Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987. Utlönd Genscher, utanrikisráöherra V-Þýskalands, hefur margoft lýst því yfir að þjóðin hafi ekki efni á að vera með sérafstöðu eins og Wörner varn- armálaráðherra (t.v. á myndinni) heldur uppi. Hún standi beinlínis í vegi fyrir friðarumleitunum í heiminum. Samstaða rikir um stórvægilegan niðurskurð á langdrægum kjarnaflaugum. Það er um meðaldrægu kjarna- flaugarnar sem deilurnar i Vestur-Þýskalandi standa. V-Þjóðverjar tefja afvopnunaivíðræðumar Ketilbjöm Tryggvason, DV, V-Berlin; Á fúndi vamarmálaráðherra Natóríkja, sem haldinn var í Sta- vangri í Noregi nú í seinustu viku, kom enn einu sinni í ljós að það er í augnablikinu vestur-þýska ríkis- stjórnin sem tefur sameiginlega afetöðu hins vestræna heims til af- vopnunartillagna Gorbatsjovs Sovétleiðtoga. Fundurinn, sem upphaflega átti að marka afstöðu ríkjanna til hinnar svokölluðu tvöföldu núlllausnar, leiddi lítið af sér og á fréttamanna- fundi í lok viðræðnanna sagði Carrington lávarður, framkvæmda- stjóri Nató, að ástæðan fyrir þessari tregðu væri sú að einhverjar ríkis- stjómir ættu ennþá eftir að marka stefnu sína í þessum málum. Það fór ekki framhjá neinum að Carrington átti við stjóm Vestur-Þýskalands í þessu sambandi. Álitshnekkir Þessi tegða Vestur-Þjóðveija við að gefa út yfirlýsingu um stefnu sína hefur valdið stjóminni töluverðum álitshnekki að undanförnu og sætir hún mikilli gagnrýni úr öllum áttum, bæði hér heima fyrir og víða erlend- is frá. Staðreyndin er sú að Vestur- Þýskaland hefur að undanfömu verið eins konar leiðandi afl meðal vestrænna Evrópuríkja í vamarmál- um og bíða stjómir þjóða eins og Frakklands og Bretlands beinlínis eftir afstöðu vestu-þýsku stjómar- innar áður en þær sjálfar vilja tjá sig endanlega um málið. Af tvöföldu núlllausninni er það einungis annað núllið sem allt málið snýst um hér í Vestur-Þýskalandi. Um stórlegan niðurskurð á lang- drægu kjamaflaugunum (yfir 1000 kílómetra) em svo til allir sammála. Það er hitt núllið, það er að segja meðaldrægu kjamaflaugarnar (500- 1000 kílómetra), sem allt fjaðrafokið stendur um. Tortryggnir Vestur-Þjóðveijar em mjög tor- tryggnir vegna hemaðarlegrar mikilvægrar stöðu sinnar í Mið- Evrópu. „Við erum náttúrlega einnig fylgjandi niðurskurði á með- aldrægum eldflaugum en áður en við nálgúmst núllið í þessu máli þá verð- ur fyrst að taka til athugunar hið mikla misræmi sem er á milli Nató og Varsjárbandalagsins á hinum hefðbundna hemaðargeira og á sviði efnavopna." Þessi orð Wömers, vamarmálaráðherra Vestur-Þýska- lands, lýsa ágætlega stöðu Vestur- Þjóðveija eða öllu heldur afstöðu flokks Wömers og Kohls kanslara, kristilegra demókrata, í þessum af- vopnunarumræðum. Víglína Vestur-Þýskaland er það land hér í Vestur-Evrópu sem er hvað mikil- vægast hemaðarlega séð með tilliti til hefðbundinnar styrjaldar. Ef þannig stríð brytist út myndi landið, að mati hemaðarsérfræðinga Wöm- ers og flokksmanna hans, ósjálfrátt verða víglína styrjaldarinnar. Með- aldrægu kjamaflaugamar hafa hingað til þjónað sem eins konar vopn gegn þessari hefðbundnu styrj- öld og því myndi, að mati þessara sömu manna, styijaldarhættan vaxa í stað þess að minnka við það að fækka þessari gerð kjamaflauga. Einnig benda þessir sérfræðingar, og þar em sérfræðingar Nató sam- mála þeim, á þá staðreynd að Sovétmenn og hemaðarsamherjar þeirra eru mun betur útbúnir í öllum vopnaflokkum sem flokkaðir eru undir 500 kílómetra drægni. Með því að fækka meðaldrægu kjamaflaug- unum væri því verið að gefa Sovét- mönnum og bandamönnum þeirra hemaðarlega yfirburði f Evrópu. Deilur Ekki eru þó allir sammála um þetta mál innan ríkisstjómarflok- kanna þriggja. Standa deilurnar aðallega á milli utanríkisráðherrans Genschers og Wömers vamarmála- ráðherra. Genscher hefur margoft lýst því yfir að þrátt fyrir sérstöðu Vestur-Þýskalands hafi þjóðin ekki efni á því að vera með sérafstöðu í þessu máli eins og Wömer vamar- málaráðherra heldur uppi því þar með stæði hún beinlínis í vegi fyrir friðarumleitunum í heiminum. Wömer heldur hins vegar fast í þá afstöðu sína að afvopnun þurfi ekki endilega að þýða meira öryggi í heiminum og um það er kanslarinn honum sammála. Óvænttillaga Nú á fóstudaginn kom kanslarinn fram með óvænta tillögu í sambandi við afvopnunarumræðumar. Tekur hann algjörlega mið af afstöðu sam- flokksráðherra síns, Wömers. Það væri nauðsynlegt fyrir lönd Evrópu og þá sérstaklega fyrir Vestur- Þýskaland að breikka ennþá meir umræðugrundvöllinn við þessar af- vopnunarviðræður. Það væri því sérstakt áhugamál sitt að taka einn- ig með inn í umræðumar öll vopn sem drægju frá 0 upp í 1000 kíló- metra en ekki bara meðaldrægar og langdrægar kjamaflaugar eins og hingað til hefði staðið til heldur einnig skammdrægar kjamaflaugar, hefðbundin vopn og efhavopn. Mlilega brugðið Mörgum brá illilega í brún við þessa tillögu kanslarans því þeim þótti að þama væri kanslarinn óbeint að lýsa því yfir að hann væri á móti tvöföldu núlllausninni. Með því að breikka umræðugrundvöllinn um þessi atriði væri óbeint verið að gera út um afvopnunarumræðumar því þær væm þá orðnar svo viða- miklar að ekki væri lengur hægt að tala um hægfara afvopnun heldur væri hér um að ræða hina fullkomnu núlllausn sem fæstir hafa trú á að hægt sé að ná í einum áfanga. Seinna reyndu blaðafulltrúar kanslaraembættisins að draga úr þessari yfirlýsingu kanslarans. Sér- staklega þegar sýnt var að utanríkis- ráðuneytið vissi ekkert um þessa nýju hugmynd og ekkert samráð hafði verið meðal stjómarflokkanna um hana. Sagt var að kanslarinn væri síður en svo á móti tvöföldu núlllausninni. Hann vildi miklu frekar með þessum orðum sínum sýna viðleitni til að finna einhveija lausn sem allir, og þá sérstaklega Evrópubúar, gætu sætt sig við. Kosningahræðsla Þegar sú staðreynd er skoðuð að þessa sömu helgi, eða nú á sunnu- daginn, fóm fram þingkosningar í tveimur sambandslöndum Vestur- Þýskalands þá má taka undir það sem margir fjölmiðlar hérlendis hafa haldið fram að kanslarinn hafi með þessari yfirlýsingu sinni reynt að hnoða saman einhverri yfirlýsingu vegna kosningahræðslu. Þannig væri ekki hægt að nota það á stjóm- arflokkana í lokakosningabarátt- unni að þeir létu veröldina bíða eftir sér í jafrimikilvægu máli. Þama er samt greinilegt að kansl- aranum hefur mistekist því ljóst er að engin samstaða er innan ríkis- stjórnarinnar um þessa nýju hugmynd og má því reikna með að einhver bið verði í viðbót áður en niðurstaða fæst í þessu máli hér í V estur-Þýskalandi. Mörgum brá illilega i brun við tillögu Kohls kanslara á föstudaginn í sambandi við afvopnunarviðræðurnar. Sagði hann að það væri sérstakt áhugamál sitt að taka einnig inn í umræðurnar skammdrægar kjarnaflaug- ar, hefbundin vopn og efnavopn. Þótti þessi yfirlýsing óbeint vera að gera út um afvopnunarviðræðurnar. Blaðafulltrúar kanslarans reyndu siðar að draga úr þessari yfirlýsingu hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.