei fyrr. H,vílík gleði. hvílíkur klukknahljómur, hvilíkan koníaksilm mun ekki leggja vfir heimsbyggðina. Og pappakassalýð- urinn mun flytja í tveggja hæða „Þessi einmana drengur ...“ pappakassa (sjálfsagt undan kon- íaki). í viðhafnarútgáfu Það er ekki skrýtið að velmektar- menn þessa litla þjóðfélags okkar skuli gapa af forundran yfir þessum snyrtilega syni okkar lands sem get- ur hugsað svona stórt. Enda keppast þeir við að lofa þennan heimssöngv- ara sem stórhuga menn í útlöndum gefa út í viðhafnarútgáfu. Nú geta því frystihúsakonur og verkamenn haft hugrenningar hans á náttborð- inu við hliðina á gömlu Biblíunni. Fyrir rest munu svo allir skilja nauðsyn óáreitts markaðar og heil- brigðra viðskipta. Allir munu skilja að sjúklingurinn verður að bjóða í tæknikunnáttu læknisins og hlíta þar lögmálum hins mikla markaðar. Og menn verða að skilja að vinnu- glaðar hendur þeirra eru misverð- miklar, allt eftir því hvað margar hendur eru í boði. Og hvaða verði sem menn eru svo kevptir verða þeir að vera forsjálir og fjárfesta. því verðið á gömlum og kjúkuberum höndum er alltaf lágt og þá er gott að hafa fjárfest og eiga sjóð í ellinni. Mæður framtiðarinnar munu kenna treggáfuðum sonum sínum og dætrum, að á sama hátt og lundirnar og aðrir góðir bitar af nautinu spjara sig best á markaðinum, en hitt fer í úrkast og hakk, þá fara þeir hæfustu til menntunar en hinir í verksmiðj- umar, og þannig nýtist allar stærðir á markaðinum best. Og úr pappa- kössum borganna mun hljóma hin ljúfa bæn sem frelsari vor og bjarg- vættur nam af spekingum i útlönd- um og kenndi okkur einfóldum: Hlutabréf vor, þið sem eruð á mark- aðinum/ helgist þínir vextir og tilkomi þín ávöxtun/ verði þinn vilji í kauphöll sem á þingi/ gef oss í dag vom daglegan hlut/ og greið upp allar okkar skuldir/ svo sem vér á frjálsum vöxtum skuldir okkar greiðum./ Eigi leið þú oss í samtök heldur frelsa oss frá slíku/ þvi að þín er krónan. dollarinn og pundið/ að eilífu. Mammon. Heimir Már Pétursson „Ef einhverja konu langar mikið til að hefja heilbrigðan atvinnurekstur sem hóra þá má ekki skerða einstaklings- frelsi hennar með því að hindra rekstur- mn. Andlegt ofbeldi Lengi hefur andlegt ofbeldi þótt sjálfsagður hlutur á Islandi og jafn- an í skjóli þess að það er svo erfitt að færa sannanir fyrir því. Samt sem áður er þetta algengasta form of- beldis, sérstaklega í hjónaböndum þar sem tvöföld skilaboð em helsti tjáskiptahátturinn og fallegt yfir- borð skýlir óróleikanum inni fyrir og andrúmsloftið er þmngið spennu þótt hjónin séu oft að drekka kaffi og horfa á sjónvarpið. Bömin verða fómarlömb þessarar spennu sem þau skilja ekki og taka oft sökina á sjálf sig. Mjög mörg heimili þjást vegna þess að ákveðnir einstaklingar kunna ekki að tjá sig öðruvísi vegna bældra tilfinninga en með því að beita andlegu ofbeldi. Mörg börn sitja uppi með meingallaða sjálfsí- mynd vegna þess hvað foreldrar þeirra eiga erfitt með að ná til þeirra með eðlilegum hætti. Þessi eðlilega þörf til að sýna sínum nánustu hlýju og umhyggju verður síðan það bæld og aðþrengd að hún kemur út m.a. í kynferðislegum tilhneigingum. Sjálfskaparvíti Það sem e.t.v. einkennir fórn- arlömb andlegs ofbeldis er óöryggi umfram annað. Fómarlömbin eiga oft erfitt með að leita að eðlilegum tengslum við annað fólk vegna þess að andlega ofbeldið, sem það var beitt, var aldrei sannanlegt og fóm- arlambið á erfitt með að greina á milli þess sem er gott og vont því dómgreind foreldranna var yfir allan vafa hafin. Mörg böm lenda í því að leita stöðugt uppi neikvæða at- hygli, oftast vegna feðra sem ekki kunnu að sýna tilfinningar og mæðra sem þjáðust af sama ástleysi vegna þess. Það sem e.t.v. verður því fólki, sem nálgast annað fólk með KjaUaiinn Magnús Einarsson nemi andlegu ofbeldi. verst er sektar- kenndin, þessi sektarkennd verður oft svo sterk að viðkomandi missir allt vald á sjálfum sér og reynir að ná til fólks, aðallega sinna nánustu, eins og lítið barn. Fómarlömbin eiga oft mjög erfitt með að skilja á milli raunveralegrar hlýju og falskrar og lenda oft í þvi sjálfskaparvíti að elta falska hlýju vegna þess að sársaukinn verður þess valdandi að viðkomandi þora ekki að horfast í augu við hann. Sársaukinn verður einfaldlega of mikill. Einkenni andlegs ofbeldis Hvað einkennir andlegt ofbeldi? Viðkomandi persóna á erfitt með að skilgreina sitt sjálf. á erfitt með að ná til fólks. tala við annað fólk og sérstaklega að horfast í augu við annað fólk. heldur reynir hún að nálgast fólk með því að látast vera bam svona eins og til að firra sig ábyrgð á eigin sjálfi. Og eins til þess að hafa þau forréttindi að nálgast bömin sín eins og bam. Oft lenda því böm þessara foreldra í tilfinn- ingalegu foreldrahlutverki gagnvart viðkomandi og finnst þau þurfa að bera ábyrgð á sérþörfum foreldris- ins. Þetta hefur orðið mörgu baminu ævilangur baggi og eins verður for- eldrið hneppt í viðjar stöðugrar sektarkenndar. Þessi hlutverk. sem oft myndast fljótt á uppvaxtarskeiði bamsins, verða því mjög erfið og vandræðaleg þegar börnin vaxa úr grasi og þurfa að fara að bera ábyrgð á eigin tilfinningum. Þetta leiðir oft til þess að bömin eiga erfitt með að halda eðlilegum tengslum við heim- ili sitt eftir að þau flytja að heiman. Dæmi um fjölskyldumynstur þar sem andlegt ofbeldi viðgengst og er orðið allt að því heilagt vegna þess sársauka, sem það hefur skapað, og hindrað alla meðlimi fjölskyldunnar í að breyta ástandinu vegna þess hversu það er erfitt að horfast í augu við sviðann. Hlutverk fyrirvinnunnar Oftast er það karlmaðurinn. faðir- inn. sem ekki hefur jafngott tækifæri til að nálgast börnin sín og konuna sína vegna vinnu og vegna gamalla. úreltra. hefðbundinna kynhlutverka imi að karlmaðurinn eigi annars vegar að vera fyrirvinna og hins vegar hrúgan í hægindastólnum. Þegar um hægist í vinnunni og mað- urinn hefur ekki lengur sömu markmið og sömu stöðu og áður og aldurinn færist yfir er líklegt að maðurinn, sem áður hafði hlutverk fyrirvinnunnar, hafi nú ekki annað hlutverk en að vera hrúga í stólnum og ver það hlutskipti með því að gera sig bamalegan. Oft er hlutverki bamsins bókstaflega þrengt upp á manninn vegna þess að þörf konunn- ar fyrir barn er sterk og vegna þess að uppkomin börn hans umgangast hann eins og barn. Einhvers staðar í þessu ferli verður til andlegt ofbeldi þar sem einhverjir verða að taka út niðurlægingu mannsins yfir þvi að vera bam gagn- vart konunni sinni og hann yfirfærir niðurlægingu sína vfir á einhverja nána ættingja með stuðningi konu sinnar sem vill vitaskuld hafa mann sér við hlið. Niðurlæging mannsins samfara sektarkenndinni verður síð- an oft til að brjóta viðkomandi niður. Hvemig er síðan hægt að hjálpa viðkomandi? Það hlýtur náttúrlega að gefa augaleið að fjölskvldan verð- ur að taka ábyrgð á þessu vandamáli áður en það skaðar. Það er hins vegar oft svo að þó að brýn þörf sé á aðstoð reynist það erfiðara en sýn- ist þar sem sársauki viðkomandi aðila verður eins konar vítahringur sem bindur fjölskvlduna saman og öll tengsl íjölskyldumeðlimanna era oft þess eðlis að allar breytingar hefðu i för með sér mjög miklar breytingar á allri fjölskyldugerðinni. Þetta verður oft mjög sársaukafullt og kostar mikla erfiðleika meðan á stendur. Allar breytingar kosta hins vegar erfiðleika en það hlýtur að vera þess virði til þess að fjölskyldan geti ve- rið ánægð og tekist á við dagleg mál án þess að sársaukinn og sorgin setji svip sinn á allt daglegt líf fjölskyl- dunnar. Magnús Einarsson. „Mörg börn lenda í því að leita stöðugt uppi neikvæða athygli, oftast vegna feðra sem ekki kunnu að sýna tilfinning- ar og mæðra sem þjáðust af sama ástleysi vegna þess.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.