Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SÍMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð i lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Hún spillti góðærinu Hin litla stjórn, sem var á fjármálum ríkisins, hefur horfið eftir kosningar. Áætlanir um fjárlagahalla ársins eru komnar upp í fjóra milljarða, sem þýðir, að raun- verulegur þensluhalli ríkisins fer upp í sex milljarða á þessu ári. Báðar tölurnar eru uggvænlegar. Gælur við hugmyndir um skaðleysi ríkishalla eru til marks um uppgjöfina í baráttunni gegn hallarekstri ríkissjóðs. Hið eina vitlega í þeim gælum er, að ill- skárra er að stofna til ríkisskulda innanlands en á erlendum markaði. Samt sem áður er það slæmt. Ríkishalli er sérstaklega hættulegur, þegar mikil þensla er í þjóðfélaginu, - þegar verkefni þjóðarinnar eru meiri en starfskraftar hennar. Þetta er sjaldgæft fyrirbæri í umheiminum, þar sem hagfræðikenningar eru samdar, en algengt hér á landi, sem betur fer. Við slíkar aðstæður er mikilvægt, að ríkið haldi sín- um eigin verkefnum í skefjum til að vega á móti þenslunni. Með þeim hætti nýtast kraftar þjóðarinnar bezt til sóknar í atvinnulífinu, án þess að veruleg hætta sé á, að spennan leiði til vaxandi verðbólgu. Undir núverandi stjórn fjármála ríkisins hefur hins vegar verið stefnt í þveröfuga átt. Hinn mikli og vax- andi halli á rekstri ríkisins hefur magnað þensluna og er langstærsta orsök þess, að verðbólgan er byrjuð að leika lausum hala á nýjan leik og stefnir til skýja. Þorsteinn Pálsson hefur sér til forláts að hafa í far- teskinu ráðherra á borð við Sverri Hermannsson, sem hækkar afnotagjald Ríkisútvarpsins um 67% í einu vet- fangi, og Jón Helgason, er semur við landbúnaðinn um, að ríkið ábyrgist 28 milljarða á fjórum árum. Það er samt verkefni fjármálaráðherra að reyna að halda aftur af samráðherrum sínum, sem eru allra manna örlátastir á annarra fé. Þetta hefur illa tekizt, síðan Þorsteinn varð fjármálaráðherra, og alls ekki nú eftir kosningar, þegar allt rekur á reiðanum. Hinn mikli halli á ríkisrekstrinum margeflir þensluna í þjóðfélaginu. Hallinn og þenslan hafa þegar leitt til launaskriðs á almennum vinnumarkaði og hárra samn- inga við ýmsa opinbera starfsmenn. Verðbólgan nú í maí er komin yfir það, sem hún átti að verða í september. Öðrum hvorum megin við síðustu áramót hætti verð- bólgan að stefna niður á við, þegar hún var farin að nálgast siðmenningarlega eins stafs tölu. Nú er hraði hennar kominn upp undir 20% og stefnir hraðbyri upp fyrir 30% í árslok. Þetta stafar af ríkishallanum. Þessi afturför skiptir öllu máli í umræðum um ríkis- hallann. f ljósi hennar er skammsýnt að gæla við kenningar um, að þjóðin skuldi ríkinu meira en ríkið þjóðinni, og gæla við óstaðfærðar tilgátur um, að lán- tökur ríkisins innanlands valdi ekki verðbólgu. Við sjáum vaxandi ríkishalla leiða til vaxandi sam- keppni,^ ekki bara um starfskrafta, heldur einnig um lánsfé. í bönkunum hefur myndazt útlánahalli og gagn- vart útlöndum hefur myndazt viðskiptahalli. Þetta mun fljótlega leiða til hækkunar á háum vöxtum. Fyrstu mánuði ársins þurftum við að þola ríkis- stjórn, sem reyndi að kaupa sér atkvæði með gjafmildi á annarra fé. Eftir kosningar þurfum við að þola sömu stjórn, sem þykist nú alls ekki þurfa að stjórna, af því að hún sé bara að passa sjoppuna fyrir næstu stjórn. Niðurstaðan er að verða sú, að ríkisstjórnin skilji ríkisfjármálin eftir í mun verra ófremdarástandi en var, þegar hún tók við. Hún hafi spillt góðærinu. Jónas Kristjánsson „Ef fjórflokkarnir ætla að ná vopnum sinum verða þeir því að standast það próf sem þeir gangast nú undir.“ FJórflokkakerfið í vorprófi Úrslit kosninganna í vor eru með ýmsum hætti mjög óhefðbundin. í fyrsta lagi er þetta í fyrsta skipti sem klofhingsframboð úr Sjálfstæðis- flokknum nær að festa rætur. í öðru lagi er þetta í fyrsta skipti sem nýtt framboð - Kvennalistinn - nær þeim árangri að bæta við sig þingmönnum og fylgi. Líftími nýrra framboða hef- ur hingað til verið mjög skammur; Kvennalistinn biýtur þá reglu. í þriðja lagi breyttust svo í kosning- unum valdahlutföllin milli fjórflokk- anna þannig að Alþýðubandalagið er orðið minnsti flokkurinn. Sterkt framboð forseta ASÍ í þriðja sæti á framboðslista Alþýðubandalagsins í Reykjavík fékk engu breytt um þau úrslit. Alrangt er þó að túlka úrslit- in sem áfall fyrir verkalýðshreyfing- una. Kosningaúrslitin og enn fremur skoðanakannanir um hvaðan fylgi flokkanna er runnið sýndu að verka- fólk kaus að þessu sinni önnur framboð en framboð Alþýðubanda- lagsins. Það kaus m.a. framboð Alþýðuflokksins og tryggði þannig verkalýðsforingjunum Karveli Pálmasyni og Karli Steinari Guðna- syni góða kosningu og örugg þing- sæti. Kosningaúrslitin verða því með engu móti túlkuð sem áfall eða ósig- ur fyrir verkalýðshreyfinguna enda þótt Alþýðubandalagið hafi ekki náð betri árangri en raun ber vitni. Flokkurinn verður að leita annarra skýringa á óförum sínum og sinna frambjóðenda. Nærtækasta skýring- in er að sjálfsögðu sú að kjósendur og þá fyrst og fremst launafólkið var ekki reiðubúið til þess að styðja þá steínu, sem framboð Alþýðubanda- lagsins stóðu fyrir. Kosningar eru nefiiilega kjarabarátta eins og Lúð- vík Jósefsson svo réttilega sagði árið 1978. Vandi fjórflokkanna Enda þótt vandi Alþýðubandalags- ins sé sennilega hvað mestur þegar litið er á stöðu fjórflokkanna ag kosningunum loknum eiga gömlu flokkamir allir einu sameiginlegu vandamáli að mæta - nefnilega því að í fyrsta skipti virðist það vera að gerast að górflokkakerfið sé að riðl- ast og til sögunnar séu að koma nýir og varanlegir framboðsaðilar. Hvorugur hinna nýju flokka og framboða boðar markverðar nýjung- ar. Allt það sem þeir hafa að segja höfum við heyrt oft áður frá fjór- flokkunum. Tilvist nýju framboð- anna er þvi ekki til marks um ný viðhorf í pólitíkinni heldur miklu fremur til merkis um að kjósendur í landinu séu að glata trúnni á að fjórflokkamir nái árangri og vilja því reyna eitthvað nýtt - ekki nýja stefnu, því hún hefur ekki verið boð- uð, heldur ný nöfir til þess að takast á við þau viðfangsefni sem fjórflokk- amir hafa lengi rætt en ekki getað leyst af hendi. Fjórflokkarnir í prófi Á sama tíma og skólanemendur ganga undir sín vorpróf gangast því KjaUarinn Sighvatur Björgvinsson alþingismaöur Qórflokkarnir einnig undir próf hjá þjóðinni og árangur þeirra í prófinu getur ráðið úrslitum um hvort fjór- flokka- eða fjölflokkakerfi verður við lýði á íslandi næstu áratugina. Þama á ég auðvitað við stjómar- myndunarviðræðumar sem standa yfir. Allar götur síðan eftir kosning- amar 1978 hafa stjórnarmyndanir tekið afskaplega langan tíma og hvað gerst hefúr á þeim langa bið- tíma; hvað menn hafa sagt og hvemig þeir hafa haldið á málum, hefur ekki orðið til þess að auka traust manna og tiltrú á fjórflokkun- um heldur þvert á móti. Ef þessir flokkar ætla að láta sömu atburðina endurtaka sig nú; formenn flokk- anna ætla að láta stjómarmyndun- arboltann ganga eins og boðhlaúps- kefli á milli sín vikum saman á meðan flokkamir þvælast hver fyrir öðrum með tilheyrandi yfirlýsingum og umsögnum mun enn lækka á gömlu flokkunum risið í augum fólksins í landinu. Það er vísasti vegurinn til þess að stuðla að fjöl- flokkakerfi því þar með grafa gömlu flokkamir enn frekar en orðið er undan áliti sínu og áhrifum. Engan leikaraskap Við þessar aðstæður hafa gömlu flokkamir því engin efni á því að vera með leikaraskap og útúrbom- hátt. Það má vel vera að í augum þeirra allra sé enginn kostur góður og að til þess að hægt sé að ljúka málinu verði menn fyrst að leiða í ljós að það sé ekki hægt sem ekki er hægt. Slíkar leikfléttur eru þó miklu frekar í þeim tilgangi gerðar að friða stjómmálamennina en fólk- ið í landinu sem hefur takmarkaða þolinmæði til þess að bíða eftir því að stjómmálamennimir friði sjálfa sig og alls enga ef tíminn líður og fólkið fær á tilfinninguna að leikinn sé hráskinnaleikur fremur en af al- vöm. Fólkið er nefnilega miklu fúsara til þess að sætta sig við hverja þá ríkisstjóm sem meirihluti getur náðst um en foringjarnir. Það kenn- ir sagan okkur. Ef fjórflokkamir ætla að ná vopn- um sínum verða þeir þvi að standast það próf sem þeir gangast nú undir. Og það er ekki nóg að þeir berji saman einhverja stjóm einhvern tíma. Þeir verða, ef þeir ætla að auka álit sitt með þjóðinni, að ná þeim árangri á sem skemmstum tíma og án þess að tefja sig á því að leita hafhar í sérhverri krummavík á leið- inni þar sem engin hafnaraðstaða er, aðeins til þess að geta friðað sig með því að hafa alls staðar stungið við stafni. Sighvatur Björgvinsson. ,,Á sama tíma og skólanemarnir ganga undir sín vorpróf gangast því fjórflokk- arnir einnig undir próf hjá þjóðinni og árangur þeirra í prófinu getur ráðið úr- slitum um hvort fjórflokka- eða fjöl- flokkakerfi verður við lýði á íslandi næstu áratugina.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.