Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987. 11 Verkfalli lögreglu- manna í Lima lokið Lögreglumenn í Perú bundu í morgun enda á fjögurra daga langt verkfall sitt og sögðust hafa náð markmiðum sínum eftir að forseti landgjins og ríkisstjórn samþykktu um eitt hundrað prósent hækkun launa þeirra. Að sögn heimilda á sjúkrahúsum í Lima, höfuðborg Perú, lét að minnsta kosti einn maður lifið í átökum sem tengdust verkfalli lögreglumann- anna. Stjórnvöld í Lima kölluðu til sveit- ir úr her landsins til þess að halda uppi lögum og reglu í höfuðborg- inni, meðan verkfall lögreglumanna stóð, svo og til þess að einangra verk- fallsmenn og standa yfir þeim vörð. Alan Garcia, forseti Perú, lét í gær hernum í hendur fullt umboð til þesss að sjá um framfylgd laga í höfuð- borginni og veitti þeim heimild til þess að nota hverjar þær aðferðir sem nauðsynlegar kynnu að reynast til þess að koma lögreglumönnum út úr byggingum sem þeir höfðu lagt undir sig. Lögreglumennirnir höfðu krafist allt að átta hundruð prósent launa- hækkunar. Með þverslaufu og gamaldags skoðanir Nýr frambjóðandi demókrata Ólafur Amarson, DV, New York Paul Simon, öldungadeildarþing- maður frá Illinois, lýsti því yfir í gær að hann myndi gefa kost á sér í fram- hoð til forsetaembættis fyrir demó- krataflokkinn á næsta ári. Simon er gamaldags demókrati og er sagt að framboð hans sé prófsteinn á það hvort þverslaufa og gamaldags skoðanir séu enn í tísku. Simon hefur hvorttveggja. Hann er élstur þeirra sem enn hafa gefið kost á sér fyrir demókrata, 58 ára. Hann er giftur, tveggja bama fað- ir og mótmælendatrúar. Simon lauk aldrei háskólaprófi og færi svo að hann yrði kosinn forseti yrði hann fyrsti forsetinn, frá því Truman sat á stóli, sem væri án háskólamenntunar. Á sínum yngri árum var Simon blaðamaður og hann hefur skrifað nokkrar bækur. Árið 1974 var hann kjörinn í fulltrúadeild Bandaríkja- þings og árið 1984 varð hann öldunga- deildarþingmaður. Simon er trúr eyðslustefnu Frank- lins Roosevelts og telur að það sé hlutverk ríkisins að hafa forystu um atvinnuupphyggingu að einkafram- takið eigi heima þar sem ríkið getur illa sinnt hlutverki sínu. Hann státar af því að hafa ávallt greitt atkvæði gegn skattalækkunum á ferli sínum sem þingmaður. Þetta eru vissulega gamaldags skoðanir og talið er mjög ólíklegt að Simon hreppi útnefningu demókrata. Demókrataflokkurinn reynir nú ákaft að má af sér þann stimpil að hann sé gamaldags og úrelt- ur. Simon er nú i þriðja sæti meðal demókrata með 6 prósent fylgi. I fyrsta sæti er Jesse Jackson með 17 prósent og í öðru sæti er Michael Dukakis, ríkisstjóri Massachusetts ríkis. með 11 prósent. Orsakir slyssins ókunnar Talsmaður rannsóknamefndar sovéskra stjómvalda sagði í gær að enn væri ekkert vitað um orsakir slyssins, sem varð í kolanámu í Úkraínu síðastliðinn laugardag, en mikil gassprenging varð þá í nám- unni. Talsmaðurinn sagði að öryggis- tæki hefðu ekki gefið neina viðvörun um yfirvofandi hættu fyrr en fáein- um sekúndum áður en sprengingin varð. Ekki hefur verið sýnt fram á að neinar öryggisreglur hafi verið brotnar í námunni. Ekkert hefúr enn verið gefið upp um fjölda látinna eða slasaðra í slys- inu, þrátt fyrir að flölmiðlar eigi að hafa frjálsari aðgang að slíkum upp- lýsingum nú en verið hefur, sam- kvæmt umbótastefnu þeirri sem sovésk stjómvöld nú reka. Achille Lauro-dómum áfiýjað Magied Al Molqui og Ibraim Fatair Aboelatif, tveir ræningjanna sem rændu farþegaskipinu Achille Lauro á Miðjarðarhafi árfð 1985, fyrir rétti í gær. Simamynd Reuter Málflutningur vegna áfrýjunar 1985, hófust í Genúa á ítalíu í gær. dóma yfir tveim Palestínumönnum, Lögfræðingar Palestínumannanna, sem áttu hlut að ráni farþegaskipsins þeirra Magied A1 Molqui og Ibraim Achille Lauro á Miðjarðarhafi árið Fatair Aboelatif, kröfðust við upphaf málflutnings að efnt yrði til nýrra rétt- arhalda yfir skjólstæðingum sínum þar sem formgalli hefði verið á upp- runalegu réttarhöldunum. I upprunalegu réttarhöldunum í málinu vom ellefu af finmitán sak- borningum sakfelldir en fjórir vom hreinsaðir af ákænmi. Fjórir palestínskii' hermdai-verka- menn tóku farþegaskipið Achille Lam'o með vopnavaldi í októbennán- uði árið 1985. Þeir héldu farþegum og áhöfn skipsins í gíslingu í fjóra daga en gáfu sig síðan á vald egypskra vfir- valda. Meðan á ráninu stóð myrtu ræningj- amir einn bandarískan farþega skips- ins. bæklaðan mann. Bandarískar ormstuþotur þvinguðu síðai' farþegaflugvél. þar sem ræningj- amir voru farþegar imi borð, til þess að lenda á Ítalíu og vom þeir hand- teknir þar. Utlönd Lögreglumenn í Líma, höfuðborg Perú, fagna nú sigri og snúa að nýju til starfa eftir nokkurra daga verkfail. Símamynd Reuter Erfiðara að fá „au pair“ vist Ólaíur Amarson, DV, New York: Nýju innflytjendalögin hér í Banda- ríkjunum virðast ætla að hafa áhrif á hag fleiri en aðeins innflytjenda frá Suður- og Mið-Ameríku. Um nokkurt skeið hefur það tíðkast hjá millistéttarfjölskyldum í Banda- ríkjunum að hafa ,.au pair" stúlkur frá Evrópu um lengri eða skemmri tíma. Hafa stúlkur farið á venjulegri ferða- mannavegabréfsáritun til Bandaríkj- anna. vfirleitt til vetrarlangrar dvalar. Með slíka áritun hafa þær ekki haft leyfi til að starfa í Bandaríkjunum en frjálslega hefur verið farið með það ákvæði innflytjendalaganna. Samkvæmt gömlu lögunum vom það einungis stúlkumai' sem voru brotleg- ar við lög. Ef upp um þær komst var þeim umsvifalaust vísað úr landi. Það var hins vegar ekki ólöglegt fyrir bandaríska ríkisborgara að ráða jjær í vinnu. Samkvæmt nvju lögunum. sem taka gildi þann 1. júní næstkomandi, verður ólöglegt fyrir bandaríska ríkisborgara að ráða stúlkur með ófullnægjandi vegabréfsáritun í vinnu. Viðiulögin verða allt að fjögur hundmð þúsund króna sekt. Má því búast við að erfið- ara verði rnn vik en áður fyrir íslen- skar stúlkur að komast til „au pair“ vistar í Bandaríkjunum. KERTAÞRÆÐIR í passandl settum. Leiðari úr stálblöndu. Sterkur og þolir _______. að leggjast I kröppum beygjum. Við- / - ném aðeins 1/10 af viðnámi kolþráða. Margföld naistagœði. y/* Kápa sem deyflr truflandi rafbylgjur. SKEIFUNNI5A, SIMI: 91-8 47 88 Við vinnum fyrir þig Við komum með gáminn til þín og þú gengur frá vörunni í hann eins og þú vilt. Við sækjum gáminn til þín aftur og komum honum um borð í Ríkisskip. Það er ástæðulaust að gera einfalt mál flókið. Komdu og kynntu þér gámaþjónustu okkar. Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, ® 28822 NÚTÍMA FLUTNINGAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.